Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.1990, Qupperneq 17
LAUGARDAGUR 20. JANÚAR 1990.
'17
Bridge
Evrópuparakeppni Philips Morris:
Tuttugu og sex þúsund spilar-
ar frá 27 löndum tóku þátt
Hinn 24. nóvember sl. settust 26.000
spilarar að spilaborðinu til þess að
spila sömu spilin í 27 löndum. Keppn-
isformið er Mitchell sem gerir það
að verkum að tvennir sigurvegarar
fást, þ. e. n-s og a-v.
Sigurvegarar í n-s voru frá Spáni,
frú Ferrer og Carrasco, en í a-v par
frá ísrael, Ronen og Keslin.
Bridge
Stefán Guðjohnsen
í lok spilakvöldsins fengu allir
keppendur í hendur bók með öllum
spilunum ásamt einkunnagjöf fyrir
hvert spil og gátu því reiknað út ár-
angur sinn sjálfir. Bókin sjálf er mik-
ill fengur fyrir spilarana því að
bridgemeistararnir Omar Sharif og
Christian Mari hafa fjallað um hvert
spil, bæði sagnir og úrspil.
Við skulum skoða eitt spil frá
keppninni.
S/Alhr
* 9754
V G1065
♦ 4
+ D973
* D
V ÁKD983
♦ 83
+ G1062
♦ AK862
V 72
♦ ÁDG5
+ ÁK
* G103
V 4
♦ K109762
+ 854
Sagnserían, sem þeir félagar mæla
með, er þannig :
Suður Vestur Norður Austur
pass 1 hjarta pass 1 spaði
pass 2hjörtu pass 3 tíglar
pass 4hjörtu pass 4 grönd
pass 5 tíglar pass 5 grönd
pass 6 tíglar pass 6 hjörtu
pass pass pass
Reykjavíkumiót í
sveitakeppni 1990
Seinustu tvær umferðirnar í und-
ankeppni Reykjavíkurmótsins í
sveitakeppni voru spilaðar miðviku-
daginn 17. janúar. Lokastaðan varð
eftirfarandi:
Sæti Stig
1. Flugleiðir..................322
2. Verðbréfam. íslandsbanka....308
3. Tryggingamiðstöðin hf.......303
4. Samvinnuferðir Landsýn......286
5. Jón Þorvarðarson............275
6. Ólafur Lárusson.............273
7. Modern Iceland..............264
8. Delta.......................263
9. Sigmundur Stefánsson........255
10. Símon Símonarson...........250
11. Sveinn R. Eiríksson........244
12. -13. BM Vallá..............231
12.-13. Sigurpáll Ingibergsson.231
14. Júlíus Snorrason...........225
15. Ármann J. Lárusson.........224
16. Guðlaugur Sveinsson........221
17. Gunnlaugur Kristjánsson....219
18. Jörundur Þórðarson.........171
Fjórar efstu sveitirnar spila til úr-
slita um næstu helgi og heíjast úrslit-
in á laugardag, 20. janúar, kl. 13.00.
Spilaðir verða 32ja spila leikir í und-
anúrslitum og þær sveitir, sem sigra
í viðureigninni á laugardag, spila til
úrslita á sunnudag í 48 spila leik sem
hefst kl. 10.00. Leikurinn um 3ja sæt-
ið verður 32ja spila og hefst hann kl.
13.00 sama dag. Á laugardag eigast
við annars vegar Flugleiðir og Sam-
vinnuferðir en hins vegar Verðbréfa-
markaður íslands og Tryggingamið-
stöðin hf. Spilað verður í húsi Bridge-
sambands Islands að Sigtúni 9 og eru
áhorfendur velkomnir meðan hús-
rúm leyfir.
Marga spilara í austursætinu mundi
langa til þess að segja tvo spaða við
einu hjarta makkers en þeir ættu að
vita betur. Það er betra fyrir austur
að nýta sagnrýmið sem best og fá sem
mestar upplýsingar um hendi vest-
urs, bæði hvað varðar skiptingu og
styrk. Þegar vestur svarar fimm
gröndum með sex tíglum þá veit
austur að alslemma byggist í besta
falli á tígulsvíningu og því er óráð-
legt að reyna hana.
Raunar eru sex hjörtu engan veg-
inn pottþétt. Eftir tígulútspil norðurs
verður sagnhafi að tímasetja spila-
mennskuna rétt til þess að vinna
spilið. Vestur drepur á tígulás, tekur
ás og kóng í laufi, fer heim á hjarta-
ás, tekur spaðadrottningu og tromp-
ar lauf. Síðan kastar hann einum tígli
og einu laufi niður í ás og kóng í
spaða. Norður fær síðan einn slag á
tromp en sagnhafi hefir tryggt sér
12 slagi. Stefán Guðjohnsen
Allir þeir, sem greitt hafa laun
á árinu 1989, skulu skila
launamiðum vegna greiddra
iauna á þar til gerðum eyðu-
hlöðum til skattstjóra.
Fresturtil að skiia launamiðum
rennur út 22. janúar.