Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.1990, Side 18

Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.1990, Side 18
18 Veiðivon Stangaveiðiskóli að verða veraleiki? Góður skriður er kominn á að stofna stangaveiðiskóla fyrir veiði- menn á öllum aldri og er málið að skýrast með hverium deginum. Þeir sem hreyft hafa þessu máli eru Magnús Jónasson Orviskóngur og Aðalsteinn Pétursson í Veiðivon. í þessum skóla verður kennt allt sem viðkemur veiðiskap. Hafa þeir fé- lagar leitað að hinum og þessum til að vera með í dæminu. Nokkur stangaveiöifélög, tímarit, innflytj- endur veiðivara og veiðibúðir hafa sýnt þessu merkilega framtaki áhuga. Verður spennandi að sjá hvernig þetta kemur út en Ár- menn, Stangaveiðifélag Reykjavík- ur og Stangaveiðifélag Hafnar- íjarðar hafa unnið frábært undir- búningsstarf meö kastkennslu sinni. Enda munu þessi félög verða á fullu áfram. Veiðimenn hafa mætt í ríkara mæli á námskeiðin núna eftir áramótin. Dýr væri Hafliói allur Verð á veiðileyfum hefur mikið verið rætt síðan við birtum verðið í árnar fyrir fáum dögum. Það verð, sem við fáum uppgefið, er þegar íslenskir stangaveiðimenn renna fyrir laxinn. En verðið þegar út- lendingar renna og hafa leiðsögu- menn er miklu hærra. Það fæst sjaldan uppgefið en við höfum heyrt háar tölur víða. Sé dagur seldur í veiðiá í kringum 40 þúsund á dýrasta tíma fyrir landann kostar hann nokkrum dögum seinna fyrir útlendinga 60-70 þúsund með leið- sögumanni. Það dýrasta sem við höfum heyrt er kringum 75 þúsund í Húnavatnssýslu. Mörgum útlend- Jt_____'.Æ en kannski ekki beint veiðileg en það má allavega kíkja. Næst okkur á DV-mynd G.Bender Laxá í Kjós var tignarleg i vikunni myndinni er Kvislarfossinn. ingum finnst verðið orðið hátt því þeir kaupa oftast heila viku. Veiðidella á háu stigi Veiðidellan getur verið ótrúleg og er það næstum sama hver á hlut. Við fréttum af einum sem liklega hefur farið aðeins yfir strikið. Þessi veiöidellunáungi hefur haft aðgang að veiðiá rétt fyrir utan bæinn. Og í ána hefur hann verið að læðast í nóvember, desember og aðeins í janúar. Hann fékk leyfi hjá kon- unni og ætlaöi í golf. En allt komst upp þegar hann sagðist ætla í golf og var í þrjá tíma, en viti menn, það var erfitt því snjór huldi allan völlinn. Hvernig var þetta hægt? Vinurinn' fór nefnilega í ána og veiddi 3 punda sjóbirting. En út á golfvöll fór hann aldrei þennan daginn. -G.Bender • * .......................................................... LAUGARI)AG,UR 20,, JANÚAR 1990. Þjóðarspaug DV í skammdeginu Lýst eftir drykkju- félaganum Húsasmiður eínn í Reykjavík átti þaö til aö skvetta allrækilega í sig. Stóð drykkja hans gjarnan lengi yfir en er loks rann af hon- um mundi hann lítið eftir því sem gerst hafði á meðan á fylliríinu stóð. Einhveriu sinni henti það hann að fá planka í hausinn og rotast er hann var að vinna við háhýsi hér í borg. Er hann rankaði við sér að nýju voru hans fyrstu orð: „Með hveijum var ég nú að drekka?“ Gott aö þekkja landið Rögnvaldur Pálsson listmálari bauð sig fram til forseta á sínum tíma ásamt Vígdísi Finnbogadótt- ur, Pétri Thorsteinssyni, Guð- laugi Þorvaldssyni og Albert Guðmundssyni. Reyndar dró hann framboð sitt til baka skömmu áður en að kosningun- um kom en hafði engu aö síður ferðast mikið um landið í leit að atkvæðum. Og þegar menn eru á atkvæðaveiðum keppast þeir við að hrósa ýmsum byggðarlögum i hástert og fara þá gjarnan með fleipur eitt í því sambandi. Er Rögnvaldur ferðaðist um Austfiröi var hann oftast vel við skál og vissi sjaldnast í hvaða byggðarlagi hann var staddur. EJ'tir að hann hafði skráð sig á hótelið á Reyðarfirði kvöld eitt vaknaöi hann þar um morgun- inn, gekk niður i matsal, leit út um gluggann og sagði hátt: „Mikið er nú Eskifjörður falleg- ur í svona veðri.“ Finnur þú fimm breytingar? 38 Gæti ég fengið að líta á axlabönd? Nafn:......... Heimilisfang: Myndirnar tvær virðast við fyrst.u sýn eins en þegar betur er að gáð kemur í ljós að á myndinni til hægri hefur fimm atriðum veriö breytt. Finnir þú þessi fimm atriði skaltu merkja við þau með krossi á hægri myndinni og senda okkur hana ásamt nafni þínu og heimil- isfangi. Að tveimur vikum liðnum birtum við nöfn sigurvegara. Vinningar fyrir 38. getraun: 1. Vasadiskó með bassamögnun að verðmæti kr. 5.900. 2. Vekjaraklukka að verðmæti kr. 1.900. Vinningar fyrir 36. og 37. getraun: 1. Elta stereoferðatæki með tvö- földu segulbandi að verðmæti kr. 8.900. 2. Elta útvarpsvekjaraklukka að verömæti kr. 3.500. Vinningarnir eru úr Opus, Skip- holti 7, Reykjavík. Merkið umslagið meö lausninni: Finnur þú fimm breytingar? 38 c/o DV, pósthólf 5380, 125 Reykjavík Sigurvegarar fyrir þrítug- ustu og sjöttu - getraun reyndust vera: 1. Jóhanna Sigfúsdóttir, Heiðarvegi 16, 730 Reyðarfirði. 2. Birna Jóhannsdóttir, Sæunnargötu 11,310 Borgamesi. Vinningarnir verða sendir heim.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.