Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.1990, Qupperneq 20
Nýjar kvikmyndir
War of the Roses:
Rós í hnappagat
LAUGARDAGUR 20. JANUAR 1990.
iiiin ii ii ViiU i J '' ' U' U'i i íi'i f 1
leikafreka leikstýrði hann sjón-
varpsþáttum og var það aðeins
framhald á því sem hann hafði allt-
af gert meðfram leikstarfmu. Hann
tók svo skrefið til fulls þegar hann
leikstýrði Throw Momma From
Your Train, þar sem hann lék einn-
ig annað aðalhlutverkið.
Leikstjórnarferill deVito hefst þó
miklu fyrr eða 1973 er hann ásamt
eiginkonu sinni, leikkonunni Rhea
Perlman, skrifaði og framleiddi 16
mm svart-hvíta kvikmynd, The
Sound Sleeper, sem vann til verð-
launa. Aftur voru þau hjón að verki
1975 þegar þau gerðu undir vernd-
arvæng American Film Institute
kvikmyndina Minestrone sem var
sýnd á kvikmyndahátíðinni í Can-
nes.
Meðan Danny deVito lék í Taxi
leikstýrði hann mörgum þáttum og
Steven Spielberg fékk hann til að
leikstýra einum þætti í þáttaröð-
inni Amazing Stories.
Fyrir sex árum stofnuðu þau
hjónin eigin kvikmyndafyrirtæki,
New Street Productions, og er ætl-
un þeirra að vinna í gegnum það i
framtíðinni. Aðeins tvær sjón-
varpskvikmyndir hafa verið gerðar
á vegum þess, What a Lovely Way
To Spend an Evening (byggð á
reynslu deVito sjálfs á unglingsár-
unum) og The Selling of Vince de-
Angelo og leikstýrði Danny deVito
báðum myndunum.
Það er alveg sama hvar leitað er
upplýsinga um Danny deVito. Allir
eru sammála um að hann sé ein-
hver geðþekkasta manneskja sem
þeir hafa fyrirhitt. Við látum þess-
um greinarstúf um War of the Ro-
ses og Danny deVito ljúka á orðum
James L. Brooks sem er annar
framleiöanda War of the Roses og
hefur þekkt hann síðan þeir unnu
saman að gerð Taxi-þáttanna: „Ég
hef alltaf vantreyst fólki sem í lok
vinnu við kvikmynd talar ekki um
annað en hvað ánægjulegt þetta
var. Danny er eina manneskjan
sem ég þekki sem gerir þessa stað-
hæílngu trúanlega hjá fólki sem
vinnur með honum því að lífsgleði
hans er þvílík að hún smitar út frá
sér til annarra og að vinna undir
hans stjóm getur ekki orðið annað
en gleði.
-HK
Danny deVito hefur lýst nýjustu
kvikmynd sinni War of the Roses
sem kvikmynd um ást, ástríður,
skilnað og húsgögn. Þessi setning
segir dálítið um sérstakan húmor
Danny deVito og fengu kvik-
myndahúsgestir snefil af þeim
húmor í fyrstu kvikmyndinni í
fullri lengd sem hann leikstýrði,
Throw Your Momma From the
Train. Eftir hinar góðu móttökur
áhorfenda sem og gagnrýnenda
sem War of the Roses hefur fengið
eru menn sammála um að deVito
er að koma sér í hóp bestu gaman-
leikstjóra í Bandaríkjunum.
War of the Roses
War of the Roses ijallar um hjónin
Oliver og Barböm Rose sem Mic-
hael Douglas og Kathleen Turner
leika. Við fylgjumst með þeim í
sautján ár. Þau kynnast á skóla-
dansleik, verða strax ástfangin og
framtíðin brosir viö þeim. Oliver
er framúrskarandi nemandi í lög-
fræði í Harvard og Barbara vinsæl
stúlka í háskólanum og keppnis-
manneskja í fimleikum.
Oliver fer aö vinna í lögfræðifyr-
irtæki í Washington þar sem hann
verður fljótt meðeigandi og Bar-
bara gerist húsmóðir. Hennar
vinna felst í uppeldi barna þeirra
tveggja og að hafa matinn til fyrir
bóndann þegar hann kemur heim
úr vinnunni.
Vinna og aftur vinna verður lyk-
illinn að velgengni Olivers í starfi.
Hann sér svo um að eiginkonu sína
vanti ekki neitt, ræður meira aö
segja ráðskonu fyrir hana. Hann
tekur heldur ekki eftir þeirri
óánægju sem grefur um sig í huga
Barböru.
Barbara gerir sig ekki ánægða
með hlutskipti sitt, sérstaklega
þegar bömin eru farin að vaxa úr
grasi og hennar er ekki þörf lengur.
Hún stofnar því eigið fyrirtæki
sem útbýr matarbakka og sér um
veislur. Fyrirtækið nær fljótt að
verða stöndugt og um leið og alls-
nægtimar verða meiri og meiri
fjarlægjast þau hvort annað án
þess að gera sér grein fyrir því.
Eftir sautján ára hjúskap fer Bar-
bara að hugleiöa líf án Olivers og
kemst að þeirri niðurstöðu að það
hljóti að vera stórkostlegt. Hún er
ekki lengi að koma sér aö hlutun-
um og vill skilnað.
Oliver verður steini lostinn og
tekur þessu uppátæki eiginkon-
unnar illa. Sérstaklega þegar Bar-
bara tilkynnir honum að hún vilji
ekki skipta eignum þeirra. Hún vill
ekkert meðlag frá honum. Segir
honum aðeins að hypja sig út af
heimili „þeirra".
Nú byrjar stríðið fyrir alvöru.
Oliver er ákveðinn í að eiginkonan
skuh aldrei fá húsið og hann mein-
ar aldrei!
Hann leitar til besta vinar síns,
Gavin (Danny deVito), sem er lög-
fræðingur og meðeigandi Ohvers í
fyrirtækinu. Hann er einnig vinur
Barböru. Ohver skipar honum að
vera lögfræðingur sinn um leið og
hann neitar að fara að heiman og
það líður ekki á löngu þar til stríðs-
ástand er á heimihnu.
War of the Roses er samkvæmt
sögn Danny deVito byggð á eld-
gamalli kvikmyndaformúlu: strák-
Tvær hliðar á Oliver og Barböru Rose.'Efri myndin tekin fyrir framan fína húsið þeirra þegar ailt lék i lyndi.
Neðri myndin sýnir ástandið þegar hvorugt vill yfirgefa fína húsið þeirra.
Danny deVito
Leikarinn og leikstjórinn Danny
deVito hefur bæði verið að leik-
stýra og leika alveg frá byrjun hans
ferhs. Hingað til hefur hann verið
þekktur sem gamanleikari. Það var
fyrst farið að taka eftir honum er
hann lék í sjónvarpsseríunni Táxi.
Þegar sú þáttaröð leið undir lok
Kvikmyndir
Hilmar Karlsson
voru engin vandræði hjá honum
að finna hlutverk við hæfi í kvik-
myndum. Hann hefur skapaö hann
margar stórskemmtilegar persón-
ur og er skemmst að minnast ævin-
týramyndanna Romancing the
Stone og The Jewel of the Nile þar
sem hann áth einnig samstarf við
Kathleen Turner og Michael Dou-
glas. Þá eru eftirminnilegar kvik-
myndirnar Ruthless People, Wise
Guys og Twins.
Minna hefur farið fyrir leikstjór-
anum Danny deVito. Inn á mUli
ur hittir stelpu, strákur tapar
stelpu, strákur vinnur stelpuna aft-
ur. Breytingin sé aðeins þessi:
Hvað gerist þegar stúlkan vill ekki
koma til baka. Og í framhaldi af
því, hvað gerist þegar annars frið-
samar og veluppaldar manneskjur
gleyma sér í hita stríðsins og nálg-
ast það aö haga sér eins og rándýr.
Þótt War of the Roses sé gaman-
mynd þá er alvarlegur undirtónn í
myndinni og verður henni best lýst
sem svartri kómedíu alveg eins og
Throw Your Momma from the Tra-
in sem byggð var á meistarverki
Alfred Hitchcocks, Strangers on a
Train, sem svo sannarlega er allt
annað en gamanmynd. Danny de-
Vito á aftur á móti auðvelt með að
sjá kómísku hliðarnar á alvarlegu
hlutunum og notfærir sér það i
báðum þessum myndum.
Danny deVito
T