Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.1990, Qupperneq 28
40 LAÍJGARDAGUR 20. JANÚAR 1990.
Lífsstfll DV
1990:
Osló 1
Stokkhólmur 0°
ipmannahöfn 5°
imborg 5
Berlfo 7'
London 9°^P .
Luxemborg 0°
ircelona 7
^^Mallorca 13'
ia 14°—~^Vf
Algarve
15° v
Winnipeg -11
Montreal
Lénskýji
Hálfskýjaö
Chicago
New York 3'
Alakýjaö
LosÁngéles 8
Orlando 16
Hvad er að gerast
- hvert á að fara?
Nýlega rákumst viö á úttekt eftir
bandarískan blaöamann, David Wic-
kers, þar sem hann rekur í stuttu
máli hvaö hæst ber á sviöi menning-
ar og skemmtana víöa um heim.
Hann lætur sér raunar ekki nægja
að telja upp hvað sé það merkasta
sem er aö gerast í heiminum heldur
mælir hann með ákveðnum stööum
sem feröamenn ættu aö heimsækja
öðrum fremur í janúar og febrúar.
Staöir sem mælt er meö aö fara til
í janúar eru Indland þar sem veður
er fremur þurrt á þessum árstíma
og ekki of heitt. Þaö mætti hugsa sér
aö vera í Delhí þann 26. febrúar sem
er lýðveldisdagur Indverja. Um borg-
ina fer þá mikil skrúöganga kamel-
dýra, flla og manna, auk þess sem
hægt er aö berja tilkomumikla her-
sýningu augum.
Ferðir
SiglingáNíl
Það er einnig mælt meö heimsókn
til Palm Springs í Kalifomíu og liggja
þar í sólbaöi, sömuleiöis mælir David
meö heimsókn til Thailands og
Egyptalands, því aö á þessum árs-
tíma séu þessir staöir ekki of þétt
setnir feröamönnum. í Egyptalandi
er sérstaklega mælt með því að sigla
eftir Níl, milli borganna Asswan og
Kaíró, en þaö er víst sjaldan tilkomu-
meira en einmitt í janúar eða febrú-
ar, siglingin kostar 135 þúsund krón-
ur og hægt er að fá upplýsingar um
hana hjá Ferðaskrifstofu Thomas
Cook, sími 0733-503202.
Það er kjöriö að heimsækja Ástral-
íu ef ekki er haldið of langt norður
eftir álfunni. Mikið er um að vera í
Sidney um þessar mundir því aö þar
fagna menn nýju ári út þennan mán-
uö með miklum fjölda tónleika, leik-
sýninga og myndlistarsýninga. Nán-
Yeðrið í útlöndum
HITASTIG IGRÁÐUM
m
:10«6*tegfs
Otíl-B 11115 BIIIIO 11 tH 15 1611120
Byggt á veðurtréttum Veöurstolu Islands kl. 12 á hádegl, töstudag
Þrándheimur 2
ari upplýsingar gefur Australian to-
urist oífice, s. 01-780 1424.
Sömuleiðis er Malasía á listanum en
þar er gott að dvelja í janúar og hag-
stæö feröatilboð í gildi. Svo má ekki
gleyma Glasgow sem útnefnd var
menningarborg Evrópu 1990 og þar
er svo sannarlega nóg um að vera
allt næsta ár.
Mozart-hátíó
í Salzburg
Þeir sem vilja eyða fríinu á skíðum
ættu að fara að hugsa sér til hreyf-
ings í byrjun febrúar. Það er að vísu
dýrara að fara á skíði í Evrópu í fe-
brúar en í janúar en það er aðeins
farið að lifna yfir skíðastöðunum á
þessum tíma.
3.-A. febrúar er hægt að bregða sér
á krikketleika í St. Moritz í Sviss og
sjá krikket leikinn á ísilögðu vatni.
Um leikana er hægt að fá nánari
upplýsingar hjá Sviss tourist office
sími 01-734 1921.
Þann 5.-11. febrúar er mikil snjóhá-
tíð í Sapporo, Hokkaido í Japan, þar
sem hægt er að sjá undursamleg
listaverk sem gerö eru úr ís. Nokkuð
sem er víst ógleymanleg sjón.
Þeir sem eru í Austurríki í febrúar
ættu að hafa í huga að 26. febrúar
hefst í Salzburg mikil Mozart-hátíð
og yikuna þar á eftir er boðið upp á
fjölda tónleika sem helgaðir eru
þessu tónskáldinu. Nánari upplýs-
Því ekki að fagna nýju ári í Hong Kong en samkvæmt tímatali Kinverja er
þaö ár hestsins sem er að ganga í garð.
ingar: Austrian tourist office, s.
01-931 9106.
10.-27. febrúar er mikið karnival í
Feneyjum með ýmiss konar uppá-
komum, nánari upplýsingar er hægt
að fá hjá Magic of Italy, sími 01-748
7575.
Og loks má geta þess að 26.-27. fe-
brúar fagna Kínverjar nýju ári sem
veröur tileinkað hestinum. í Hong
Kong verður því fagnað með hefð-
bundnum uppákomum svo sem
skrúðgöngum og flugeldasýningum.
* *
Reykjavfk -1° Bergenr
9
Þórshöfn 5° ^
Einn þeirra staða, sem mælt er með heimsókn til, er Indland.
Rlgnlng V Skúrlr
Snjókoma Þrumuveóur = Þoka
Flugleiðir í samvinnu við Hótel
Noröurland, Akureyrí, HótelHúsa-
vík, Hótei Valaskjálf, Egilsstöðum,
Hótel ísaQörö, Gestgjafann og Hót-
el Þórshamar í Vestmannaeyjum
ætla á næstu vikum að bjóða upp
á árshátíðar- eða þorrablótspakka
til ofangreindra staða.
Áætlað er að pakkinn fyrir
manninn muni kosta í kringum
10.500 krónur til allra staðanna
nema Vestmannaeyja en inn 8.500
krónur mun kosta að halda árs-
hátíöina eða þorrablótiö þar.
Innifalið í verði er flug fram og
til baka, flugvallarskattur, akstur
til og frá flugvelli, gisting eina nótt,
hátíðakvöldverður, dansleikur og
morgunverður.
Tilboð þessi eru einkum ætluð
fyrirtækjum, félagasamtökum eöa
stærri hópum sem vilja breyta til
og halda árshátíö sína eöa þorra-
blót annars staðar en á höfuðborg-
arsvæðinu.
-J.Mar