Dagblaðið Vísir - DV - 30.01.1990, Side 5
ÞRIÐJUDAGUR 30. JANÚAR 1990.
5
Fréttir
Viðar Halldórsson, einn eigenda Gúmmivinnustofunnar, við hjólbarðann sem er með árituðum silfurskildi frá VIS.
Á honum stendur: 16. september 1989. Til hamingju með endurreisnina - Gúmmívinnustofan - Þökkum samstarfið
- Vátryggingafélag íslands hf. DV-mynd KAE
Gúnxmívinnustofan:
Fékk viðurkenningu frá tryggingarfélaginu
- bætur vegna rekstrarstöövunar verða 20-30 milljónir
Eigendum Gúmmívinnustofunnar
var afhentur viðurkenningarskjöld-
ur frá Vátryggingarfélagi Íslands
þegar byggingin að Réttarhálsi 2 var
opnuð aftur eftir endurbætur vegna
brunans mikla í janúar á síðastbðnu
ári.
Ingi R. Helgason, forsljóri hjá VÍS,
afhenti skjöldinn við hátíðlega'at-
höfn. Viðstaddir voru viðskiptavinir
Gúmmívinnustofunnar og var aðil-
um frá slökkviliði, eldvarnaeftirliti
og brunamálastofnun einnig boðið.
Ingi R. þakkaði fyrir traust viðskipti
og sagði endurbótastárf hafa gengið
mjög vel. Kvaðst hann vera ánægður
með samstarf við eigendur að Réttar-
hálsi 2.
Tryggjngabætur vegna brunans
námu tæpum tvö hundruð milljón-
um króna. VÍS hefur greitt rekstrar-
stöðvunartryggingu að hluta til
Gúmmívinnustofunnar en þær bæt-
ur hafa ekki verið gerðar upp endan-
lega. Að sögn Viðars Halldórssonar
mun sú úpphæð verða á bilinu 20-30
milljónirkróna. -ÓTT
Fiskskortur á Bretlandseyjum:
Meðalverð
202 krónur
Það virðist ekkert lát ætla að verða
á fiskverðshækkunum á bresku fisk-
mörkuðunum. í gærmorgun voru
seld í Grimsby 16 tonn, blandaður
afli, en mest af þorski, úr gámi sem
Freyja RE sendi út og var meðalverð-
ið 202 krónur fyrir kílóið. Þetta er
hæsta meðalverð sem fengist hefur
fyrir gámafisk.
Selt var úr nokkrum gámum frá
íslandi í Grimsby í gærmorgun og
meðalverðið frá 160 og upp í 200 krón-
ur. í þessum gámum var þorskur
uppistaða aflans.
Mjög gott verð fékkst hka fyrir svo-
kallaðan „ruslfisk", en þá er uppi-
staðan karfi, ufsi og aðrar slíkar teg-
undir sem ekki njóta vinsælda í Eng-
landi. Samt sem áður fékkst gott verð
fyrir þennan fisk, eða frá 126 og upp
í 135 krónur fyrir kílóið.
Dæmi var um að smáslattar af úr-
valsþorski seldust fyrir allt að 215
krónur kílóið. í því tilfelli var um 2
tonn að ræða. Og 7 tonn úr öðrum
gámi fóru á 206 krónur kílóið.
Þórarinn Guðbergsson hjá Fylki í
Grimsby sagði í samtali við DV að
alger skortur væri bæði á frystum
og nýjum fiski á Bretlandseyjum.
Ógæftir og aflaleysi væri bæði í
Norðursjó og Eystrasalti. Skortur á
frystum fiski væri einnig mikill.
Bandaríski dollarinn hefur hækkað
mikið að undanfornu miðað við sterl-
ingspund. Þjóðir eins og Kanada-
menn, Argentínumenn og Chile-
menn, svo dæmi séu nefnd, sem flutt
hafa mikið af blokk til Bretlands,
flytja nú allt sitt á bandaríska mark-
aðinn vegna gengisþróunarinnar.
Þetta veldur því aö verð á ísfiski
hefur fariö upp úr öllu valdi á fisk-
mörkuðunumíBretlandi. -S.dór
Blaðburðarfólk áreitt
Hjón sem voru að bera út dagblöð
í Seljahverfi í Breiðholti urðu fyrir
áreitni unglingahóps rétt eftir mið-
nætti aðfaranótt sunnudags. Konan
flúði í annað hús þegar veist var að
hjónunum en maðurinn hélt blað-
burðinum áfram. Einn úr hópnum
gerði sig síðan líklegan til að loka
manninn af við hús og enduðu þau
viðskipti með því að maðurinn tukt-
aði piltinn rækilega til. Hringt var í
lögreglu og var haft samband við for-
eldra þeirra sem sem í hlut áttu að
máh. Blöðin komust til skila. -ÓTT
HONDA Á ÍSLANDI, VATNAGÖRÐUM 24, S-689900
Honda Accord 1990
er verðlaunabíll sem hlaut hina
eftirsóttu viðurkenningu Gullna stýrið
í Vestur-Þýskalandi í ár.
Greiðsluskilmálar við allra hæfi,
t.d. 25% útborgun og mismunurinn
lánaður í allt að 30 mánuði
á bankakjörum. Við tökum góða
notaða bíla upp í nýja
og lánum jafnvel mismuninn.
Verða frá aðeins kr. 1.290.000,- stgr.