Dagblaðið Vísir - DV - 30.01.1990, Side 13

Dagblaðið Vísir - DV - 30.01.1990, Side 13
13 ÞRIÐJUDAGUR 30. JANÚAR 1990. pv_____________________________________Lesendur Úr Veltusundi á Hverfisgötu: Ég er „glæpamaðurinn“ „A1 Capone“ skrifar: Góðir samborgarar, það eru fáar borgir í heiminum sem geta státað af svo gífurlegri „löggæslu“ sem Reykjavík. Nú standa málin þannig hér í borginni að ekki þarf að fremja glæp til þess að verða refsað fyrir hann. - Flestir sem lesa blöðin og hlusta á útvarpið ættu að kannast við drengina tvo sem löggan stóð að því að „gera tilraun til rúðubrots". - Jú, ég er annar „glæpamaðurinn" og vil að þú samborgari góður lesir þessar línur til þess að þú gerir þér grein fyrir löggæslunni 1 henni Reykjavík. Þannig stóðu málin aö ég og félagi minn í glæpnum vorum að koma af Fimmunni og vorum í glasi. Þetta var aðfaranótt sunnudagsins 7. þ.m. Við vorum á leið í Tunglið til að skemmta okkur. Við hoppuðum áfram og hlóg- um og fórum m.a. fram hjá verslun- inni Toppskónum. Vegna þess að við vorum báðir í miklu dansstuði tók- um við upp á því að fara að dangla með fótunum í rúðuna, sem er niðri við jörö og gerðum það svo sem tvi- svar. Við sáum strax að okkur er við gerðum okkur grein fyrir rughnu í okkur og hættum að sparka. Það kom ekki rispa á rúðuna, svo að við héld- um áfram fór okkar. Er við komum fyrir næsta hom og vorum búnir að ganga svona í 2 mínútur koma að okkur fimm eða sex af okkar elsku- legu svartklæddu „laganna vörðum" og báðu okkur að koma með sér. Okkur þótti það alveg sjálfsagt og gengum með þeim á stöðina við Tryggvagötu. Þar vorum við í fimm mínútur. Síðan var okkur hent inn í lögreglubíl og ekið upp á Hverfisgötu 111, þar sem okkur var tilkynnt, að við ættum að sitja inni í 10 klst. - Þar sem við höfðum aldrei fengið tækifæri á því að útskýra okkar mál í ró og næði, bauð ég þeim að borga allan skaðann á rúðunni þrefalt - en þeir hlógu að mér. Ég bað um að fá að hringja en mér var neitað. Því næst reyndi ég að útskýra fyrir þeim að ég væri með harðar linsur, sem ég mætti ekki vera með í augunum í sólarhring, né geyma í vatni. - Þeir sögðu það ekki sitt vandamál. Vil ég koma því að hér að ég hef ekki getað notað lins- umar síðan. Um morguninn fengum við svo hvor sinn 10 þúsundkallinn í haus- inn í formi sektar. Við gerðum okkur fyllilega grein fyrir fáránlegu athæfi okkar, en mér fmnst það fullmikil refsing að þurfa að borga 1000 krónur fyrir klukkutímann fyrir herbergi með dýnu og ræsi í borgarinnar lé- legasta hóteli. - Við höfum komist að því efitir þessa helgi, að það er bannað að skemmta sér í Reykjavík. Ef þú vogar þér að brosa í biðröð, þá færðu að sitja inni. - Eins ef þú hlærð á almannafæri. Einnig vil ég í lokin minnast á það að kvöldið áður var ung stúlka slegin í jörðina af fullorðnum manni sem gekk einfaldlega í burtu. Engin var þar löggan, eða er það ekki glæpur? Það var kannski best að engin lög- regla var þar því hún hefði líklega handtekið stelpima fyrir að slá and- litinu í hnefann á manninum. Ekkert meiri mengun en venjulega? Hvaða mengun? Gísli Guðmundsson skrifar: Hún sagðist vera alveg að kafna í mengun, útvarpskonan í þættinum á rás 2 sl. fimmtudag. Hún var send út af örkinni frá útvarpinu til að standa á Miklubrautinni til aö kafna úr mengun að því er manni skildist. - Svo kom sjálfur mengunarfræðing- urinn, Sigurbjörg, sem átti að sam- sinna kynsystur sinni. En Sigurbjörg mengunarfræðingur var bara ekki alveg sammála, sagði aö þetta væri svo sem ekkert verra en venjulega. Þama hefði alltaf verið mengun á þessum árstíma og hún væri ekki mikið verri nú eri endra- nær. - Hefur kannski einhver látist af mengim? Ég minnnist þess ekki. Hins vegar hafa margir orðið fyrir skakkafollum í umferðinni á Miklu- braut. Það er allt annar handleggur. Og hvað er til ráða? spurði útvarps- konan. Hertar reglur, útblástur- skerfi á bifreiðar? Jú, svaraði meng- unarfræðingurinn. Það verða settar reglur um útblásturskerfi bifreiða. Það kerfi er löngu viðtekið víða er- lendis en ekki hér. Hvers vegna? Vegna þess að íslendingar hafa ekki viljað svoleiðis útbúnað á bílum sín- um. - Þeir eyða meira bensíni fyrir bragðið, segja þeir. En mengunin á Miklubraut minnk- ar bara ekkert við bætt útblásturs- kerfi bifreiða. Það má bóka það. Mengun hér á landi er nefnilega ekk- ert meiri en hún hefur verið um ára- bil. Hún stafar ekki af útblæstri bif- reiða. Mengunin er alveg jafnmikil að nóttu sem degi - t.d. þama á Miklubrautinni sem annars staðar. ísland er einfaldlega mengað af mörgum öðrum ástæöum. Hún kem- ur t.d. frá sjónum, þaðan blæs salt- lofti sí og æ og mettar loftið af salti, af uppgufun frá jörðinni kemur fos- fór og fleiri jarðefni, sem metta loft- ið. - Við skulum bara athuga það að ísland er viða jnengað og viö þaö ráðum við ekki sjálf. Það er því alveg ástæðulaust að kalla „mengun, mengun". Þetta er sú mengun sem við höfum búið við gegnum tíðina, og því má spyija þegar fólk er að ólmast út af þessu vinsæla kvörtun- arefni: Hvaða mengun? Ofreiknaðar vaxtagreiðslur Jóhann Helgason skrifar: Varðandi sjónvarpsfrétt fyrir nokkm um að áikveðin bankastofnun hér í borg ofreikni vaxtagreiðslur af skuldabréfum hjá sauðeinfóldum al- menningi, sem botnar hvorki upp né niður í þeim fmmskógarútreikningi sem þar á sér stað, fannst mér óveij- andi hjá bankaeftiriitinu að birta ekki nafn þeirrar bankastofnunar og setja þar með alla hina bankana und- ir gran. Það er ekki drengilegur leikur. Og hitt aö við nafnbirtingu getur al- menningur, sem hefur átt viðskipti við tiltekna bankastofnun, flýtt sér með gömul sem ný skuldabréf í end- urskoðun hjá viðeigandi aðilum og fengið hugsanlega tugi ef ekki hundr- uð þúsunda króna endurgreiddar. Þetta hefur viðgengist hjá Spari- sjóði vélstjóra svo árum skiptir og hafa þeir endurgreitt þeim aðilum sem hafa sýnt þeim tennumar. Veit ég um eitt tilfelli frá árinu 1986 og um tvö tilfelli árið 1988. Því finnst mér sjálfsagt að þeir aðilar, sem eiga inni ofreiknaða vexti, geri kröfu um að fá einnig greidda til baka dráttar- vextina. Þeir aðilar, sem hafa verið og eru í vanskilum (því orsök vanskilanna er m.a. vegna þess að greiðslur hafa verið of háar), ættu að láta reikni- meistara Sparisjóðs vélstjóra skoða sín mál sem fyrst. Lausafjáruppboð Að kröfu Vilhjálms H. Vilhjálmssonar hrl. verður lausfrystir af tegundinni Sabroe, I eigu Kamps hf„ seldur, ef viðunandi boð fást, á nauðungarupp- boði sem haldið verður þriðjudaginn 6. febrúar 1990 kl. 11.00 í fiystihúsi Kamps hf„ Vesturgötu 121, Akranesi. Bæjarfógetinn á Akranesi SJAUMST MEÐ ENDURSKINI! IUMFEHOAR RAD 4. leikvika - 27. janúar 1990 Vinningsröðin: X11-111-1X1-112 HVER VANN 960.010- kr. 2 voru með 12 rétta - og fær hver: 336.074 kr. á röð 49 voru með 11 rétta - og fær hver: 5.8974 kr. á röð Munið hópleikinn - allar upplýsingar í síma 91 -688322. FERÐAMÁLARÁÐSTEFNA Á EGILSSTÖÐUM 16. og 17. febrúar 1990 Dagskrá Föstudagur 16. febrúar: Kl. 11:00 Ráðstefnan sett: Kristín Halldórsdóttir, formaður. Ávarp Steingríms J. Sigfússonar, samgönguráðherra. Kl. 11:30 Framsöguerindi: a) Fræðslumál og menntun. b) Uppbygging ferðaþjónustu í dreifbýli. Kl. 13:00 Kynning ferðamálanefndar samgönguráðu- neytisins á störfum nefndarinnar. a) Framsaga formanns nefndarinnar Hjörleifs Guttormssonar. b) Nefndarmenn kynna hugmyndir og sitja fyrir svörum. c) Skoðanaskipti og fyrirspumir. Kl. 15:00 Ráðstefnugestir hefja umræður í 6 starfs- hópum. ■i Laugardagur 17. febrúar: Kl. 09:30 Starfshópar ljúka umræðum og ganga frá niðurstöðum og álitsgerðum. Kl. 13:00 Niðurstöður hópa kynntar og ræddar, Gengið frá tillögum og álitsgerðum. Kl. 17:00 Ráðstefnuslit: Kristín Halldórsdóttir, for- maður. Reiknað er með aukaflugi frá Reykjavík til Egilsstaða fimmtu- daginn 15. febrúar kl. 17:15, fostudaginn 16, febrúar kl, 08:30 og frá Égilsstöðum til Reykjavíkur 18. febrúar kl. 12:00. Flug- leiðir munu veita ráðstefhugestum 50% afslátt af flugfargjald- inu. Panta skal far hjá Flugleiðum en þátttaka tilkynnist til Sigurborgar Kr. Hannesdóttur, Hótel Valaskjálf. Ferðamálaráó islands

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.