Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 30.01.1990, Qupperneq 16

Dagblaðið Vísir - DV - 30.01.1990, Qupperneq 16
16 ÞRIÐJUDAGUR 30. JANÚAR 1990. íþróttir Mullersmótíð í sklðagöngu fór íram um helgina á Miklatúni í Reykjavík. Það var Skíðafélag Reykjavíkur sem stóð fyrir keppninni. í barnaflokki voru gengnir 3 km. Sigurvegari varð Guðni Eiríksson, SR, á 14:10 mín. í flokki 17-19 ára, 9 km, varð Marinó Sigurjónsson, SR, sigur- vegri á 31:32 min. í flokki 20-49 ára, 9 km, varö Sveinn Ásgeirs- son, Þrótti N, i fyrsta sætí á 33:05 mín. í flokki 50-59 ára voru gengnir 4,5 km. Sigurvegari varð Hörður Guðmundsson, SR, á 17:54 min og i flokki 60 ára og eldri voru gengnir 3 km og þar sigraði Tryggvi Halldórsson, SR, á tíra- anum 16:15 mín. Mótsstióri var Páimi Guðmundsson. San Francfsco burstuðu Denver í úrslitaleíknum Úrslitaleikurinn i bandaríska fót- boltanum fór fram í fyrrinótt. Þar áttust við San Francisco 49ers og Denver Broncos og sigraði San Franciseo með miklum yfirburð- um, 55-10, og er þetta stærsti sig- ur fráupphafi í úrslitaleik banda- ríska fótboltans. Það var kastari 49ers, Joe Montana, sem skóp þennan yfirburðasigur með sín- um glaesilegu sendingum og heppnuöust 22 sendingar af 29 hjá honum en hjá kollega hans í iiði Denver, John Elway, heppnuðust aðeins 10 sendingar af 26. Eftir leikinn var Montana útneftidur verðmætasti leikmaður NFL- deildarinnar. Marta og Gunnlaugur ígóðuformi Stjömuhlaup FH fór fram í Hafnarfiröi á laugardaginn. í karla* flokki sigraöi Gunn- Iaugur Skúlason, UMSS, eftír harða keppni viö Sigurð P. Sig- mundsson, PH, og Sighvat D. Guðmundsson, ÍR. í kvenna- flokki sigraði Marta Ernstsdóttir, ÍR, með rniklum yfirburðum. I píltaflokki sigraði Logi Tryggva- son, Flí. í telpnaflokki sigraði Laufey Skúladóttir, Fjölni, og í drengjaflokki sigraði Orri Pét- ursson, UMFA Hugo Sanchez er langmarkahæstur Hugo Sanchez, leik- maður með Real Madrid, er langmarka- hæstur í 1. 'deild spænsku knattspymunnar eftir leikina um helgina. Sanchez hef- ur skoraö 23 raörk, Anton Polst- er, austurríski landsliösmaður- ínn í liði Sevilla, er næstur með 17 mörk og þar á eftir meö 10 mörk eru Ronald Koeman, Barc- elona, og Baltazar frá Alletico Madrid. Van Basteg markahæstur á Italíu Hollenski snillingurinn Marco Van Basten, leikmaður meö AC Milan, er markahæstur á ítaliu eftir leikina um helgina. Basten hefur skorað 12 mörk en fast á hæla honum með 11 mörk eru þeir Roberto Baggio, Fiorentina, og Salvatore Schillad, Juventus. Með 10 mörk eru Gustavo Dez- otti, Cremonese, ogRobertoMan- cini, Sampdoria. Ðlkarlefkir í körfuboltanum I kvöld Þrir leikir eru í kvöld í bikar- keppni karla í körfuknattleik. Kl. 20 heflast tveir leikir, Grindavík og ÍBK-b leika í Grindavík og KR-ingar fá Laugdæli i heimsókn á Selfiamames. Kl. 21 leika svo i Digranesi UBK og b-lið Njarðvík- inga. Meiðsli hjá Njarðvikingum: Missir Kristinn af úrslitunum í vor? • Kristinn Einarsson gengur við hækjur þessa dagana en vonast eftir því að verða orðinn góður fyrir úrslitakeppnina í vor. DV-mynd Ægir Már draumur rætist. Þetta var mjög svekkjandi og kom raunar á versta tíma,“ sagði Kristinn Einarsson, körfuknattleiksmaður í Njarðvík, en Ægir Már Kárassan, DV, Suðumesjum; „Mig dreymir um að ná úrslita- keppninni í vor en óvíst er hvort sá hann er einn af lykilmönnum liðsins. Kristinn varð fyrir því óhappi að rífa liðband þegar tvær mínútur voru eftir af æflngu á dögunum. Kristinn verður í gifsi í 10 daga og má ekki hefja æfingar aftur fyrr en eftir 8 vikur. Þá má geta þess að Friðrik Ragn- arsson, landshðsmaður í Njarðvík, brákaðist á hendi í leik gegn Val á dögunum og verður frá í einhverja daga til viðbótar en hann hefur misst af tveimur síðustu leikjum Njarðvík- inga. • Ljósi punkturinn í fréttum af liöi Njarðvíkinga er hins vegar sá að miðherjinn Helgi Rafnsson mun leika með hðinu þar til keppnistíma- bihnu lýkur. Helgi haföi ákveðið að draga sig í hlé en þegar meiðsli gerðu vart við sig ákvað hann að taka skóna niður af hillunni góðu og hefur Helgi leikið mjög vel með liöi Njarð- víkinga í síðustu leikjum Uðsins. Núr Itani **** ***** til Tindastóls fórbakux Asmundss., DV, Sauðárkrókú Lið Tindastóls í körfuknattieik hefur nú fengið James Lee, 23 ára BandaríKjamann, til Ilðs við sig eftir að Bo Heiden ákvaö aðhætta aö leika með liöinu fyrir skömmu. Lee er dökkur á hörund og rúmlega tveir metrar á hæð. Hann hefur leikið körfuknattleik í Kólumbíu og Portúgal undan- farin ár og þykir hann mjög öflugur vamarmaður auk þess sem haim er mjög drjúgur í sókn og skorar að meðaltali yfir 20 stig í leik. Lee kom til Sauðárkróks um helgina, hann iék ekki með Tindastóli gegn Þór í bikarkeppn- inni á sunnudaginn sem Þórsarar unnu með 30 stiga mun en for- ráöamenn Tindastóls vonast til að hann geti leikið meö liðinu síö- ari leik Þórs og Tindastóls 1 bikar- keppninni sem leikin veröur á Sauðárkróki á fimmtudag. For- ráðamenn Tindastóls haía í hyggju, ef um semst, að James Lee leiki einnig með liði Tinda- stóls á næsta keppnistímabili. Margar stjörnur urðu að sætta sig við 2. sætið - Track and Field News velur bestu frjálsíþróttamenn heimsins á síðasta ári Það þykir jafnan tíðindum sæta þegar bandariski hlaupagikkurinn Carl Lewis bíður lægri hlut fyrir andstæðingum sínum. í nýjasta hefti bandaríska tímaritsins Track and Field News er birtur heimslisti yfir besta árangur ársins 1989 í karla- greinum frjálsra íþrótta. Þar er Sig- • Robson Da Silva frá Brasilíu náði besta heimstímanum í 200 metra hlaupi og vann 21 af 22 hiaupum sem hann tók þátt í. urður Einarsson í 3. sætinu yfir bestu spjótkastara heimsins og Einar Vil- hjálmsson í 4. sæti eins og fram hefur komið í DV. Hvað Carl Lewis varðar missir hann 1. sætið í 100 metra hlaupi. • Besti 100 metra hlauparinn á síð- asta ári var Jamaíkamaðurinn Raymond Stewart. Hann tók þátt í 18 mótum á síðasta ári og hafnaði 15 sinnum í 1. sæti og þrívegis í 2. sæti. Carl Lewis er í 2. sæti. Þess má geta að þeir Stewart og Lewis mættust tvívegis 1 keppni á hðnu ári og skiptu sigrum á mflii sín. Bandaríkjamað- urinn Leroy Burrell náði besta tím- anum á síðasta ári, 9,94 sek., en Stew- art kom næstur á 9,97 sek. Besti tími Carl Lewis var 10,05 sek. Bandaríkjamenn eru í sérflokki í 400 m hlaupi í 400 metra hlaupi eru Bandaríkja- menn í fjórum efstu sætunum. Butch Reynolds er í 1. sæti, Steve Lewis í 2. sæti, Danny Everett í því þriðja og Tim Simon í 4. sæti. Antonio Petti- grew, Bandaríkjunum, náði hins vegar besta heimstímanum, 44,27 sek. • í 200 metra hiaupi var það Bras- ilíumaðurinn Robson da Silva sem hafnaði í 1. sæti. Árangur hans á síð- asta ári var frábær, besti heims- tíminn 19,96 sek og 21 sigur í 22 keppnum, einu sinni í 2. sæti. Paul Ereng I sérflokki í 800 metra hlaupinu Kenýamaðurinn Paul Ereng var í sérflokki í 800 metra hlaupi og verm- ir efsta sæti heimslista Track and Field News. Ereng náði besta heims- tímanum, 1:43,16 mín. í 2. sæti á list- anum er Bretinn Tom McKean og þriðji er Kenýamaðurinn Nixon Kip- rotich. Þess má geta að Bretinn Se- bastian Coe komst í 8. sæti. • Roger Kingdom frá Bandaríkjun- um setti heimsmet í 110 metra grindahlaupi, 12,92 sekúndur. maðurinn Abdi Bile í 1. sæti og með besta heimstímann, 3:30,55 mín. Ma- rokkómaöurinn Said Aouita er í 2. sæti og telst það til tíðinda vegna þess að Aouita tapaði ekki hlaupi á síðasta ári. Sómalíumaðurinn keppti hins vegar á erfiðari mótum. Þess má geta aö Bretanum Steve Cram, sem átti viö þrálát meiðsli að stríða, tókst ekki að komast á listann (10 efstu menn) í fyrsta skipti í 10 ár. Kingdom stakk alla af í 110 m grindahlaupinu Árangur Bandaríkjamannsins Rog- ers Kingdom í 110 metra grinda- hiaupi á síðasta ári var hreint með ólíkindum. Hann setti heimsmet, 12,92 sek., og tvívegis hljóp hann í logni undir 13 sekúndum. Track and Field News segir að árangur King- doms á síðasta keppnistímabili sé einn sá besti sem grindahlaupari hafi nokkru sinni náð. Bretinn Colin Jackson er í 2. sæti. Þeir mættust 9 sinnum og Kingdom sigraði í 6 sinn- um í keppni. í 3. sæti er Bandaríkja- maðurinn Tonie Campell. • í 400 m grindahlaupi varö Bandaríkjamaðurinn Kevin Young í 1. sæti og með besta heimstímann 47,86. Andre Phiflips, Bandaríkjun- um, varð í 2. sæti og Winthorp Gra- ham frá Jamaíka í 3. sæti. Kúbumaður í nokkrum sérflokki I hástökkinu í hástökki var Kúbumaðurinn Javier Sotomayor í sviðsljósinu er hann setti heimsmet og stökk 2,44 metra. í öðru sæti á listanum er Svíinn Patrick Sjöberg en hann stökk hæst 2,40 metra á hðnu ári. Þriðji er Holl- is Conway frá Bandaríkjunum. • Sovétmenn héldu uppteknum hætti í stangarstökki og skipuðu þrjú efstu sætin eins og á síðasta hsta. Rodion Gataullin náði efsta sætinu og Sergei Bubka er í 2. sæti og Grig- oriy Yegorov í 3. sæti. Bestum ár- angri á síðasta ári náði Bubka, 6,03 metrar, en Gataulhn stökk hæst, 6,02 metra, og er fyrsti stangarstökkvari í heimi sem nær að stökkva þrívegis yfir 6 metra á sama keppnistímabil- inu. Carl Lewis mjög naumlega sá besti í langstökki Þaö hefur varla fariö framhjá nokkr- um manni sem fylgst hefur meö keppninni í langstökki að keppni þar hefur verið gífurlega hörð. Carl Lew- is hafði betur og náði efsta sætinu en Larry Myricks varð í 2. sæti. Lew- is tapaöi ekki keppni á árinu en Myricks keppti mun oftar eða 33 sinnum og tapaði aðeins 6 sinnum. Myricks náði besta heimsárangrin- um, 8,70 metra, en Lewis kom næstur með 8,54 metra. • Austur-Þjóðveijinn Ulf Timmer- mann varð í 1. sæti í kúluvarpi karla í 4. skipti á síðustu 5 árum. Svisslend- ingurinn Werner Gúnthör er í 2. sæti en hann náði bestum árangri á síðasta ári er hann setti heimsmet • Javier Sotomayor frá Kúbu setti heimsmet í hástökki þegar hann stökk 2,44 metra. innanhúss og varpaði 22,66 metra. í 3. sæti á listanum er Randy Barnes, Bandaríkjunum. Þess má geta að Sovétmenn eiga ekki kúluvarpara á hstanum í fyrsta skipti síðan árið 1975. Vésteinn með fimmta besta kastið I kringlukasti Austur-Þjóðverjar eiga hka efsta mann í kringlukasti. Þar er Júrgen Schult í 1. sæti og Vestur-Þjóðveijinn Wolfgang Schmidt í 2. sæti. Hann átti besta árangurinn í heiminum er hann kastaði 70,92 metra. Þess má geta að Vésteinn Hafsteinsson átti 5. lengsta kastið, 67,64 metra. • í tugþraut varð Frakkinn Christ- ian Plaziat í 1. sæti en Bandaríkja- maðurinn Dave Johnson varð í 2. sæti og náði að auki besta árangri heimsins er hann fékk 8.549 stig. Austur-Þjóðverjinn Christian Schenk varð í 3. sæti. Heimsmethaf- inn Dafly Thompson frá Bretlandi (8.847 stig) komst ekki á blað vegna meiðsla. -SK

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.