Dagblaðið Vísir - DV - 30.01.1990, Síða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 30.01.1990, Síða 24
24 ÞRIÐJUDAGUR 30. JANÚAR 1990. Sviðsljós Ólyginn sagði... Eddie Murphy er vinsæll gamanleikari en ekki eru allir á eitt sáttir um ágæti hans. Annar kunnur gamanleik- ari, Billy Crystal, lét svo um mælt í viðtali við Playboy fyrir tæpum tveimur árum að honum fyndist Eddie Murphy vondur gamanleikari. Hefur Murphy síð- an lagt hatur á Billy Crystal. Og þegar Playboy bað um viðtal við Eddie Murphy fyrir febrúarblað- ið var stund hefndarinnar runnin upp og lét hann Crystal hafa það óþvegið. En hann gætti sín ekki og fór yfir markið og ritsjóm Playboy varð að klippa út um- mæli hans um Billy Crystal. David Bowie er að halda í heimsreisu og ætlar að halda tónleika í flestum stærstu borgum heimsins. Á blaðamannafundi nýlega sagði hann að í þessari hljómleikaferð væri síðasta tækifæri fyrir aðdá- endur hans að heyra gömul vin- sæl lög sem hann hefði gert fræg. Sagði að tími væri kominn til að leggja þau á hilluna. Fá hljóm- leikagestir að panta uppáhaldslag um leið og miöar eru keyptir og mun Bowie taka tillit til óska áhorfenda á hverjum tónleikum fyrir sig. Þegar hann var spurður hvort tónleikarnir yrðu mikil ljósasýning svaraði hann: „Þeir sem þekkja mig vita að ég er mik- ið fyrir leiksýningar." Amold Schwarzenegger studdi George Bush af miklum myndarskap í síðustu forseta- kosningum. Bush hefur nú laun- að greiðann með að tilnefna Schwarzenegger formann nefnd- ar sem á að auka heilbrigðara lí- ferni Bandaríkjamanna og auka almennan áhuga á íþróttum. Schwarzenegger, sem er fyrrver- andi hr. heimur, sagði það vera takmark sitt að fá alla Banda- ríkjamenn, unga sem gamla, til aö gera líkamsæfmgar reglulega. Þegar hann var spurður um lík- amsástand Bush, sagði hann að forsetinn væri í finu formi. Það má sjá eftirvæntingu í svip barnanna enda er það engin smáterta sem bíður þess að viðstaddir gæði sér á henni. Það var Jón Pétursson, Fram- ari og bakari, sem færði skiðadeildinni tertuna í tilefni vigsiunnar. Fram-skálinn í Bláfjöllum vígður Meðal gesta Framara á laugardaginn var Steingrímur Hermannsson forsæt- isráðherra sem sést hér flytja ávarp. Á laugardaginn vígðu Framarar nýjan skíðaskála sem stendur í Eld- borgargili í Bláfiöllum, á skíðasvæði sem Fram hefur haft í mörg ár. Skíðaskálinn, sem er 330 fermetrar, er allur hinn glæsilegasti og geta þar gist 70-fiO manns og er ætlunin að skólar geti fengið afnot af gistingu og skíðasvæðinu. Skíðaskálinn var formlega tekinn í notkun á laugardaginn og var boðiö tfl hátíðar sem um það bil 300 manns sóttu. Voru það meðlimir í skíðadefld Fram og aðrir Framarar og velunn- arar félagsins. Hinn nýi Skíðaskáli Framara hefur hlotið nafnið Eldborg. Jón Sigurðsson, viðskipta- og iðnað- arráðherra, er hér fyrir framan skíðaskálann ásamt Gunnari Andr- éssyni, formanni Skíðadeildar Fram. Fyrir ofan þá er nafn skálns skráð i forláta skilti sem Sjóvá-Almennar gáfu skíðadeildinni. Þorrablót í Valhöll Svangir sjálfstæðismenn standa í biöröð við hlaðborðið þar sem kræsing- arnar blöstu við gestum. Davið Oddsson, borgarstjóri og varaformaður Sjálfstæöisflokksins, nælir sér í hangikjötssneið. Eiginkona hans, Ástríður Thorarensen, stendur hon- um á vlnstri hönd. Á myndinni er einnig Guðmundur Óskarsson fisksali. DV-myndir KAE Nú er þorrinn og þá um leið tími þorrablótanna. Einstaka veitingahús hafa tekið sig tfl og hafa þorramat á boðstólum og svo er enginn maður með mönnum nema hafa fariö á aö minnsta kosti eitt þorrablót. Yfirleitt eru þetta um fimmtán teg- undir matar sem boðið er upp á, og að sjálfsögðu rammíslenskur matur. Mismunandi er hvað fólki finnst lyst- ugast. Umdeildasti rétturinn er og verður hákarlinn sem margir boröa með bestu lyst en aðrir fá klígju aö- eins af lyktinni. Þá eru ekki allir sátt- ir við aö maturinn sé súr en flestir láta sig hafa súrsaöan mat með öðru. Sjálfstæðismenn eru engir eftirbát- ar annarra í að blóta þorrann og var þeirra árlega þorrablót haldið í Val- höll um síðustu helgi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.