Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.1990, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.1990, Blaðsíða 2
2 FÖSTUDAGUR 9. FEBRÚAR 1990. Fréttir Lítil bílaleiga á Hvolsvelli, sem á engan bíl, gjaldþrota: Kröfur Landsbankans eru nærri 40 milljónir - óvíst að bankinn fái meira en 10 milljónir út úr skiptunum Bflaleiga Hvolsvallar er nú til gjaldþrotaskipta. Kröfur í búið eru nú, með öllum kostnaði, vel á fjórða tug milljóna króna. Landsbankinn er nánast eini kröfuhafinn. Tveir eigendur eru að fyrirtækinu. íbúðarhús beggja eru tekin í skiptin og eins verkstæðishús bflaleigunnar. „Það eru ekki mikfl verðmæti i hús- unum. Verðið er ekki það hátt í eymdinni hér,“ sagði viðmælandi á Hvolsvelli. Bílaleigan á engan bfl en átti einn í vor sem var seldur og and- virði hans, innan við 200 þúsund krónur, fór til skiptanna. Ekki er talið að bankinn fái nema um tíu milljónir út úr gjaldþrotaskiptunum þar sem fasteignaverð er lágt á Hvolsvelli. Útibússtjóri Landsbankans á Hvolsvelli var færður til í starfi vegna þessa máls. „Hann var kominn á tíma. Hann var búinn að vera lengur hér en úti- bússtjórar eru venjulegast á hverjum stað. Ég held að hann hafi ekki verið færður tfl vegna þessa máls. Hitt er víst að þetta hefur ekki aukið á orðst- ír hans innan bankans," sagði heim- ildarmaður DV á Hvolsvelli. Reinhold Kristjánsson, yfirlög- fræðingur Landsbankans, sagðist ekki þekkja tfl þessa gjaldþrotamáls og þess sem því hefur fylgt. Þrotabúið hefur hafið málarekstur vegna gjaldþrotsins. Það snýst um innstæðu föður annars eigandans á bankareikningi hjá Landsbankanum á Hvolsvelii. Á reikningi hans eru um tvær milljónir króna. Deilt er um hvort peningarnir séu hans eign eða þrotabúsins. Um það verður tekist á í málarekstrinum. Það er ljóst að þetta mál er ekki nærri tfl lykta leitt og með öllu óvíst hvenær skiptunum muni ljúka. „Landsbankanum var boðið, á vor- dögum, að fá um 80 prósent af kröf- unni eins og hún var þá, í formi veða og ábyrgða. Því var hafnað og nú bendir allt til þess aö Landsbankinn geti tahst heppinn ef hann fær 20 til 30 prósent. Með því að hafna tflboð- inu í vor er bankinn að tapa tugum milljóna. Þeir vildu frekar gjaldþrot- ið án þess að nokkur hagnist á því,“ sagði heimildarmaður DV á Hvols- vefli. „Það er hægt að kalla þetta hvað sem menn vilja. Ég tel að það sé mjög vafasamt, vægt tfl orða tekið, að með því tflboði sem boðið var upp á hefði bankinn getað fengið 80 prósent af kröfunum greidd," sagði Helgi Birg- isson, bústjóri þrotabús Bílaleigu Hvolsvallar. . -sme Björgunarbátnum af Dodda SH komið fyrir í lögreglubílnum. Sveitarstjórinn á Hellissandi, Gunnar Már Kristó- fersson er lengst til vinstri á myndinni. Hann er bróðir skipstjórans á Dodda. Eins og kunnugt er bjargaðist þriggja manna áhöfn Dodda eftir að báturinn sökk skammt frá Rifi. DV-mynd Stefán Þór Sigurðsson Fiskverðsákvörðun: lausn bak við tjöldin Unnið að Samkvæmt heimildum DV er nú unnið að því á bak við tjöldin aö finna lausn á deilunni í Verðlagsráði sjáv- arútvegsins um nýtt fiskverð. Það eru fiskkaupendur og útvegsmenn sem reyna nú aö finna einhverja þá lausn sem hugsanlegt er að sjómenn geti fellt sig við. Allir vilja forðast, ef hægt er, að vísa fiskverðsákvörð- uninni tfl yfimefndar Verðlagsráðs. Ef það gerist springur ráðið því sjó- menn munu þá draga fufltrúa sína út úr því. Sveinn Hjörtur Hjartarson, for- maður Verðlagsráðs, sagði í samtali við DV að það gæti orðið erfitt að komast hjá því vísa málinu til yfir- nefndar, ef ekki næst samkomulag, því það beri að gera samkvæmt lög- um. Þá hefur DV heimildir fyrir því að sjómenn víða úti um land séu orðnir þreyttir á að bíða eftir lausn deflunn- ar í Verðlagsráði og vilji fara að grípa til aðgerða svipuðum þeim sem tog- arasjómenn á Austfiöröum gerðu um áramótin. Búist er við að fundur í ráðinu veröi boðaður um eða strax eftir helgina. Mál þetta er svo viðkvæmt aö eng- inn fulltrúi í Verölagsráði vill segja neittumþaðopinberlega. -S.dór Varaflugvöllur: Forkönnun verður heimiluð - segir utanríkisráðherra Utanríkisráðherra, Jón Baldvin Hannibalsson, sagði á Alþingi í gær að ástæða væri tfl að tengja saman nýjan varaflugvöll og þær breytingar sem væru nú að eiga sér stað í víg- búnaðarmálum. Slíkur flugvöllur gæti því fengið merkflegt eftirlits- hlutverk við að framfylgja afvopnun- arsamningum. Jón Baldvin sagöi að möguleikar íslendinga á að fá þennan flugvöll hefðu ekkert breyst og fullyrti hann aö ákvörðun um flugvölhnn yrði tek- in áður en hann léti af embætti utan- ríkisráðherra. -SMJ Guðmundur Ágústsson þingmaður: Vil vita hvort mynd- böndunum verði skilað eða ekki „Það er fáránlegt að lögregla ráðist inn á 40-50 myndbandaleigur og leggi hald á um 15 þúsund myndbönd án þess að málunum sé fylgt eftir í dómskerfinu. Á sínum tíma var um umdeildar aögerðir að ræða og ekki ljóst hvort þær stæðust samkvæmt lögum. Nú er orðið ljóst að sektarr- efsing er fyrnd samkvæmt hegning- arlögum. Þess vegna lagði ég fram fyrirspum til dómsmálaráðherra um hvað ráðuneytið, sem hóf þessar að- gerðir, mmii aðhafast. Ekki er hægt að geyma þessi myndbönd endalaust án þess að skorið sé úr um það hvort menn eru yfir höfuð sekir eða ekki,“ sagði Guðmundur Ágústsson þing- maður í samtali við DV. Guðmundur sagði að með fyrir- spum sinni vildi hann fá að vita hvort myndböndunum yrði skilað og hvaö aðhafst yröi í málum fiölda manna sem áttu í hlut á sínum tfma Eins og fram kom í DV í gær þá hefur sektarrefsing fyrnst vegna þeirra myndbanda sem voru gerð upptæk í rassíu lögreglunnar í Reykjavík, Kópavogi, Hafnarfirði og í Keflavík þann 22. desember 1986. Miklum tíma var varið í rannsókn þessa umfagnsmikla máls. Nú er hins vegar ljóst að sektarrefsing hef- ur fyrnst og ekki ljóst hvort eigend- urnir eru sekir eða ekki. Krafa um eignaupptöku fymist hins vegar á fimm árum. „Meginhluti myndbandanna sem var lagt hald á á sínum tíma var ótextað efni sem var flutt inn til landsins á löglegan hátt,“ sagöi Guð- mundur. „í dag væri fyrirsláttur að fara í mál við alla þessa aðila og ákæra eingöngu tfl þess að krefjast eignaupptöku. Ég minnist þess ekki að ríkissaksóknari hafi eingöngu ákært fyrir eignaupptöku í sams konar málum. Eg bíð því eftir svari ráðherra um hvaða viðbrögð verða af hálfu ráðuneytisins og þeirra aðila í dómskerfinu sem hafa með þetta umfangsmikla mál að gera,“ sagði GuðmundurÁgústsson. -ÓTT Alit Ríkisendurskoðunar á Samvinnubankakaupunum: Bankinn var 200 milljónum of dýr - kaupin tilgangslítil nema bankamir sameinist í álitsgerð Ríkisendurskoðunar á kaupum Landsbanka íslands á Sam- vinnúbankanum kemur fram að Rík- isendurskoðun telur að borgað hafi verið 200 milljón krónum of mikið fyrir hlutabréfin. í skýrslu viöskiptaráöherra til Al- þingis um þessi kaup koma fram álit bankaeftirlits Seðlabankans og Rík- isendurskoðunar. Þar segir Ríkis- endurskoðun að hefldarverð allra hlutabréfa Samvinnubankans sé um 1.100 milljónir króna samkvæmt kaupsamningnum. Hins vegar telur Ríkisendurskoðun að verð alls hluta- fiár Samvinnubankans, þegar það sé komið í hendur Landsbankans, sé aðeins 900 milljónir króna. Þarna munar því 200 milljónum króna. Rík- isendurskoðun slær þó þann var- nagla að segja að nákvæmt mat bygg- ist á því hvaða hagnað Landsbankinn geti haft af sameiginlegum rekstri bankanna og hvort Landsbankanum takist að halda meginhluta innlán- sviðskipta Samvinnubankans. Þá telur Ríkisendurskoöun að kaup Landsbankans á 52% hlut Sambands íslenskra samvinnufélaga í Sam- vinnubankanum þjóni ekki tilgangi nema til komi frekari hlutafiárkaup, þannig að Landsbankinn fái at- kvæðamagn sem nægi til þess að sameina bankarekstur Samvinnu- bankans að fullu rekstri Lands- bankans með yfirtöku eða samruna. Þá vitnar Ríkisendurskoðun í hlutafiárlögin og kemst að því að hæpið sé að ákvarðanir nýrrar stjómar Samvinnubankans um sam- drátt í starfsemi hans til að auka hagnaðarvon eða efla á annan hátt Landsbankann fái staðist. Þá kemst Ríkisendurskoðun að því að upphaflega tilboð Landsbankans í Samvinnubankann, sem Sverrir Hermannsson og Guðjón B. Ólafsson undirrituðu, hafi í raun þýtt að Sam- vinnubankinn hafi þá verið metinn á 1.600 milljónir króna. Þá má geta þess að í álitsgerð bankaeftirlits Seðlabankans kom fram að eigið fé Landsbankans nam samkvæmt bráðabirgðauppgjöri 31. desember síðastliðinn 5.300 milljón- um króna. Eigið fé Samvinnubank- ans nam á sama tíma 780 mflljónum króna. -SMJ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.