Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.1990, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.1990, Blaðsíða 15
15 FÖSTUDAGUR 9. FEBRÚAR 1990. Fkamhaldsskóli fyrir alla „I kjölfar grunnskólans risu nýir framhaldsskólar - flestir svokallaöir fjölbrautaskólar með anna- og áfangakerfi", segir m.a. i greininni. Með lögum frá 1988 voru íslensk- ir framhaldsskólar formlega opn- aðir öllum sem lokið hafa grunn- skólaprófi. Skiptir þá ekki máh hvaða einkunnir nemendur fá, allir §iga lögum samkvæmt rétt á skóla- vist í framhaldsskóla. Þar með varð að veruleika lángþráður draumur margra um nýjan framhaldsskóla - skóla íyrir alla. Vissuiega er það fögur hugsjón að veita skólavist öllum þeim ungl- ingum sem vilja stunda nám í fram- haldsskóla en eins og sakir standa virðast margir endar enn vera lausir hvað varðar framkvæmd umræddra laga og möguleika þeirra sem í skólana fara á að „komast þar til nokkurs þroska" en það hlýtur að vera sígilt mark og mið hverrar lagasetningar um skóla- og fræðslumál. Nýr skóli Hugmyndir um opinn framhalds- skóla - skóla fyrir alla - viröast reistar á sömu eða svipaðri hug- myndafræði og býr að baki grunn- skólalögunum frá 1974 og þeirri skólagerð á íslandi sem fylgdi í kjölfarið. íslénski grunnskóhnn - eða „nýi skólinn" sem ég kalla svo - reis á rústum gamla barna- og unglingaskólans sem stóð fostum fótum í fornri, íslenskri menning- arhefð og lögfestur var fyrst árið 1907 og endurbættur verulega árið 1946. Að dómi margra góðra skóla- manna voru íslensk fræðslulög þá með þeim bestu og framfarasinn- uðustu í gjörvallri Evrópu og landsprófið ein mesta réttarbót í menntamálum sem íslenskur al- menningar hafði hlotið. Með tíl- komu þess voru úr sögunni inn- tökupróf í menntaskólana sem sumum var mikh eftirsjá að en voru flestum unghngum úr al- þýðustétt heldur meiri þrándur í götu en þeim sem komu úr fjöl- Kjallariim Helga Sigurjónsdóttir námsráðgjafi skyldum þar sem löng menntahefð var ríkjandi. Með fræðslulögunum frá 1946 var skólaskylda lengd um eitt ár og lauk með unglingaprófi úr 2. bekk gagnfræöa- eða unglingaskóla sem samsvarar nú 8. bekk grunnskóla. Að unghngaprófi loknu var um þijár leiðir að velja fyrir þá sem vhdu halda áfram námi. Þessar leiðir voru verknámsdeildir gagn- fræðaskólanna og lauk prófi úr þeim með gagnfræðaprófi, bók- námsdehdir gagnfræðaskólanna en tveggja ára námi úr þeim lauk einnig með gagnfræðaprófi og svo- kallaðar landsprófsdehdir mið- skóla. Landspróf var samræmt í öllum námsgreinum og veitti inngöngu í menntaskóla. Gagnfræðapróf tók tvö ár eftir unghngapróf en lands- próf eitt ár. Það var því eins konar hraðferð og veitti meiri réttindi en gagnfræðaprófið hvort heldur sem var úr verknámi eða bóknámi. Með lögum um grunnskóla 1974 var skólaskylda enn lengd (þó ekki strax) um eitt ár, gagnfræðaskólar og gagnfræðapróf lagt af smám saman og skólastigum fækkað úr fjórum í þrjú; grunnskólastig, framhaldsskólastig og háskólastig. Grunnskólapróf með framhalds- einkunn varð aðgöngumiði að framhaldsskólum í stað landsprófs áður. í kjölfar grunnskólans risu hýir framhaldsskólar - flestir svokall- aðir fiölbrautaskólar með anna- og áfangakerfi. Krafa tímans var: Mennt er máttur og menntun er best fiárfesting. Hvort tveggja óyggjandi sannindi á framfara- og tækniöld þegar hver ný kynslóð hlýtur að þurfa bæði lengri og betri skólamenntun en foreldrarnir fengu. Þetta hefur gengið eftir jafnt á íslandi sem í öðrum vestrænum ríkjum eftir síðari heimsstyijöld. Skólaganga og formleg skóla- menntun hefur hvort tveggja lengst og aukist að mun og er enn ekki séð fyrir endann á þeirri , ,menntasprengingunni‘ ‘. Brautin breið o Allt er þetta gott og blessað og eðhlegt að menntun aukist og batni og mikið réttlætismál fyrir al- menning að sem greiðastur að- gangur sé að menntun fyrir öh börn og unghriga í landinu. Opinn framhaldsskóh er hugsaður sem liður í því alveg eins og grunnskól- inn var hugsaður sem réttarbót fyrir íslensk börn og unghnga fyrir bráðum tveimur áratugum. Margir hugmyndasmiðir þá álitu rétt að taka sem flestar hindranir úr vegi bama og unghnga á náms- brautinni, m.a. að fækka sam- ræmdum prófum og prófum yfir: leitt, afnema fall eða aðrar formleg- ar hindranir á mihi bekkja og greiða nemendum þannig leið th framhaldsnáms. Aht saman í nafni jöfnuðar, jafnréttis og réttlætis. Svokölluð blöndun í bekki er af sömu rótum runnin. Skólamenn vildu afnema „tossabekkina" gömlu sem ekki var vanþörf á og hefur svo vel tekist th að orðið „tossi“ mun svo gott sem horfið úr máhnu. Að því er ég best veit var ein- hugur um framhaldsskólalögin nýju á Alþingi loks þegar tókst að koma lögum yfir framhaldsmennt- un á íslandi. Aftur á móti er ég ekki viss um að allir sem hlut áttu að máh hafi gert sér fulla grein fyrir því hvað framhaldsnám fyrir aha raunverulega þýðir. Réttara væri sjálfsagt að tala um nám fyrir alla í framhaldsskóla þar sem und- irbúningur nemenda undir frekara nám mun verða enn misjafnari en hann er í dag og er hann æði mis- jafn þó. Hver er reynslan? En væri kannski ástæða th þess að staldra ögn við og athuga hvern- ig „nýi skólinn" hefur reynst? Hvernig stendur t.d. á því að árlega koma úr grunnskólanum heh- brigðir nemendur th sálar og hk- ama með lágmarksfærni og lág- marksþekkingu í þeim greinum sem kenndar eru í skólanum? Get- ur veriö að góðar hugmyndir og skynsamlegar kenningar hafi ekki dugaö sem skyldi th að skapa þann jöfnuð og réttlæti meðal bama og unglinga sem að var stefnt með lagasetningunni 1974? Ef alvarlegar brotalamir kunna að reynast í hugmyndafræðinni er þá ekki varhugavert að halda áfram á sömu braut. í „nýjum framhaldsskóla"? þarf ekki fyrst aö gera rækilega úttekt á grunn- skólanum og athuga hvað af öhum nýjungunum forðum daga hefur reynst nýthegt og gott og hvað mið- ur? Ég læt hér staðar numið að sinni en mun á næstu vikum skrifa fleiri stuttar greinar um skólamál og taka næst fyrir hugmyndafræði ís- lenska grunnskólans. Helga Siguijónsdóttir „Skólamenn vildu afnema „tossabekk- ina“ gömlu sem ekki var vanþörf á og hefur svo vel tekist til að orðið „tossi“ mun svo gott sem horfið úr málinu.“ Nýr kjarasamningur Með samningnum er verkalýðsforustan ásamt vinnuveitendum að taka völdin af ráðamönnum og lýsa yfir vantrausti á stjórnun peninga og verðlagsmála í landinu, segir hér m.a. Nú hefur verið undirritaður stór og mikhl kjarasamningur sem að sögn þeirra aðila sem að standa markar tímamót í samningagerð og sé með honum verið að boða nýja tíma í gerð kjarasamninga á íslandi. Aö hluta er þetta rétt og sennilega er samningur með því sniði, sem nú var verið að undirrita, sú leið sem helst er fær út úr þeirri kreppu sem við búum við og þess vegna réttlætanlegur miðað við þær for- sendur að með samningnum er verkalýösforustan ásamt vinnu- veitendum að lýsa yfir vantrausti á stjómun peninga- og verðlags- mála í landinu og að vissu leyti að taka völdin af ráðamönnum, sem má segja aö hafi verið löngu tíma- bært. Þó að hægt sé að réttlæta thurð samningsins, þá er sú fullyrðing um að verið sé að fara nýjar leiðir með gerð hans ahs ekki rétt, því hér sem svo oft áður er verið að ganga beint að þeim sem hafa lægstu launin og þeim ætlað að standa undir framkvæmd hans og kreppunni viðhaldið á fiölda heim- ha í landinu. Fyrir hvern er samið? Hvað gagnar það manneskju sem er með laun t.d. á bhinu 40-50 þús- und á mánuöi þó að hún fái 9% launahækkun á 16 mánuðum? Það breytir í raun og vem engu og það sem meira er, þarna breytir það heldur engu þótt vextir lækki því á þessum launum er hvort sem er ekkert svigrúm til að greiða vexti. Kjallarinn Magnús Guðmundsson form. Sleipnis, félags langferðabílstjóra Það breytir heldur ekki neinu fyrir þessa sömu manneskju þótt verð á kindakjöti standi í stað. Launin leyfa ekki kaup á shkum munaði nema til komi verðlækkun, sem kemur ekki. Frekar skal gefa umframkjöt th Rúmeníu heldur en að lækka verðið almenningi th góða á íslandi. Það er th fátækt á íslandi árið 1990 og þessi samningur stuðlar að því að viöhalda henni og má einna helst finna honum það th foráttu. Raunveruleikatengsl ráðamanna Alvarlegust eru þó viðbrögð stjórnmálamanna og umsögn þeirra um samninginn og sýna þær umsagnir hvað kjörnir fulltrúar fólksins í landinu eru í raun lítið meðvitaðir um kjör þess fólks sem kaus þá th að gæta hagsmuna sinna. Aðeins fulltrúar eins flokks virðast gera sér grein fyrir ástand- inu og það eru fulltrúar Kvenna- hstans sem hafa lýst yfir áhyggjum vegna kjara hinna lægstlaunuðu við þessa samningagerð. Ahir aðrir hafa kepp'st við að lof- syngja samninginn og sjá ekki van- traustið sem í gerð hans er fahö. Fjármálaráðherra telur einn helsta kost samningsins vera að hann stuðh að því að skerpa verðskyn fólks. Það þurfti ekki þennan samning th því töluvert er síðan sú staða var komin upp að fólk þurfti að skoða verð og gera upp hug sinn um hvað það gæti verið án th þess að endar næðu saman. En þessi yfirlýsing fuhtrúa flokks, sem gef- ur sig út fyrir að vera málsvari fólksins í landinu, segir kannski aht sem þarf að segja um tengsl stjórnmálamanna og almennings. Undirtektir og freisi til samningagerðar Ég trúi því ekki að óreyndu að þessi kjarasamningur eigi eftir að verða samþykktur af verkalýðs- félögunum í landinu, nema því að- eins að búið sé að hræða fólk svo mikið með atvinnuleysisgrýlunni að það hreinlega þori ekki annað en samþykkja þessa framlengingu kreppunnar sér th handa af ótta við atvinnumissi, því kannski má segja að betra sé að gefa vinnuna sína heldur en að hafa ekkert að gera. Nú hefur okkur, sem eigum eftir að semja, verið hótað lagaboði sem taki af okkur rétt til fijálsra samn- inga sem segir nokkuð um þá sem hafa látið þær hótanir frá sér fara áður en ljóst er um fylgi við samn- ingana innan verkalýðsfélaganna. Mér þætti fróðlegt að sjá réttlæt- ingu þeirra laga sem meinuðu okk- ur bhstjórum að semja um hærri laun okkur th handa með fijálsum samningum. Ein forsendan fyrir kröfugerð okkar er að við teljum að öryggis vegna verðum við að fá hærri laun, þar sem við verðum th að geta framfleytt okkur að vinna meiri aukavinnu en við teljum for- svaranlegt. Magnús Guðmundsson „Hvað gagnar það manneskju sem er með laun t.d. á bilinu 40-50 þúsund á mánuði þó að hún fái 9% launahækkun á 16 mánuðum?“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.