Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.1990, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.1990, Blaðsíða 9
Svíþjóð: Stjórnin f er frá verði tillög urnar ekki samþykktar „Efnahagstillögurnar verður að samþykkja í heild sinni. Ef þingið fellir tíllögurnar getur stjórnin ekki setíð lengur," sagði Ingvar Carlsson, forsætísráöherra Svíþjóðar, á fundi með fréttamönnum í gær. Stjórnarkreppa í Svíþjóð gætí orðið að veruleika þegar í næstu viku. Til- lögur ríkisstjórnarinnar um al- menna verðlags- og launastöðvun og bann við verkföllum og verkbönnum næstu tvö árin, sem Kjell-Olof Feldt fjármálaráðherra kynnti í gær mælt- ust afar illa fyrir meðal þingmanna. Stjórnin kveður tíllögurnar nauð- synlegar með tilliti til þess að verð- bólgan nálgaðist 7 prósent. Launakr- öfur stéttarfélaga eru sumar langt yfir verðbólgustíginu. Margir fréttamanna á fundinum í gær héldu því fram að stjórnin í Sví- þjóð heföi gengið lengra en íhalds- stjórn Thatcher sem aldrei hefði sett á bann við verkfollum. Minnst þijátíu og fimrn daga þarf til að undirbúa kosningar ef forsætís- ráðherrannboðarþær. TT Viðræður um opna lofthelgi: Bjartsýni ríkir um samkomulag Utanríkisráðherrar Atlantshafs- bandalagsins, Nato, og Varsjár- bandalagsins koma saman til sex vikna langrar ráðstefnu í Kanada í næstu viku til að ræða samning sem myndi heimila óvopnuðum herflug- vélum bandalaganna að fljúga yfir yfirráðasvæði hvort annars, þar á meðal ísland. Hér er um að ræða til- lögur Georges Bush Bandaríkjafor- seta, svokallaða „open skies“ hug- mynd eða „opna lofthelgi“. Töluverð bjartsýni ríkir um að samkomulag náist fljótlega og að það verði jafnvel undirritað samkomulag á síðari hluta viöræðnanna sem fram fara í Ungverjalandi, að öllum líkindum í apríl. „Við búumst við að aukinn hraði færist í samningaumræðurnar í Ottawa og þegar þeim fundi lýkur, í Búdapest,“ sagði John Hawes á fundi með blaðamönnum í gær en Hawes verður helsti samningamaður Bandaríkjanna í fyrirhuguðum við- ræðum. „Ég held að takmark margra ríkja sé að ljúka þessum viðræðum fyrir sumarið ... svo þau getí snúið sér að lokaþrepi Vínarviðræðn- anna,“ sagði Michael Krepon, sér- fræðingur við Henry L. Stímson stofnunina í Bandaríkjunum. Vínar- viðræðurnar snúast um fækkun í hefðbundnum herafla í Evrópu. Samkvæmt tillögum Nato sem verða til umfjöllunar í Kanada myndu aðildarríkin heimila óvopn- uðum eftírlitsflugvélum að fljúga yfir lofthelgi sína að uppfylltum sérstök- um skilyrðum. Eftirlitsvélarnar yrðu búnar sérstökum infrarauðum bún- aði og myndatökuvélum sem gerði þeim kleift að grannskoða landsvæði í allt að 40-80 kílómetra fjarlægð. Engin formleg tengsl eru milli mögu- legs samnings um fækkun hefð- bundinna vopna í Evrópu og samn- ings um opna lofthelgi. Þrátt fyrir það sagði Hawes á blaðamannafund- inum í gær að allar upplýsingar sem safnast kynnu í Ijósi samnings um opna lofthelgi gætu nýst til staðfest- ingar hugsanlegs samkomulags um fækkun hefðbundinna vopna. í Kanada fá ráðherrarnir, sem nú funda í fyrsta sinn síðan umrótíð í Austur-Evrópu hófst, einnig tæki- færi til að ræða mögulega samein- ingu þýsku ríkjanna sem og stöðu Vínarviðræönanna. Reuter Útlönd Afvopnunarviðræður: Tilslakanir stórveldanna að með þessu hafi sovésk stjórnvöld rutt tíl hliðar einni hindrun í vegin- um fyrir samningum um verulega fækkun í kjarnorkuvopnabúri stór- veldanna. Moskvustjórnin hefur hingað til krafist þess að Bandaríkin falhst fyrirfram á rétt Sovétríkjanna tíl að segja upp samningi um fækkun langdrægra kjarnorkuvopna, svo- kölluðum Start-samningi, hvenær sem er telji þeir að Stjörnustríðsáætl- un Bandaríkjanna brjóti gegn ABM- sáttmálanum. Einn bandarískur embættismaður sagði í gær að Sovét- menn hetðu skýrt afstöðu sína og að þótt þeir vildu að slíkt samkomulag lægi fyrir væri það ekki skilyrði fyr- ir undirritun og framkvæmd samn- ings um fækkun langdrægra kjarn- orkuvopna. Deilur stórveldanna várðandi þessi mál snúast um hvort ABM-sáttmálinn heimili prófanir á geimvörnum en slíkar tilraunir vilja Bandaríkjamenn gera sem hluta stjörnustríðsáætlunarinnar. í gær kynnti Baker nýjar tíllögur Bandaríkjanna um fækkun hefð- bundinna vopna en umræður um það fara nú fram í Vínarborg. Þessar til- lögur, sem aðildarríki Atlantshafs- bandalagsins féllust á á mánudags- kvöld, voru formlega lagðar fyrir samninganefndirnar í Vín í gær. Sérfæðingar segja að þessar tillög- ur virðist minnka þann mun sem er milli afstöðu Atlantshafsbandalags- ins annars vegar og Varsjárbanda- lagsins hins vegar til fækkunar orr- ustuflugvélum, þyrlum og skrið- drekum. í þessum tíllögum er m.a. gert ráð fyrir að hámarksfjöldi orr- ustuflugvéla verði 4.700 sem er eitt þúsund færri en Atlantshafsbanda- lagið haföi áöur lagt tíl. Reuter Stórveldin kynntu í gær verulegar tilslakanir í afstöðu sinni til afvopn- unarviðræðna og segja fréttaskýr- endur að þessar tilslakanir hafi rutt veginn fyrir framför í afvopnunar- viðræðum milli ríkjanna á meðan á heimsókn James Bakers, utanríkis- ráðherra Bandaríkjanna, standi í Sovétríkjunum. Sovétríkin hafa fallið frá kröfu sinni um að hugsanlegur samningur um fækkun langdrægra kjarnorku- vopna yrði tengdur ABM-sáttmálan- um frá árinu 1972 en hann kveður á um takmarkanir gagneldflauga- kerfa. Þetta kom fram á blaðamanna- fundi sem bandarískir embættís- menn í fylgd með Baker í Sovétríkj- unum skýrðu frá í gær.1 Baker átti níu klukkustunda fund með Eduard Sévardnadze, sovéska utanríkisráðherranum, í Moskvu í gær. Að loknum þeim fundi var ljóst að bæði stórveldin höfðu gefiö eftír og þar með glætt vonir um að samn- ingar um afvopnun næðust fljótlega. Bandarískir embættismenn sögðu í gær að svo virtist sem Sovétmenn hefðu slakað verulega á í kröfum sín- um varðandi geimvarnaáætlun Bandaríkjanna, svokallaða Stjörnu- stríðsáætlun. Telja fréttaskýrendur Eduard Sévardnadze, utanrikisráðherra Sovétrikjanna, til vinstri, og hinn bandaríski kollegi hans, James Baker. Simamynd Reuter Ausiur-Þjóðverjar vilja bíða Austur-þýska stjórnin hefúr tjáö vestur-þýskum yflrvöldum að sam- ræmingar gjaldmiðla þýsku ríkj- anna verði að bíða aö minnsta kostí þar til eftir kosningarnar í Austur- Þýskalandi í næsta mánuði. Sagði íjármálaráðherra Austur-Þýska- lands, Christa Luft, í gær aö stjórn hennar hefði ekki umboð tíl að láta af hendi svo stóran hluta yflrráð- anna yfir efhahagskerfinu meö til- liti til hversu stutt væri til kosn- inga. Hans Modrow, forsætisráðherra Austur-Þýskalatids, sagði í gær að sér hefði ekki verið tilkynnt for- mlega frá tíllögum vestur-þýsku stjórnarinnar um samræmingu gjaldroiðlanna heldur hefði hann heyrt um tillöguna í fjölmiðlum. Hans Modrow, forsætisráðherra Austur-Þýskalands. Simamynd Reuter sextíu námumenn Ættingjar nokkurra þeirra rúmlega sextíu verkamanna sem talið er að hafi látlst i námuslysi i Tyrklandi safnast saman fyrir framan námuopíð þar sem slysið átti Sér Stað. Símamynd Reuter Óttast er að sextíu og sex tyrkneskir námumenn hafi týnt lífi þegar sprenging varð í neðanjarðarnámu á miðvikudagskvöld. Slysið áttí sér stað í brúnkolsnámu í Jeniceltek nálægt Svartahafi. Embættismenn sögðu í gær að þeir hefðu gefið upp nær alla von til þess að bjarga hátt í sextíu námumönnum sem höfðu lokast inni í námunni, um 350 metrum fyrir neðan yfirborð jarðar þegar gassprenging varð. Eldur kviknaði fljótlega eftir sprenginguna og breiddist út. Síðdegis í gær aö íslenskum tíma var ekki búið að slökkva eldinn. Átta lík og tveir alvarlega slasaðir námumenn hafa þegar fundist. Þetta er taliö versta námuslys á Tyrklandi síðan áriö 1983. Rándýr kaffikanna Bandaríska varnarmálaráðuneytið hefur keypt varahlutí og annan út- búnað fyrir 30 milljarða dollara að óþörfu, samkvæmt niöurstööu rann- sóknar sem demókratar hafa látið gera. Það samsvarar 1800 milljöröum íslenskra króna. Talsmaður varnarmálaráðuneytisins viðurkennir að tíl séu á lager óþarfa birgöir upp á átta til níu milljarða dollara eða nær 500 milljarða íslenskra króna. í skýrslu demókrata er taliö með það sem ekki er þörf á núna en sem myndi kosta meira að losa sig við heldur en geyma. Eins og til dæmis 150 þúsund pör af íóðruðum vetrarbuxum frá dögum Kóreustríösins. Heldur nýrri eru 3 milljónir af skyrtum sem voru sérsaumaðar á konur i hernum. Höfðu heryfirvöld varið 3,5 milljónum dollara, um rúmum 200 milljónum íslenskra króna, í að iáta taka brjóstmál af konum og síðan pantað skyrtur i 126 mismunandi stærðum. Seinna var svo valið nýtt snið úr sterkara efni. Heryfirvöld verja sig einnig með því að dregið hafi verið úr útgjöldum i kjölfar mikillar gagnrýni á bruðl í byrjun níunda áratugarins. Það var þá sem keyptur var hamar á 400 dollara, eða 24 þúsund krónur, klósett á 600 dollara, 36 þúsund krónur, og kaffikanna á 7600 dollara eða nær hálfa milljón. Síðan hefur varnarmálaráðuneytið keypt fjöldaframleidda hluti í sparnaðarskyni. Rannsóknarnefnd demókrata fann meðal arrnars birgðir tíl 13 þúsund ára af verkfærum fyrir búnað í F-14 orrustuflugvólar. Barist á ný Striðandi fylkingar kristinna í austurhluta Beirút í Líbanon gripu til vopna á ný i morgun og rufu þar mcð samkomulag loiðtoga sinna um að binda enda á bardagana sem staðið hafa yfir í tíu daga. Að minnsta kosti ijögur hundruð og tuttugu manns hafa látiö lífið í átökunum og sextán hundruö særst. Stuttu áður en yfirlýsing var gef- in út í gær um samkomulag um vopnahlé sáust þúsund múha- meðskir þjóðvarðliðar, sem njóta Þessi kristna kona Irá austurhlula stuðnings Sýrlendinga, koma sér Beirút grætur er hún snýr aftur fyrir með skriðdreka og eldflauga- hélm eftir að hafa skotist yfir i vörpur meðfram austurhluta Belr- vesturhluta borgarinnar til matar- út. Innkaupa þegar stutt hlé varð á Samingamenn segja að leibtogar bardögunum I gær. Konan sagði kristinna, Aoun og Geagea, hefðu Ijósmyndaranum fró því að tvö komið sér saman um aö snúast til bama hennar væru horfln og að varnar gegn íhlutun annarra á hún vissl ekkl hvort þau væru enn svæði kristinna. álifi. simamynd neuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.