Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.1990, Blaðsíða 6
6
FQSTLjDAQUJi 9. FEBHÚAK 1990.
Viðskipti
Fyrirtækin sem íhuguðu kaup
á Stöð 2 stofna fyrirtæki
- hið nýja fyrirtæki heitir Áramót hf.
Fyrirtækin iimm, Hekla, Hagkaup,
Vífílfell, Prentsmiðjan Oddi og Bíó-
höllin, sem íhuguðu kaup á Stöð 2 í
lok síðasta árs/hafa stofnað saman
fyrirtækið Áramót hf. Þess má geta
að það var einmitt um áramótin sem
úrslit fengust í viðræðum hópsins
um kaupin á meirihlutanum í Stöð 2.
Samkvæmt upplýsingum Hlutafé-
lagaskrár í gær var fyrirtækið stofn-
að 29. desember síðastliöinn. Stjóm
þess skipa Ingimundur Sigfússon,
forstjóri Heklu hf., Sigurður Gísli
Pálmason, stjómarformaður Hag-
kaups, og Ámi Samúelsson, eigandi
Bíóhallarinnar og Bíóborgar.
Þá segir ennfremur í bréfi hins
nýja fyrirtækis til Hlutafélagaskrár
að tilgangurinn með stofnun þess sé
hvers konar verslun og viðskipti,
rekstur fasteigna og lánastarfsemi
og önnur skyld starfsemi.
Hlutafé Áramóta hf. er 6 milljónir
króna og er það að fullu greitt.
Loks segir í bréfi fyrirtækisins til
Hlutafélagaskrár að framkvæmda-
stjóri Áramóta hf. sé Þorgeir Bald-
ursson en hann er raunar forstjóri
Prentsmiðjunnar Odda. Varamenn í
stjórninni eru þeir Lýður Á. Frið-
jónsson, forstjóri Vífilfells hf., og
ÞorgeirBaldursson. -JGH
Sögulegt 1.800 bíla uppboð á morgun:
Þetta sýnir vanskilin
Búast má við flöri að Smiðshöfða
1, Vökuportinu, klukkan hálftvö á
morgun en þá fer þar fram opinbert
uppboð á samtals um 1.850 bílum,
samkvæmt auglýsingu frá uppboðs-
haldaranum í Reykjavík sem birtist
í DV síðastliðinn laugardag. Þetta er
enginn smáfjöldi bíla á einu og sama
uppboöinu. I raun sýnir þessi auglýs-
ing býsna vel vanskilin í landinu.
„Ég á nú ekki von á að allir þessir
bílar verði seldir, ætli það fari ekki
um 10 prósent þeirra,“ segir Brynjar
Níelsson, uppboðshaldari í Reykja-
vík. Brynjar annast uppboðið á
morgun.
Að sögn Brynjars eru bílamir
Þessi auglýsing um nauðungaruppboð á bílum birtist í DV síðastliðinn laug-
ardag. Lauslega talið er um rúmlega 1.830 bíla að ræða. Uppboðið verður
klukkan hálftvö i Vökuportinu við Smiðshöfða á morgun og má búast við
hamagangi á Hóli.
boðnir upp vegna þess að fyrir liggur
fjárnám í þeim eða að þeir hafi verið
veðsettir vegna venjulegra skulda-
bréfa.
Þegar tekið er fjárnám í bílum er
það vegna þess að eigandi hans
skuldar einhverium eitthvað og
borgar ekki. Sá sem á inni hjá mann-
inum leitar þá réttar síns og fær dóm
fyrir því að gera megi fjárnám. Fó-
geti eöa fulltrúar hans mæta á vett-
vang og taka fjárnám í eigulegustu
hlutnunum. Síðan er hluturinn boð-
inn upp hafi skuldin ekki verið
greidd.
-JGH
Steypustöðin Ós í Garðabæ. Aðaleigandi stöðvarinnar, Ólafur Björnsson, á
í viðræðum við fjóra aðila um kaup á hlutafé í stöðinni. í þeim viðræðum
er gert ráð fyrir að Ólafur eigi áfram meirihlutann.
Nýir hluthafar inn í Ós:
Eg er aðræða viðfjóra
Ólafur Bjömsson, forstjóri og aðal-
eigandi steypustöövarinnar Ós í
Garðabænum, segir að enn standi
yfir viðræður á milli hans og nokk-
urra aðila irni kaup þeirra á hlutafé
í steypustöðinni og hann sé vongóður
um framhaldið.
„Þetta hefur tekið lengri tíma en
menn ætluðu en ég er vongóöur um
að samningar takist," segir Ólafur.
Hann segir ennfremur að um sé að
ræða fjóra aðila sem hann sé að ræða
við um kaup á hlutafé í fyrirtækinu.
í þessum viðræðum er gert ráð fyrir
því að hann verði áfram með meiri-
hlutaeign í steypustöðinni.
Ólafur segist ekki vilja gefa upp
nöfn þeirra fjögurra sem hann er að
ræða við um hlutafjárkaupin.
-JGH
Júlíus að hætta
hjá Skagfjörð
Einn kunnasti forstjórinn í
Reykjavík, Júlíus S. Ólafsson, for-
stjóri Kristjáns Ó. Skagfjörð, hefur
ákveðið að hætta hjá fyrirtækinu í
sumar. Ætlunin er að auglýsa eftir
eftirmanni hans á næstunni.
„Ég hef verið forstjóri Kristjáns
Ó. Skagfjörð í tólf ár og átt hér mjög
ánægjulegar og góðar stundir. En
mig langar til að breyta til, spreyta
mig á nýjum vettvangi, annað liggur
nú ekki að baki þessari ákvörðun
minni,“ segir Júlíus.
Júlíus er 46 ára að aldri. Hann er
viðskiptafræðingur að mennt. Áður
en hann réðst til Kristjáns Ó. Skag-
fjörð sem forstjóri vann hann hjá
Iðnlánasjóði og Félagi íslenskra stór-
kaupmanna.
Að sögn Júlíusar hefur hann ekki
ráðiö sig til annars fyrirtækis aö svo
komnu máli. „Ég hætti nú raunar
ekki hér fyrr en um mitt sumar
þannig að það er enn nægur tími til
stefnu." -JGH
Júlíus Ólafsson, forstjóri Kristjáns
Ó. Skagfjörð. „Langar til að breyta
til og spreyta mig á nýjum vett-
vangi."
Dr. Jóhannes Nordal seðlabankastjóri:
Peningalegar hundakúnstir úr sögunni
- taki íslendingar þátt í gengissamstarfi Evrópuríkja
Dr. Jóhannes Nordal seðlabanka-
stjóri sagði á fundi Félags hagfræð-
inga og viðskiptafræðinga að með
auknu samstarfi í peningamálum í
Evrópu gæti sá stöðugleiki, sem
þýski seðlabankinn hefði skapað,
veriö fyrir bí. Sameiginleg gengis-
stefna Evrópuríkja þyrfti á miklu
aöhaldi að halda en tækist það væri
sjálfstæð peningastefna ríkjanna
óþörf. Tækju íslendingar þátt í slíku
samstarfi yrðu allar hundakúnstir í
íslenskum peningamálum úr sög-
unni. Hann benti á að traustur gjald-
miðill stuðlaði að viðskiptum og
þannig' hagvexti. Sjálfstæði seðla-
banka væri mikilvægt af þessum
sökum þótt til væru kenningar um
að peningastjómunarkerfið væri
betur komið annars staðar eða hlítti
jafnvel alfarið fóstum reglum. Hag-
stjómarstefnan almennt hefði mikil
áhrif á stöðu seðlabankanna og sér-
staklega hefði hið fljótandi gengi
krafist mikils aðhalds í peningamál-
um. Mikilvægt væri að markmið
peningastefnunnar væra skýrt skil-
greind og hefðu almennan stuðning.
Ríkisvaldið á hveijum stað væri þó
bara eitt og í ágreiningsmálum þyrfti
að vera hægt að fá úrskurðaraðila,
t.d. löggjafann. Framkvæmd í þess-
um málum mótaðist þó mikið af hefð
og ytri aöstæðum.
Dr. Jóhannes sagði heiminn standa
á gati yfir þróuninni í A-Evrópu og
mikil verðbólgusprenging væri dulin
í kerfmu þar. Vandamálið enn sem
komið er væri aðallega pólitískt en
jafnvel væri lausn á peningalegum
vanda þeirra að skipta um gjaldmið-
il. Samningana núna taldi hann
merkilega tilraun og tók undir orð
verkalýðsleiðtoga að þetta væri djörf
tilraun. Verkalýðsleiðtogarnir vildu
þó jafnan fá greiðslu fyrir svona
samninga sem gæti komið í veg fyrir
að aðrar hagstjómaraðgerðir í
tengslum við þá gengju upp. Vextir
hefðu hlutverk í þessu sambandi og
kynnu að hækka sem þó væri skárra
heldur en fjármagna ríkisgeirann
með erlendum lánum og kalla þannig
verðbólgu yfir samningana. Hann
sagði lögin um seðlabankann frá 1986
mgla saman reytum ríkisvalds og
seðlabanka í peningastefnunni. Þessi
endurskoðun hefði ekki verið gerð á
grundvelli fræðilegra athugana held-
ur útlitsbreyting.
Þau kynni, sem mynduðust á milli
forráðamanna fyrirtækjanna fimm í
viðræðunum um kaupin á Stöð 2,
urðu til þess að fyrirtækið Áramót
hf. varð til.
Peningamarkaður
INNLÁNSVEXTIR (%) hæst
Innlán óverðtryggð
Sparisjóðsbækurób. 4-7 LB.Bb
Sparireikningar
3ja mán. uppsögn 5-7,5 Lb
6mán. uppsögn 5-8 Ib.Bb
12mán. uppsögn 8-9 lb
18mán. uppsögn 16 Ib
Tékkareikningar, alm. 1-2 Sb
Sértékkareikningar 4-7 Lb.Bb
Innlán verðtryggð Sparireikningar
3ja mán. uppsögn 1,5 Allir
6 mán. uppsögn 2,5-3,0 Lb,Bb,- Sb
Innlán meðsérkjörum 2,5-3,25 Sp
Innlángengistryggð
Bandaríkjadalir 6,75-7,25 Sb
Sterlingspund 13,75-14,25 Ib.Sb
Vestur-þýskmörk 6,75-7,25 Sb
Danskarkrónur 10,25-11,0 Ib
ÚTLÁNSVEXTIR (%) lægst
Útlán óverðtryggð
Almennir víxlar(forv.) 20-22 Sb.Sp
Viöskiptavíxlar(forv.) (1) kaupgengi
Almennskuldabréf 21,5-28 Ib
Vióskiptaskuldabréf(l) kaupgengi Allir
Hlaupareikningar(yfirdr.) 25-26,5 Ib.Bb
Utlan verðtryggð
. Skuldabréf 7,5-8,25 Lb.Bb
Utlántilframleiðslu
Isl. krónur 20,5-26,5 Ib
SDR 10,75-11 Ib.Bb
Bandarikjadalir 9,75-10 Bb
Sterlingspund 16,75-17 Bb
Vestur-þýsk mörk 9,75-10 Bb
Húsnæðislán 3,5
Lífeyrissjóðslán 5-9
Dráttarvextir 37,2
MEÐALVEXTIR
Överðtr. feb. 90 37,2
Verðtr. feb. 90 7,9
VÍSITÖLUR
Lánskjaravísitalajan. 2771 stig
Lánskjaravisitala feb. 2806 stig
Byggingavísitala feb. 527 stig
Byggingavísitala feb. 164,9 stig
Húsaleiguvísitala 2,5% hækkaði 1. jan.
VERÐBRÉFASJÓÐIR
Gengi bréfa verðbréfasjóða
Einingabréf 1 4,652
Einingabréf 2 2,555
Einingabréf 3 3,061
Skammtímabréf 1,586
Lífeyrisbréf
Gengisbréf 2,057
Kjarabréf 4,610
Markbréf 2,455
Tekjubréf 1,923
Skyndibréf 1,390
Fjölþjóðabréf 1,268
Sjóðsbréf 1 2,248
Sjóðsbréf 2 1,716
Sjóðsbréf 3 1,575
Sjóðsbréf 4 1,328
Vaxtasjóösbréf 1,5855
Valsjóðsbréf 1,4930
HLUTABRÉF
Söluverð að lokinni jöfnun m.v. 100 nafnv.:
Sjóvá-Almennar hf. 424 kr.
Eimskip 424 kr.
Flugleiðir 163 kr.
Hampiðjan 174 kr.
Hlutabréfasjóður 168 kr.
Eignfél. Iðnaðarb. 185 kr.
Skagstrendingur hf. 320 kr.
Islandsbanki hf. 158 kr.
Eignfél. Verslunarb. 158 kr.
Oliufélagið hf. 333 kr.
Grandi hf. 157 kr.
Tollvörugeymslan hf. 114 kr.
(1) Við kaup á viðskiptavíxlum og við-
skiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja
aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi,
kge.
Skammstafanir: Ab = Alþýðubankinn,
Bb = Búnaðarbankinn, Ib = Iðnaðarbank-
inn, Lb= Landsbankinn, Sb = Samvinnu-
bankinn, Úb= Otvegsbankinn, Vb =
Verslunarbankinn, Sp = Sparisjóðirnir.
Nánarl upplýsingar um penlngamarkað-
inn birtast i DV á limmtudögum.