Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.1990, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.1990, Blaðsíða 8
8 FÖSTUDAGUR 9. FEBRÚAR 1990. Útlönd Varað við hryðjuverk- um í Vestur-Evrópu Bandaríkjastjóm greindi .frá því í gær að hún óttaðist að hryðjuverka- menn gerðu árás á Bandaríkjamenn í vesturhluta Evrópu innan fárra daga. Talsmaður utanríkisráðuneyt- isins bandaríska sagöi að menn ótt- uðust aö árásin yrði gerð í tilefni ell- efu ára afmælis byltingarinnar í íran sem er um helgina. í bækistöðvum Sameinuðu þjóðanna í New York sagði sendinefn írans að viðvörun Bandaríkjanna ætti ekki við nein rök aö styðjast. Sérfræðingur í hryðjuverkamálum sagði að viðvömn bandaríska utan- ríkisráðuneytisins benti til að menn væm varkárari en áður eftir að sprengja grandaði bandarískri far- þegaþotu yfir Skotlandi í desember 1988 með þeim afleiðingum að tvö hundmð og sjötíu manns biðu bana. Bandarísk yfirvöld sættu þá mikilli gagnrýni fyrir að hafa ekki varað almenning við þar sem sendiráði Bandaríkjanna í Finnlandi hafði bor- ist viðvömn um að sprengju yrði komið fyrir um borð í farþegaþotu Pan American-ílugfélagsins, að því er sagt er. Þess vegna vari yfirvöld nú við hryðjuverkum þegar hugsanlegt er að íranir eða aörir múhameðskir ofsatrúarmenn láti til skarar skríða. Reuter Jackson í Suður-Afríku Pik Botha, utanríkisráðherra Suð- ur-Afríku, sagði í sjónvarpsumræð- um við fulltrúa Afríska þjóöarráðs- ins í gær að suður-afrísk yfirvöld hefðu átt aö senga við samtökin fyrir mörgum ámm. Vöktu þessi ummæli talsverða athygli svo og koma prests- ins Jesses Jackson, bandaríska mannréttindabaráttumannsins, til Suður-Afríku. Hann skoðaði sig um í blökkumannahverfinu Soweto í Jóhannesarborg í gær og sagöi fólk- inu þar aö nýtt tímabil væri að hefj- ast. Hópur tötralegra kvenna og ber- fættra barna elti Jackson er hann skoðaði nokkur kofaræksnanna og tjaldanna sem eru heimili sjö millj- óna Suöur-Afríkubúa. Jackson, sem var síðast í Suður- Afríku 1979, lítur á sig sem milli- göngumann milli stjórnarinnar og stjórnarandstöðunnar. Andstæðing- ar kynþáttaaðskilnaðarstefnunnar hafa ákaft fagnað komu Jacksons en yfirvöld efast um hiutleysi hans og hafa ekki svarað beiðni hans um fund með embættismönnum. Reuter Bandariski presturinn Jesse Jackson ásamt Walter Sisulu, einum leiðtoga Afríska þjóðarráðsins. Jarkson er i tíu daga ferð um Suður-Afríku. Símamynd Reuter Til átaka kom f gær milli andstæðinga kynþáttaaðskilnaöarstefnunnar í Suöur-Afriku og lögreglumanna fyrir utan bresku ræöismannsskrifstofuna í Jóhannesarborg. Kröföust mótmælendur þess aö bundinn yrði endir á keppnisferð bresks krikketliös um Suður-Afriku. Simamynd Reuter Mikhail Gorbatsjov Sovétforseti átti í gær fund með forystumönnum sovéska kommúnistaflokksins. Símamynd Reuter í kjölfar miðstjórnarfundar sovéskra kommúnista:, Björninn enn ekki unninn „ - segja fréttaskýrendur Sovéskir fjölmiðlar hafa skýrt frá því sem fram fór á miðstjórnarfundi so- véska kommúnistaflokksins fyrr í vikunni. Simamynd Reuter Fréttaskýrendur segja að þrátt fyr- ir samþykkt miðstjórnar sovéska kommúnistaflokksins frá því fyrr í vikunni um að valdaeinræði flokks- ins verði afnumið sé bjöminn ekki unninn. Þá má nú þegar merkja ágreining innan raða sovéskra kommúnista aðeins tæpum sólar- hring eftir að þeir samþykktu rót- tækar tillögur Mikhails Gorbatsjovs Sovétforseta sem miða að breyting- um á stjórnkerfi Sovétríkjanna í átt til íjölílokkalýðræðis og að fallið verði frá valdaeinokun flokksins. Gorbatsjov átti fund með forystu- mönnum flokksdeilda úti á lands- byggðinni í gær og skýrði þeim frá niðurstöðum miðstjómarfundarins sem lauk á miðvikudag. Eftir mikla gagnrýni harðlínumanna á forset- ann og líflegar umræður samþykkti miðstjómin að feta skrefið í átt að fjölflokkakerfi og binda þar með enda á sjötíu ára einræði flokksins. í fréttum Tass, hinnar opinberu fréttastofu, var skýrt frá því að á fundi forsetans og forystunnar í gær hefðu átt sér stað „lífleg skoðana- skipti". Sagði í fréttinni að þátttak- endur á fundinum hefðu lagt áherslu á nauösyn þess að koma í veg fyrir hugsanlegan klofning milli forystu- sveitar kommúnistaflokksins og al- mennra félaga. Á sama tíma og skýrt var frá fundi Gorbatsjovs og flokksforystunnar var sagt frá því í fjölmiðlum að for- setinn hefði varað við því að engar auöveldar lausnir við vandamálum þjóðarinnar lægju fyrir. Forsetinn, sem mátti sæta mikilli gagnrýni harðlinumanna á miðstjómarfund- inum fyrr í vikunni, viöurkenndi að mistök hefðu átt sér staö, sérstaklega hvaö varöaöi efnahagsumbætur. Merkja má nú þegar ósætti milli forystu flokksins og félaga í honum. Til dæmis voru höfð í frammi mót- mæli í borginni Donetsk í lýðveldinu Úkraínu. Þar hótuðu námumenn að leggja niður vinnu nema forysta flokksins í lýðveldinu segöi af sér og aö flokksdefldir í borgum og bæjum yrðu lagðar niður. Enn hefur samþykkt miösfjómar- innar frá því fyrr í vikunni ekki ver- iö birt í heild sinni opinberlega og því er ekki ljóst hvaö í henni felst. En helsti hugmyndafræðingur flokksins, Vadim Medvedev, sem nú er staddur í Bretlandi, sagði að þessi samþykkt fæli í sér að kommúnista- flokkurinn myndi gangast undir stórfelldar umbætur og myndu flokksdeildir fá mun meira sjálf- stæði. Hann sagöi að flokkurinn myndi til að mynda gjörbreyta því hvernig gengið yrði frá kosningu í æðstu stofnanir hans. Fréttaskýrendur spá því að fram- undan séu erfiðir tímar í Sovétríkj- unum þrátt fyrir samþykkt mið- stjórnarinnar. Róttækir umbóta- sinnar í landinu segja að ekki sé enn ljóst hvort kommúnistaflokkurinn sé reiðubúinn til breytinga og hvort fé- lagar í honum vilji láta af hendi þau völd og áhrif sem þeir hafa haft. Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.