Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.1990, Page 7
FÖSTUDAGUR 9. FEÉRÚAR 1990.
Perla og folöldin - Gjafar til vinstri og Nebbi. DV-mynd Kristján
Merkileg meri
Kristján Einarsson. DV, Selfossi;
Rétt fyrir utan Selfoss er lítið býli
sem Arbær heitir. Þar býr Gísli
Kristjánsson ásamt fjölskyldu sinni.
Gísli hefur eitt áhugamál framar öðr-
um en það er hestamennska.
Spölkom frá íbúöarhúsinu stendur
hesthús íjölskyldunnar og í því
hestaeign hennar. Þar á meðal er
meri ein sem Perla heitir, skapvond
og ráðrík í meira lagi. Perla átti fol-
ald í fyrra og er því afar góð og ver
það óþarfa átroðningi með hörku.
Svo gerðist þaö fyrir nokkru að
Gísli tók að sér folald sem er á sama
aldri og folald Perlu og var hann á
báöum áttum hvort hann ætti að láta
það ganga með merinni í gerðinu.
Taldi Gísli að þessi skapvonda meri
mundi gera aðkomufolaldinu eitt-
hvað illt, hann lét þó reyna á þetta.
Það er ekki að orðlengja það frekar
Perla tók þennan munaðarleysingja
að sér strax og hún sá hann og fær
hann nú að njóta móðurmjókurinnar
til jafns við hennar foladd. Er það
mál manna sem til þekkja að þetta
sé nokkuð sjaldgæft hjá hestum.
Folald Periu neitir Gjafar en mun-
aðarleysinginn, sem nú hefur fengið
nýja mömmu, heitir Nebbi.
Ríkið vill krónu í skatt
„Ég ætla mér að borga þetta en
engin ástæða er til að rengja útreikn-
ingana. Það væri þó vit í að fá upp-
hæðinni skipt á nokkra mánuði,“
sagöi Rúnar Gregory Muccio, ungur
Hafnfirðingur sem á dögunum fékk
kröfu frá gjaldheimtunni í heimabæ
sínum um að greiða eina krónu sem
hafði orðið útundan við innheimtu
skatta á síðasta ári.
Upphæðin, sem Rúnar er rukkaður
um, dugar fyrir örlitlu broti af kostn-
aðinum við að senda honum bréfið.
Undir það er greidd 21 króna. Þar
við bætist svo kostnaðurinn við út-
reikninginn. Ríkiö fær því lítið upp
í sinn hlut við innheimtuna.
-GK
Rukkunin sem Rúnar Muccio fékk. Gjaldheimtan i Hafnarfirði telur sig eiga
hjá honum eina krónu.
Síldarfarmur til Rússa
Emil Thorarensen, DV, Eskifixði;
HvassafeUið var um síðustu helgi á
Eskifirði að lesta síldartunnur á
Rússlandsmarkað. Skipið fór með
rúmar 19 þúsund tunnur. Að sögn
Kristjáns Jóhannessonar hjá síldar-
útvegsnefnd þá hefur verið afskipað
um 82 þúsund tunnum til Rússlands
af þeim 143 þúsund tunnum sem salt-
aðar voru fyrir sovéska á síðustu
síldarvertíð. Þrír skipsfarmar eru
þvi eftir enn með síldartunnur til
Murmansk, hafnarborgarinnar
kunnu við Barentshafiö.
Hvassafell lestar á Eskifirði. DV-mynd Emil
'-7
Fréttir
íslendingar neðarlega á þamblista öldrykkjuþjóða:
Ölþambið sam-
svarar 30 lítr-
um á mann
- Vestur-Þjóðverjar með 143 lítra á mann
Hver íslendingur drekkur sem
samsvarar um 30 lítrum af áfengu
öli á ári ef miðað er við sölutölur
ÁTVR fyrir síðasta ár. Það er ekki
mikið samanborið við tölur um öl-
þamb þjóða Evrópubandalagsins og
Norðurlanda en þær miðast viö nýú-
komnar tölur fyrir árið 1988.
Vestur-Þjóðverjar bera titihnn
mestu ölsvelgir Evrópu. Þar nemur
ölþambið 143 lítrum á mann. Danir
koma í öðru sæti með 127 lítra, þá
Belgar með 119 lítra, Lúxemborgarar
með 116 lítra og Englendingar með
111 lítra.
Af Noröurlandaþjóðunum komast
Finnar næst Dönum í ölþambi, með
74 lítra á hvern íbúa. Hver Svíi
drekkur 55 lítra af öh og Norðmaður
52 htra.
íslendingar eru eins og áöur sagði
neðstir á þessum þambhsta með 30
lítra af öh á hvem íbúa. Er byggt á
ölsölutölum ÁTVR frá 1. mars til
áramóta í fyrra og þær reiknaðar á
ársgrundvelli. Þar sem öl hefur verið
rétt tæpt ár á markaðnum á íslandi
ber að taka tölum yfir ölþamb okkar
með einhveijum fyrirvara.
Hvað ölþamb Dana varðar er fuh-
England \
? Danmðrk
yrt þar í landi að tölurnar séu um flutnings á öh yfir landamæri Dan-
10 prósent hærri vegna mikhs inn- merkurogVestur-Þýskalands. -hlh
útihurðir
nákvæmlega eins og þú vilt hafa þær.
Komum á staðinn og tökum mál. Gerum
fast verðtilboð með eða án uppsetningar.
Við bjóðum úrval lita, stuttan afgreiðslu-
frest, góð greiðslukjör og eingöngu 1. flokks
vöru. Við sýnum í sýningarsal BYK0,
Skemmuvegi og BÓ v/Reykjanesbraut.
Við erum aðilar að IGH og vinnum undir
eftirliti Iðntæknistofnunar íslands.
ISLENSKT GLUGGA-
OG HURÐAEFTIRLIT
ARATUGA REYNSLAIHURÐASMIÐI