Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.1990, Page 11

Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.1990, Page 11
FÖSTUDAGUR 9. FEBRÚAR 1990. 11 Japönsk börn á kosningafundi Frjálslynda lýðræðisflokksins, stjórnarflokks Japans, i Yokohama fyrr í mánuðinum. Kosningar fara fram þann 18. febrúar. Simamynd Reuter Fyrirhugaöar kosningar í Japan: Stjórnarflokkurinn á erfitt uppdráttar Framundan eru þingkosningar í Japan og í fyrsta sinn í þijátíu og fjögurra ára stjórnartíö á Frjálslyndi lýöræðisflokkurinn á brattann aö sækja. Sérfræöingar telja þó að flokkurinn muni bera sigur úr být- um í kosningunum til neðri deildar þingsins sem fram fara þann 18. febr- úar næstkomandi, en hljóta nauman meirihluta. íhaldsmenn hafa haldið um stjórn- artaumana í Japan nær sleitulaust frá lokum síðari heimsstyrjaldarinn- ar og hefur Fijálslyndi lýðræðis- flokkurinn verið við völd frá því í nóvember áriö 1955. Það er sama ár og flokkurinn var settur á laggirnar þegar tveir flokkar, Lýöræðisflokk- urinn og Fijálslyndi flokkurinn, voru sameinaðir. Æ síðan hefur Fijálsyndi lýðræðisflokkurinn haft meirihluta í neðri deild þingsins. í júlí síðasthðnum missti flokkurinn aftur á móti meirihluta sinn í efri deild og heldur aöeins rúmlega eitt hundrað sætum af 252. Fijálslyndi lýðræðisflokkurinn keppir að því að halda meirihluta sínum í neðri deild í komandi kosn- ingum og verður ekkert til sparað. Að sögn fréttaskýrenda má búast viö að flokkurinn veiji meira en tveimur mflljónum dollara í kosningabaráttu hvers frambjóðanda. Og það er ein- ungis byrjunin. Búast má við að margir frambjóðendur veiji mun meiri íjármunum í baráttu sína. Samkvæmt óstaðfestum fréttum ætl- ar einn frambjóðandi í suðurhluta landsins að eyða 21 milljón dollara í baráttuna. Það sem háir Frjálslynda lýðræðis- flokknum helst eru hneykslismál sem háttsettir félagar í flokknum hafa verið bendlaðir við. Er þar fyrst að nefna Recruit-málið en þaö varðar meinta mútuþægni stjómmála- manna. Það mál varð einum forsæt- isráðherra að fafli. Að auki hafa kyn- lífshneyksli fellt annan forsætisráð- herra en sá var sagður hafa greitt lagskonum fyrir ástaratlot. Þessi hneyksli auk mjög óvinsæls, þriggja prósenta söluskatts hafa kostað flokkinn stuðning. Helsti and- stæöingur hans, Sósíalistaflokkur Japans, vonast til að græða á þessum óvinsældum og ná meirihluta ásamt bandalagsflokkum sínum í samtök- um stjómarandstæðinga. Reuter Jan P. Syse, forsætisráðherra Noregs. Noregur: Óánægja með stjórnina Samkvæmt nýrri skoðanakönnun Markaðs- og fjölmiðlastofnunarinn- ar í Noregi er stjóm landsins mjög óvinsæl og ennþá óvinsæUi er for- sætisráðherrann, Jan P. Syse. Aöeins 35 prósent aðspurðra vilja að stjórnin, sem er samsteypustjórn Hægri flokksins, Kristflega þjóöar- flokksins og Miðflokksins, sitji áfram. Samkvæmt skoðanakönnun- inni vUja 46 prósent heldur fá stjóm Verkamannaflokksins, undir forystu Gro Harlem Bmndtland. Stofnunin hefur í tíu ár staðið fyrir könnunum á vinsældum forsætis- ráðherra Noregs. Aðeins 15 prósent- um þykir Syse standa sig vel, 49 pró- sentum þykir hann miðlungsgóður og 20 prósentum þykir hann standa sig iUa. Aldrei áður hafa svo margir verið óánægðir með forsætisráð- herra landsins. Fyrra metíð áttí Gro þegar 21 prósent lýstí yfir óánægju sinni með hana. Hún fékk einnig hæstu einkunnina sem gefin hefur verið þegar 52 prósent kváðust vera ánægð með hana. í Norður-Noregi var þaö varla nokkur sem var ánægður með Syse. Sá landshluti hefur reyndar aUtaf verið „rauður" en deflan um þorsk- veiðikvótann hefur einnig valdið mikilh óánægju manna þar. Útlönd Fer Cuomo til helvítis? Mario S. Cuomo, fylkisstjóri New Yorkfylkis í Bandarikjunum. Telkning Lurie Birgir Þórisson, DV, New York: SálarheiU Cuomos, fyUdsstjóra New Yorkfylkis, er nú til umræðu vestra eftir að einn biskupa kaþólsku kirkjunnar lét svo ummælt að Cu- omo ætti alvarlega á hættu að lenda í neðra ef hann breytti ekki afstöðu sinni til fóstureyöinga. Cuomo hefur hingað tfl hagað seglum eftir vindi eins og margir aðrir stjórnmála- menn. Persónulega segist hann vera sammála kirkju sinni að fóstureyð- ingar séu bamamorð en það sé ekki í hans verkahring að þvinga sínum skpðunum upp á aðra. Árum saman skákaði hann í því skjólinu að hæstiréttur hefði skoriö úr um að fóstureyðingar væru vemdaöar af ákvæðum stjómar- skrárinnar um friðhelgi einkalífsins. En hann misstí þá afsökun eftir að hæstíréttur í fyrra opnaði fyrir þann möguleika að einstök fylki takmarki fóstureyðingar. Cuomo hefur eftir sem áður varið opinber framlög til fóstureyðinga með þeim rökum að annað sé eingöngu mismunun gagn- vart fátækum konum. En hann, eins og aðrir kaþólikkar, er undir miklum þrýstíngi að framfylgja kennisetn- ingum kirkjunnar. Hinir hörðustu vflja setja þá hálfvolgu út af sakra- mentinu ef þeir hlýða ekki. Það rekst á aðra hefð, sem Banda- ríkjamenn taka mjög alvarlega, um strangan aðskflnað ríkis og kirkju. MæUst það afar Ula fyrir ef lítur út fyrir að trúarleiðtogar séu að segja kjömum embættismönnum fyrir verkum. Reyndar vom það lengi út- breiddir hleypidómar gegn kaþólikk- um vestra að þeim væri ekki treyst- andi fyrir trúnaðarstöðum þar sem þeir tækju viö fyrirmælum frá páfan- um. Biskupinn umræddi, Vaudhan að nafni, var því brátt harðlega gagn- rýndur fyrir ummælin sem hann lét reyndar faUa meðan hann sat af sér tíu daga fangelsisvist fyrir að reyna að hindra aðgang að heilsugæslustöð þar sem fóstureyðingar em fram- kvæmdar. En máhð varð umfangs- meira er æðstí maður kaþólsku kirkjunnar á svæðinu, O’Connor kardínáU, tók upp hanskann fyrir Vaudhan. Hann gekk að vísu ekki svo langt að hóta Cuomo fylkisstjóra helvítí en sagði aðvörunina réttmæta og kvaðst sjálfur frekar hafa sagt af sér embætti en að þurfa aö ganga gegn sannfæringu sinni. Cuomo hefur látið sér fátt um fmnast. Segir hann dómsvaldið vera í hærri höndum en biskups eða kard- ínála. Ekki er talið að málið eigi eftír að skaða verulega möguleika Cuom- os á endurkjöri í haust, þar sem and- stæðingar hans, repúblikanar, séu ólíklegir tíl að gera fóstureyðingar að kosningamáli. FRIMERKJASAFNARAR Lars-Tore Eriksson uppboðshaldari verður staddur hér á landi 9.-11. febrúar. Ef einhverjir hafa áhuga á að koma frímerkjum í verð geta þeir haft samband við hann á Hótel Esju, sími 82200, og mælt sér mót við hann. Skíðin sem hafa slegið í gegn í neytendakönnunum, gæði í hæsta flokki. Nýir, glæsilegir litir. SKIÐIN ERU KOMIN Heimsmeistararnir i bruni 1989, Maria Walliser og Hansjörg Tansc- her, keppa á Völkl. Aðrir sölustaðir: Skiðaþjónustan, Fjölnisgötu 4B, Akureyri. Sportvik, Hafnarbraut 5, Dalvik. Reióhjólaverkstæði M.J., Hafnargötu 55, Keflavík. Kreditkortaþjónusta Sendum i póstkröfu Sími 35320 Ármúla 40 VM4RKIÐ NTB

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.