Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.1990, Page 13
FOSTUDAGUR 9. FEBRUAR 1990.
13
Lesendur
Loðskinn og flíkur úr þeim virðast síður en svo vera á undanhaldi hjá tísku-
frömuðum.
NÁ TTÚRULÆKNINQABÚÐIN,
LAUGAVEGI 26,
íslenski flárhundurinn:
Dýrmætur arf ur
að glatast?
Monica D. Karlsdóttir skrifar:
Mér sýnist sem þjóðin sé að kasta
frá sér einni af sínum dýrmætustu
eignum - kannski vegna vanþekk-
ingar, misskilnings eða erlendra
áhrifa. - Erum við ef til vill ekki
nógu upplýst um verðmæti þessa
sérstaka hundakyns? - Það er arfur
sem okkur var gefinn til að hlúa að
og varðveita.
Við eigum kunnáttumenn í rækt-
un, færa dýralækna, hiýðniþjálfara
og sérunninn mat fyrir hunda. Þaö
er því engin ástæða fyrir því að
hundahald geti ekki orðið skemmti-
leg lífsreynsla fyrir alla. Hundar eru
ómissandi í uppeldi barna, að mínu
mati, þeir styrkja ónæmiskerfið og
gefa ábyrgðartilfinningu. - Væri ekki
gaman ef sjónvarpið gerði heimildar-
mynd um íslenska fjárhundinn, þjóð-
inni til uppörvunar?
Margir hafa eflaust fengið ranga
hugmynd um kynið en örugglega
hafa eán fleiri aldrei kynnst íslenska
hundinum neitt. Ég tel það vera
byggt á misskilningi. Þeir sem t.d.
hafa kynnst tíkinni minni vilja eign-
ast einn slíkan hund, og er þetta þó
flest fólk sem ég hefi aldrei til þessa
talið vera sérstaka hundavini. - Ég
tel íslenska hundinn hafa t.d. ómót-
stæðilegt bros, sem getur brætt harð-
asta hjarta. Það er bara einn af kost-
um hans. - Læt fylgja með mynd af
tíkinni minni, Hólmfríði, sem er
ósköp venjuleg tík af íslenskum
stofni.
Englendingar og Norðurlandabúar
hafa svo sannarlega kunnað að meta
þennan skemmtilega hund. Þar eru
hundaaðdáendur sem eru komnir
miklu lengra en við og kunna sitt
m
Tíkin Hólmfríður, í eigu bréfritara.
fag. Samt velja þeir okkar hund, þótt
mörg hundruð tegunda séu fáanleg.
Hvernig stendur á því? - íslenski
hundurinn, líkt og hesturinn okkar,
þróaðist til að þola aðstæður hér.
Myndum við láta okkur detta í hug
að útrýma íslenska hestinum? Lok-
um við kannski augunum fyrir því
að við erum smám saman að útrýma
íslenska hundinum hérléndis? - Það
eru til fleiri íslenskir fjárhundar er-
lendis og eftirspurnin eykst stöðugt.
Ef við gæfum okkur tíma til að
kynnast þessum vel uppöldu hund-
um af íslensku kyni held ég aö fleiri
myndu finna sér tíma í lífi sínu til
að taka að sér einn eða fleiri af þessu
kyni áður en við þurfum að sjá á bak
því. - Þaö væri skömm ef íslenskur
hundur fengist ekki lengur á íslandi.
í lokin vil ég þakka Hundaræktar-
félaginu og sérstaklega Sigríði Pét-
ursdóttur á Ólafsvöllum fyrir grein
í blaði Hundaræktarfélagsins. Sú
grein opnaði augu mín og fékk mig
til að fá mér íslenskan fjárhund þrátt
fyrir það óorð sem á hann var kom-
ið. Ég mun aldrei sjá eftir þeirri
ákvörðun. Vonandi getum við öll
unnið saman við aö viðhalda glamp-
anum af þessari þjóðargersemi. -
Verið stolt af einni af elstu hundateg-
undum heims. Höldum kyninu
hreinu, það er vel þesá virði.
Loðkápurnar syndsamlegri?
Margrét Hjálmtýsdóttir hringdi:
í sjónvarpi nýlega var sýnt og sagt
frá mótmælum einhverra dýra-
verndunarsamtaka gegn loðskinns-
kápum vegna þess að slíkar kápur
væru gerðar úr feldi dýra sem alin
eru í loðdýrabúum.
Veit þetta fólk ekki að dýr sem alin
eru í loðdýrabúum njóta sérstakrar
umhyggju því annars verður feldur
þeirra ekki fallegur og því ekki góð
söluvara? - Dýrin eru deydd á mildan
hátt.
En hvað finnst þessu mótmælafólki
um skinnflíkur úr skinnum sem há-
rið hefur verið fjarlægt af og eru nú
mikil tískuvara - t.d. skinnjakkar,
kápur, buxur, pils, húfur, einnig skó-
fatnaður, töskur o.fl? Að ógleymdum
leðurhúsgögnunum? Auðvitað er
leðrið af dauðum dýrum. - Hvers
vegna eru loðkápumar syndsam-
legri?
Frá aldaöðh hafa menn deytt dýr
sér til fæðis og klæðis, enda ekki
getað lifað af án þess, t.d. á kaldari
svæðum jarðarinnar. Og trúlega er
langt í land að það breytist.
Til eru lög um dýravernd, og dýra-
verndunarfélög ber að efla. Mönnum
ber að þakka og virða þau. - Þeim
sem fara iha með dýr ber að hegna.
í okkar helgu bók er skrifað, að mað-
urinn hafi sál - og dýrin einnig.
681511 - LUKKULÍNA 991002
UPPLYSINGAR: SIMSVARI
NÆRFOT -100% ULL AF MER1N0-FE
FYRIR ALLA FJÖLSKVLDUNA
HVERS VEGNA ER NÁTTÚRULÆKNINGABÚÐIN AÐ FLYTJA INN ULLARVÖRUR?
Er (slenska ullin akki nógu góS7 Jú íalanska ullln er frábær, an hún hefur einn ókost
fyrir okkur sem erum aó veslast upp í slómennlngunnl. Hún er ( grófara lagi
og vifl sem erum mefl érófiur uppi um þafl afl allir eigi afl vernda húflina og Kkamann
fyrir kulda heyrum þau svör að hún stingi. Vifl ( Náttúrulækningabúðinni höfum þá skoðun að allir þeir sem unna
útiveru skull eiga góö ullarnærföt. Þvl viljum við bjóða landsmönnum öllum, kornabörnum, bömum og fólki á öllum
aldri, ullarnaerföt úr merinoull sem er flngerðarl og mýkri en nokkur önnur fjárull.
Merlnoull fyrir: Ungbamiö i kerru og vagni, barnið í lelk og útiveru, skíðafólk, göngufólk, hestafólk, rjúpna-
veiðlmenn, sjómann, iðnaðarmenn og alla þá sem starfa slnna vegna þurfa að vinna I
kulda og vosbuð.
Þafl ar hverjum nauflayn afl kunna og gata klætt alg ráttum fatnefli. Stundum bómull, stundum allkl og stundum ull.