Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.1990, Qupperneq 14
fQ&i’íu]|WpM%% bbííKí^R wson
Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF.
Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON
Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON
Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM
Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELlAS SNÆLAND JÓNSSON
Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON
Auglýsingastjórar: PÁLL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON
Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift,
ÞVERHOLTI 11,105 RVlK, SlMI (91 )27022 - FAX: (91)27079
Setning, umbrot, mynda- og plötugerð:
PRENTSMIÐJA FRJÁLSRAR FJÖLMIÐLUNAR HF„ ÞVERHOLTI 11
Prentun: ÁRVAKUR HF. - Áskriftarverð á mánuði 1000 kr.
Verð í lausasölu virka daga 95 kr. - Helgarblað 115 kr.
Málefnalisti
Tilraun minnihlutaflokkanna í borgarstjórn Reykja-
víkur til sameiginlegs framboös er farin út um þúfur.
Hver flokkur býöur fram sinn eigin lista og fleiri listar
kunna að bætast í hópinn. Borgaraflokkurinn hyggur á
framboð og Frjálslyndir hægri menn eru formlegur
flokkur sem sjálfsagt telur sig þurfa aö hafa afskipti af
borgarmálum. Þannig munu fimm eöa sex framboðslist-
ar leggja til atlögu við hsta Sjálfstæðisflokksins. Þarf
varla að spyija að þeim leikslokum.
Raunar hafa minnihlutaflokkarnir játað sig sigraða
áður en kosningabaráttan er hafin. Upphlaupin að und-
anfornu, árangurslausar tilraunir þessara flokka til ein-
hvers konar sameiningar hafa orðið þeim sjálfum til
athlægis. Ef einhver kjósandi hefði haft fyrirfram trú á
því að minnihlutaflokkarnir gætu komið sér saman um
andstöðu gegn meirihlutanum og samstöðu að kosning-
um loknum, þá hlýtur sá hinn sami kjósandi að hafa
glatað þeirri trú á undanfömum dögum. Hver getur
ímyndað sér farsælt samstarf og trausta stjórn á borg-
inni af hálfu þeirra manna sem ekki geta einu sinni
komið sér saman um að tala saman af viti?
Strax og Kvennalistinn lýsti sig andvígan sameigin-
legu framboði var máhð dautt. Sameiginlegt framboð
A-flokkanna og Framsóknar átti enga möguleika, ekki
síst ef þeir hefðu skipt með sér efstu sætunum í ein-
hvers konar hræðslubandalagi. Er þá ekki minnst á
stöðu rikisstjómarinnar sem þessir flokkar standa að.
Sporin hræða.
Það er út af fyrir sig undrunarefni aö Kvennahstinn
skyldi afheita samstarfi svo afdráttarlaust, sér 1 lagi
efdr að flokksforingjamir vom búnir að gera tihögu
um að borgarstjóraefni kæmi úr kvennaröðum. Hver
er tilgangur kvennaframboðs í borgarstjóm nema sá
að stjórna borginni og geta reykvískar konur náð lengra
í áhrifum sínum en að eignast borgarstjóra?
Kvennahstakonur hafa sannarlega sett mark sitt á
stjómmálalífið og þær hafa unnið þarft verk í réttinda-
baráttu kvenna. Varla verður séð að þær komist mikið
lengra nema með virkari þátttöku og samstarfi við aðra
flokka og þær skáka sjálfum sér úr leik ef þær vhja
aftur og aftur vera stikkfrí og róa einar á báti. Kvenþjóð-
inni er enginn greiði gerður með þeirri einangrun-
arpóhtík. Þegar aht kemur til ahs verður körlunum
seint ýtt th hhðar.
Möguleikar minnihlutaflokkanna í Reykjavík lágu í
því að tefla fram eða styðja óháð og almennt framboð
gegn meirihluta sjálfstæðismanna. Þá hefði Davíð feng-
ið verðugan andstæðing. Þá hefði verið brotið blað í
póhtíkinni og ferskir vindar blásið í kosningabarátt-
unni. Alþýðuflokkurinn virtist vera skilningsríkastur á
þennan valkost. Flokkurinn hefur jafnvel gengið svo
langt að kynna sérstakan Málefnahsta sem á að vera
opinn öhum. Þetta er djörf thraun og virðingarverð
enda verður ekki séð af þessum málefnahsta annað en
hann ýti flokkspóhtískum sjónarmiðum th hhðar. Hahn
er í ætt við þá hugsun að sameina andstæðinga meiri-
hlutans undir eitt merki og bjóða fram nýja menn og
óflokksbundna.
Eftir að aðrir minnihlutaflokkar höfnuðu formlegu
samstarfi og nú síðast Birting, hefur þessi Málefnahsti
þeirra alþýðuflokksmanna einangrast og misst vægi.
En það er ekki við Alþýðuflokkinn að sakast. Flokks-
böndin urðu málefninu yfirsterkari.
Ehert B. Schram
Þau umskipti, sem orðiö hafa í Sov-
étríkjunum í stjórnartíð Gor-
batsjovs, hafa ekki aðeins gjör-
breytt stöðunni í Austur-Evrópu
og í samskiptum risaveldanna, þau
munu líka hafa þær óvæntu afleið-
ingar að spilla stórlega horfum á
lausn deilu ísraelsmanna og araba.
Nú hefur hömlum á brottflutn-
ingi gyðinga frá Sovétríkjunum að
mestu verið aflétt og afleiðingin er
að 750 þúsund sovéskir gyðingar
eru væntanlegir til búsetu í ísrael
á næstu flmm til sex árum. Þetta
verða mestu fólksflutningar til
ísraels síðan á fyrstu árum Israels-
ríkis og munu raska öllum hlut-
föllum milli araba og gyðinga og
einnig milli gyöinga í Israel inn-
byrðis.
Bandaríkjamenn standa á bak við
þetta. Á síðustu árum og áratugum
hafa þeir hamrað á því að sovéskir
gyðingar fái að flytja úr landi en
hafa jafnframt í seinni tíð gert þeim
illmögulegt að koma til Bandaríkj-
anna, sem hefur veriö endanlegur
áfangastaöur flestra sovéskra gyð-
inga til þessa. Innan landamæra
ísraels eru nú um þrjár milljónir
gyðinga auk rúmlega milljónar
araba sem eru ísraelskir ríkis-
borgarar svo að þetta flóð innflytj-
enda mun hafa víðtæk áhrif.
Stór-ísrael
Þá eru ekki taldar þær tæplega
tvær milljónir araba sem byggja
hemámssvæðin en þessi innflutn-
ingur boðar ekkert gott fyrir þá.
Shamir forsætisráðherra og fylgis-
menn hans hafa nú fengið enn eina
röksemd í hendur gegn því að veita
Palestínumönnum sjálfstjóm. Þeir
hafa á bak við eyrað að láta hina
nýju innflytjendur nema það land
sem Palestínumenn byggja nú og
innlima það endanlega í Israel
Upprifjun
Palestína er landið frá ánni Jórd-
an og Negev auöninni í austri að
sjónum í vestri, frá hlíðum Herm-
onfjalls í noröri að Sinaieyðimörk-
inni í suðri. Bretar tóku þetta land
af Tyrkjum í fyrri heimsstyijöld-
inni og stjómuðu því í nafni Þjóða-
bandalagsins og síðar Sameinuðu
þjóðanna þar til Sameinuðu þjóð-
imar ákváöu 1947 að skipta Palest-
ínu milli gyðinga og araba.
Þegar landinu var skipt 1948 feng-
u gyðingar aðeins hluta Palestínu
og stofnuðu þar Ísraelsríki. Sam-
einuöu þjóðimar hafa aldrei viður-
kennt önnur landamæri en þau
upphafleg'j, þótt síðar hafi komið
til viðurkenning á minni háttar
lagfæringum á þeim.
I stríðinu 1956 var Gazasvæðið í
Sinai tekið af Egyptum en umskipt-
in urðu 1%7 þegar ísraelsmenn
hertóku alla Palestínu allt að ánni
Jórdan og Golanhæðimar í undir-
hlíðum Hermonfjalls í Sýrlandi
einnig. Síðan hefur arabíski hlut-
inn af Palestínu verið ísraelskt
hernámssvæði. Jórdaniukonungur
innhmaði arabíska hlutann af pa-
lestínu eftir stríðiö 1948 þegar öll
arabaríkin ætluöu að ógilda skipt-
ingu Palestínu og hinn svokallaði
vesturbakki hefur verið jórdanskt
land að nafninu til allt til 1988 aö
Hussein konungur afsalaði sér til-
kalli til þess og gaf þar með Palest-
ínumönnum færi á að gera þann
hluta Palestínu að sínu föðurlandi.
Síðan hafa íbúar þar verið form-
lega ríkisfangslausir þótt þeir eigi
kost á jórdönskum vegabréfum. Á
fyrstu ámnum eftir 1%7 vildu ísra-
elsmenn nota hemámssvæðin sem
tromp í friðarsamningum við ara-
baríkin en arabar vildu ekki semja
þá frekar en síðar, enda höfnuðu
öll arabaríkin skiptingu Palestínu
á sínum tíma. 1973 hertóku ísraels-
menn svo allan Sínaískaga og enn
meira af Golan í Jom Kippur stríð-
inu en létu Sinaiskagan aftur eftir
friðarsamningana við Egypta 1979.
Öll önnur arabaríki eiga enn form-
lega í styrjöld viö ísrael.
Málþóf
Síðan 1979 hefur þeim ísraels-
Sjálfstjóm, aö ekki sé minnst á
sjálfstæði Palestínumanna, er fjar-
stæða í hans augum, þeir eiga ekk-
ert tilkall til landsins sem Jahve
gaf börnum ísraels í árdaga. Það
er ekki viö öðra að búast en að
„friðarsamningar" sem hann tekur
þátt í séu málamyndamálþóf sem
hann lætur sér lynda aðeins til að
friöa Bandaríkjamenn og vinna
meiri tíma. Þar fylgir enginn hugur
máli.
Shepardim
Þessi flaumur innflytjenda frá
Sovétríkjunum mun ekíti aðeins
torvelda sættir við Palestínumenn
heldur einnig breyta ísraelsku
þjóðfélagi. Innflytjendur þangað
frá Evrópulöndum hafa verið fáir
síðustu ár og sá meirihluti austur-
„Nú kemur það sem himnasending fyr-
ir Shamir og Stór-ísraelsmenn að von
sé á 750 þúsund gyðingum til Israels á
næstu árum. Hvar væri betra að koma
þeim fyrir en einmitt á vesturbakkan-
um?“
KjaUarinn
Gunnar Eyþórsson
fréttamaöur
mönnum stöðugt aukist fylgi sem
hafna tilslökunum og tala um
Stór-ísrael. Fyrir flesta, svo sem
Shamir, þýöir það að hemáms-
svæðin séu óaöskiljanlegur hluti
af ísrael en til em þeir sem gera
meiri kröfur og tala um landsvæði
í Biblíunni svo sem Moab, sem nú
er innan Jórdaníu og Sýrlands.
Vesturbakkinn heitir í Biblíunni
Samveijaland og Júdea og því leng-
ur sem þessi svæði em hemumin
því meiri tegða er á því innan ísra-
els að sleppa hendi af þeim.
Shamir er fremstur í flokki þeirra
sem segjast aldrei láta það land af
hendi. Þvert á móti hefur hann
framfylgt landnámsstefnu á
hemámssvæðinu sem aftur varð
helsta kveikjan að uppreisninni
1%7. Intifadan hefur staðið síðan.
Nú kemur það sem himnasending
fyrir Shamir og Stór-ísraelsmenn
að von sé á 750 þúsund gyðingum
til ísraels á næstu ámm. Hvar
væri betra að koma þeim fyrir en
einmitt á vesturbakkanum?
Þar er landrými, arabar verða
einfaldlega aö sætta sig við að Pa-
lestína er ísrael og ísrael er land
gyðinga, ef þeir eru ekki ánægðir
geta þeir flutt til Jórdaníu. Þetta
er í stuttu máli stefna Shamirs og
hann er svo ósveigjanlegur aö eng-
inn utanaökomandi þrýstingur fær
haggað honum.
evrópskra gyðinga hinna svoköll-
uöu askenasim, sem stóð að stofn-
un ísraels, hefur stöðugt verið að
minnka en áhrif afrískra gyðinga
og gyðinga frá arabalöndum, hinna
svokölluöu shepardim, hafa vaxið
að sama skapi.
Shepardim gyðingar em miklum
mun harðskeyttari í garð Palest-
ínumanna en aðrir ísraelsmenn og
harkan í afstöðu ísraelsmanna
endurspeglar minnkandi áhrif
hinnar evrópsku gyðingamenning-
ar sem askenasim-gyðingamir
fluttu með sér til ísraels. Það kann
að breytast með flutningi 700 til 800
þúsunda askenasim frá Sovétríkj-
unum.
Hvort það verður til góðs á eftir
að koma í ljós en horfur eru ekki
bjartar fyrir Palestínumenn. Svo
kann að fara aö Bandaríkjamenn
gefist upp á virkri þátttöku í friðar-
umleitunum vegna ósveigjanleika
Shamirs og þá munu Shamir og
hans menn telja sig hafa fijálsar
hendur.
Hvað sem því líður er nú ná-
kvæmlega engin hreyfing í friðar-
viðræðum meðan ísraelsmenn búa
sig undir að veita viðtöku þessum
óvænta liðsauka frá Sovétríkjun-
um.
Gunnar Eyþórsson