Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.1990, Síða 17
FÖ.STUDAGUR 9. FEIJRÚAR 1990.
25
íþróttir
lálfleiknum með KR í gærkvöldi og skoraði
|U án þess að Falur Harðarson fái rönd við
ini varekki í byrjunarliði þeirra í gærkvöldi.
DV-mynd GS
Guðmundur
fer í Fylki
- á heimleið frá Möltu og leikur með Árbæjarliðinu
Guðmundur Baldursson hefur
ákveðið að leika með Fylki í 2.
deildinni í knattspyrnu í sumar.
Guðmundur hefur leikið á Möltu í
vetur með Hibemian við góðan
orðstír en varð fyrir því óhappi að
meiðast fyrir nokkru og varð af
þeim sökum að hætta að leika með
liöinu.
Guðmundur mun styrkja Fylkis-
hðið mikið því hann hefur yfir að
ráða reynslu sem mun koma hinu
unga Fylkisliði til góða.
Guðmundur er ekki ókunnugur
í herbúðum Fylkis, hann hóf feril
sinn þar og hefur að auki leikið
með Breiðabliki og Val. Hann
tryggði Valsmönnum sigur í bikar-
keppninni 1988 þegar hann skoraði
sigimnarkið í úrslitaleiknum við
Keflavík, og lék einnig með þeim
síðasta sumar.
Guðmundur er óðum að ná sér
af meiðslunum og mun koma við
til móts við Fylkisliðið í Vestur-
Þýskalandi um páskana. Leikmenn
Fylkis munu dvelja í um vikutíma
í æfingabúðum í Hannover til
undirbúnings fyrir keppnistíma-
bili.
Loftur kemur
frá Danmörku
Til Hannover kemur einnig annar
leikmaður til móts við Fylki. Það
er Loftur Ólafsson, vamarmaður-
inn öflugi sem hefur dvahð í Dan-
mörku í vetur og æfir þar með KB.
Loftur lék nokkra leiki með Fylki
síðasta sumar.
Árbæjarhðinu hefur einnig feng-
ið Pál Guðmundsson markvörð í
sínar raðir en Páh var varamark-
vörður Víkings á síöasta keppnis-
tímabili. Þá hefur Orri Hlöðvers-
son gengið til hðs við Fylki á
ný en hann lék með Breiðabliki í
fyrra.
-JKS/VS
• Guðmundur Baldursson með
bikarinn sem hann tryggði Val
1988.
Fyftsti leikur Rúmena
á íslandi í nítján ár
- fyrsti leikurinn af þremur í Höllinni á sunnudagskvöldið
Rúmenska landshðið í handknatt-
leik leikur á sunnudagskvöldið sinn
fyrsta leik hér á landi í 19 ár, þegar
það mætir íslenska landshðinu í
Laugardalshöllinni kl. 20. Þetta er
fyrsti leikurinn af þremur en hinir
fara fram á sama stað og tíma á
mánudags- og þriðjudagskvöld.
Síðasta viðureign þjóðanna hér á
landi rennur þeim sem urðu vitni að
henni seint úr minni. Þá voru Rúm-
enar heimsmeistarar og leiddu, 14-9,
um miðjan síðari hálfleik. Síðasta
korterið sýndi Hjalti Einarsson,
markvörður úr FH, einhveija stór-
brotnustu markvörslu sem um getur
í Hölhnni, fékk ekki á sig mark, og
lokatölumar urðu 14-14.
Bogdan Kowalczyck landshðsþjálf-
ari tilkynnti í gær hvaða 16 menn
• Þorgils Óttar Mathiesen leikur
sinn 239. landsleik á sunnudag.
myndu taka þátt í leikjunum við
Rúmeníu. Það er hópurinn sem DV
sagði frá í gær, þeir leikmenn sem
HSÍ tilkynnti til Alþjóða handknatt-
leikssambandsins, að Sigurði Sveins-
syni undanskildum, en hann kemst
ekki frá Vestur-Þýskalandi. Þeir eru
eftirtaldir:
Markverðir:
Einar Þorvarðarson, Val......232
GuðmundurHrafnkelsson,FH......93
Leifur Dagfmnsson, KR.........10
Aðrir leikmenn:
Þorgils Óttar Mathiesen, FH..238
Jakob Sigurðsson, Val........190
BjarkiSigurðsson, Víkingi.....73
ValdimarGrímsson, Val.........84
Sigurður Gunnarsson, ÍBV.....188
Alfreð Gíslason, Teka........175
ÓskarÁrmannsson, FH...........20
GuðmundurGuðmundss.,Vík. ...227
Kristján Arason, Teka.........220
Geir Sveinsson, Granohers.....176
GunnarBeinteinsson.FH......... 18
Héöinn Gilsson, FH.............61
Júlíus Jónasson, Asniers......136
í rúmenska hðinu eru margir
heimsþekktir leikmenn, og þar ber
hæst þá Vasile Stinga og Maricel
Voinea, sem em tveir af albestu
handknattleiksmönnum sem uppi
em í dag. Auk þeirra má nefna Mar-
ian Dumitru, Dumitru Berbec og
markvörðinn risavaxna, Alexandm
Buligan.
Rúmenar em, eins og íslendingar,
að búa sig undir heimsmeistara-
keppnina sem hefst í Tékkóslóvakíu
í lok þessa mánaðar. Þeir era þar í
riðh með Suður-Kóreu, Tékkósló-
vakíuogSviss. -VS
óttin að gjalda?
angra sem em næstir við 50%.
Fyrir rúmu ári var ákveðið að
ólympíulágmark í skeet skyldi vera
184 stig en í enskri keppni 590 stig eft-
ir að reglunum var breytt 1. jan 1989.
Útkoman eftir eins árs reynslu af hin-
um breyttu reglum er því sú að ólymp-
íulágmarkið í skeet (184 stig) gefur
mun lakari sæti (90,0%) á stórmóti en
ólympíulágmarkið í enskri' keppni
(42,1%). En hér kemur fleira til. Á hin-
um sterku mótum í skeet er algengt
aö sumir keppendur fyrir framan
miðju fái aðeins um 141-142 stig, af
þeirri einfoldu ástæðu að þeir fá ekki
að skjóta nema 150 skotum. Skv. regl-
unum fá aðeins 24 efstu menn að
skjóta 50 skotum í viðbót og þeir sem
lægstir em af þeim fá þá líklega um
190 stig eöa meira og ná því ólympíu-
lágmarkinu en hinir ekki sem aöeins
skutu 150 skotum. Þannig má ætla að
enda þótt ólympíulágmarkið sé sett
við 184 stig þýði það í flestum tilvikum
að til að ná ólympíulágmarki á móti
sem gefur möguleika til þátttöku á
ólympíuleikum (það em aðeins heims-
bikarmót, heimsálfumeistaramót og
heimsmeistaramót) veröi keppandi
líklega að fá um 142-143 stig eða meira
í 150 skotum til að komast áfram. Það
samsvarar um 190 stigum eða meira í
200 skotum. Keppandinn verði m.ö.o.
að vera í hópi efstu 24 manna í keppni
sem er meö sterkustu mótum í heimi
þar sem keppendur em e.t.v. 50-90 að
tölu.
Rétt er að athuga nokkur dæmi um
alþjóðleg stórmót til að ganga úr
skugga um hvort samanburðartöfl-
umar séu bara stórkostlegt svindl
danskra riffla- og skammbyssumanna
til að klekkja á haglabyssumönnum
eins og stjóm Skotsambands íslands
virðist halda.
A: Evrópumeistarmót í Zagreb 1989,
haglabyssa, skeet, þátttakendur voru
59,13. sæti hlaut 193 stig, 22. sæti hlaut
191 stig og 34. sæti hlaut 141 stig í 150
skotum sem gerir 188 stig í 200 skotum
með sama meðaltali. Skv. töflunum
hefði 13. sæti átt að fá 194 stig, 22.
sæti 192 stig og 34. sæti 189 stig. Hér
ér munurinn aðeins 1 stig í hveiju til-
viki en munurinn gæti stafað af því
að margir vom saman í sætunum með
sömu stigatölu.
B: Heimsbikarmót í Múnchen 1989,
rifflar, ensk keppni, þátttakendur
vom 81. 6 keppendur hlutu 589 stig,
36 vom hærri og 39 voru lægri. 589
stig em því í miðri sætisröðinni en það
er nákvæmlega það sem samanburð-
artöflumar sýna.
C: Heimsbikarmót í Ztirich 1989,
rifflar, ensk keppni, þátttakendur
vom 74. 4 hlutu 588 stig, 4 hlutu 587
stig, 33 vom hærri og 33 voru lægri.
Miðjan á sætisröðinni er því á milli
587 og 588. Munurinn er því aðeins 1-2
stig frá því sem töflumar sýna en því
má bæta viö aö veður var óhagstætt á
þessu móti og því er líklegt aö miðjan
á sætisröðinni hefði orðið við 589 stig
á mótinu hefði veðrið verið betra. A
þessu móti var árangurinn 586 stig
fyrir ísland, sem hlaut 42. sæti af 74.
Allt ber því að sama brunni: Töfl-
umar gefa vissulega nokkuð rétta
mynd af sterkustu mótunum, bæði í
skeet og í enskri keppni. í framan-
greindum dæmum gefa töflumar
nærri sömu niðurstöður og mótin
sjálf.
Fyrir mörgum áratugum var gefín
út að tilhlutan íþróttasambands ís-
lands stigatafla fyrir frjálsar íþróttir.
Hún inniheldur samanburðartöflur
margra greina í fijálsum íþróttum.
Þar er borið saman 110-400 m grinda-
hlaup, 60-500 m hlaup, 800-10.000 m
hlaup, kúluvarp, kringlukast, spjót-
kast, sleggjukast, langstökk, hástökk,
stangarstökk, þrístökk, langstökk án
atrennu, hástökk án atrennu og þri-
stökk án atrennu. Með þessu litla
kveri var hægt aö meta hvort ákveö-
inn árangur í einni grein var betri eða
lakari en árangur í annarri. í skotflmi
ætti að vera jafnmikil þörf á saman-
burðartöflum eins og í frjálsum íþrótt-
um ef markmiðið er að ná sem bestum
árangri á íþróttamótum en ekki að
æfa menn til fuglaveiða.
Vonandi kemur sá dagur að íþrótta-
menn í öllum greinum skotfimi og
menn í trúnaðarstöðum innan íþrótt-
arinnar geti htið þessi mál réttum
augum og hætti þar með að misbjóða
heiðarlegum íþróttamönnum, t.d. með
því að veita keppendum með slakan
árangur heiðurstitla og ferðastyrki á
meðan þeir ganga fram hjá keppend-
um með miklu betri árangur. Þá mun
íslensk skotíþrótt, þegar frá líður,
hætta aö vera viðundur í augum
íþróttamanna og íþróttafréttamanna,
innlendra sem erlendra.
En á meðan núverandi ástand helst
og stjóm Skotsambands íslands tekst
að blekkja auðtrúa menn til að afneita
samanburðartöflunum geta menn
bara skoðað heildamiðurstöður sterk-
ustu móta heims á undanfórnum
ámm í staðinn fyrir að nota hinar
hötuðu töflur. Niðurstaðan verður
nánast sú sama hvor aðferðin sem
notuð er eins og ég hef sýnt fram á
hér að framan með nokkrum dæmum,
enda eru töflumar bara meðaltahð úr
þessum sömu mótum.
Kannski næsta skrefið hjá stjóm
Skotsambands íslands verði það að
telja mönnum trú um aö niöurstöðu-
tölur Evrópumeistaramóta, heims-
bikarmóta, heimsmeistaramóta og
ólýmpíuleika séu bara falsaðar til að
klekkja á haglabyssumönnum.
Að lokum þetta:
Til að komast upp í miðja sætaröð-
ina á sterkustu mótum heims þarf
núna um 589 stig í enskri keppni og
um 190 stig í haglabyssu (skeet), hvort
sem mönnum líkar það betur eöa verr.
Þetta sýna skráð úrsht móta, hvað sem
öhum samanburðartöflum hður.
Carl J. Eiríksson
Enskir stúfar
Guimar Sveinbjömsson, DV, Englandi:
• Preston hefur fengið til hðs við
sig tvo gamalkunna leikmenn, þá
Sammy Mcllroy og Frank Worthing-
ton. Félagamir munu annast þjálfun
hjá félaginu en McBroy mun þó einn-
ig leika með.
• Brian Clough stjóri Nottingham
Forest hefur hafnað ósk St. Mirren
um að fá útheijann Brian Rice aö
láni í einn mánuð. *
• Neil Ruddock hjá Southampton
hefur verið dæmdur í sitt annað leik-
bann á keppnistímabilinu og missir
þar af leiðandi af bikarleiknum gegn
Liverpool um aðra helgi.
' • Tvíburabræðumir Rodney og Ray
Wallace hjá Southampton hafa óskað
eftir sölu frá félaginu. Rodney
Wahace hefur skorað 16 mörk á
þessu keppnistímabili en Ray bróðir
hans hefur átt í eríiðleikum með að
komast í hðið. Forráöamenn Sout-
hampton hafa lítið vilja um máhð
segja, annað en það að bræðumir
væm samningsbundnir félaginu til
næstu átján mánaða.
• Ron Atkinson stjóri Sheffield
Wednesday segir að Trevor Francis
sé ekki að leiðinni til Plymouth, í
kjölfar þess að Ken Brown var sagt
upp störfum þar á þriðjudag. John
Gregory fyrrum stjóri Portsmouth
er um stundarsakir við stjómvölinn
hjá Plymouth.