Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.1990, Síða 24
■
Joan Collins:
Vill halda í nomahlutverk
Joan Collins lætur ekki aö sér
hæða. Loksins þegar hún hætti að
leika hina rætnu Alexis í Ættarveld-
inu, Dynasti, tók hún strax tilboði
um að leika í kvikmynd um ógurlegt
skass. Mun hún leika leikkonuna
Joan Crawford í kvikmynd. Sú kvik-
mynd er gerð eftir nýrri bók sem
fjallar um hatrið sem ríkti á milli
Bette Davis og Joan Crawford. Sú
síðastnefnda var ekki aðeins vond
og sjálfselsk móðir heldur lagði hún
keppinauta sína í hatursfuilt einelti.
Joan Collins þykist hafa nú fengið
óskahlutverkið og er hin ánægðasta.
í einkalífinu er Joan hins vegar ekkí
eins illskeytt og nafna hennar, Craw-
ford, þar sem hún mun hafa gott
samband við börnin sín.
Konunglegar skyldur eru misskemmtilegar. Díana prisessa heilsar hér upp á sundlaugargesti í sundlaug í
Ipswich í Bretlandi. Þaö er ekki annað að sjá en kóngafólkið geti verið alþýðlegt. Símamynd Reuter
Joan Collins ásamt dóttur sinni. Þær eru perluvinir en Christina, dóttir
Joan Crawford, hataði hina frægu og sjálfselsku móður sína.
Sviðsljós
Fyrirmyndar
faðirinn
ásamt „dótt-
urinni“ úr
sjónvarps-
þáttunum en
þareruekki
vandamál á
ferðinni.
Bill Cosby 1 uppeldisvandræðum:
Bill Cosby, sem þekktur er sem
fyrirmyndarfaðirinn Huxtable,
hefur þurft aö tæma þann beiska
bíkar að sjá eigið uppeldisstarf mis-
takast. 23 ára dóttir hans, Erinn,
hefur ánefjast eiturlyfjum. Cosby
gekk reyndar fljótt fram fyrir
skjöldu og sagðist ætla að gera allt
sem í hans valdi stæði til að hjálpa
henni út úr vandanum. Nú hefur
hann hins vegar gefist upp og út-
hýst dótturinni fyrir fullt og allt,
„Það er ekki hægt að treysta
henni lengur þannig aö hún kemur
ekki lengur inn fyrir mínar dyr,“
segir Cosby. „Ég held að hún verði
að fara alveg í ræsið til að skilja
að þaö er hún sjálf sem verður að
taka af skarið og gera eitthvaö í
sínum málum.“
Dottn-m lauk ekki skóla og tollir
ekki i neinu starfl. Cosby segir
hana notfæra sér alla sem hún
þekkir og hugsa einungis um sjálfa
sig. Það sé hræðilegt að sjá barnið
sitt fara í hundana en það sé ekki
hægt að ausa í hana meiri pening-
um sem aðeins fari til kókaín-
kaupa
■
Hinum fimm ára gamla Bobby Roberts finnst fátt skemmtilegra en láta
leikfélaga sinn, fílinn Mary, sveifla sér með rananum. Mary er engin
smásmíði en hún er þriggja tonna sirkusfíll i Bretlandi. Faðir Bobbys
er fílatemjari og hann sér um að ekkert fari úrskeiðis þegar fillinn og
barnið leika sér saman.