Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.1990, Side 27
FÖSTUDAGUR 9. FEBRÚAR 1990.
35
Afmæli
Guðmundur Guðjónsson
Guðmundur Guðjónsson rekstr-
arstjóri, Vallartröð 7, Kópavogi, er
sjötugurídag.
Guðmundur er fæddur í Rim-
húsum undir Eyjaíjöllum og alinn
þar upp og í Vestmannaeyjum.
Hann vann við landbúnaðarstörf,
fiskverkun og bókband, og starfaði
við Bókfellsútgáfuna og Heiidversl-
un Magnúsar Kjaran í aldarfjórð-
ung. Hann vann sem vallarvörður á
Melaveliinum í mörg ár, var kirkju-
vörður og meðhjálpari við Kópa-
vogskirkju, forstöðumaður Vinnu-
skóla Kópavogs um tíma og í nokkur
ár umsjónarmaöur í Menntaskólan-
um í Kópavogi. Nú starfar hann sem
rekstrarstjóri hjá Kirkjugörðum
Reykjavíkur. Guðmundur var for-
maður íþróttafélagsins Eyfellings.
Hann var einn af stofnendum og sat
í stjóm Verkalýðsfélags Austur-
Eyfellinga, einn af stofnendum og
sat í stjóm Slysavarnadeildar Kópa-
vogs og var formaður sóknarnefnd-
ar Digranesprestakalls um táma.
Guðmundur hefur setið í stjóm
Kirkjugarða Reykjavíkur um árabil
og í framkvæmdastjóm þeirra.
Hann á sæti í skipulagsnefnd
kirkjugarða.
Guðmundur kvæntist þann 19.5.
1945 Ásu Gissurardóttur húsmóöur,
f. 5.10.1920. Foreldrar hennar vom
Gissur Jónsson, hreppstjóri í
Drangshlíð undir Austur-Eyjafjöll-
um, og Guðfinna ísleifsdóttir ljós-
móðir.
Böm Guðmundar og Ásu em:
Hrafnhildur, f. 18.1.1947, skrif-
stofumaður, búsett í Reykjavík, gift
Ólafi Lámssyni íþróttakennara, og
eigaþautvöböm.
Kolbrún, f. 12.9.1948, skrifstofu-
maður, búsett í Reykjavík, gift Jó-
hanni Þorsteinssyni deildarstjóra,
og eiga þau þijú böm.
Gissur, f. 30.4.1950 rannsóknar-
lögreglumaður, búsettur í Hafnar-
firöi, kvæntur Svanhildi Péturs-
dóttur bankastarfsmanni og eiga
þautvöböm.
Jón, f. 2.7.1953,0. í Drangshlíð
undir Austur-Eyjaíjöllum, kvæntur
Oddnýju Björgu Hólmbergsdóttur,
og eiga þau þrjú böm.
Sysktini Guðmundar voru níu, en
nú era sex á lífi. Systkini Guðmund-
ar: Jón Óskar, f. 26.6.1917, d. 25.4.
1940; Þórhallur, f. 8.2.1921, d„ 4.5.
1921; Jóhanna, f. 5.6.1923, sjúkra-
hði, gift Victori Halldórssyni; Guð-
bjöm, f. 14.4.1924, vélvirki, kvæntur
Katrínu Valtýsdóttur; Þorleifur, f.
23.6.1926, d. 24.11.1974, skipstjóri,
var kvæntur Rannveigu Unni Sig-
þórsdóttur; Magnús, f. 24.1.1929,
bifreiðarstjóri, kvæntur Edith Jó-
hannesdóttur; Þórhallur Ármann,
f. 27.10.1931, verkstjóri, kvæntur
Svölu Ingólfsdóttur; Lilja, f. 10.4.
1933, d. 3.1.1941; Haukur, f. 13.3.
1938, bifreiðarstjóri, kvæntur Sig-
ríði Guðmundsdóttur.
Foreldrar Guðmundar vom Guð-
jón Jónsson, f. 10.2.1892, d. 14.5.1967,
formaður á Reykjum í Vestmanna-
eyjum, og Bergþóra Jónsdóttir hús-
móðir, f. 10.10.1894, d. 20.12.1989.
Guöjón var sonur Jóns, b. í Rana-
koti efra í Stokkseyrarhreppi,
Filippussonar, b. á Gaddstöðum á
Rangárvöllum, Jónssonar, b. á
Gaddstöðum, Sveinssonar.
Móðir Fihppusar var Guðrún
Jónsdóttir. Móðir Jóns í Ranakoti
var Þórey Ámadóttir, b. í Hrífunesi
í Skaftártungu, Ámasonar, og
Rannveigar Jónsdóttur, b. á Fossi á
Síðu, Pálssonar.
Móðir Guðjóns var Guðbjörg Sig-
urðardóttir, b. í Brattholtshjáleigu
svo á Beinateig, Snæbjörnssonar,
b. á Ásgautsstöðum, Sigurðssonar.
Móöir Guðbjargar var Guðrún
Jónsdóttir, b. á Syðri-Sýrlæk í Flóa,
Gottsveinssonar, og Guðrúnar
Jónsdóttur frá Syðri-Gröf í Flóa.
Bergþóra, móöir Guðmundar, var
dóttir Jóns, b. í Steinum undir Eyja-
íjöhum, Einarssonar, b. í Steinum,
Jónssonar. Móðir Jóns í Steinum
varÞómnnSveinsdóttir,b.íSkóg- „
um, ísleifssonar, og Sigríðar Niku-
lásdóttur fr á Hafnarfirði.
Móðir Bergþóm var Jóhanna
Magnúsdóttir, b. í Tungukoti í
Fljótshhð, Þorvaldssonar, hrepp-
stjóra í Stóra-Klofa á Landi.
Móðir Magnúsar var Margrét
Jónsdóttir, vinnukona á Leiru-
bakka á Landi. Móöir Jóhönnu var
Steinunn Gísladóttir, b. í Miðkoti,
Sveinssonar, og Steinunnar Þor-
leifsdóttur frá Kirkjulæk.
Guðmundur tekur á móti gestum
í Félagsheimih Kópavogs á afmæhs-
daginn mihi kl. 17 og 19.
Kristján Sylveríusson
Kristján Sylveríusson, Ljósheimum
18A, Reykjavík, er sjötíu og fimm
áraídag.
Kristján er fæddur í Reykjavík og
þar ólst hann upp. Hann hefur starf-
að sem verkamaður í Reykjavík,
lengst af hjá Eimskip.
Eiginkona Kristjáns var Þuríður
Jóhannesdóttir húsmóðir, f. 2.6.
1911, d. 5.4.1988. Foreldrar hennar
voru Jóhannes Jónsson, b. í Ás-
garðsnesi í Dýrafirði, og Þorvaldína
Helgadóttir.
Sysktini Kristjáns: Hahgrímur
Sylveríusson, f. 11.4.1918, látinn, var
kvæntur Guðrúnu Gísladóttur, og
eignuðust þau tíu börn; og Ólöf S.
Sylveríusdóttir, f. 6.7.1921, gift
Gunnari R. Gunnarssyni, og eiga
þauþijárdætur.
Foreldrar Kristjáns voru Sylver-
íus Hallgrímsson, f. 20.6.1888, d.
13.4.1977, verkamaður í Reykjavík,
og Helga Kristjánsdóttir, f. 6.2.1887,
d. 4.8.1979, húsmóðir í Reykjavík.
Sylveríus var sonur Hallgríms,
dannebrogsmanns og hreppstjóra á
Staðarfelh í Dalasýslu, Jónssonar,
b. í Gvendareyjum, Jónssonar.
Móðir Hahgríms var Salóme
Oddsdóttir, b. á Kjarlaksstöðum,
Guðbrandssonar, og Þuríðar Orms-
dóttur, ljósmóður frá Fremri-Lang-
ey.
Móðir Sylveriusar var Ingibjörg
Marísdóttir, b. í Langeyjamesi, Ein-
arssonar frá Ríp í Skagafirði, Brynj-
ólfssonar.
Móðir Marísar var Vigdís Vigfús-
dóttir, vinnukona á Óspaksstöðum
í Hrútafirði. Móðir Ingibjargar var
Margrét Jónsdóttir, b. á Stakka-
bergi, Einarssonar og Guðrúnar
Jónsdóttur frá Skerðingsstöðum í
Reykhólasveit.
Helga, móöir Kristjáns, var dóttir
Kristjáns, b. í Vogsseh, Ándrésson-
ar, b. á Kúludalsá og víðár, Sigurðs-
sonar, b. á Mel í Hraunhreppi, Sig-
urðssonar.
Móðir Andrésar var Ástríður Ól-
afsdóttir. Móðir Kristjáns, b. í
Vogsseh, var Guðrún Sveinsdóttir,
vinnukona á Álftá, b. á Tyrfings-
stöðum, Helgasonar og Guðrúnar
Jónsdóttur.
Kristján Sylveríusson.
Móðir Helgu var Rósa Steinsdótt-
ir, b. á Bjarnarstöðum í Dalasýslu,
Jónssonar, b. á Bjargshóh í Mið-
firði, Bjamarsonar.
Móðir Steins var Ingveldur Egils-
dóttir frá Gröf í Eyrarsveit, Egils-
sonar. Móðir Rósu var Soffia Hah-
kelsdóttir úr Miðfirði, Eyjólfssonar.
Kristján verður að heiman í dag.
Jón Trausti Kárason
Jón Trausti Kárason, aðalbókari
Pósts og síma, Efstasundi 83,
Reykjavík, er sjötugur í dag,
Jón er fæddur í Vestmannaeyjum
og alinn þar upp. Hann lauk prófi
frá Verslunarskóla íslands 1941 og
starfaði sem verslunarmaður í
Reykjavík 1941-’43. Á árunum
1943-’46 var hann skrifstofumaður
hjá Kaupfélagi Stykkishólms en
fluttist síðan til Reykjavíkur og hóf
störf hjá Landssíma Islands. Hann
varð bókari þar 1947, fulltrúi 1951,
aðalbókari Landssímans 1960 og
hefur veriö aðalbókari Pósts og síma
frá 1961. Jón hefur unnið mikið að
félagsmálum í Félagi íslenskra
símamanna, fyr st sem gj aldkeri en
hann var formaður 1954-’60.
Jón kvæntist þann 28.5.1942
Bjarghhdi Stefánsdóttur blaða-
manni, f. 28.5.1920. Hún er dóttir
Stefáns Jónssonar, skólastjóra og
síðar námsstjóra, og Guðrúnar
Þórðardóttur.
Synir Jóns og Bjarghhdar: Stefán,
f. 18.11.1942, d. 20.6.1943; Gylfi, f.
21.5.1944, skrifstofustjóri hjá Pósti
og síma; Birgir, f. 28.5.1946, jarð-
fræðingur hjá Orkustofnun, og
Kári, f. 27.2.1952, yfirsímritari hjá
Pósti og síma og nemandi í Háskóla
íslands.
Systkini Jóns: Ingheif, f. 23.5.1903,
látin; Helga, f. 30.8.1904, húsmóðir
á Eyrarbakka; Óskar, f. 10.8.1905,
látinn; Ingheif, f. 21.10.1907, hús-
móðir í Reykjavík; Sigurbjörn, f.
31.5.1908, kaupmaður í Reykjavík;
Þórður, f. 9.8.1909, látinn; Guðni, f.
9.9.1910, fyrrv. skrifstofumaður í
Reykjavík; Nanna, f. 1.4.1912, látin;
Sólmundur, f. 24.4.1913, látinn;
Laufey, f. 10.3.1915, látin; Rakel, f.
4.9.1918, látin; Kári, f. 4.7.1921, lát-
inn; Svala, f. 16.7.1922, vistmaður á
JónTrausti Kárason.
Kópavogshæh; Kári Þórir, f. 9.5.
1924, múrarameistari í Reykjavík;
Karl, f. 24.7.1925, látinn, og Arn-
kell, f. 4.4.1915.
Foreldrar Jóns voru Kári Sigurðs-
son, f. 12.7.1880, d. 10.8.1925, for-
maður og b. í Vestur-Holti í Austur-
Landeyjum, Voðmúlastöðum - suð-
urhjáleigu og Vestmannaeyjum, og
Þórunn Pálsdóttir húsmóðir, f.
12.11.1879, d. 15.3.1965.
Jón er staddur á Kanaríeyjum um
þessarmundir.
Til hamingju með afmæliö 9. febrúar
ara
Jón Sigurósson,
Skúfsstöðum, Hólahreppi.
Guðrún Bergþórsdóitir,
Þorsteinsgötu 7, Borganiesi.
Jón Guömundsson,
Vesturvegi 32, Vestmannaeyjura.
Slgriöur Sœmundsdóttir,
Austurbrún 6, Reykjavík.
Einar Valberg Sigurðsson,
Reynimel 68, Reykjavík.
Guðrún Antonsdóttir,
Lyngholti, Skaröshreppi.
Steingrimur Baldurssou,
Austurgeröi n, Reykjavík.
Björg Sigurðardóttir,
Vorsabæ 12, Reykjavik.
Steinunn Hróbjartsdóttir,
Kambaseli 54, Reykjavík.
Stella Einarsdóttir,
Hvanneyrarbraut 61, Siglufiröi.
Sveinsina Jónsdóttir,
Gyðufelli 10, Reykjavík.
Tryggvi Guömundsson,
Króki 4, ísafiröi.
örn Snorrason,
Mýrarbraut 25, Blönduósi.
Ásdis Samúelsdóttir,
Hofslundi 2, Garðabæ.
Áslaug Ásgeirsdóttir,
Vesturvangi 11, Hafnarflröi
Guömundur Bergþórsson,
Sléttahrauni 26, Hafnarfirðí.
Guðný Óskarsdóttir,
Vatnsenda, Saurbæjarhreppi.
Guðrún Margrét Kjerulf,
Öldugötu 5, Reyðarfiröi.
Gunnar Reynisson,
Hólabraut 31, Skagaströnd.
Sveinbjörn Björnsson,
Móholti 4, ísafirði.
Ævar Árnason,
Seilugranda 9, Reykjavfk.
Rósa J. Thorlacíus
Rósa J. Thorlacíus, fyrrv. ljós-
■móðir og húsfreyja í Hvassafehi í
Eyjafirði, Tjarnarlundi 15G, Akur-
eyri.erníræðídag.
Rósa er fædd í Öxnafehi í Eyjafirði
og ólst þar upp. Haustið 1930 fór
Rósa th náms við Ljósmæðraskóla
íslands og lauk þaðan prófi 1931.
Tók hún þá við starfi ljósmóður í
Saurbæjarhreppi og starfaði við það
með húsmóðurstörfum formlega th
ársins 1942.
Rósa giftist þann 4.12.1932 Bene-
dikt Hólm Júhussyni, bónda frá
Hvassafelli, f. 3.1.1903, d. 21.7.1961.
Foreldrar hans vora Júlíus Gunn-
laugsson, b. í Hvassafehi, og Hólm-
fríðurÁrnadóttir.
Rósa og Benedikt eignuðust fjögur
böm. Þau em: Halla, f. 12.11.1933;
Haukur, f. 20.5.1935; Þuríður, f. 29.8.
1936, og Einar, f. 15.3.1940.
Systkini Rósu urðu 12 en þrjú lét-
ust á ungaaldri. Látin em: Þor-
steinn, Álíheiður, Jón, Margrét og
Þórann. Á lífi em: Ester, Hahgrím-
ur, Einar og Þóra.
Foreldrar Rósu vom Jón Thorla-
cíus, b. í Öxnafelli, og kona hans,
Þuríður Jónsdóttir.
Föðurbróöir Rósu var Einar
Thorlacíus, prófastur í Saubæ á
Hvalfjarðarströnd, en föðursystir,
samfeðra, var Ólöf, móðir VUhjálms
Þórs, fyrrum forstjóra SÍS.
Jón var sonur Þorsteins Thorla-
cíusar, b. og hreppstjóra í Öxnafehi,
Einarssonar Thorlacíusar, prests í
Saurbæ í Eyjafirði, Hallgrímssonar
Thorlacíusar, prests í Miklagarði.
Móðir Einars var Ólöf Hahgríms-
dóttir, sýstir Þorsteins, afa Jónasar
Hahgrímssonar skálds. Móðir Þor-
steins var Margrét Jónsdóttir lærða,
prests á Möðrufelh.
Þuríður var dóttir Jóns, b. í Holti
í Hrafnagilshreppi og síðar í
Hvassafelh, Tómassonar og konu
hans, Þómnnar Randversdóttur.
Guðmundur Andrésson
Guðmundur Andrésson.
Guðmundur Andrésson, fyrrv.
rafvirkjameistari, Geitlandi 10,
Reykjavík, er sextugur í dag.
Eiginkona Guðmundar er Helga
Ottósdóttir, matráöskona hjá
Reykjavíkurborg.
Börn Guðmundar og Helgu em:
Andrés, skrifstofustjóri Kaupfé-
lagsins á Þingeyri, kvæntur Þór-
unni Kristjánsdóttur og á hann fjög-
urbörn.
Sófus, húsgagnasmiður á Þing-
eyri, kvæntur Sunnu Mjöh Sigurð-
ardóttur og eiga þau tvö böm.
Eyþór, verktaki í Reykjavík,
kvæntur Þórunni Ósk Guömunds-
dóttur og á hann tvö börn.
Magnea, húsmóðir í Danmörku,
gift Erhng Skovsted og eiga þau þrjú
börn.
Foreldrar Guðmundar voru And-
rés Guðmundsson, b. í Brekku í
Dýrafirði, og Soffia Ásgeirsdóttir.
Guðmundur verður að heiman í
dag.
Missið ekki
af nyjasta
Úrval
kaupið það
NÚNASTRAX
á næsta
Uaðsölustað