Dagblaðið Vísir - DV - 21.02.1990, Síða 11
MIÐVIKUDAGUR 21. FEBRÚAR 1990
11
Sviðsljós
Rokkarinn
Del Shannon
fyrirfór sér
Poppsöngvarinn og lagahöfundur-
inn og einn af frumherjum rokksins,
Del Shannon, fannst látinn á heimili
sínu í síðustu viku, skotinn í höfuðið
og lá riflill við hhð hans.
Lögreglan sagði að hinn 51 árs
gamli söngvari hefði að öllum líkind-
um framiö sjálfsmorð þótt ekki hafi
fundist kveðjubréf frá honum. Það
var eiginkona söngvarans, Bonnie,
sem kom að honum látnum.
Del Shannon komst í sviðsljósið
1961 þegar hann samdi og söng inn á
plötu Runaway. Lagið var í sautján
vikur á vinsældalista í Bandaríkjun-
um. í kjölfarið fylgdu mörg vinsæl
lög. Auk þess að semja öll lög sem
hann söng inn á plötur sjálfur samdi
hann fyrir aðra, meðal annars fyrir
Peter og Gordon lagið I Go To Pices.
Eftir að það hafði verið hljótt um
Shannon í morg ár stjórnaði Tom
Petty upptöku á plötu með Shannon,
Drop Down and Get Me sem varð til
þess að gömlu lögin hans fóru að
heyrast aftur.
Del Shannon fæddist í Michigan
1939. Sem unghngur vann hann í
hæfileikakeppnum sem leiddi til þess
að hann fékk samning við plötufyrir-
tæki og sló hann strax í gegn með
sinni fyrstu upptöku sem var
Runaway.
Del Shannon. Þessi mynd er tekin af honum snemma á síðasta áratug
þegar hann var á hljómleikaferð um England.
Ike Tumer:
Dúsir inni í fjögur ár
Ike Turner, betur þekktur nú sem
fyrrum eiginmaður Tinu Turner,
hefur fengið fjögurra ára dóm í fang-
elsi fyrir eiturlyijaneyslu.
Ike, sem nú er 58 ára, var fundinn
sekur um að hafa tvívegis haft eitur-
lyf í fórum sínum, þar á meðal kóka-
ín. Hann fór fram á það að afplána
dóminn á meðferðarheimih í stað
fangelsins, en dómarinn neitaði ósk
hans á þeim forsendum að Ike hefði
nú þegar dvahð oft á meðferðar-
heimilum en án árangurs.
Svo gæti þó farið að Ike verði látinn
laus til reynslu eftir eitt ár og átta
mánuði. Ákærandinn játaði að Ike
hefði fengið þungan dóm, en hann
hefði svo sannarlega átt hann skilið.
Hann væri gott dæmi um hvernig
eiturlyf gætu farið með fólk, þegar
versti óvinurinn væri orðinn maður
sjálfur.
Til upprifjunar má geta þess að Ike
og Tina voru vinsæhr skemmtikraft-
ar á sjöunda áratugnum og áttu lög
sem slóu í gegn, m.a. „Proud Mary“,
Honky Tonk Woman“, og „River
Deep, Mountain High“. Ike og Tina
skhdu 1972. Lítið hefur heyrst frá
honum síðan, en eins og allir vita
komst Tina aftur á toppinn með
„What’s love got to do with it.“
Ike Turner var sekur fundinn um kókaineign og á fjögurra ára fangelsi yfir
höfði sér.
Kunnu þorrablótsgestir vel að meta matinn og gerðu honum góð skil.
Þorrablót í Lundúnum
Gunnar Sveinbjömsson, DV, Englandi:
íslendingafélagið i Lundúnum hélt
sitt árlega þorrahlót laugardaginn
10. febrúar sl. Blótið fór fram í
húsakynnum St. Ermins-hótelsins
sem er nánast í hjarta borgarinnar.
Matreiðslumaðurinn Úlfar Ey-
steinsson sá um veislumatinn líkt
og undanfarin ár og óhætt er að
segja að samkömugestir hafi gert
honum góð skh.
Sérstakir gestir þetta kvöld voru
sendiherrahjónin, Helgi Ágústsson
og Hervör Jónasdóttir, og þjóö-
háttafræðingurinn Árni Bjöms-
son, sem flutti erindi um þorrablót
fyrri tíma. Hljómsveitin Strax
ásamt Agli Ólafssyni lék fyrir
dansi, að ógleymdri Steinunni
Bjarnadóttur sem steig á svið og
söng nokkur sívinsæl lög.
Gestir þetta umrædda kvöld voru
fjölmargir og ljóst er að íslendingar
erlendis vilja allt gera til að halda
í gamla og góða siði aö heiman.
Formaður íslendingafélagsins er
Björgólfur Thorsteinsson og færði
hann öhum þeim, sem lögðu hönd
á plóginn við undirbúning og fram-
kvæmd þorrablótsins, sérstakir
þakkir.
Steinunn Bjarnadóttir söng nokkur sivinsæl lög með Strax og Agli Ólafs-
syni.
KERTAÞRÆÐIR
ípassandl settum.
Leiðarí úr stálblöndu. Sterkur og þobr
að leggjast I kröppum beygjum. Við-
nám aðeins 1/10 af viðnimi kotþráða.
Margföld neistagsði.
Kápa sem deyfir truflandi rafbylgjur.
SKEIFUNNI 5A, SÍMI: 91 -8 47 88
68 55
mmu