Dagblaðið Vísir - DV - 21.02.1990, Page 23
MIÐVIKUDAGUR 21. FEBRÚAR 1990.
35
Afmæli
Gurrnar K Gunnarsson
Gunnar K. Gunnarsson fram:
kvæmdastjóri, Granaskjóli 18,
Reykjavík, er fertugur í dag.
Gunnar fæddist í Reykjavík og
ólst upp í vesturbænum frá þriggja
ára aldri. Hann gekk í Melaskólann,
Hagaskólann og lauk stúdentsprófi
frá MR1970. Gunnar lagöi síöan
stund á viðskiptafræöi viö HÍ og
lauk þaðan prófi 1974.
Hann hóf störf sem skrifstofustjóri
hjá Verksmiöjunni Vífilfelli að námi
loknu en haföi starfað þar að
nokkru meö náminu. Gunnar var
skrifstofustjóri Vífilfells til 1978 en
fór þá til Vínarborgar á vegum fyrir-
tækisins og lagði þar stund á tölvu-
nám hjá Coca Cola Company í hálft
ár. Hann stofnaði síöan tölvudeild
hjá Verksmiðjunni Vífilfelh hf. að
því námi loknu og stjómaði henni
til 1987. Þá hóf Gunnar störf hjá
Olíuverslun íslands hf. sem aðstoð-
arforstjóri. Hann tók síðan við stöðu
framkvæmdastjóra framkvæmda-
sviðs við skipulagsbreytingu 1989.
Gunnar sat í stjóm Olís 1987-89.
Hann hefur lagt stund á félagsstörf
innan íþróttahreyfingarinnar, fyrst
hjá Knattspymufélaginu Þrótti og
síðar hjá Handknattleikssambandi
íslands. Gunnar situr nú í fram-
kvæmdastjórn HSÍ.
Gunnar kvæntist30.3.1974, Sigr-
únu Ingu Sigurgeirsdóttur, skrif-
stofumanni hjá Lýsi hf„ f. 7.7.1954,
dóttur Jakobínu Guðlaugsdóttur
launagjaldkera og Sigurgeirs Jónas-
sonar, ljósmyndara í Vestmanna-
eyjum.
Gunnar og Sigrún Inga eiga þijú
böm. Þau eru: María Kristín Gunn-
arsdóttir, f. 28.8.1974, nemi við MR;
Gunnar Geir Gunnarsson, f. 18.8.
1976, og Inga Lilý Gunnarsdóttir, f.
7.9.1977.
Bróðir Gunnars er Helgi Gunnars-
son, f. 4.5.1948.
Foreldrar Gunnars eru Gunnar
Kristinsson, f. 4.10.1917, verslunar-
maður og söngvari í Reykjavík, og
kona hans, María Tryggvadóttir, f.
17.11.1917, tannsmiður.
Gunnar er sonur Kristins, leik-
tjaldasmiðs í Þjóðleikhúsinu, Frið-
fmnssonar, b. á Kvíárholti í Holtum,
bróður Maríu, ömmu Maríu, móður
Jóns Gíslasonar, fyrrv. formanns
Ættfræðifélagsins. María var einnig
amma Valdísar, ömmu Jóns Vals
Jenssonar, formanns Ættfræðifé-
lagsins. Friðfmnur var sonur Frið-
fmns, b. á Galtastöðum í Flóa, Pét-
urssonar, b. þar, Grímssonar. Móðir
Friðfmns á Galtastöðum var Guð-
rún Guðmundsdóttir, b. á Galtastöð-
um, Bjarnasonar, og konu hans,
Guðlaugar, systur Sigurðar í
Vorsabæ, fóður Bjarna riddara Sí-
vertsen. Móðir Friðfmns í Kvíár-
holti var Guðrún Bjamadóttir, b. í
Mið-Meðalholti, Jónssonar, ogkonu
hans, Valgerðar Björnsdóttur, b. á
Hamri í Flóa, bróður Guðlaugar á
Galtastöðum.
Móðir Kristins var Auðbjörg
Oddsdóttir frá Hvammi í Holtum.
Móðir Gunnars söngvara var Ag-
nes, systir Boga, fóður Benedikts,
verkfræðings og alþingismanns.
Annar bróðir Agnesar var Bjarni,
faðir Rúnars, slökkviliðsstjóra í
Reykjavík. Systir Agnesar var
Benedikta, móðir Eggerts Haukdal
alþingismanns. Önnur systir Ag-
nesar var Rósa, amma Þórhildar
Þorleifsdóttur, leikstjóra og alþing-
ismanns.
Agnes var dóttir Eggerts, alþingis-
manns og hreppstjóra í Laugardæl-
um í Flóa, Benediktssonar, prests í
Vatnsflrði, Eggertssonar, bróður
Guðrúnar, konu Magnúsar Waage,
skipherra í Stóru-Vogum, ættföður
Waageættarinnar, langafa Ingunn-
ar, móöur Þorsteins Thorarensen
rithöfundur. Móðir Benedikts var
Guðrún Bogadóttir, b. í Hrappsey,
Benediktssonar, afa Boga Bene-
diktssonar, ættfóður Staðarfellsætt-
arinnar, langafa Áslaugar, móður
Geirs Hallgrímssonar seölabanka-
stjóra. Bogi á Staðarfelh var einnig
langafi Guðnýjar, móður Vals Am-
þórssonar bankastjóra.
Móðir Agnesar var Guörún Sól-
veig Bjarnadóttir, prests á Stafafelh
í Lóni, Sveinssonar, að Sævarenda
á Fáskrúðsfirði, Eyjólfssonar. Móðir
Bjarna var Ragnhildur, systir
Guðnýjar, ömmu Bóasar, afa Reg-
ínu Thoroddsen fréttaritara. Guðný
var einnig amma Bóelar, langömmu
Geirs Hahgrímssonar. Þá var
Guðný langamma Páls, afa Kjartans
Gunnarssonar, framkvæmdastjóra
Sjálfstæöisflokksins, og Harðar Ein-
arssonar, forstjóra Frjálsrar fiöl-
miðlunar. Ragnhhdur var dóttir
Stefáns, b. að Litla-Sandfehi í
Skriðdal, ættföður Sandfellsættar-
innar, Magnússonar.
María, móðir Gunnars, er dóttir
Tryggva, alþingismanns ogbanka-
stjóra, bróður Kristjönu, móður
Hannesar Hafstein, skálds og ráð-
herra, en bróðir Hannesar var
Gunnar, bankastjóri í Færeyjum,
afi Davíös Scheving Thorsteinsson-
ar forstjóra. Tryggvi var sonur
Gunnars, prests í Laufási, Gunnars-
sonar, prests í Laufási, Hallgríms-
Gunnar K. Gunnarsson.
sonar. Móðir Gunnars yngri var
Þórunn Jónsdóttir, prests að Hálsi
í Fnjóskadal, Þorgrímssonar. Móðir
Tryggva var Jóhanna, systir Egg-
erts Briem, sýslumanns á Reynis-
stað, föður Páls amtmanns, afa Sig-
urðar Líndal, forseta HÍB og laga-
prófessors, og Páls Líndal, deildar-
stjóra og höfundar Reykjavíkurbók-
anna sögustaður við sund, föður
Björns Líndal, aðstoöarbankastjóra
Landsbankans. Jóhanna var dóttir
Gunnlaugs Briem, sýslumanns á
Grund, ættföður Briemsættarinnar.
Móðir Maríu var Helga, kennari í
Reykjavik, Jónasdóttir, prests í
Sauðlauksdal, Bjömssonar, b. á
Möðruvöllum í Kjós, Kortssonar.
Móðir Jónasar var Helga Magnús-
dóttir, prests í Steinnesi, Ámasonar,
biskups, Þórarinssonar. Móðir
Helgu var Rannveig Gísladóttir,
hreppstjóraí Neðri-Bæ, Ámasonar.
Kristín Sigurðardóttir
Kristín Sigurðardóttir, bankaráðs-
maður við Landsbanka íslands, Ásl-
andi 2, Mosfehsbæ, er fertug í dag.
Kristín fæddist í Reykjavík og ólst
þar upp, á Hrísateignum, fyrstu þrjú
árin en flutti síðan með fiöldskyldu
sinni í Kópavoginn. Hún lauk gagn-
fræðaprófi frá Gagnfræðaskóla
Kópavogs 1967, stundaði myndhst-
anám við Handíða- og myndhsta-
skóla í slands og Myndlistarskóla
Reykjavíkur og stundaði flugnám á
árunum 1967-71, auk þess sem hún
tók meirapróf 1971. Kristín lauk
stúdentsprófi frá Fjölbrautaskól-
anum í Breiðholti 1981. Hún stund-
aði nám í viðskiptafræði viö HÍ í
þrjú ár og er nú að ljúka námi í
stjórnmálafræði.
Kristín vann verslunarstörf og
starfaði síðan hjá vertakafyrirtæk-
inu Loftorku að margvíslegum
verkefnum. Þá var hún deildarstjóri
innheimtudeildar hjá Kaupþingi hf.
frá 1988 og hefur nú nýverið látið
af þeim störfum.
A barns- og unglingsárunum
starfaði Kristín innan Skátahreyf-
ingarinnar. Hún var einn af stofn-
endum skátafélagsins Hafarna í
Breiðholti, sótti margvísleg nám-
skeið á vegum Bandalags íslenskra
skáta innan lands og utan og var
leiðbeinandi á námskeiðum banda-
lagsins um nokkurra ára skeið. Hún
var stofnfélagi að Kvennaframboð-
inu í Reykjavík og stofnfélagi að
Samtökum um kvennalista og hefur
unnið að margvíslegum verkefnum
innan þeirra samtaka. Kristín var í
fiórða sæti á framboðslista Kvenna-
hstans í Reykjaneskjördæmi í al-
þingiskosningunum 1987.
Kristín hóf sambúð 1971 en giftist
17.6.1972. Maður hennar er Ólafur
Jónsson verkstjóri, f. 8.6.1945, sonur
Jóns Guðmundssonar, fyrrv. for-
stöðumanns Sjúkrasamlags Akra-
ness, f. 20.4.1904, d. 9.6.1987, og Sig-
ríðar Steinsdóttur húsmóður, f. 14.9.
1914. :
Kristín og Ólafur eiga tvær dætur.
Þær eru Sæunn Ólafsdóttir, f. 19.9.
1972, nemi, og Iðunn Ólafsdóttir, f.
31.1.1974, nemi.
Systkini Kristínar eru Sigurveig,
f. 22.9.1952, gift Bimi Þórðarsyni,
f. 30.10.1954, en þau eru starfsmenn
fræðsluskrifstofunnar á Vestur-
landi og á Sigurveig fióra syni; Ari,
f. 5.8.1954, verkstjóri, kvæntur
Önnu Ólafsdóttur Björnsson, f. 4.6.
1952, þingkonu og eiga þau tvö böm;
Freyr, f. 6.2.1959, starfsmaður hjá
Loftorku, en kona hans er Mercedes
G. Berger, f. 1.2.1965, starfsstúlka á
veitingahúsinu Óðinsvéum; Andr-
és, f. 18.5.1961, verksfióri hjá Loft-
orku, í sambýli með Hjördísi Gísla-
dóttur, f. 7.1.1967 og eiga þau eina
dóttur auk þess sem Andrés átti son
fyrir.
Foreldrar Kristínar eru Sigurður
Sigurðsson, forstjóri, f. 28.4.1926, og
Sæunn Andrésdóttir húsmóðir, f.
20.11.1930. Þau bjuggu lengst af í
Kópavogi en búa nú að Vonarholti
í Kjalarneshreppi.
Hálfsystir Sigurðar, sammæðra er
Högna Sigurðardóttir, arkitekt í
París. Sigurður er sonur Sigurðar,
verkstjóra í Vestmannaeyjum Frið-
rikssonar, b. á Ytri-Sólheimum og
síðar á Rauðhálsi í Mýrdal, bróður
Helga, föður Vigfúsar, föður Helga
bókaútgefanda. Helgi var einnig fað-
ir Þorbjarnar í Borg, Jónínu, móður
Jóhannesar Helga rithöfundar, og
Kristín Sigurðardóttir.
Theodórs, föður Bj örns, fram-
kvæmdastjóra hjá Flugleiðum.
Friðrik var sonur Vigfúsar, b. á
Ytri-Sólheimum, Þórarinssonar, b.
að Seljalandi, Eyjólfssonar. Móðir
Friðriks var Þórdís Bernetsdóttir.
Móðir Þórdísar var Helga Þórðar-
dóttir, prófasts á Fehi í Mýrdal,
Brynjólfssonar, afa Magnúsar
landshöfðingja, langafa Guðrúnar
Agnardóttur alþingiskonu. Móöir
Helgu var Margrét Sigurðardóttir,
seinni kona Jóns Steingrímssonar
eldklerks.
Móðir Sigurðar í Vestmannaeyj-
um var Þórunn Sigríður, dóttir
Odds Jónssonar, b. í Pétursey og
Steinunnar Sigurðardóttur. Móðir
Sigurðar framkvæmdastjóra er
Guðmundína Sigurveig Stefánsdótt-
ir.
Sæunn er dóttir Andrésar, b. að
Jafnarskarði og síðar í Borgarnesi,
Konráðssonar, í Ólasfvík, Konráös-
sonar. Móðir Andrésar var Jóhanna
Þórðardóttir.
Kristín er að heiman í dag.
85 ára 60ára
Hrefna Sigurbjörnsdóttir, Austurbyggð 17, Akureyri. Garðar Guðmundsson, Hlíðarvegi 50, Ólafsfirði.
80 ára 50 ára
Lúðvík Jónsson, Grýtu, Öngulsstaðahreppi. Laufey Arnórsdóttir, Hjallaseli 27, Reykjavík. Sigriður G. Biering,' Skúlagötu 72, Reykjavík. Sturlaugur Grétar Filippusson, Urriðakvísl 24, Reykjavík. Ólöf Esther Karlsdóttir Celin, Bugöulæk 1, Reykjavík. Geirþrúður Johannessen, Reynigrund 57, Kópavogi.
75 ára Hrafnakletti7, Reykjavík. Jóhanna Guðmundsdóttir,
Jón Sætran, Eskihlíð 20A, Reykjavík. Ásthildur Guðlaugsdóttir, Böðvarsgötu 3, Borgarnesi. Laugavegi 40, Reykjavík. Kristín Kjartansdóttir, Baughóh 6, Húsavík.
40 ára
70 ára T:.. ■ V €11 d
Sveinbjörn Styrkársson,
Sigrún Jónsdóttir, Litla-Hofi, Hofshreppi. Jóhanna Jónsdóttir, Fjarðarbraut37, Stöðvaríirði. Eyjabakka 12, Reykjavík. Magnús B. Karlsson, Vahholti 13, Akranesi. Þorleifur Ingólfsson, Þorbjargarstöðum, Skefilsstaða- hreppi.
Sigríður Biering
Dagný Jóna Jóhannsdóttir
Dagný Jóna Jóhannsdóttir, Selja-
landsvegi 44, ísafiröi, er fimmtug í
dag.
Dagný er fædd á Merkinesi í Höfn-
um og þar ólst hún upp. Hún starfar
nú í Noröurtanganum á ísafirði.
Eiginmaður Dagnýjar er Óskar
Örn Hálfdánarson, starfsmaður
Flugmálastjórnar á ísafirði, f. 17.9.
1931. Foreldrar hans voru Hálfdán
Bjarnason og Guðbjörg Þórodds-
dóttir.
Böm Dagnýjar og Óskars eru:
Sigurður Guðmundur, f. 1.2.1960,
flutningabílstjóri á ísafirði, pg á
hann tvær dætur: Dagnýju Ósk, f.
3.6.1980; og Esther Sif, f. 13.7.1987.
Guðbjörn Þór, f. 10.2.1961, verk-
stjóri hjá Pósti og síma, búsettur á
Patreksfirði, og er maki hans, Jón-
ína S. Jónsdóttir, og eiga þau tvo
drengi: Jón Þór, f. 23.8.1984; og Jós-
ep Heimi, f. 9.2.1988. En auk þess á
Guðbjöm dótturina Unni Jónu, f.
23.11.1980.
Hálfdán, f. 22.7.1962, starfsmaður
hjá Mjólkursamlagi ísfirðinga, bú-
settur á ísafirði, og er maki hans
Sigríður Jörundsdóttur, og eiga þau
tvö börn: Óskar Örn, f. 17.8.1984;
og Örnu Maríu, 2.7.1987.
Jósep Heimir, f. 20.5.1964, d. 1.1.
1981.
Dagný á fiögur systkinl Þau eru:
Ólafur, Pétur og Ehsabet, öll búsett
í Reykjavík, og Gróa, búsett í Sví-
þjóð.
Foreldrar Dagnýjar eru Jóhann
Sigurðsson og Guðfinna Pétursdótt-
ir.
Sigríður Biering, Skúlagötu 72,
Reykjavík, fyrrverandi starfskona á
slysadeild Borgarspítalans, er átt-
ræð í dag.
Sigríður fæddist í Reykjavík 21.2.
1910, dóttir hjónanna Gíslínu Sigríð-
ar Einarsdóttur og Guðmundar Sig-
urðssonar gullsmiðs.
Sigríður giftist 24.10.1934 Pétri
Wilhelm Biering verslunarmanni,
f. 28.12.1905, d. 19.2.1963, en hann
var sonur hjónanna Þorbjargar Bi-
ering og Moritz Wilhelm Biering
skósmiðs.
Sigríöur og Pétur eignuðust sex
börn og eru fimm þeirra á lífi. Böm
þeirra: Þorbjörg, var gift Árna Elfar
en hún lést 29.5.1978; Helga Emilía,
gift Sveini Pedersen en þau eru bú-
sett í Noregi; Moritz Wilhelm,
kvæntur Sidsel Eirikssen en þau
eru einnig búsett í Noregi; Guðrún,
gift Hrafni Björnssyni, búsett í
Kópavogi; Bertha, gift Amþóri Stef-
ánssyni, búsett í Reykjavík, og Lou-
Sigríöur Biering.
ise, gift Magnúsi A. Sigtryggssyni,
búsettíReykjavík.
Barnabörn Sigríðar eru nú sextán
talsins en langömmubörnin fimm.
Sigríður ætlar að taka á móti ætt-
ingjum og vinum í sal Múrarafélags-
ins að Síðumúla 25 eftir klukkan 20
íkvöld.