Dagblaðið Vísir - DV - 24.02.1990, Blaðsíða 2
2
LAUGARDAGUR 24. FEBRÚAR 1990.
Fréttir_________________________________________________________________________________________pv
Hluti rafmagnstöflu í aðaltöfluherbergi Seðlababkans brann:
Starfsemi bankanna
raskaðist verulega
„Þaö var allt kolsvart af ótrúlega
þéttum reyk þegar viö opnuöum
töfluherbergiö. Síðan barst reykur-
inrt um húsiö. Hluti af aöalrafmagns-
töílu hússins brann yfir en þetta
slokknaði aö mestu þegar aðalrofa
var slegið út,“ sagöi Erlingur Lúö-
víksson, varðstjóri í slökkviliöinu, í
samtali við DV.
Slökkviliöið var kallað út í Seöla-
banka íslands klukkan rúmlega^ex
í gærmorgun þegar kviknaö haföi í
út frá rafmagni í aöaltöíluherbergi.
Slökkvilið vann viö aö .reykblása í
byggingunni fram eftir morgni. Þeg-
ar DV fór í prentun í gærkvöldi var
rafmagn ekki komið á aftur í bygg-
ingunni.
Ekki var hægt að skrá nýtt gengi í
Seðlabankanum í gær og varð að
styðjast viö skráningu fimmtudags-
ins. Bankar gátu heldur ekki stuðst
- bankastarfsmenn nokkurra útibúa þurfa að vinna í dag
við upplýsingar í tölvukerfi Reikni-
stofu bankanna og urðu því talsverö-
ar tafir vegna afgreiðslu. Starfsmenn
Seðlabankans fengu flestir frí frá
vinnu í gær.
Bankastarfsemi í öðrum bönkum
fór verulega úr skorðum í gær vegna
brunans þar sem tölvukerfi Reikni-
stofu bankanna, sem er í Seðla-
bankahúsinu, fór úr sambandi.
Þurftu bankastarfsmenn að leita
upplýsinga í skriflegum pappírs-
gögnum.
Helgi Steingrímsson, fram-
kvæmdastjóri tæknisviðs Lands-
bankans, sagði í samtali við DV aö
tölvubókanir heföu gengið eðlilega
fyrir sig í útibúum Landsbankans í
gær. Gert var ráð fyrir að tölvubók-
anir yrðu sendar til Reiknistofunnar
í dag ef kerfið kæmist í lag.
í nokkrum bankaútibúum var ekki
Starfsmenn Seðlabankans mættu slökkviliðsmönnum er þeir komu til vinnu
í gærmorgun. Rafmagnslaust var í byggingunni í allan gærdag og fengu
starfsmenn frí. DV-mynd S
hægt að bóka innlegg og úttektir á
tölvur - þó var tekið viö peningum
eða borgað út samkvæmt eyðublöð-
um. Afgreiðsla tafðist verulega af
þessum sökum. Starfsfólk í nokkrum
útibúum þarf því að mæta til vinnu
í dag til þess að færa bókanir í tölvu
og senda Reiknistofu bankanna þeg-
ar kerfið kemst í lag.
Þegar DV menn skoðuðu verksum-
merki i aðaltöfluherbergi í kjallara
Seðlabankabyggingarinnar síðdegis
í gær voru rafvirkjar í óða önn við
að þrífa sót af veggjum og tækjum.
Ekki er ljóst hve tjón af völdum
brunans var mikið, né heldur hve
alvarlegar afleiöingar hann hefur í
fór með sér fyrir tölvukerfið og aöra
starfsemi.
-ÓTT
Ríkisráðsfundur var haldinn einni klukkustund eftir að hin nýju lög um umhverfisráðuneyti voru samþykkt á Al-
þingi. Samkvæmt ákvæðum stjórnarskrárinnar skipar forseti íslands nýja ráðherra og var Július Sólnes skipaður
umhverfisráðherra og Steingrímur Hermannsson tók að nýju við Hagstofu íslands. DV-mynd Brynjar Gauti
Umhverfisráðuneytið orðið staðreynd:
Fjölmennur fundur motmælir skerðingu sóknargjalda:
Fé sem ríkið getur ekki
ráðstafað að eigin geðþótta
- var afgreitt fyrir þremur mánuðum, segir dármálaráðherra
Fjölmennur safnaðarráðsfundur
Reykjavíkurprófastsdæmis mót-
mælti harðlega í vikunni skerðingu
á sóknar- og kirkjugarðsgjöldum sem
stjórnvöld ákváðu með lánsfjárlög-
um í lok síöasfiiöins árs.
Fjárlaganefnd Reykjavíkurpró-
fastsdæmis lagði fram tiilögu sem
samþykkt var einróma á fundinum.
„Telur fundurinn skerðinguna vera
grófa atlögu að kirkjunni og starfi
safnaðanna - ráðstöfunin kemur auk
þess hlutaðeigandi í opna skjöldu þar
sem ekki var gert ráð fyrir slíkum
tekjumissi við gerð fjárhagsáætlana
þeirra. Áhersla er lögð á að margir
söfnuðir þoli alls ekki þessa tekju-
skerðingu sem bitna muni mjög á
safnaðarstarfi," segir í ályktun fund-
arins.
Ólafur Ragnar Grímsson fjármála-
ráðherra vildi ekki tjá sig um sam-
þykkt fundarins er DV bar hana
undir hann. Hann sagði þó aö mál
þetta hefði verið afgreitt fyrir þrem-
ur mánuðum. Fjármálaráðherra
vildi ekki tjá sig um ummæli séra
Gísla Jónassonar í Breiðholtssókn
en hann lét svo um mælt í DV vik-
unni að hann liti svo á að með skerð-
ingunni væri verið að leggja
skemmtanaskatt á kirkjusókn.
I ályktun fundarins segir ennfrem-
ur að sóknargjöld séu framlög sókn-
arbarna tii kirkna sinna og að ríkið
sé aðeins innheimtuaðili gjaldanna.
„Því skal lögð áhersla á að framlag
ríkisins til kirkna og safnaða eru
ekki íjármunir sem ríkiö getur ráð-
stafað. að eigin geöþótta," segir í
ályktuninni.
Fundurinn væntir þess að leiðrétt-
ing verði gerö hið fyrsta og að fram-
vegis verði ekki gengið á lögmætar
eignir kirkjunnar.
-ÓTT
„Sakna Hagstofunnar“
- segir Júhus Sólnes umhverfisráðherra
Stækkun Búrfellsvirkj unar:
Tilboð
Á Aiþingi í gær voru samþykkt lög
um Stjórnarráð íslands sem staðfesta
stofnun umhverfisráðuneytis. Þar
með tekur Júlíus Sólnes, formaður
Borgaraflokksins, við hinu nýja um-
hverfisráðuneyti sem fyrsti ráðherra
umhverfismála á íslandi eins og varð
að samkomulagi við myndun síðustu
ríkisstjórnar Steingríms Hermanns-
sonar. Frumvarp þar um var sam-
þykkt með 11 atkvæðum stjórnar-
liða. Fimm þingmenn Sjálfstæðis-
flokks greiddu atkvæði gegn frum-
varpinu en kvennalistakonur sátu
hjá. Þrír þingmenn voru fjarstaddir.
Um leið lætur Júlíus af embætti
sem ráðherra Hagstofu íslands og
tekur forsætisráðherra við því emb-
ætti aftur eins og reyndar hafði
ávallt tíðkast fram aö því að Júlíus
tók við embættinu. „Eg veit að ég
kem til aö sakna starfsins sem hag-
stofuráðherra - mér var farið að líka
það mjög vel,“ sagði Júlíus.
„Auðvitað er ég mjög ánægöur með
að þetta skuli vera frá. Þetta er búið
að vera leiðinleg umræöa og löng.
Satt best að segja hef ég ekki skiliö
andstöðu við þetta mál á þinginu. Ég
hélt að það væri hagsmunamál allra
fylkinga að koma á ráðuneyti um-
hverfismála og skapa festu í þeim
efnum,“ sagöi Júlíus.
Hinn nýi umhverfisráðherra sagöi
að á næstu vikum tæki við starf við
að undirbúa starfsemi hins nýja
ráðuneytis og ráða starfsfólk til
starfa.
Landsvirkjun opnaði í gær þrettán
tilboð í þrjá verkhluta véla- og raf-
búnaðar vegna stækkunar Búrfells-
virkjunar. Fjögur 'tilboð bárust í
hverfla, rafala og fylgibúnað, sjö í
aflspénna og tvö í rofabúnað.
Lægsta tilboö í hverfla, rafala og
fylgibúnað átti kínverska fyrirtækið
CMEC. Tilboð þess er 598,8 milljónir
króna eöa rúmlega 61 prósent af
kostnaöaráætlun. Næsta boð átti
opnuð
ABB frá Svíþjóö sem er 980,8 milljón-
ir króna eða rétt rúmlega kostnað-
aráætlun.
Lægsta tilboð í aflspenna var frá
EFACEC frá Portúgal, rúmlega 58
milljónir króna. Vestur-þýska fyrir-
tækið Siemens átti lægsta tilboðið í
rofabúnaöinn, 187,7 milljónir króna.
Tilboöin verða nú könnuö með til-
iiti til útboðsgagna og þau borin sam-
an. -JH
-SMJ
Norðurlandaráð:
Körfubolti:
Fowlks til Grindavíkur
Carlsson kemur ekki
Á milh 800 og 900 erlendir gestir
koma vegna Norðurlandaráðsþings
sem hefst í Reykjavík næstkomandi
þriðjudag. Á fundinn koma margir
af helstu stjómmálamönnum Norð-
urlanda en þó er ljóst að vegna
stjórnmálaástandsins í Svíþjóð kem-
ur forsætisráðherra þeirra, Ingvar
Carlsson, ekki. Flestir annarra full-
trúa þeirra koma þó. Fráfarandi for-
seti Norðurlandaráðs, Karin Söder,
mætir en þaö er Páll Pétursson sem
skipar forsæti Noröurlandaráðs aö
þessu sinni.
Á þinginu veröa um 860 þátttak-
endur og má meöal annars nefna að
um 180 til 190 fréttamenn mæta til
leiks. 140 manns munu stjórna skrif-
stofu ráðsins en þingið verður í sal-
arkynnum Háskólabíós og Hótel
Sögu. Þingið mun standa frá þriöju-
degi til fóstudags og kosta um 20
milljónir króna sem deilt verður
milliþátttökuþjóðanna. -SMJ
Ægir Már Kárason, DV, Suöumesjum;
Bandaríski körfuknattleiksmaður-
inn Darren Fowlks er kominn til
landsins og leikur með Grindvíking-
um í úrvalsdeildinni út keppnistíma-
bilið. Hann kemur í staðinn fyrir Ron
Davis, sem Grindvíkingar létu fara
fyrr í vikunni, og er þriðji erlendi
leikmaðurinn sem leikur með þeim
á tímabilinu.
Fowlks er blökkumaður, tveir
metrar á hæð, og samkvæmt þeim
upplýsingum sem Grindvíkingar
hafa aflað sér er hann mjög fjölhæfur
leikmaður. Hann lék síðast með Butl-
erháskólanum í Bandaríkjunum og
skoraði þá um 20 stig að meðaltali í
leik.
Grindvíkingar eru þegar búnir aö
fá leyfi fyrir Fowlks þannig að hann
leikur meö þeim gegn íslandsmeist-
urum Keflvíkinga í úrvalsdeildinni
annaö kvöld, sunnudagskvöld.