Dagblaðið Vísir - DV - 24.02.1990, Side 4
LAUGARDAQUR 24. FEBRÚAR 1990.
Fréttir
Fengur EA, skip Þróunarsamvinnustofhunar íslands:
Höfum ekki efni
á að reka skipið
- segir Bjöm Dagbjartsson framkvæmdastjóri
„Fengur EA kom frá Grænhöföa-
eyjum í september síðastliðnum og
hefur legið bundinn við bryggju í
Reykjavík síðan. Skipið þarf að fara
í klössun, þar á meöal lögbundna
klössun, en því miður höfum við
ekki haft peninga til að láta það í
slipp. Ég veit ekki hvað verður en
eins og er höfum við’ engin efni á að
reka skipið,“ sagöi Björn Dagbjarts-
son, framkvæmdastjóri Þróunar-
samvinnustofnunar Islands, í sam-
tali við DV.
Það hefur vakið athygli hafnar-
aödáenda að Fengur hefur legið
óhreyfður síðan í haust í Reykjavík-
urhöfn og þykir lítið augnayndi eins
og hann lítur út.
Björn sagði að ætlunin væri að ís-
lendingar og Norðmenn tækju að sér
Fengur hefur legið bundinn við bryggju í Reykjavík frá því í september.
DV-mynd S
rannsóknir á veiðiþoli við strendur
Suðvestur-Afríku en þar hefur átt sér
stað mikil rányrkja árum saman. Ef
af þessu verður mun Fengur EA
verða notaður við rannsóknirnar.
„Ef við eigum að standa við þetta
loforð okkar verður að tryggja fé til
að reka skipið. Sem stendur er það
ekki fyrir hendi. Þaö er mjög vont
fyrir okkur íslendinga að standa ekki
viö gefin loforð í þessum efnum.
Betra hefði þá verið að neita að taka
þetta að sér en geta ekki staðið við
loforðið," sagði Björn.
Það kostar sitt að láta skipið liggja
bundiö við bryggju, ekki undir 100
þúsund krónum á dag, að því er
Björn Dagbjartsson sagði.
-S.dór
Fundur með hagstoíuráðherra á Ísaíirði um atvinnustefnu:
„Júlíus Sólnes
kom algeriega
óundirbúinn“
- segir Ólafur Kristjánsson, bæjarstjóri í Bolungarvík
Helga Guðrún Eiríksdóttir, DV, fsafirðL
Ég tel aö Júlíus Sólnes hafi komiö
algerlega óundirbúinn á þennan
fund og vegna framtíöar atvinnu-
lífs á Vestfjörðum vona ég sannar-
lega að ríkisstjórnin hafi meira
fram að færa heldur en fram kom
í máli han8,“ sagði Ólafur Kristj-
ánsson, bæjarstjóri í Bolungarvík,
í samtali við DV.
Um fátt er nú meira rætt á ísafirði
en fund Júlíusar Sólnes hagstofu-
ráðherra á þriöjudaginn um mótun
atvinnustefnu á Vestfjörðum. Ráð-
herra kom með föruneyti sínu í
leiguflugvél þrátt fyrir þrjár ferðir
í áaetlunarflugi til ísafiarðar þann
dag.
Heimamenn fjölmenntu á fund-
inn en margir þeirra létu í ljósi
vonbrigði aö honum loknum með
að ráöherra virtist óundirbúinn og
þekking hans á staðháttum vestra
vakti aöhlátur. Nokkuð var um aö
fundargestir færu af fundi.
„Ég varð fyrir sárum vonbrigð-
um með þennan fund. Ég haföi
búist viö aö ráöherra flytti Vest-
firöingum boðskap ríkisstjórnar-
innar í atvinnumálum og við
myndum eiga um þaö skoöana-
skipti viö hann. En það er ekki
hægt að tala um það sem ekkert
er,“ sagði Ólafur Krístjánsson.
Lausaganga sauðíjár:
Verður stöðvuð
eftir 10 ár
- segir Óli H. Þórðarson
„Við sáum að það yrði ekki unnt
að stöðva lausagöngu sauðfjár um
leið og lausagöngu stórgripa. Hana
verður að stöðva í áfóngum og við
gerum ráð fyrir að það verði á svona
5 til 10 árum,“ sagði Óli H. Þórðarson
hjá Umferðarráði en hann er einn
þeirra er sátu í nefnd er taka átti á
lausagöngu búfjár. Það vakti athygli
þegar nefndarálitið var kynnt að
lausaganga sauðfjár var skilin eftir
þó að í langflestum tilvikum sé keyrt
á sauðfé.
- Gafst nefndin upp fyrir rökum
sauðkindarinnar?
„Það voru að sjálfsögðu ágreinings-
efni í nefndinni en við vorum að
reyna að vera raunsæir í nefndará-
liti og þar þurftum við að vera sam-
mála. Þaö þyrfti að koma til meiri-
háttar breyting á búskaparháttum
ef koma ætti í veg fyrir lausagöngu
sauðfjár," sagði Óli. í nefndinni mun
hafa verið rætt um að koma upp
sauðfj árræktarhólfum þar sem
tryggja ætti að sauðfé heföi ekki að-
gang að vegum. Ekki náðist samstaða
um það.
Þá lagöi nefndin einnig til breyting-
ar á umferðarlögunum sem fela í sér
að tjón af völdum árekstra við búfé
verði deilt á báða aðila. Er ætlunin
að skipta tjóni meira miðað við „sök“
viðkomandi. Ef til dæmis er girðing
beggja vegna vegarins ætti ökumað-
urinn aö sleppa við kostnaö af tjón-
inu.
Nefndin komst að þeirri niðurstöðu
að skipa bæri aðra nefnd til aö fjalla
áfram um lausagöngu búfjár.
-SMJ
Með sigurbros á vör. Verðlaun fyrir athyglisverðustu auglýsingar ársins voru veitt í gær. Hér sjáum við sigurvegarana en veitt voru verðlaun í átta flokk-
um auglýsinga. Athyglisverðasta auglýsingaherferðin var valin Láttu ekki vísa þér á dyr. Framleiðandi Hvita húsið. Auglýsandi Kreditkort. Athyglis-
verðasta sjónvarpsauglýsingin var valin Hraðakstur (Liggur þér lífið á). Framleiðandi íslenska auglýsingastofan í samvinnu við Saga Film. Auglýsandi
Sjóvá-Almennar hf. Athyglisverðasta dagblaðaauglýsingin var valin Breiddin er í Breiddinni. Framleiðandi Auk hf. Auglýsandi Bykó. Athyglisverðasta
tímaritaauglýsingin var valin Síða (Fólk deyr af völdum alnæmis). Framleiðandi íslenska auglýsingastofan. Auglýsandi Landlæknisembættið. Athyglis-
verðasta veggspjaldið var valið lcelandic woollen throws and blankets. Framleiðandi íslenska auglýsingastofan. Auglýsandi Álafoss. Athyglisverðasta
dreifiritið var valið Grand skrifstofuhúsgögn. Framleiðandi Auglýsingastofa P&Ó. Auglýsandi EE-húsgögn. Athyglisverðasta útvarpsauglýsingin var valin
Pepsí bítur fílinn. Framleiðandi Bylgjan. Auglýsandi Sanitas. Óvenjulegasta auglýsingin var vaiin Flóridana slim. Framleiðandi Auk hf. Auglýsandi Mjólk-
ursamsalan. -JGH/DV-mynd Brynjar Gauti
Kópavogur:
Kvennafram-
boð er í bígerð
Konur í Kópavogi ætla að
standa fyrir opnum fundi á næst-
unni til að kanna viðbrögð við
framboði þeirra. Verður fundur-
inn á alþjóðlegum baráttudegi
kvenna eða 8. mars.
Að undanförnu hefur nefnd
unnið að því að undirbúa fundinn
og samkvæmt heimildum DV eru
miklar likur á aö konur bjóði
fram sérlista í Kópavogi. Þær
hafa ekki boðið fram þar áður.
Meðal þeirra kvenna sem fyrir
framboðinu fara eru Þóranna
Pálsdóttir veðurfræðingur og
Guðbjörg Einarsdóttir kennari.
Þegar hefur verið ákveöið að
bjóða fram sérstaka kvennalista
í Reykjavík og á Akureyri. Eins
og áður sagði er framboð í undir-
búningi i Kópavogi og svo mun
einnig vera i Hafnarfirði. Ekki er
enn ákveðið hvort konur bjóða
aftur fram á Selfossi. Þá má geta
þess að konur eru að huga að
sameiginlegu framboði í Mos-
fellsbæ - og þá með vinstri flokk-
unum. -SMJ
Alþýðuflokkurinn:
Enn gæK við
sameiginlegan
framboðslista
Ekki liggur fyrir með hvaða
hætti framboði Alþýðuflokksins
í Reykjavík fyrir borgarstjórnar-
kosningarnar verður háttað.
Birgir Dýríjörð, formaður full-
trúaráðs, segir að óháðir aðilar
hafi beðið alþýðuflokksmenn að
bíöa aðeins með ákvörðun um
útfærslu á framboði. Þá líta
kratar enn til Borgaraflokks um
sameiginlegt framboð.
„Ef ekkert verður af sameigin-
legu framboði bjóöum við fram
A-lista. Ef þaö verður munum við
vera með opið prófkjör, þar sem
þátttaka er ekki bundin flokks-
skirteinum. Þetta á allt að liggja
fýrir snemma í næsta mánuði.
Stefhuskrá okkar liggur fyrir.
Hún er sú sama og var kynnt með
málefnalistanum/' sagði Birgir
Dýrfiörð. -Sme
Alþýðubandalagið:
Viðhefur forval
í Reykjavík
Alþýðubandalagiö í Reykjavík
ætlar að hafa forval við val á
framboðslista flokksins fyrir
borgarstjórnarkosningarnar í
maí. Tilnefningum í forval á að
vera búið að skila fyrir 1. mars.
Forvaliö fer síðan þannig fram
að öllum félagsmönnum verður
sendur kjörseðill í pósti. Áætlaö
er að forvalinu verði lokið seint
í marsmánuði.
Einn þriggja borgarfulltrúa Al-
þýðubandalagsins, Kristín Á. Ól-
afsdóttir, hefur lýst því yfir að
hún gefi ekki kost á sér í forval-
inu. Sigurjón Pétursson, sem var
í fyrsta sæti síðast, segist ekki til-
kynna ákvörðun um framboð eða
ekki framboð fyrr en síðar og þá
fyrstmeðalfélagasinna. -sme
Sjö fyrrum ráð-
herrar mótmæla
Sjö fyrrverandi menntamála-
ráðherrar íslands eru meðal
þeirra sem hafá skrifað undir
ávarp til Norðurlandaráðs þar
sem niðurskuröi til rannsókna á
sviöi mennta og vísinda er mót-
mælt.
Undir þetfa ávarp skrifa einnig
fjöldi fræðimanna og prófessora
viö Háskólann. Mótmæla þeir
þeim áformum að leggja niður
allmargar stofhanir á sviði rann-
sókna og einnig því að skerða
framlag til annarra um 10%.
-SMJ