Dagblaðið Vísir - DV - 24.02.1990, Qupperneq 9
LAUGARDAGUR 24. FEBRÚAR 1990.
Hrói höttur (Eiríkur Smári Sigurðarson) og Marion (Svafa Arnardóttir) bregða
hér boga á loft áður en þau ákveða að giftast í nýju barnaleikriti í Hafnarfirði.
Nýtt bamaleikrit í Bæjarbíói:
Hrói höttur
berst við óvini
í Hafnarfirði
„Hrói höttur er alltaf nokkuð
skemmtilegur náungi þótt hann sé
stöðluö týpa í gegnum árin. Hann
æðir um og rænir þá ríku til að gefa
þeim fátæku," segir Eiríkur Smári
Sigurðarson, 22ja ára áhugaleikari,
sem fer með hlutverk Hróa hattar í
samnefndu barna- og unghngaleik-
riti sem frumsýnt verður í dag í
Bæjarbíói í Hafnarfirði. Þetta er í
fyrsta skipti serii Hrói höttur er á
leiksviði hérlendis.1
Að sögn Erlends Pálssonar, sem fer
með hlutverk foringjans í verkinu,
eru það extán áhugaleikarar á aldr-
inum 14-25 ára sem fara með hlut-
verk í leikritinu. Hins vegar eru
hundrað og fimmtíu manns meðlimir
í leikfélaginu í Hafnarflrði og það eru
ekki bara Gaflarar. Leikstjóri Hróa
hattar er Guðjón Sigvaldason.
„Mér finnst Hrói vera dálítið
prakkaralegur en ég var eins og aðr-
ir krakkar alltaf mikill aðdáanda
hans,“ segir Eiríkur Smári. „Leikri-
tið er byggt upp á spennu og söng
og ég er viss um að allir eiga eftir
að hafa gaman af því, jafnt stelpur
sem strákar.
Eiríkur Smári er Gaílari og hefur
verið í leikfélaginu undanfarin fjög-
ur ár. „Ætli maður sé ekki í þessu
vegna félagsskaparins. Annars
stunda ég heimspekinám og þar sem
það tekur langan tíma að færa upp
leikrit reyni ég að velja og hafna
varðandi hlutverk," segir hann.
„Þetta freistaði mín.“
Æfingar og undirbúningur hefur
staðið yfir í tvo mánuði en í tengslum
við leikritið var efnt til teiknimynda-
samkeppni í grunnskólum landsins.
Mjög mikil þátttaka var í keppninni
en fimm krakkar voru verðlaunaðir
og fá þeir verðlaunin afhent á frum-
sýningunni í dag. Fyrstu verðlaun
hlaut Klara Rún, 9 ára, en hún er
nemandi i Snælandsskóla. Hún fær
ferð til Akureyrar í verðlaun, auk
Legokubba.
Sagan af Hróa hetti er líklegast
orðin hálfrar aldar gömul og hefur
Hróa í tímans rás verið lýst margvís-
lega. í fyrstunni var honum lýst sem
glæpamanni. í Walt Disney teikni-
mynd er hann gerður að ref og aðrar
persónur urðu þar einnig að dýrum.
Hrói höttur og ævintýri hans hafa
fremur verið talin fyrir börn og ungl-
inga en sögurnar voru þó í upphafi
Efnt var til teiknimyndasamkeppni
meðal barna í grunnskólum lands-
ins í tengslum við leikritið og er
anddyri Bæjarbíós veggfóðrað þeim
myndum sem bárust. Fyrstu verð-
laun hlaut Klara Rún, níu ára, fyrir
þessa mynd af Hróa hetti sem nú
prýðir auglýsingaplakat.
ætlaðar fullorðnum. Leikritið í Bæj-
arbíói ætti því að henta öllum aldurs-
hópum.
Leikfélagið í Hafnarfirði er eitt
öflugasta áhugaleikfélag á landinu
en það hefur sett upp þrjár sýningar
á hverjum vetri. Mikil aðsókn hefur
veriö á sýningarnar og áhorfendur
koma hvaðanæva af landinu. Leik-
félagið ætlar að bjóða skólum lands-
ins á sýningar á virkum dögum enda
hafa krakkarnir tekiö virkan þátt í
undirbúningnum með því að senda
inn myndir. Anddyri Bæjarbíós hef-
ur veriö véggfóðrað með þeim mynd-
um, eigendum og öðrum til ánægju.
Eiríkur Smári segir að þótt Hrói
höttur og félagar skylmist svolítið og
skjóti örvum sé ekki um neitt ofbeldi
aö ræða. Leiksviðið er byggt upp um
allan sahnn þannig að áhorfendur
komast í nálægð við leikarana sem
hlaupa um á palli sem komið hefur
verið fyrir yfir sæti í miðjum salnum.
Þótt mikið sé um að vera í Skíris-
skógi á meðan á leikritinu stendur
endar allt vel eins og í sönnum ævin-
týrum.
-ELA
Á
í myrkri gildir
að sjást
Notaöu endurskinsmerki!
9
Tvær borgir
Sá á kvölina sem á
völina og þaö er þitt
að velja hvort þú vilt
fara til AMSTERDAM
eöa HAMBORGAR.
Það er hins vegar
ekkert kvalræði aó
dveljast í þessum
borgum. Þær eru
báðar, hvor á sinn
hátt, einstaklega
líflegar og skemmti-
legar. Veitingastaðir,
verslanir, listasöfn og
tónleikahallir keppast
um að hafa ofan af
fyrir feröamönnum.
Allt sem
þú þarft
Flug til þessara borga
kostar kr. 22.900. Þaö
veró miðast vió að
verið sé mest fjórar
gistinætur og um
helgi. Tilboðió gildir
fyrirfebrúar og mars
en aðeins er selt á
þessu verói í febrúar.
Ef þig vantar hótel
eða bílaleigubíl, tengi-
flug eða lest, sjáum
við um það líka.
AMSTERDAM
EÐA
HAMBORG?
Síðustu forvöð
að panta
á þessu verði
ARNARFLUG
Lágmúla 7, sími: 84477, Leifsstöð, sími 50300.
FLUGLEIÐIR /BT
Aðalfundur Flugleiða hf.
Aðalfundur Flugleiða hf. verður haldinn fimmtu-
daginn 22. mars 1990 í Höfða, Hótel Lofleiðum,
og hefst kl. 14.00.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf skv. 10. gr. samþykkta félagsins.
2. Tillaga um útgáfu jöfnunarhlutabréfa og breyting á 4. gr.
samþykkta því til samræmis.
3. Önnur mál, löglega upp borin.
Tillögur frá hluthöfum, sem bera á fram á aðalfundi, skulu vera
komnar í hendur stjórnarinnar eigi síðar en 7 dögum ffyrir aðal-
fund.
Dagskrá og endanlegar tillögur munu liggja frammi á skrifstofu
félagsins, hluthöfum til sýnis, 7 dögum fyrir aðalfund.
Aðgöngumiðar, atkvæðaseðlar og fundargögn verða afhent á
aðalskrifstofu félagsins, Reykjavíkurflugvelli, hlutabréfadeild á
2. hæð, frá og með 15. mars nk. frá kl. 9.00 til 17.00.
Hluthafar eru vinsamlegast beðnir að vitja fundargagna sinna
fyrir kl. 12.00 á fundardegi.
Stjórn Flugleiða hf.