Dagblaðið Vísir - DV - 24.02.1990, Blaðsíða 15
LAUGARDAGUR 24. FEBRÚAR 1990.
15
í fyrstu urðu allir glaöir og sigur-
reifir. Kommúnisminn var fallinn
af stalli og fólkið í austri, fólkið í
fangabúöunum sá langþráð frelsi
innan seilingar. Þetta voru auðvit-
að meiri háttar tíðindi fyrir hina
frelsuðu og líka fyrir okkur hin
sem erum að ýmsu leyti frelsuð um
leið. Við höfum verið lítil peð í víg-
búnaðarkapphlaupinu, kalda stríð-
inu og stórveldadraumunum. Við
höfum mátt þola ógnina úr austri,
áróðurinn um sæluna, hina póli-
tisku glímu við innlenda sem er-
lenda trúbadora sem hafa slegið
trumbur og boðað stóra sannleik.
Skyndilega fellur tjaldið og þá kem-
ur í ljós að skýjaborgirnar eru
hrunin spilaborg og loftkastalarnir
ein ægileg eyðimörk. Þaö þarf ekki
frekar vitnanna við þótt það merki-
lega gerist að nú koma sanntrúaðir
sósíalistar og gamlir spámenn og
segja okkur að kerfið hafi fyrir
löngu verið í rúst. Hjalti Kristgeirs-
son lætur hafa við sig fróðlegt og
að mörgu leyti skynsamlegt viðtal
í Þjóðviljanum þar sem hann rekur
raunir sósíalismans og Svavar
Gestsson segir meö einlægum
englasvip að Alþýðubandalagið
hafi fyrir löngu áttað sig á skip-
broti kommúnismans.
Nytsamir sakleysingjar á borð
við mig spyrja náttúrlega í fávisku:
Af hverju sögðu mennirnir þetta
ekki fyrr? Af hverju tóku þeir ekki
undir meö okkur hinum sem for-
ögtuöum ástandið fyrir austan
járntjald? Hvað dvaldi orminn
langa?
í kjölfar frelsisins og endurhæf-
ingarinnar í kommúnistaríkjunum
fyrrverandi eru þeir að handtaka
gömlu foringjana og kommissar-
ana og vilja að þeir svari til saka
um meintar sakir sínar. Þeir eru
að vísu ekki skotnir á staðnum eins
og Ceausescu og hans ástkæra eig-
inkona en þetta verða ný
Núrnberg-réttarhöld þar sem sak-
borningarnir verða hafðir til sýnis
og syndaselirnir fá makleg mála-
gjöld. Lýöurinn heimtar hefnd.
Hann heimtar sökudólga. Böðlun-
um verður slátrað af fómarlömb-
unum.
Rannsóknarréttur
En það er ekki nóg með að komm-
arnir, sem voru staðnir að verki
austur þar, verði gerðir ábyrgir
gerða sinna. Nú ætlar hin pólitíska
réttvísi vestan megin tjaldsins að
draga sína eigin sökudólga fyrir
dómstól samviskunnar. Við heimt-
um líka hefnd. Engum skal hlíft,
refsivöndurinn er kominn á loft.
Hér uppi á íslandi finnast nefnilega
meintir skúrkar og skrattakollar
sem hafa lengi legið undir grun um
að vera hallir undir almættið í
austri. Og þá fer að kárna gamanið.
Frelsið verður ekki lengur þægilegt
þegar rannsóknarrétturinn fer of-
an í saumana á fortíðinni og flettir
hana klæðum. Þá kemst upp um
syndirnar. Frelsi eins verða fiötrar
annars.
Innan Alþýðubandalagsins
heimta menn uppgjör og þá aðal-
lega þeir sem eru svo heppnir að
fæðast ekki inn í pólitíska sögu ís-
lenskra sósíahsta fyrr en eftir að
kalda stríðinu var lokið. Fólkið sem
lifði hvorki Stalín, finnska galdur-
inn né heldur Ungó og Tékkó ber
ekki ábyrgð á þeim gerningum og
vill kasta öllum slíkum syndum á
bak við sig. Það vill uppgjör við
gömlu kommana. Það vfil þvo
hendur sínar.
Og Mogginn heimtar líka rann-
sóknarrétt. Mogginn heimtar staö-
reyndirnar upp á borðið og sjálf-
sagt margir fleiri af því sauðahús-
inu sem hafa löngum predikað
umburðarlyndi í stað einræðis,
manngæsku í stað morða, húman-
isma í stað kommúnisma. Þeir sem
afneituðu harðræðinu, dómsmorð-
unum og aftökum gerska ævintýr-
sins ætla sér nú sjálfir að setjast í
dómarasætið og skilja á milli hafr-
anna og sauðanna. Nú skal kné
fylgja kviði. Þarna er hún sem sagt
komin, miskunnsemin, sem sífellt
var boðuð og beðið fyrir af þeim
samverjum sem skrifuðu og töluðu
gegn miskunnarleysinu.
Blettur á mannorðið
Það setur að manni hálfgerðan
hroll. Ekki þar fyrir að ég hafi eitt-
hvað á minni pólitísku samvisku
eöa sé undir þá sök seldur að vera
laumukommi heldur hitt að ef póli-
tískt eða mannlegt sakleysi felst í
því aö hafa hreint sakavottorð um
alla sína ævi þá getur orðið erfitt
að lifa í henni veröld, jafnvel fyrir
þá sannkristnu.
Hvað nú ef einhverjum dytti í hug
að rannsaka feril minn og heimta
iðrun og yfirbót vegna axarskafta
sem hafa orðið á leið minni í gegn-
um lífið? Já, hvað þá? Hverjir voru
æskuvinimir? Leynist þar kannski
einhver slúbertinn og seinni tíma
syndaselur sem getur komið svört-
um bletti á mannorð mitt? Ég man
ekki betur en aö ég hafi á mínum
ungdómsárum lagst upp á rauð-
hæröan strák í Högunum sem
seinna gerðist framúrstefnumaður
í póhtík og uppþotum og heimtaði
byltingu á hveiju kröfuspjaldi. Við
skröfuðum margt í þá daga og með-
al annars um pólitík og völd og
lögðum á ráðin um frama okkar.
Sömdum meira að segja heilu
stefnuskrárnar!
Hann þvældist síðar til útlanda
og maður veit ekki nema hann hafi
gerst njósnari eða hermdarverka-
maöur í undirheimunum og gæti
hugsanlega kjaftað frá vinskap
okkar ef hann finnst! Hvað þá ef
stefnuskrárnar eru enn í fórum
hans. Þá er úti um veslings mig.
Ég hef ferðast um marga ókunna
og dularfulla staði og einu sinni
skrifaöi ég grein um mannkosti
austur-þýskra íþróttaforystu-
manna. Nú hafa þeir játað á sig sök
um að hafa gefið íþróttafólki sínu
örvandi lyf og gagnbyltingin hefur
rekið þá alla frá völdum og hver
veit nema ég verði kannski dreginn
til ábyrgðar um að hafa verið sam-
sekur þeim í dópinu? Eða spurður
hvað ég hafi verið að gera í útlönd-
um án þess að gefa um það skýrsl-
ur til hins opinbera? Var þetta póli-
tísk sendiför, kurteisisheimsókn
eða forvitni ferðamannsins sem
rak mig á þennan stað? Maður veit
aldrei og ég kann engin svör viö
áleitnum spurningum hins sögu-
lega uppgjörs.
Samviska
þjóðarinnar
Og ég er áreiðanlega ekki einn
um vafasama fortíð þegar kemur
að skírlífinu í pólitíkinni. Grand-
vörustu menn hafa verið teknir
tah af vafasömum karakterum og
hver er sá stjórnmálamaðurinn
sem þolir gegnumlýsingu á athöfn-
um sínum og viðmælendum langt
aftur í timann?
Vill Kiddi Finnboga segja okkur
hvað hann hefur verið að gera í
Búlgaríu í öh þessi ár? Hvað tafði
for Jóns Baldvins þegar hann hvarf
bak viö jámtjaldið samkvæmt frá-
sögn Bryndísar á blaösíöu 99 í lífs-
sögu hennar og gaf sig ekki fram
fyrr en eftir margra vikna útivist í
löndum hinna forboðnu? Eigum
við aö draga nóbelsskáldiö fyrir
rannsóknarrétt af því Laxness dró
það í þrjátíu ár að segja okkur frá
lyginni um sæluna í Sovét? Er
Hjalti Kristgeirsson orðinn stikkfrí
af því að hann hefur afneitað
trúnni í síðbúnu viðtali við Þjóð-
viljann?
Allir muna eftir fiaðrafokinu þeg-
ar norskur sagnfræöingur, Tangen
að nafni, þóttist hafa uppgötvað að
Stefán Jóhann Stefánsson, fyrrum
forsætisráðherra, hefði veriö hálf-
gerður landráðamaður. Það varð
hvorki Tangen né sögumönnum til
mikils framdráttar. Og ekki til að
varpa neinu ljósi á hlut Stefáns
Jóhanns. Sagnfræði Tangens varð
að sögufólsun en eftir stóð að
mannorð hans var flekkað, án þess
að Stefán Jóhann gæti borið hönd
fyrir höfuð sér.
Þolir yfirleitt nokkur aö draga líf
sitt og syndir fram í dagsljósið? Sá
kasti fyrsta steininum sem synd-
laus er. Ef samviska þjóðarinnar
kæmist í hlutverk þess píslarvættis
mundum við sennhega hafa hér
einn samhljóma grátkór iðrandi
sökudólga. Og hver yrði bættari?
Hver er sekur og hver er saklaus
í ljósi sögunnar? Sagan er tími og
tíminn er þróun. Öll erum við að
þroskast frá skoðunum og afstöðu
og það sem er rétt í dag getur verið
rangt á morgun. Við lærum af mis-
tökum og vöxum frá misgeröum.
Það er heimskur maður sem heldur
að hann sé alvitur í upphafi. Stóri
sannleikur vestan megin er ekkert
betri en stóri sannleikur austan
megin. Það geta allir verið vitrir
eftir á.
Uppgjör
við nútíðina
Við skulum alveg hafa það á
hreinu að gömlu kommarnir á ís-
landi trúðu á Sovét ísland og það
er líka alveg á hreinu að núverandi
Alþýðubandalag hefur verið nyt-
samur sakleysingi kommúnismans
með því að bera blak af ástandinu,
halda uppi opinberu sambandi við
suma skúrkana og telja sig eiga
pólitíska samleið með öllum þeim
sem predikað hafa sósíalisma í
heiminum. Þar með er ekki sagt
að þeir beri ábyrgð á glæpaverkun-
um eða hafi verið í samneyti með
haröstjórunum.
Gorbatsjov er dáður og virtur um
víða veröld fyrir glasnost og pere-
strojku. En Gorbatsjov komst tíl
valda í skjóh flokksins og hann var
að því leyti samsekur kúguninni
að hann sat í miðstjóm og æðsta
ráði þegar Bresnev og fleiri einræö-
isherrar deildu og drottnuðu. Vhl
einhver draga Gorbatsjov fyrir
rannsóknarrétt og dæma hann sek-
an vegna fortíðarinnar? Á hann
ekki að njóta verka sinna í nútím-
anum í stað þess að. afhjúpast af
fortíðinni?
Alþýðubandalagið má mín vegna
engjast sundur og saman í sam-
viskubiti og Mogginn má mín
vegna heimta söguskýringar og
játningar. Sjálfsagt munu skjala-
söfnin í Kreml verða opnuð al-
menningi og sagnfræðingum einn
góðan veðurdag og þá mun eflaust
ýmislegt óþægilegt koma í ljós um
samskipti íslenskra sósíalista við
Kremlverja. En það verða skýrslur
um menn og málefni á öðrum tím-
um og við aðrar aðstæður. Það mun
verða saga en ekki dómur. Það mun
leiða í ljós hvaö Alþýðubandalagið
vildi þá en ekki hvað það gerir nú.
Alþýðubandalagið á að gera upp
samvisku sína í nútíðinni og kjós-
endur eiga að dæma flokkinn af
verkum hans. í stað þess að grafa
gamla forystumenn upp úr gröfum
sínum á Alþýðubandalagið að end-
urmeta stefnu sína. Gera upþ við
nútíðina.
Vinstri menn á íslandi hafa verið
nytsamir sakleysingjar frekar en
forhertir meðreiöarsveinar. Þeir
hafa haft samúð með sósíalisman-
um án þess að játa bresti hans.
Þeir hafa afneitaö kommúnisman-
um án þess að viðurkenna ósigur
hans. Sagan mun ekki dæma þá
heldur sálarkreppan sem heltekur
þá þegar fyrirheitna landið og fyr-
irheitna kerfið hefur gufað upp fyr-
ir augum þeirra og mannkynsins.
íslendingar þurfa ekki á neinum
rannsóknarrétti að halda um synd-
ir forfeöranna. Póhtískt uppgjör fer
fram í kjörklefunum en ekki í rétt-
arsalnum.
Ellert B. Schram