Dagblaðið Vísir - DV - 24.02.1990, Side 16
16
LAUGARDAGUR 24. FUBKÚAR 1990,
Skák
Yngsti skákmeistari
Akureyrar frá upphafi
Skákþing Akureyrar á sér 90 ára
sögu en aldr.ei fyrr hefur sigurveg-
arinn veriö svo ungur að árum. A
mótinu í ár, sem lauk í vikunni,
varð Rúnar Sigurpálsson hlut-
skarpastur en hann er aðeins 17
ára gamall. Rúnar deildi efsta sæti
með Magnúsi Pálma Örnólfssyni
frá Bolungarvík en hann tefldi sem
gestur á mótinu. Rúnar hreppti því
sæmdarheitið „skákmeistari Ak-
ureyrar 1990“.
Slagurinn um titilinn stóð milli
Rúnars og Boga Pálssonar, sem
vann þrjár fyrstu skákir sínar, þar
á meðal gegn tveimur stigahæstu
mönnum mótsins, Magnúsi Pálma
og Gylfa Þórhallssyni. Rúnar fór
hins vegar mun hægar af stað;
gerði tvö jafntefli í fyrstu skákun-
um og tapaði fyrir Gylfa. En hann
vann þrjár síðustu skákirnar, þá
mikilvægustu í 8. umferð er hann
náöi að setja Boga á kné og komast
upp fyrir hann.
Rúnar vann sér rétt til að tefla í
landsliðsflokki á Skákþingi ís-
lands, sem fram fór sl. haust. Þar
hlaut hann sína eldskírn í „alvöru
skákmóti" og mátti þar þola mörg
bylmingshöggin áöur en hann
komst upp í næstu flugvél norður.
En mótið var honum greinilega
dýrmæt reynsla sem nú er að skila
sér.
Rúnar er einn fjölmargra ungra
og efnilegra skákmanna sem fram
hafa komið í öflugu unglingastarfi
Skákfélags Akureyrar hin síðari
ár. Hann varð skólaskákmeistari
Akureyrar og Norðurlands eystra
í yngri flokki 1985 og siðan í eldri
flokki 1988. Þaö ár varð hann jafn-
framt unglingameistari Akur-
eyrar. Þá vakti Rúnar athygli er
hann tefldi með Gagnfræðiskóla
Akureyrar á íslandsmóti grunn-
skólasveita í maí 1988 og fékk 7,5
v. af 9 mögulegum á fyrsta borði.
Hann tapaði ekki skák en vann
t.a.m. Hannes Hlífar og gerði jafn-
tefli við Sigurð Daöa, þekkta skák-
kappa úr höfuöborginni. Síðan hef-
ur Rúnari stöðugt farið fram og er
sjálfsagt skammt að bíða nýrra af-
reka.
Skoðum lokastöðuna í A-flokki á
Skákþingi Akureyrar. Keppendur
voru 10 og tefldu 9 umferðir:
1. - 2. Magnús Pálmi Örnólfsson
og Rúnar Sigurpálsson 6,5 v.
3. Bogi Pálsson 6 v.
4. Gylfi Þórhallsson 5,5 v.
5. -6. Reimar Pétursson og Jakob
Kristinsson 4,5 v.
7. Þór Valtýsson 4 v.
8. Jón Ámi Jónsson 3,5 v.
9. Skafti Ingimundarson 2,5 v.
10. Friðgeir Kristjánsson 1,5 v.
í B-flokki voru einnig tíu kepp-
endur og tefldu allir við alla. Þar
varð Stefán Andrésson, Bolungar-
vík, hlutskarpastur, hlaut 7 v. Örv-
ar Arngrímsson hlaut 6,5 v. og 2.
sæti, Þórleifur Karlsson og Smári
Gestsson fengu 6 v. og Júlíus
Björnsson 5 v.
í unglingaflokki, 13-15 ára, sigr-
aði Þórleifur Karlsson, sem fékk
6,5 v. af 7 mögulegum. í flokki 12
ára og yngri varð Páll Þórsson efst-
ur eftir aukakeppni við Magnús
Ásbjörnsson og Einar Jón Gunn-
arsson en allir fengu þeir 10,5 v.
af 13 mögulegum.
Þess má geta að nú um helgina
stendur yfir 55. Skákþing Norð-
lendinga, sem fram fer á Sauðár-
króki. Tuttugu manna hópur frá
Akureyri er þar meðal þátttak-
enda, m.a. Rúnar, nýkrýndur Ak-
ureyrarmeistari, og Þór Valtýsson,
sem freistar þess að verja Norður-
landsmeistaratitilinn.
Davið Bronstein, sovéski stórmeistarinn kunni, kemur á 14. Reykjavíkurskákmótið sem verður 60 ára af-
mælismót Búnaðarbankans.
En hér er skák frá þinginu á
Akureyri. í gömlum kennslubók-
um segir að riddari á sjöttu röð,
valdaður af peði, sé gulls ígildi. I
skákinni nær hvítur vinnandi sókn
með fulltingi riddara á e6 en svarti
riddarinn, sem einnig á sinn óska-
reit, má sín lítils.
Hvítt: Jón Árni Jónsson
Svart: Skafti Ingimarsson
Spænskur leikur
1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 g6 4. 0 0
Bg7 5. c3 d6 6. d4 Bd7 7. Bg5 Rge7
Traustari leikmáti er 7. - f6 8. Be3
Rh6 og síðan Rf7 og stutt hrókun.
8. Dd2!?
Ætlar bersýnilega að skipta upp
á svartreita biskupum. Fleiri hefðu
eflaust hugaö að því að koma
drottningarriddaranum á fram-
færi.
8. - a6 9. Be2 Bg4?!
Skák
Jón L. Árnason
Missir marks þar eð hvítur sneri
kóngsbiskupnum heim í síðasta
leik. Svörtum er enginn hagur í því
að láta „betri biskupinn“ af hendi.
10. d5 Rb8 11. Bh6 0-0 12. c4 a5 13.
Rc3 Ra6?
Þetta er slakur leikur. Frá d7 tek-
ur riddarinn virkari þátt í barátt-
unni og þaðan kemst hann einnig
til c5, ef hann svo kýs. Því var
hvorttveggja betra, 13. - Rd7 og
áfram t.d. 14. Bxg7 Kxg7 15. Rel
Bxe2 16. Dxe2 Rg8! 17. Rd3 De7; eða
13. - Bxf314. Bxf3 Rd7 þó með þægi-
legri stöðu á hvítt í báöum tilvik-
um.
14. Bxg7 Kxg7 15. Rel! Bxe2
Hann gat reynt aö halda biskupn-
um til haga en eftir 15. - Bd7 16.
Rd3 b6 17. f4 f6 18. Hf2 og næst 19.
Hafl á hvítur vænlegri færi.
16. Dxe2 Rc5 17. f4 exf4
Skárra er, úr því sem komiö er,
17. - f6 og reyna að halda sér fast.
Eftir leikinn í skákinni á svartur
sér ekki viðreisnar von.
18. Hxf4 f6 19. Rd3 Rxd3 20. Dxd3 g5
21. Hf2 Rg6
Riddarinn á e7 var vandræða-
gripur en nú kemst hann þó á góö-
an reit á e5. En hvíti riddarinn eyg-
ir einnig reit í herbúðum svarts -
sýnu hættulegri!
22. Rb5! Re5 23. Dc3 Hf7
Eða 23. - c5 24. dxc6 fr.hl. bxc6
25. Rd4 Dd7 26. Rf5+ Kg8 27. Hadl
með vinningsstööu.
24. Rd4 Dd7 25. Re6+ Kg6 26. Hafl
He8
27. Dh3! h6
- Og svartur gafst upp um leið,
áður en hvítur léki 28. DÍ5+ Kh5
29. Rf4+ Kh4 30. g3 mát!
Aðrir leikir hefðu heldur ekki
bjargað taflinu. T.d. 27. - g4 28.
Hxf6+! Hxf6 29. Hxf6+ Kxf6 30.
Dh4+ Kf7 31. Dxh7+ Kf6 32. Df5+
Ke7 33. Dg5+ Kf7 34. Dg7 mát; eða
27. - h5 28. Hxf6 + ! Hxf6 29. Hxf6+
Kxf6 30. Df5+ o.s.frv.; eða 27. - De7
28. g4 h6 29. Dh5+ Kh7 30. Rxg5 + !
og vinnur.
Bronstein og
Kamsky koma
Útlit er fyrir að 14. Reykjavíkur-
skákmótið, sem verður 60 ára af-
mælismót Búnaðarbankans, verði
betur skipað en mörg undanfarin
ár. Fjölmargir erlendir skákmeist-
arar hafa tilkynnt þátttöku, þar á
meðal þrettán sovéskir stórmeist-
arar!
Mótið hefst 17. mars, strax eftir
stóveldaslag VISA og IBM. Margir
keppendanna þar munu dvelja
áfram í höfuðborginni. Allt sovéska
landsliðið hefur t.a.m. sýnt áhuga
á þátttöku, að liðsstjórunum Geller
og Razuvajev meðtöldum, en þó
ekki Jusupov og Dolmatov. Þá hafa
Bandaríkjamennirnir Gulko,
Seirawan, de Firmian, Kudrin,
Fedorowicz, Christiansen, Browne,
Dzindzihashvili og Benjamin til-
kynnt þátttöku og enski stórmeist-
arinn Speelman. Aðrir kunnir
skákmeistarar sem hafa skráð sig
eru Mortensen (Danmörku), Hell-
ers, Ernst, Wedberg og Schússler
(Svíþjóð), Tisdall, Gausel, Djur-
huus og Östendstad (Noregi) að
ógleymdum fastagestinum Karl
Burger, frá Bandaríkjunum.
Nýjustu nöfnin á þátttandalistan-
um eru heldur ekki af verri endan-
um. Það eru þeir Davíð Bronstein,
sovéski stórmeistarinn kunni, sem
tefldi einvígi um heimsmeistaratit-
ilinn við Botvinnik 1951 en tapaöi
á jöfnu, og Gata Kamsky, sem
komst á forsíðu New York Times
um páskana í fyrra, er hann flúði
Sovétríkin ásamt föður sínum á
skákmótinu í New York. Kamsky
þykir sérlega efnilegur og margir
spá honum heimsmeistaratign. Á
opna mótinu í Palma á Mallorca í
desember varð hann í 2.-3. sæti
ásamt Miles. Ef hann teflir eins og
þar þurfa íslenskir skákunnendur
engu að kvíða. í Palma gerði Kam-
sky ekkert jafntefli en vann sjö
skákir og tapaöi tveimur. Þeir sem
lögðu kappann voru sovéski stór-
meistarinn Oleg Romanishin og
Margeir Pétursson.
-JLÁ
X
iif £ i
1 4A X #
1 A * á
A A
A A S A A
______
ABCDEFGH