Dagblaðið Vísir - DV - 24.02.1990, Qupperneq 22

Dagblaðið Vísir - DV - 24.02.1990, Qupperneq 22
22 Veiðihomið ________________p^v Ég er alveg hættur að veiða... Árshátið Veiöifélagsins Strauma var haldin fyrir fáum dögum og við vorum á staðnum. Hér fá þeir félagarnir Helgi Eyjólfsson og Gunnar Sveinbjörnsson sér góðan sopa af hvitvini úr bikar Helga. Þeir félagar veiddu jafn- stóra laxa en Helgi vann á hlutkesti. DV-myndir G.Bender Veiðimenn eru margir hverjir farnir að huga að veiöileyfakaupum fyrir sumarið og svo virðist sem ekk- ert eigi aö slá af. Enda búast veiöi- menn sem betur fer ekki við miklum hækkunum á veiðileyfum næstu sumur. Það má reyndar ekki hækka hluti mikið vegna aðgerða ríkis- stjórnar og verkalýðshreyfingar. Það hlýtur að koma veiðimönnum til góða með tíö og tíma. Annað væri hið versta mál. En þó margir hverjir séu búnir að tryggja sér „nokkra“ daga í sumar tala þeir ekki hátt um það. Einn veiðimann hitti ég um dag- inn og spurði hvort hann hefði keypt eitthvað af veiðileyfum. „Nei, það verða fá veiðileyfi í sumar, hálfur dagur í Elhðánum, nokkrir dagar í Leirvogsá, tvær vikur víða í Hvítá fyrir austan, nokkir dagar í Korpu og einhverjir dagar í veiðivötnum víða um land í sumar. Maður er eig- inlega hættur þessu,“ bætti hann við í lokin. Þetta þýðir mánuö í veiði Garðar Sigurðsson flytur eina af sín- um mörgu stökum á árshátíð Strauma við góðar undirtekir gesta. víða um land og svo er maöurinn eiginlega hættur. Hvernig er það þeg- ar maöur er að byrja í veiðinni, ef þetta er að hætta? Ármenn fræðast um Þverá og Kjarrá Gunnar Sveinbjörnsson, sérfræð- ingur um Þverá og Kjarrá í Borgar- firði, var fyrir fáum dögum hjá Ár- mönnum og sagði frá ánum. Margir skemmtilegir fluguhyljir eru víða í þessum ám og Ármenn ætla þangað seinnipartinn í ágúst til veiða. En enginn er fróðari um ámar en Gunn- ar. Bugða tekin í gegn Bugða, áin sem rennur í Laxá í Kjós og fáir vilja fá sem sitt veiði- svæði snemma sumars, gæti orðið eftirsótt næstu sumur því aö veiðifé- lagið Lax-á hefur heldur betur látið taka ána í gegn og laga hylji hennar. Hafa þeir verið dýpaðir mikið og sett- ir í þá steinar víða til að laxinn stoppi meira í henni en það hefur hann lítið gert nema þá helst í fossinum. Eflaust vilja margir komast í Bugðu næsta sumur. Svona framkvæmdir mætti eflaust gera víða í veiðiám. Skemmtilegum görðum var ýtt út í Breiðdalsá í Breiðdal á sínum tíma. Þeir hafa gefiö góða raun og laxinn stoppar við þá. -G.Bender LAUGARDAGUR 24. FEBRÚAR 1990. Þjóðarspaug DV Kominn að Dóru Unglíngspiltur einn á Borgar- firði eystra var eitt sinn að leita að símanúmeri vinar sins i Reykjavik er hér Sigurjón. Eftir að Borgfiröingurinn hafði setið dágóða stund og blaðað í síma- skránni kallaði móðir hans í hann og bað hann aö skreppa út með rusliö. Um leið og pilturmn tók viö ruslapokanum úr hendi móð- ur sinnar, rétti hann henni síma- skránna og bað hana að hjálpa sér að finna símanúmerið hans Sigur- jóns. Og áður en hann snaraöíst út úr dyrunum kaliaöi hann: „Ég er kominn út að Ðóru í skránni." Nafnaskipti Happasæll skipstjóri tók upp á þvi á efri árum að kvænasL Eftir þann atburö spuröu gárungamir hann að því hvort hann ætlaði nú ekki að láta nafn konunnar á bát- inn í stað þess sem á honum væri. „Nei, það kemur ekki til mála,“ svaraöi skipstjórinn, „en vera má að ég kaili konuna hins vegar eft- ir bátnum ef hún reynist jafhvel og fleytan." Frekar iauslát Kona eín, Jóna að nafni, þótti frekar lauslát. Er hún var komin yfir fertugt tók hún upp á því að flytja til Færeyja. Komst þá einn nágranni hennar svo að orði: „Að hún Jóna skuli flytja til Færeyja, eins og þetta er fámenn þjóð.“ Hvað gerðist þá? Tíu ára gamall strákur, sem ekki þótti stiga í vitið, var eitt sinn spuröur að þvi, af kennara sínum í kristnum fræðum, hvað gerst hefði á jólunum. Strákur tók sér ágætis umhugsunartima en svaraði því næst; „Ja, þá fengu nú alhr jóla- pakka." Aumingja móðirin Maöur eínn, sem heitir því ágæta nafni Ólafur Als, ætlaöi sér eitt sinn aö taka til máls á fundi. En ekki var nú fundarstjórinn meö nafn hans alveg á hreinu því er kom að honurn á mælenda- skrá, kynnti hann Ólaf með þess- um orðum: „Og næstur tekur til máls Ólaf- ur Allsson." Finnur þú fimm breytingar? 43 Myndirnar tvær virðast við fyrstu sýn eins en þegar betur er að gáð kemur í ljós að á hægri myndinni hefur fimm atriðum verið breytt. Finnir þú þessi fimm atriði skaltu merkja við þau með krossi á hægri myndinni og senda okkur hana ásamt nafni þínu og heimilisfangi. Að tveimur vikum liðnum birtum við nöfn sigurveg- ara. Vinningar fyrir 43. getraun. 1. Hitateppi fyrir bak og hnakka kr. 3.900. 2. Svissneska heilsupannan kr. 2.990. Vinningarnir koma frá Póstversl- uninni Príma, Hafnarfirði. Vinningar fyrir 41. getraun 1. Vasadiskó með bassamögnun, að verðmæti kr. 5.900,- 2. Vekjaraklukka, að verðmæti kr. 1.900,- Vinningarnir koma frá Ópus, Skipholti 7, Reykjavík Merkið umslagið með lausninni: Finnur þú fimm breytingar? 43 c/o DV, pósthólf 5380, 125 Reykjavík Sigurvegarar fyrir fertu- gustu og aðra getraun reyndust vera: 1. Rannveig Ragnarsdóttir, Munkaþverárstræti 34, 600 Akureyri 2. Orri Stefánsson, Lokastíg 2, 620 Dalvík. Heimilisfang: Vinningarnir verða sendir heim.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.