Dagblaðið Vísir - DV - 24.02.1990, Side 30

Dagblaðið Vísir - DV - 24.02.1990, Side 30
38 LAUGARDAGUR 24. FEBRÚAR 1990. LífsstOI Flúðir: Heitir pottar, hesta- leiga og golfvöilur Fagurt landslag, prýðis hótel og veitingaaðstaða, 9 holu golfvöllur, sundlaug og gufubað, sérstaett lítið minjasafn, hestaleiga, fagrar göngu- leiöir og ýmislegt fleira er það sem Flúðir bjóða ferðalöngum upp á. Auk þess eru Flúðir góð miðstöð ferða- manna sem vilja skoða uppsveitir Ámessýslu því þaöan er stutt á ýmsa þekkta ferðamannastaði svo sem til Gulifoss og Geysis og inn í Þjórsár- dal. Það hvíhr mikil friðsæld yfir Flúð- um. Þar voru ýmsir dýrgripir Lands- bókasafns íslands og Þjóðskjalasafns geymdir í síðari heimsstyrjöidinni svona í öryggisskyni ef til þess kæmi að Reykjavík yrði fyrir loftárás eða í heitu pottunum hafa menn það dægilegt. Veðrið í útlöndum HITASTIG ISRÁÐUM -10 e&a Isgra sssssssss IIÉ otn-5 : Itiis 11 tms 1E1II20 2011125 áveöurfréttumVeöurstolulslandskLiajihádegUöstudag^ Halla Siguróardóttir í Hvitárholti á Skolla en á bænum er rekin hestaleiga og reiðskóli. ef svo illa vildi til að Reykjavík yrði að vígvelh. Þá ríkti friður á Flúöum og er svo enn. Yfir sumartímann leggur mikill fjöldi ferðamanna leið sína til Flúða en yfir vetrartímann eru þeir færri sem sækja staðinn heim sem er raun- ar synd því það er ekki síðra að koma á Flúðir á þeim árstíma. Þegar hvítur snjórinn umvefur staöinn og sólin gyllir nálægar hæðir og fjöll eru fáir staðir sem státa af jafnmikilh nátt- úrufegurð og Flúðir. Jaróhiti Mikill jarðhiti er á þessum slóðum og er hann í landi jarðanna Grafar, Grafarbakka og Hellisholta, báðum megin Litlu-Laxár. Mikil gróðurhúsarækt er í tengsl- um við jarðhitann á Flúðum og mik- ið af því grænmeti, sem við snæðum yfir sumartímann á uppruna sinn að rekja þangað, þar er einnig ein mesta svepparækt landsins. Hver kannast ekki við hina frægu Flúðasveppi? Stuttfrá Reykjavík Það er ekki nema 100 kílómetra akstur frá Reykjavík að Flúðum og er öll leiðin maibikuð nema síðustu kílómetrárnir. Raunar eru Flúöir byggðahverfi í Hrunamannahreppi og heitir þaö Grafarhverfi, en Flúðir er nafnið á grunnskólanum á staðnum sem starfræktur hefur veriö síðan 1929 og félagsheimihnu sem var vígt 1952. Golfvöllur Tær bergvatnsá, Litla-Laxá rennur í gegn um Flúðir í fallegum farvegi. Á bökkum hennar skammt neðan þorpsins hefur nú verðið gerður myndarlegur 9 holu golfvöllur í landi bæjarins Efra-Sels. Golfáhugamenn á staðnum hafa á undanförnum mán- uöum verið að byggja skála við völl- inn og er hann nú vel á veg kominn. Næsta sumar ætti því að vera komin ákjósanleg aðstaða fyrir golffikla að spila golf á Flúðum. Hótel Skjólborg Hótel Skjólborg er rekið í tengslum við Hótel Flúðir og er það opið allt árið. Skjólborg er í tveimur bygging- um og eru tíu herbergi í hvorri fyrir sig. Þar er hægt að hýsa um 40 manns. Herbergin eru rúmgóð, smekklega innréttuð og hverju her- bergi fylgir lítill ísskápur, sér bað og heitur pottur og eru þeir raunar stolt hótelsins. Að dagslokum er fátt in- dæha en drífa sig í heitu pottana og sitja þar og dorma. Ef veður eru vá- lynd er það skrýtin tilfinning að hggja í pottunum, hríðin iðar aht í kring og veöurhljóöin skella á hljóð- himnunum. í pottinum er hins vegar hlýtt og notalegt og ef fólk er kjarkað er fátt meira hressandi en aö fá sér snjóbað á eftir - það er að segja ef einhver snjór er. Ferðamannamióstöð Um helgar er veitingasala í félags- heimihnu en í miðri viku verða ferðalangar að panta sér mat með fyrirvara ef þeir vilja snæða. í eldri byggingunni í Skjólborg er lítið her- bergi þar sem hægt er að elda sér og þar er að finna öll þau áhöld sem þarf til matargerðar. Um helgar er það einkar vinsælt að hópar haldi fundi, árshátíðir eða samkomur á Flúðum og eru margar helgar upppantaðar í vetur. í miðri viku er ihns vegar yfirleitt nóg af lausum herbergjum í Skjólborg og því upplagt að taka sér frí og skreppa þangað til að njóta hvíldar og hress- ingar frá amstri hversdagsins. Auk þess er á Flúðum rekin ferðamanna- miðstöð og í tengslum við hana er leigð út gisting í fimm smáhýsum. í hverju húsi er góð eldunaraðstaöa, tvö svefnherbergi og setkrókur. Hús- in eru leigð út árið um kring. Ekki langt þar frá er svo sundlaug staðar- ins. Sundlaugin, sem er útisundlaug, er nýlega uppgerð og ágætis laug á ýmsan hátt. Þegar sundlaugin var gerð upp var bætt þar við gufubaði og ljósalömpum. Litla minjasafniö Maöur var nefndur Emil Ásgeirs- son og bjó í Gröf. Um 1960 hóf hann söfnun á gömlum munum og er nú í Gröf sérstætt minjasafn sem ber stórhug og natni þessa bónda fagurt vitni. Safnið er til húsa í sambyggðu gömlu fjósi, hlöðu og mjólkurhúsi. í hlöðunni eru varðveitt ýmiss konar landbúnaðartæki og tól frá fyrstu áratugum þessar aldar. Þar eru göm- ul heyvinnutæki, gamall mykjudreif- ari, þúfnabanar og fleira. Þegar Emil fékk þessi tæki í hendur voru þau mörg hver í slæmu ásigkomulagi en hann gerði þau upp, pússaði af þeim ryö og málaði þau í upphaflegum lit- Það má sjá gömul landbúnaðartæki úti fyrir minjasafninu í Gröf.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.