Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.1990, Qupperneq 9

Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.1990, Qupperneq 9
FIMMTÚfcÍAGÍÍR ;á/ ÍÍ2K81 ÍÖÚÓ. Gorbatsjov Sovétforseti á ekki sjö daga sæla nú að mati skopmyndateiknar- ans Luries. Teikning Lurie Sovéska lýðveldið Litháen: Sjálfstæði gæti reynst dýrt Gorbatsjov Sovétforseti hefur sagt Litháum að þeir þurfi að greiða fyrir vörur og þjónustu frá Sovétríkjum í aiþjóðlegum gjaldeyri ef þeir ákveði að segja skilið við ríkjasambandið og setja á laggirnar sjálfstætt ríki. Þetta kom fram í ummælum hátt- settra forystumanna lýðveldisins í gær. Algirdas Brazauskas, forseti lit- háska þingsins, sagði ljóst að sjálf- stæði lýðveldisins myndi reynast Lit- háen þungt í skauti efnahagslega. Sovétforseti gerði Litháum ljóst að segði lýðveldið sig úr Sovétríkjunum yrðu viðskipti þess við ríkjasam- bandið, sem nema átta milljörðum rúbla eða þrettán milijörðum dollara á ári, í alþjóðlegum gjaldeyri en ekki rúblum eins og hingað til hefur verið vaninn. Þessi upphæð samsvarar einum þriðja framleiðslu lýðveldis- ins, sagði Brazauskas. Þá hefur Gor- batsjov einnig gefið í skyn að segi lýðveldið sig úr ríkjasambandinu gæti farið svo að það þyrfti að greiða upp skuld sína við Moskvu, alls 33 milljarða dollara. En enginn bUbugur virðist vera á Litháum. Samkvæmt heimildum í lýðveldinu gæti vel farið svo að þing fcátháen tæki enn eitt skref í átt að fullu sjálfstæði á laugardag en þá koma þingmenn saman til sérstaks fundar. Reuter Ágreiningur er milli Likud-flokks Shamirs forsætisráðherra, sem hér sést, og Verkamannaflokksins í ísrael. Simamynd Reuter Ágremlngurinn í ísraelsstjóm: Sættir líklegar Verkamannaflokkurinn í ísrael leitar nú málamiðlunar í deUu sinni við Likud-flokkinn, samstarfsflokk sinn í samsteypustjórninni. Að sögn heimUdarmanna er talið líklegt að sættir náist og takist að afstýra stjómarslitum. Stjórnmálaflokkana greinir á um afstöðuna tU tiUagna Bandaríkjanna um friðarviðræður við fuUtrúa Palestínumanna sem og komandi kosningar á herteknu svæöunum. Þær kosningar era til samninganefndar Palestínumanna sem munu ræða við ísraela um tak- markaða sjálfsstjórn þeirra fyrr- nefndu. Þrátt fyrir að líkur bendi tU að málamiðlun náist bar enn töluvert á miUi hjá flokkunum á ríkisstjórnar- fundi í gær. Likud-flokkurinn viU m.a. að Palestínumenn, sem búa í Austur-Jerúsalem, fái ekki að taka þátt í kosningunum. Verkamanna- flokkurinn hefur aftur á móti lýst því yfir að hann sé hlynntur því að hinir eitt hundrað og fjörutíu þúsund Pa- lestínumenn í borginni hafi þátttöku- rétt í kosningunum. Ríkisstjórn ísraels hefur frestaö ákvarðanatöku um tUlögur Banda- ríkjanna sem miða að því aö koma á viðræðum Palestínumanna og ísra-. ela um fyrirhugaðar kosningar. Harðlínumenn í Likud vUja hafna þessum tiUögum en Verkamanna- flokkurinn hefur lýst yfir stuðningi við þær. Reuter '_____________________Útlönd Óelrðir í heimalandi: Yfirvöld í Suður-Afríku tilkynntu í morgun að þau hefðu sent her- menn tU heimalandsins Bophut- hatswana eftir að forsetinn þar, Lucas Mangope, bað um hjálp til að kveða niður óeirðir mótmæl- enda sem kröfðust afsagnar hans. Forseti Suður-Afríku, F.W. de Klerk, lýsti því yfir í gær að verið gæti að neyðarástandslögin, sem eru í gUdi í öUu landinu, yrðu ekki afnumin vegna öngþveitisins sem nú ríkir í heimalandinu Bophut- hatswana. Afnám neyðarástands- laganna er mikUvægt skilyrði Af- ríska þjóðarráðsins fyrir viðræð- um við stjómvöld í Suður-Afríku. Fjórtán manns biðu bana í Bop- huthatswana í gær er lögregla og hermenn hófu skothríð á mótmæl- endur og fimm hundrað slösuðust. Forsetinn þar, Lucas Mangope, lýsti yfir neyðarástandi í heima- landinu þegar tugir þúsunda, sem kröföust afsagnar hans, æddu um og kveiku í skrifstofum, verksmiðj- um og bílum í bæjunum Mabopane og Garankuwa. Sjónarvottar segja að mótmælendur hafi kastað grjóti og reist sér vígi úr brennandi dekkjum. De Klerk forseti lýsti því yfir í gær að hann væri reiðubúinn að senda hermenn á vettvang ef hætta væri á að óeirðirnar í Bophuthats- wana breiddust út til hvíta minni- hlutans í Suður-Afríku. Talið er víst að kveikjan að óeirð- unum í Bophuthatswana hafi verið uppreisn herforingja í heimaland- inu Ciskei á sunnudaginn. Herfor- ingjarnir þar hafa heitið því að berjast fyrir innlimun Ciskei í Suð- ur-Afríku. Heimalöndin eru þau svæði sem suður-afríska stjómin hefur ætlað blökkumönnum til búsetu. Alls eru þau tíu. Fjögur þeirra hafa verið yfirlýst sjálfstæð ríki af Suður-Afríkustjórn en sex þeirra eru með sjálfsforræði. Reuter íbúar heimalandsins Bophuthatswana kröfðust í gær afsagnar forseta sins og kveiktu í skrifstofum og verksmiðjum í mótmælaskyni. Símamynd Reuter HELGMTEBOÐ KJÖTBORÐIÐ OKKAR ER HLAÐIÐ KRÆSINGUM Opíð: Mánudaga - föstudaga kl. 8-19. Laugardaga kl. 10-16. KJÖTMIÐSTOÐIN Laugalæk 2, Sími 686511. DeKlerk sendir hermenn

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.