Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.1990, Page 11

Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.1990, Page 11
FIMMTUDAGUR 8. MARS 1990. 11 Utlönd Kínverskir ráðamenn uggandi um sinn hag Þaö er fátt eitt sem almenningur og yfirvöld í Kína óttast meira en að borgarastyrjöld brjótist út. Síðustu vikur hafa ráðamenn notfært sér þennan beyg landa sinna og sáð ótta um að blóðug átök hefjist í landinu ákveði rúmur milljaröur íbúa Kína að fara að dæmi Austur-Evrópubúa og skilja við kenningar marxisma fyrir vestrænt lýðræði. Kröfur um lýðræði verða æ hávær- ari í nágrannaríkjum Kína, s.s. Mongólíu, og í Sovétríkjunum hefur Gorbatsjov forseti tekið skref í átt að fjölflokkakerfi. Leiðtogar Kína óttast að þeir missi völd sín og áhrif verði það sama upp á teningnum í þessu fjölmenna landi. Andófsmenn óttast framtíðina í nýlegri forystugrein Dagblaðs al- þýðunnar, málgagns kínverska kommúnistaflokksins, var reynt að réttlæta þörfina á valdaeinræði flokksins. „Án styrkrar forystu Kommúnistaílokksins myndu átök og stríð án efa brjótast út í Kína, þjóð- in myndi klofna og almenningur þjást," sagði í greininni. En sumir kínverskir andófsmenn og menntamenn hafna öllu tali um borgarastyrjöld og segja slíkt ein- ungis örþrifaráð' stjórnmálaflokks sem þegar hefur misst traust og trún- að fólksins í landinu. En þeir eru uggandi um framtíðina eftir að Deng Xiaoping, æðsti leiðtogi landsins, fellur frá. Þó að Deng sé ekki vinsæll í Kína, sérstaklega í kjölfar þess að hann skipaði kínverskum hermönn- um að brjóta á bak aftur mótmæli námsmanna á Torgi hins himneska friðar í Peking í fyrra, nýtur hann einhverrar virðingar landa sinna. „Hann er sá eini í forystuliði þjóð- arinnar sem Kínverjar virða ein- hvers ... vegna þeirra efnahagslegu umbóta sem hann kom á,“ sagði einn andófsmaður. „Hver veit hvað getur gerst eftir að Deng er fallinn frá?“ Staða hersins mikilvæg Yfirmenn í kínverska hernum hafa staðfastlega styrkt stöðu sína síðustu mánuði, ekki síst í kjölfar atburð- anna á Torgi hins himneska friðar í fyrra þegar hundruð ef ekki þúsund- ir mótmælenda létust þegar herinn braut á bak aftur fjöldamótmæli. Eitt helsta merki þess að áhrifamáttur hersins hefur aukist er að fjárlög til hans hafa farið hækkandi þrátt fyrir að ríkisstjórnin hafi tilkynnt að Kín- verjar þurfi að herða sultarólina. Opinberar tölur um hækkun fjár- framlaga til hersins liggja ekki fyrir en að sögn heimildarmanna dag- blaösins International Herald Tri- bune er um sextán prósent hækkun að ræða. Sérfræðingar segja að hlutverk og mikilvægi hersins fari síst minnk- andi í Kína, heldur þvert á móti. Þeir vilja ekki útiloka aö til borgarastyij- aldar komi, eða jafnvel valdaráns hersins, í kjölfar fráfalls Dengs. Kínversk yfirvöld standa nú þegar fyrir viðamiklum breytingum á hernum og eru að setja á laggirnar nýja öryggissveit sem hefur það hlut- verk með höndum að bregðast við óróa innan landamæra Kína, hvort sem um er að ræða þjóöernissinnaöa Tíbeta eða múhameðstrúarmenn eða mótmæh kínverskra námsmanna. „Ekki er lengur htið á Sovétríkin sem helstu ógnun við kínverskt þjóöfé- lag,“ sagði einn stjórnarerindreki. „Nú er kröftum hersins beint að því að viðhalda öryggi innan landamæra Kína og hermönnunum líkar það ekki.“ Nýleg uppstokkun innan Alþýðu- lögreglunnar virðist í beinum tengsl- um við þessar breytingar á hlutverki hersins. Innan hinnar fimm hundruð þúsund manna lögreglu var nýlega gerö gagngerð uppstokkun í foryst- unni og misstu margir háttsettir yfir- menn stöðu sína. Hver verður aftaki Dengs? Miklar getgátur eru um hver verði arftaki hins háaldraða Dengs Xiaop- ing sem enn heldur fast um valda- taumana þrátt fyrir að hann gegni nú engum opinberum embættum. Sjónir manna beinast einkum að Jiang Zemin, leiðtoga kommúnista- flokksins, og Yang Shangkun, hinum rúmlega áttræða forseta. Jiang, sem er ekki nema rúmlega sextugur, klifraði hratt upp metorða- stigann í flokknum í kjölfar þess aö Irak: í norðurhluta íraks yrkir enginn frjósama jörðina og trén bera ávöxt sem enginn tínir. Bæir hafa verið jafnaðir við jörðu. Kúrdarnir sem bjuggu þar hafa verið fluttir nauðugir á brott, að sögn nokkurra sænskra þingmanna sem nýkomnir eru úr ferðalagi um írak. Þeir benda á að viðbrögð umheims- ins við þessum atburðum hafi engan veginn verið j afn sterk og þegar frétt- ir bárust af því að verið væri að jafna bæi í Rúmeníu við jörðu. Áætlað er aö um þrjú hundruð þúsund íraskir Kúrdar hafi verið neyddir th að yfirgefa svæði nálægt landamærum Tyrklands og írans. Af „öryggisástæðum", eins og stjóm- völd orða það, til þess að þeir bíði ekki tjón af stríðinu við íran en vopnalúé hefur nú ríkt milli íraka og írana í um eitt og hálft ár. Saddam Hussein forseti hefur hins vegar látiö byggja forsetahöll í aöeins fimmtán kílómetra íjarlægð frá landamærunum. Og þar hefur verið reist hótel til aö styrkja ferðamanna- iðnaðinn sem byggja á upp að sviss- neskri fyrirmynd. Á þurri og heitri sléttu lengra í suður hafa verið reistir nýir bæir þar sem Kúrdum er þjappað saman. Sænsku þingmennirnir segja að um Fréttaskýrendur segja að hlutverk og staða hersins mun! skipta miklu máli í Kina þegar fram liða stundir. Símamynd Reuter umbótasinnanum Zhao Ziyang var . vikið úr embætti flokksleiðtoga fyrir tæpu ári. Deng lét í fyrra af hendi forystuna í herráði flokksins til Jiangs og reyndi þannig að auka áhrif hans yfir hemum. En það er engan veginn ljóst hvort Yang, sem er annar valdamesti mað- ur herráðsins og sá sem stóð að baki aðgerðum hersins í júní, styðji Jiang. Margir andófsmenn í Kina óttast hvað tekur við eftir að hinn aldraði leiðtogi Deng Xiaoping fellur frá. Simamynd Reuter Ekki er heldur ljóst hvort herinn muni standa sem einn maður að baki Yang eða klofna í afstöðu sinni. Málefnum hersins er haldið vand- lega leyndum í Kína. Þrátt fyrir það telja sumir fréttaskýrendur sig vita til þess að klofningur hafi komið upp meðal forystunnar. Það vakti mikla óánægju meðal hermanna, bæði al- mennra sem og yfirmanna, að hern- um skyldi beitt gegn mótmælendun- um í júní. Þá eru nokkrir forystumenn her- mála sagðir vera uggandi vegna auk- inna valda fjölskyldu Yangs forseta. Sumir óttast að við fráfall Dengs kunni Yang-fjölskyldan að reyna að hrifsa til sín völd. Stjómarerindrekar vilja ekki úti- loka viðamikla uppstokkun innan forystuliðs hersins á næstu mánuð- um. Verði sú raunin er aftur á móti ekki ljóst hvaða valdafylking kemst í áhrifamestu stöðumar. Reuter algjöra kúgun sé að ræða. Þingmennirnir fóra til íraks í boði stjórnvalda þar. í fyrra fóru þing- mennirnir í heimsókn í flóttamanna- búðir Kúrda í Tyrklandi. í írak fengu þingmennimir að ferðast um eins og þeir vildu. Hins vegar gengu yfirvöld á bak orða sinna um að þeir fengju að heimsækja tvö fangelsi. Þeir fengu heldur ekki þær upplýsingar sem þeir höfðu farið fram á um pólitíska fanga og framkvæmd dauðarefsingar sem samkvæmt upplýsingum mann- réttindasamtaka er enn beitt í írak í talsverðum mæli. Sænsku þingmennirnir heimsóttu héruðin Arbil, Dohok og Sulemaniya þar sem borgin Halabja er. Það var þar sem írakar beittu efnavopnum gegn Kúrdum vorið 1988 á þeirri for- sendu að íbúamir hefðu látið íranska innrásarmenn taka borgina. Á milli Qögur og fimm þúsund Kúrdar létu lífið, allir óbreyttir borgárar. „Þar blómstra blómin í rústunum. Enn má finna þar fjölskyldumyndir og aöra persónulega hluti,“ að því er einn þingmannanna greindi frá. Síðan hafa á milli sjötíu og áttatíu þúsund Kúrdar flúið frá írak, fyrst og fremst til Tyrklands og írans. Aðeins nokkur þúsund þeirra hafa þorað að snúa aftur til í raks. tt 5% STAÐGREIÐSLUAFSLÁTTUK SERTILBODILCÁRMK Skinka í sneiðum “| |T| 89.- Kr. JL • md UlT) kg M þarft ekki að leita lengra Grundarkjör Opið: Mánud.-fimmtud. Föstud. Laugard. Sunnud. REYKJAVÍKURVEGI72, HAFNARFIRÐI.S. 53100 9-20 9-21 10-18 11-18 GARÐATORGM, GARÐABÆ, S. 656400 9-19 9-20 10-18 11-18 FURUGRUND 3, KÓPAVOGI.S. 46955 OG 42062 9-20 9-20 10-18 11-18 STAKKAHLÍÐ 17, REYKJAVÍK.S. 38121 9-20 9-20 10-16 Lokað BRÆÐRABORGARSTÍG 43, REYKJAVÍK.S. 14879 9-20 9-20 10-16 Lokað VERSLANIR FYRIR ÞIG

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.