Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.1990, Qupperneq 14

Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.1990, Qupperneq 14
Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EVJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON Ritstjórar: JÖNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELlAS SNÆLAND JÓNSSON Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON Auglýsingastjórar: PÁLL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift, ÞVERHOLTI 11,105 RVÍK, SlMI (91 )27022 - FAX: (91)27079 Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: PRENTSMIÐJA FRJÁLSRAR FJÖLMIÐLUNAR HF„ ÞVERHOLTI 11 Prentun: ÁRVAKUR HF. - Áskriftarverð á mánuði 1000 kr. Verð i lausasölu virka daga 95 kr. - Helgarblað 115 kr. Ofanstjórn tekst ekki Nýjustu spár um hagvöxt í ríku löndunum, sem sitja 1 Efnahags- og þróunarstofnuninni, benda til, að ísland sé komið í varanlegan vítahring og mundi dragast ört aftur úr öðrum aðildarlöndum á síðasta áratug þessarar aldar, jafnvel þótt hnni kreppunni, sem nú ríkir hér. Spáð er, að hagvöxtur iðnríkjanna muni nema um 3% árlega til aldamóta. Hér er hins vegar samdráttur. Ef hagvöxtur byrjar að nýju hér á landi, er reiknað með, að hann verði um 1,6%. Á heilum áratug leiðir þessi munur okkar og nágrannanna til breiðrar gjár. Þetta er okkur sjálfum að kenna. Við höfum ekki lagt traustan grunn að hfskjörum okkar, heldur byggjum á tveimur nýfengnum auðhndum, sem við höfum þegar nýtt. Önnur auðlindin er stækkun fiskveiðilögsögunnar og hin er stóraukin atvinnuþátttaka íslenzkra kvenna. Með stækkun fiskveiðilögsögunnar náðum við í okk- ar hendur nokkurn veginn öllum afia á íslandsmiðum, þar á meðal öllum hinum mikla afla, sem brezkir togar- ar höfðu sótt hingað. Um leið náðum við tökum á að skammta afla, svo að fiskistofnar hafa ekki hrunið. Við vorum lengi eftirbátar nágranna okkar í þátttöku kvenna í atvinnulífinu. Á skömmum tíma höfum við náð svipaðri stöðu og aðrar auðþjóðir á því sviði. Þessu hefur fylgt mikill hagvöxtur, sem stöðvast, þegar árang- ur hefur náðst, alveg eins og við stækkun lögsögunnar. Um leið höfum við látið undir höfuð leggjast að leggja grundvöh að nýjum atriðum, sem geti tekið við af stækk- un fiskveiðilögsögunnar og aukinni atvinnuþátttöku kvenna sem burðarás í hagvexti næstu ára og áratuga. í velsældinni höfum við einfaldlega sofið á verðinum. Við höfum vanizt happdrættisvinningum á borð við stærri fiskveiðilögsögu og atvinnuþátttöku kvenna. Við teljum okkur hafa efni á alls konar lúxus, sem brennir þjóðarauð. Við teljum okkur líka hafa efni á ofanstýrðu þjóðfélagi í stíl fallkandídatanna í Austur-Evrópu. Við verjum til dæmis árlega átta mhljörðum af skatt- fé til hefðbundins landbúnaðar og sjö milljörðum af neytendafé í bann við innflutningi búvöru. Við verjum árlega mhljörðum af skattfé til að láta opinbera sjóði fjármagna tímabær gjaldþrot og fresta þeim um sinn. Við neitum okkur um markaðsfrjálsræði auðugra þjóða á borð við Svisslendinga, Bandaríkjamenn og Jap- ani. Við látum stjórnvöld og stofnanir um að skrá gengi krónunnar og við látum þau um að banna innflutning á sumum vörum og útflutning á öðrum vörum. Um þessar mundir erum við að láta stjórnvöld og stofnanir um að koma upp aflamiðlun, sem eykur mið- stýringu sjávarútvegs ofan á fyrri miðstýringu kvóta- kerfisins. Við höfum þegar látið stjórnvöld um að koma upp harðskeyttu kvótakerfi í hefðbundnum landbúnaði. Við stefnum óðfluga yfir í ofanstýringu og miðstýr- ingu á sama tíma og Austur-Evrópa stefnir óðfluga frá ofanstýringu og miðstýringu. Við höldum, eins og harð- hnukommarnir í Austur-Evrópu, að unnt sé að reka þjóðfélagið að ofan eins og hverja aðra fjölskyldu. Ríkisvaldið og ríkissjóður eru að þenjast út hér á landi á kostnað annarra þátta þjóðfélagsins á sama tíma og allar þjóðir í austri og vestri eru að draga saman seglin í ríkisvaldi og ríkissjóði. Við erum að missa af lestinni sem Albanían í Efnahags- og þróunarstofnuninni. Ekki má kenna stjórnmálamönnum einum um þessa ógæfu. Það eru kjósendur sjálfir, sem imynda sér, að hér sé unnt að reka ofanstjórn og ráðherraalræði. Jónas Kristjánsson FIMMTUUAGUK, 8..MARS 199Q. Júlíus Sólnes umhverfismálaráðherra. - Lýsti því í blaðagrein fyrir kosningar 1987 að hann væri að hugsa um að stofna flokk til hægri við Sjálfstæðisflokkinn, segir greinarhöfundur m.a. Sjálfstæðis- menn á öllum listum? Einhver sérkennilegasta hug- myndin í stjórnmálunum um þess- ar mundir er tilboð Alþýðuflokks- ins til nokkurra þekktra sjálfstæð- ismanna að taka sæti á framboðs- lista flokksins við borgarstjórnar- kosningarnar í vor. Tvennt er einkum að athuga í þessu sambandi. Annars vegar lýs- ir þessi hugmynd næsta átakanleg- um skorti á hæfum frambjóðend- um úr röðum alþýðuflokksmanna. Þarf það svo sem ekki að koma neinum á óvart eftir hin frægu ummæli Jóns Baldvins Hannibals- sonar fyrr í vetur, að flokksmenn myndu tæpast nenna að mæta á kjörstað til að kjósa Bjarna P. (nú- verandi borgarfulltrúa krata). Hins vegar sýnir hugmyndin það mikla traust sem sjálfstæðismenn hafa áunnið sér meðal keppinauta sinna á sviði borgarmála. Nú virð- ast menn vera farnir að líta á sjálf- stæðismenn sem einhvers konar sérsveit, .borgarstj ómarfræðinga* ‘ sem hægt er kveðja á vettvang þeg- ar mikið liggur við. Sjálfstæðismenn alls staðar? Hitt er að sönnu skemmtilegt ef niðurstaða margra mánaða við- ræðna vinstri flokkanna í Reykja- vík um sameiginlegt framboð gegn Sjálfstæðisflokknum verður sú að þeir bjóði hver fram sinn hsta en með sjálfstæðismenn eða fyrrver- andi sjálfstæðismenn í efstu sætun- um. Hvílík vinstri fylking! Þegar þetta er skrifað er ekki tai- iö útilokað aö kunnur sjálfstæðis- maður, sem þekktur er fyrir gagn- rýni á Sjálfstæðisflokkinn frá hægri, gangi til hðs viö Alþýðu- flokkinn og skipi jafnvel efsta sæti á hsta flokksins í komandi kosning- um. Ekki þarf að fjölyrða um upp- runa frambjóðenda Borgaraflokks- ins. Kvennahstinn hefur einnig verið svo vinsamlegur að setja fyrr- verandi stuðningsmann Sjálfstæð- isflokksins í efsta sæti á framboðs- KjaUarinn Guðmundur Magnússon sagnfræðingur lista sínum. Framsóknarflokkurinn hefur kaupmann í efsta sæti og allir vita hvar hjörtu þeirra slá þegar á reyn- ir. Þá er Alþýðubandalagið eitt eft- ir. Hvaða sjálfstæðismann skyldu þeir grafa upp? Er Guörún Ágústs- dóttir, borgarfulltrúi þeirra, ekki af grónum íhaldsættum? - Nema þeir geti boðið betur? Varist eftirlíkingar Hvernig ættu sjálfstæðismenn að bregðast við ef það gengur eftir að vinstri flokkarnir bjóða eingöngu fram sjálfstæðismenn eða fyrrver- andi sjálfstæðismenn í borgar- stjórnarkosningunum í vor? Ein leiðin er að segja: Varist óvandaöar eftirhkingar! Þaö ætti að duga eitt- hvaö, því öll höfum við áreiöanlega brennt okkur á slíku. Og sannleikurinn er því miður sá að þegar gamhr og grónir sjálf- stæðismenn eru komnir í aðra flokka umbreytast þeir einhvern veginn svo herfilega að enginn veg- ur er að þekkja þá fyrir sömu mennina. Þarf ég að nefna dæmi þessu til stuðnings? Júlíus Sólnes lýsti því yfir í blaðagrein nokkru fyrir kosningarnar 1987 að hann væri að hugsa um að stofna flokk til hægri við Sjálfstæðisflokkinn. Þá var hann að eigin mati mesti fijálshyggjumaður á íslandi. Nú er hann ráðherra í ráðuneyti án verk- efna í gamaldags vinstri stjórn sem sett hefur met í skattheimtu og miðstýringu. Af þessum sökum - í ljósi reynsl- unnar - treysti ég mér að minnsta kosti ekki til að mæla með fram- boðslistum vinstri flokka, þótt sjálfstæðismenn skipi þar efstu sætin. Lái mér hver sem vill að ég hef ekki mikið álit á mönnum sem telja vinstri flokkana heppilegustu tækin til að vinna aö framgangi þeirrar frjálslyndu umbótastefnu sem sjálfstæðisstefnan er. Höfum við ekki orðið næghega óþyrmilega fyrir barðinu á þessum flokkum á undanfórnum misserum? Var ekki vinstri tilraunin í Reykjavík á ár- unum 1978-1982 nógu sársaukafull og dýrkeypt? Guðmundur Magnússon „Lái mér hver sem vill aö ég hef ekki mikið álit á mönnnm sem telja vinstri flokkana heppilegustu tækin til að vinna að framgangi þeirrar frjálslyndu umbótastefnu sem sjálfstæðisstefnan er. <

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.