Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.1990, Síða 3
ÞRIÐJUDAGUR 20. MARS 1990.
3
Fréttir
Fiskstuldur 1 Hull:
Þjófarnir gripnir og þeim
stungið í fangelsi
I síðustu viku voru lausráðnir
verkamenn við fiskmarkaöinn í Hull
gripnir eftir að hafa stolið 300 kílóum
af fiski frá íslandi. Þeir voru fangels-
aðir og sátu enn inni í gær. Málið
hefur vakið athygli vegna þess að
talið var að hert eftirlit hefði komið
að mestu í veg fyrir fiskþjófnað á
mörkuðunum en það var umtalsvert
áður fyrr.
Pétur Bjömsson, framkvæmda-
stjóri ísbergs Ltd í Hull, sagði í sam-
tali við DV að það væri eilíf barátta
viö að koma í veg fyrir fiskþjófnað
og þannig væri það í raun á öllum
fiskmörkuðum og þar sem verið væri
að vinna fisk. Hann sagði að eftirlit
með þessu væri mjög strangt en samt
væri aldrei hægt að koma í veg fyrir
fiskþjófnað.
„Hættan er aö sjálfsögðu mest þeg-
ar verðið er svona hátt eins og núna.
Það er þá alveg sama hvar þaö er.
Þetta er vandamál á öllum fiskmörk-
uðum,“ sagði Pétur Björnsson.
Vilhjálmur Vilhjálmsson, forstöðu-
maður Aflamiðlunar, sagðist halda
að minna væri um fiskþjófnaði nú-
Loðnuveiðarnar:
Lítil von
um
vestan-
göngu
í fjögurra daga loðnuleitar-
leiðangri, sem Bjarni Sæ-
mundsson fór í út af Vestfjörð-
um, urðu raenn ekki varir við
neinar loðnutorfur.
Jakob Jakobsson, forstjóri
Ilaírannsóknastofnunar, sagöi
að vart hefðí orðið við loðnu i
fiski sem veiðst hefði í Víkurál.
Loðnubræðslurnar hefðu því
óskað eftir að rannsóknaskip
kannaði svæðið. Það var gert
en án árangurs. Jakob sagðist
ekkert þora að segja til um
hvort vestanganga kæmi í ár
eða ekki. Þær kæmu alltaf öðru
hvoru en fyrst engar torfur
fundust i leiðangrinum væru
heldur litlar likur á vestan-
göngu í ár.
Vart hefur orðið loðnu fyrir
austan land og sagði Ástráður
Ingvarsson, hjá loðnunefnd, að
sjómenn teldu þar vera á ferð-
inni umtalsvert magn. Gallinn
væri bara sá að loðnan stæði
mjög djúpt og hyrfi alltaf öðru
hvoru. Flestir bátanna eru með
grunnar nætur um borð og því
ganga veiðamar stirðlega.
Búist er við að þegar loðnan
kemur vestar verði.hún komin
í veíðanlegar torfur.
Nú eru komnar á land 650
þúsund lestir af loðnu en heild-
arkvótinn í ár er 760 þúsund
lestir. Ástráður sagðist sann-
færður um að það magn myndi
nást.
Þrír bátar, Hákon, Pétur
Jónsson og Rauðsey, eru búnir
með kvóta sína og hættir veið-
um. Mörg skípanna eru á síð-
ustu tonnunum þessa dagana.
-S.dór
orðið en áður var. Hann sagði að fyr-
ir þremur árum hefði verið komiö
upp um stórfelldan fiskþjófnað á
fiskmörkuðum í Bretlandi en sagðist
ekki hafa heyrt um að umtalsverðu
magni hefði verið stolið síðan. Vil-
hjálmur sagði að við landanir báta
og togara í Bretlandi væri strangt
eftirlit. Hann sagði fiskþjófnað við
löndun eða á fiskmörkuðunum í
Þýskalandi nær óþekkt fyrirbæri.
-S.dór
SÆLUVIKA
m&iMi-z mxoom -ssoí • onNffflðitt- 'trwwsiwr joepíscs * • • im na?o
KQjmub KSSðftVS ■
■ •sSgJftwratay 'J
SÆLUTILBOÐ ^ SPÓLIJR Á :400 KR.
SÆLUHÚSIÐ
SMIDSBÚD 6 ■ s. 42633 • GARDABÆ