Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.1990, Síða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.1990, Síða 4
4 ÞRIÐ.JUDAGUR 20. MARS 1990. Fréttir Staðsetning nýja álversins: Landsbyggðarpólitíkin mun á endanum vega þyngst - sagði Árni Gunnarsson alþingismaður á opnum fundi um álversmálið á Akureyri Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri: „Ég hygg að sú landsbyggðarpólitík, sem núverandi ríkisstjórn hefur í orði haft í frammi, muni á endanum vega þyngst í þessu máli. Menn geta velt fyrir sér þeirri fnynd sem myndi blasa við ef álverið færi í Straums- vík. Menn geta velt fyrir sér hvað fólk á allri landsbyggðinni myndi segja ef núverandi ríkisstjórn yrði að kyngja því að nýtt 200 þúsund tonna álver risi í Straumsvík við hlið álversins sem þar er fyrir. Ég tel að af pólitískum ástæðum sé það nánast ógjörlegt fyrir ríkisstjórnina að standa frammi fyrir þeim veru- leika,“ sagði Árni Gunnarsson al- þingismaður á opnum fundi um ál- versmáliö og fleira á Akureyri um helgina. Árni sagðist telja að brotthvarf Alusuisse úr Atlantal-hópnum hefði verið með þeim hætti að það vekti ekki mikið traust á fyrirtækinu og Alumax-menn hefðu ekki mikinn áhuga á að vera i nábýli viö Alu- suisse. Þar vægi þyngst það sem þeir kalla að þurfa ekki að lenda í deilum um það hver „eigi skítinn“ eins og þeir orðuðu það; ef mengunarslys ætti sér stað yrði erfitt að greina á milli frá hvorri verksmiðjunni „skít- urinn" kæmi. „Ég hef þaö eftir áreiðanlegum heimildum aö forstjóri Alumax telji það hiklaust miklu vænlegri kost út frá þjóðhagslegu sjónarmiði og vegna sátta um málið að álverið rísi utan höfuðborgarsvæðisins. Hann er þeirrar skoðunar að ef álverið risi í Straumsvík risu upp deilur og átök sem engin veit hvaða áhrif hefðu á allar framkvæmdir. Þetta er að mörgu leyti klókt sjónarmið og þessi maður gerir sér ljósa grein fyrir því að það er viturlegra að reisa álverið þar sem mest þjóðarsátt gæti orðið um það. Hann gerir sér líka grein fyrir því að atvinnuástandið á Eyja- fjarðarsvæöinu er með þeim hætti að það myndu takast hagstæðir samningar. Og samningaviðræður myndu hugsanlega ekki taka jafn- langan tíma og ef álverið risi í Straumsvík,“ sagði Árni. Árni ræddi marga þætti þessa máls, baráttu milli landshluta um álverið, framkomu flokksbróður síns, Guðmundar Árna Stefánssonar, bæjarstjóra í Hafnar- firði, sem hann teldi ekki til fyrir- myndar í þessu máli, virkjanamál, raforkumál, kaup á landi, mengun- arrannsóknir og fleira, og í lokin sagði hann það sína skoðun að álver- inu yrði valinn staður í Eyjafirði. : Ungir menn og kappsamir láta snjó ekki hindra sig. Hér leika þeir knatt- spyrnu á Reykjavíkurtjörn. DV-mynd Brynjar Gauti Eru allaballar að búa sig undir kosningar? - Hef það á tilfinningunni, segir Ami Gunnarsson alþingismaöur færi úr ríkisstjórninni myndi Sjálf- stæðisflokkurinn hlaupa undir bagga, annaðhvort með minnihluta- stjórn eða meirihlutastjórn út kjör- tímabihð, og áherslan yrði lögð á þrjá málaflokka, stóriöju, varaflug- völl og fjármagnsbreytingar til sam- ræmis við það sem verður eftir að Evrópubandalagið verður orðið eitt markaðssvæði árið 1992. Árni sagði ennfremur að mikið væri rætt um að fram undan væri ný viðreisnarsfjórn, með þeim for- merkjum að þeir flokkar, sem á sín- um tíma mynduðu „viðreisn", Sjálf- stæðisflokkur og Alþýðuflokkur, gerðu þjóðinni grein fyrir því fyrir kosningar hvemig stjórn yrði mynd- uð eftir kosningar. Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri: „Samstarf núverandi stjórnarflokka hefur um margt verið bæði sérkenni- legt og óvenjulegt. Ég verð að segja að ég get ekki annað en dáðst að Steingrími Hermannssyni, hvernig honum hefur ge'ngið að halda þessari sundurleitu ríkisstjóm saman,“ sagði Árni Gunnarsson, þingmaður Alþýðuflokksins, á almennum fundi á Akureyri um helgina. „Það hefur margt sérkennilegt gerst á undanfornum vikum og þar vil ég helst nefna mörg útgjaldafrum- vörp Alþýðubandalagsins sem hafa komið inn á borö Alþingis og eru með ólíkindum. Ég verð að segja eins og er að mér hefur fundist veruleg kosningalykt af þessum frumvarps- flutningi alþýðubandalagsmanna. Þeir hafa komið með inn á þing frum- vörp sem munu kosta ríkissjóð millj- arða króna án þess að koma með tekjufrumvörp á móti. Ég var þeirrar skoðunar fyrir tveimur vikum að Alþýðubandalagið væri að fara út úr ríkisstjórninni og ég hef það ennþá mjög á tilfinning- unni að það sé að búa sig undir kosn- ingar. Hvort það hefur hins vegar stöðu til þess að fara í kosningar nú dreg ég stórlega í efa og ugglaust hafa stjórnarflokkarnir ekki sterka stöðu til að fara út í kosningar. Vafalítið meta ráðherrar stöðuna þannig að þeir vilji fóma öllu til þess að árangur vegna efnahagsaðgerða komi fram áður en kosningar verða,“ sagði Ámi. Árni sagði að þær umræður hefðu verið uppi að ef Alþýðubandalagið í dag mælir Dagfari Landkynningin í nefnd Forsætisráðherra hefur skipaö fimm manna nefnd til að kynna ísland á erlendum vettvangi. Aðal- verkefni nefndarinnar er að kanna hvort ísland geti orðið að ímynd gæða, hreinleika og heilbrigðs um- hverfis og mannlífs. Auk þess á nefndin að undirbúa fimm ára áætlun um kynningu íslands á er- lendum vettvangi og meta á hvaða lönd beri að leggja áherslu, hveijir séu helstu markhóparnir, hverjir eigi að vinna verkið hér heima og erlendis og hvernig. Formaður nefndarinnar er Bald- vin Jónsson, auglýsingastjóri Morgunblaðsins, en auk hans er að finna valinkunna heiðursmenn í nefndinni sinn úr hverri áttinni. Má segja að sannarlega hafl veriö kominn tími til að íslendingar gerðu eitthvaö í kynningu landsins og nefndarskipan hafi verið fyrir löngu tímabær. Það er með hrein- um ólíkindum hvað útlendingar vita lítið um þetta gósenland og raunar skömm að því hvað íslend- ingar hafa kynnt landið illa fram að þessu. Hér verður úr að bæta, enda síð- ustu forvöð áður en önnur lönd eins og Bandaríkin og Sovétríkin stela frá okkur senunni. Þessi tvö lönd og mörg, mörg fleiri hafa á undanförnum árum kynnt sig í út- löndum langtum meir og betur en ísland hefur gert og eru fyrir vikið stórum þekktari meðal útlendinga heldur en landið okkar. Hér verður að sporna við fótum og það er ekki seinna vænna en auglýsingastjóri Morgunblaðsins geri eitthvað í þessu. Nýlega var gefin út skýrsla sem bendir til þess aö fjörurnar í ná- grenni bæja og byggðar séu allar útbíaðar í úrgangi og óhreinindum. Hollustuvemdin hefur margbent á að matur er næstum því óætur hér á landi vegna salmonellu og nú eru þeir famir að matreiða óætan fisk ef hann er nógu ljótur. íslendingar eru og frægir fyrir að beita sauðk- indinni á hálendið til að eyða því, og nú er búið að skipa nýjan um- hverfismálaráðherra til að menga umhverfið í ráðuneytunum af deil- um og átökum um það hver eigi að annast umhverfið. Allt er þetta sennilega gert til að laða útlendinga til landsins og skapa þá ímynd af þjóðinni að hér geti allir lifað og hingað geti allir ferðast, sem á annað borð eru til- búnir til að éta óætan mat og spilla náttúrunni. Útlenskir ferðamenn hafa fariö frjálsir ferða sinna um óbyggðirnar á tíu hjóla trukkum og allir sem hingað koma eða hér dveljast vita aö íslendingar eru heimsins mestu sóðar. Því verður ekki breytt meðan sauðkindin lifir og meðan mávurinn flýgur á milli öskuhauga með salmonelluna, en það er þá líka alveg rétt að það verður að skipa nefnd til að sann- færa útlendinga um hreinleikann og hiö fagra mannlíf sem þrífst hér í sóðaskapnum. Fagurt mannlíf birtist okkur svo í næturlífinu í höfuðborginni og fylliríunum í framhaldsskólunum og niðri á alþingi, þar sem pólitíkin er til algjörrar fyrirmyndar fyrir aðrar þjóðir sem ekki kunna að umgangast lýðræðið af neinu viti. Það þarf að kynna menn eins og Steingrím og Ólaf Ragnar miklu betur fyrir umheiminum, sem ekki eiga stjórnmálamenn sem komast í hálfkvisti við okkar fremstu menn í umgengni sinni við kjósendur. Baldvin Jónsson hefur náð heimsfrægð fyrir kynningu sína á íslenskum fegurðardísum og hvers vegna skyldi sá góði maður ekki geta kynnt íslenska stjórnmála- menn og komið þeim á verðlauna- palla í útlöndum og trekkt ferða- menn til að forvitnast frekar um það mannlíf sem kýs svona menn til forystu? Nú er um að gera að hefja áróður í útlöndum og blekkja saklausa ferijamenn til að koma og skoða og sjá með eigin augum þá ímynd hreinleika og heilbrigðs umhverfis og mannlífs sem heima- menn hafa sjálfir kynnst alit frá landnámsöld. ímyndina verður að auglýsa og hreinleikann verður að kynna, hvað sem líður sóðaskapn- um og pólitíkinni. Það getur vel verið að sú ímynd breytist þegar ferðamaðurinn er mættur á stað- inn, en skítt veri með það. Þá verð- ur hann búinn aö borga farið og borga hótelið og sjá veruleikann í stað ímyndarinnar. Nefndin á eftir að gera ísland að heimsfrægu ferðamannalandi þeg- ar hún hefur kynnt sig í útiöndum. Dagfari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.