Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.1990, Page 9
ÞRIÐJUDAGUR 20. MARS 1990.
9
Útlönd
Gorbatsjov:
Hótanir gegn Litháen
Gorbatsjov Sovétforseti sagöi í yfir-
lýsingu sem lesin var upp í sjón-
varpsfréttum í Sovétríkjunum í gær-
kvöldi aö hann heföi gefið stjórninni
fyrirmæli um aö grípa til aðgerða
gegn Litháum vegna sjálfstæðisyfir-
lýsingar þeirra. Oljóst var hvort átt
var við efnahagslegar aðgerðir. Sov-
étstjórnin hefur ítrekað það að ekki
verði gripið til hernaðarlegra að-
gerða en sérstök yfirlýsing, undirrit-
uð af Ryzhkov forsætisráðherra, gaf
í skyn að hermenn yrðu hafðir á
mikilvægum stööum.
Tilkynning þessi var birt sólar-
hring eftir að fréttir bárust af flutn-
ingum skriðdreka og hermanna í
suðurhluta Litháens. Herflugvélar
voru á sveimi yfir Vilnius, höfuðborg
Litháens, og öðrum borgum, þar á
meðal Kaunas, gömlu höfuðborginni.
Vegna heræfinganna í Litháen um
helgina átti Landsbergis, forseti Lit-
háens, fund með sovéskum herfor-
ingjum sem sannfærðu hann um að
þær væru ekki í neinum tengslum
við fullveldisyfirlýsinguna.
Tass-fréttastofan sovéska sagði
yfirlýsingu sovéskra yfirvalda hafa
borist eftir að Gorbatsjov tók við
bréfi frá Landsbergis þar sem álykt-
un sovéska þingsins um að fullveld-
isyfirlýsing Litháa væri ómerk var
vísað á bug. Bréf Landsbergis var
lesið í sovéska sjónvarpinu í gær-
kvöldi og á eftir fylgdi yfirlýsing Sov-
étstjórnarinnar þar sem því var mót-
mælt að sovéskar eignir yrðu gerðar
upptækar í Litháen.
Landsbergis sagði við fréttamenn í
gærkvöldi að hann væri ánægður
með viðvaranirnar frá Moskvu. „Ég
held að þetta sé upphaf samningavið-
ræðna. Sumar staðhæfingarnar í
yfirlýsingunni eru í samræmi við
afstöðu okkar,“ sagði hann og átti
þá við yfirlýst markmið Ryzhkovs
um að halda fullum efnahagslegum
tengslum við Litháen.
Sex manna sendinefnd Litháa, sem
er í Mosvku, gerir ekki ráð fyrir
samningaviðræðum strax fremur en
eistlenskir leiðtogar sem komu í gær
til Moskvu til að reyna að ná fundi
Gorbatsjovs Sovétforseta. Eistlend-
ingar hafa ekki lýst yfir sjálfstæði
ennþá en niðurstöður kosninganna í
Eistlandi á sunnudaginn benda til
þess að þeir sem vilja sjálfstæði fái
þann meirihluta sem þeir þurfa.
Rcuter og FNB
Vinningstölur laugardaginn
17. mars ?90
VINNINGAR FJÖLDI VINNINGSHAFA UPPHÆÐ Á HVERN VINNINGSHAFA
1. 5af 5 I 2 1.158.402
4af5^fM 3 134.253
3. 4af5 101 6.878
4. 3af 5 3.427 473
Landsbergis, forseti Litháens, er ánægður með viðvaranirnar frá Moskvu.
Símamynd Reuter
Kosningarnar í Sovétríkjunum:
Umbótasinnar sigurstranglegir
Heildarvinningsupphæð þessa viku:
5.035.212 kr.
Umbótasinnar virðast líklegir til að
bera sigurorð af harðlínumönnum
kommúnista í þremur stærstu borg-
um Sovétríkjanna að þvi er bráða-
birgðaniðurstöður kosninganna frá
því á sunnudag benda til. í Izvestia,
dagblaði sovésku stjórnarinnar, í
gær sagði að frambjóðendur sem
nytu stuðnings umbótasamtakanna
„Lýðræði í Rússlandi" hefðu unnið
hreinan meirihluta í borgarráði
Moskvu, En ljóst þykir þó að helstu
kommúnistar í borginni, s.s. Valery
Saikin borgarstjóri og Júrí Prokofy-
ev, leiðtogi kommúnistaflokks
Moskvu, fá einnig inni í borgarráði.
Um helgina var önnur umferð
kosninga til borgar- og sveitarstjóma
auk þings í þremur lýðveldum Sovét-
ríkjanna, Rússlandi, Hvíta-Rússlandi
og Úkraínu. Þá var einnig kosið í
tveimur af þremur Eystrasaltslýð-
veldunum, Lettlandi og Eistlandi.
Kosningar hafa þegar farið fram í því
þriðja, Litháen.
í Leningrad, annarri stærstu borg
Sovétríkjanna, unnu frambjóðendur
á vegum samtakanna „Lýðræðisleg-
ar kosningar ’90“ fimmtíu og fjögur
prósent sæta í borgarráði í kosning-
unum og áttatíu prósent þeirra sæta
til þings lýðveldisins Rússlands sem
barist var um í borginni. í Kíev unnu
umbótasinnar einnig sigur í borgar-
kosningum en frambjóðendur Rukh,
samtaka umbótasinna, fengu meira
en helming sæta í borgarráði og
íimmtán af tuttugu og tveimur sæt-
um Kíev á þingi í Úkraínu. í Hvíta-
Rússlandi máttu borgarstjóri Minsk,
höfuðborgar lýðveldisins, sem og
leiðtogi kommúnistaflokksins þar í
borg sætta sig við ósigur.
í Eistlandi og Lettlandi gekk um-
bótasinnum mjög vel í kosningunum
um helgina eins og við var að búast.
í Lettlandi unnu frambjóðendur á
vegum Alþýðufylkingar lýðveldisins
109 af 210 sætum á þingi, að því er
fram kom í fréttum Tass, hinnar op-
inberu fréttastofu Sovétríkjanna. í líkur benda til að íbúar beggja þess-
Eistlandi sögðu talsmenn Alþýðu- ara lýðvelda munu feta í fótspor ná-
hreyfingar Eistlands aö frambjóð- grannanna, Litháa, og kjósa á þing
endum hennar hefði gengið vel en frambjóðendur sem styðja sjálfstæði
að úrslit lægju ekki fyrir. En allar Eystrasaltslýðveldanna. Reuter
UPPLÝSINGAR: SÍMSVARI 681511 - LUKKULÍNA 991002
Frádráttarbær virðisauki
Samkvæmt reglugerð um virðisaukaskatt fæst innskattur frádregiim
af innkaupsverði nýrra sendibifreiða sé bifreiðin notuð vegna
skattskyldrar starfsemi.
Jöfur hf. býður nú tvo góða valkosti á frábæru verði:
..ii I, ii ' .' ' i.i—.. i .'. i '' '.'" "i'
Sá ódýrasti á markaðnum.
Favorit 136L, árgerð 1990, kr. 458.800,-
Vsk. kr. 90.300,-
Staðgrverð án vsk. kr. 368.500,-
Peugeot 205, árgerð 1990, kr. 589.900,-
Vsk. kr. 116.100,-
Staðgrverð án vsk. kr. 473.800,-
JÖFUR HF
NYBYLAVEGI 2
KÓPAVOGI
SÍMI 42600