Dagblaðið Vísir - DV - 06.04.1990, Síða 2
2
FÖSTUDAGUR 6. APRIL 1990.
Fréttir
i>v
Páskaeggjaveröstríö:
Bónus býður páskaegg
undir heildsöluverði
- veriö að selja undir kostnaöarveröi segir Júlíus Jónsson formaöur matvörukaupmanna
Kaupmenn berjast hart um verö á
páskaeggjum þessa dagana. Mesta
athygli hefur vakiö lágt verð á páska-
eggjum í Bónusverslunum en þar eru
þau seld á verði sem kunnugir segja
að sé undir heildsöluverði sem öðr-
um kaupmönnum stendur til boða.
Samkvæmt heimildum DV eru aðrir
kaupmenn ævareiðir yfir þessu og
þrýsta mjög á páskaeggjaframleið-
endur að selja Bónus ekki meira af
páskaeggjum á þessu verði.
Haraldur Jóhannsson, sölustjóri
hjá Nóa Síríusi, fullyrti í samtali við
DV aö ekki gæti verið um neinn
þrýsting að ræða þar sem allir kaup-
menn fengju páskaegg á sama verði.
Könnun á verði páskaeggja leiddi
í ljós að verð í stórverslunum var
almennt svipað. Þannig kostar
páskaegg númer 5 frá 1.120 krónum
til 1.176 króna í stórverslunum en 951
krónu í Bónus. Heildsöluverð með
virðisaukaskatti er 996 krónur og
leiðbeinandi smásöluverð á þessari
stærð er 1.430. Almennt voru páska-
egg í Bónus um 20% ódýrari en í
öðrum verslunum.
„Þama er bara verið að selja vöru
undir kostnaðarverði og ekkert um
það að segja,“ sagði Júhus Jónsson,
formaður Félags matvörukaup-
manna, í samtali við DV.
„Það er ekki til siðs hér að gefa
með vörunni," sagði Jóhannes Jóns-
son, kaupmaður í Bónus, í samtali
við DV. „Við fengum afmæhsafslátt
á fyrstu sendingunni af páskaeggjum
ásamt magn- og staðgreiðsluafslætti
og viljum leyfa viðskiptavinunum að
njóta þess með okkur í tilefni af-
mælisins." -Pá
Starfsmaður 1 Helguvik lenti undir grjóthruni:
„Sá stóra hnullunga hrynja
niður yfir höfðinu á mér“
- gengur nú við hækjur og segist heppinn aö vera á lífi
„Ég er heppinn að vera ekki dauð-
ur. Ég var að stytta mér leið á eftir-
htsferð og klifraði upp í grjótruðning
sem hefur verið safnað upp þarna
vegna hafnarframkvæmdanna í
Helguvík. Þegar ég var kominn vel
áleiðis upp ruðninginn rann steinn
undan mér og þá kom skriðan áfram
og yfir mig. Þetta hafa verið 60-70
kílóa steinar sem ruddust yfir mig.
Það vildi svo til að þegar ég hafði
runnið talsvert niður þá féll ég ofan
í lægð og sá grjótiö hrynja niður yfir
höfðinu á mér. Það fór aðahega yfir
mig. Þetta voru stórir hnullungar.
Já, já, maður slapp vel og ætti nú
eiginlega aö vera dauður miðað við
hvemig þetta vildi til,“ sagði Snæ-
björn Stefánsson, starfsmaður olíu-
stöðvarinnar í Helguvík og íbúi í
Garði, í samtali við DV.
Snæbjörn gengur nú við hækjur
eftir að hafa komist lífs af þegar hann
lenti í miklu grjóthruni við sjávar-
kambinn rétt fyrir utan Helguvík í
síðustu viku. Hann tognaði á fæti og
hlaut meiðsl í andliti, þó ekki alvar-
leg. Hann verður frá vinnu í nokkrar
vikur og hrósar happi yfir að vera á
lífi eftir slysið.
„Ég bara áttaði mig ekki á því
hvernig þessi grjótruðningur var og
hefði getað látið vera að fara þarna
upp. Ætlunin var bara að stytta sér
leið. Þetta er afgangsgrjót vegna
hafnargarðsins í Helguvík. Þessir
hnullungar pössuðu ekki í garðinn
og var því keyrt með þá þarna út
eftir.“
- Hvernig var þér innanbrjósts þeg-
ar þú sást stóra hnullungana hrynja
rétt fyrir ofan höfuðið á þér?
„Ég gerði mér ekki alveg grein fyr-
ir þessu og náði ekki aö verða neitt
smeykur, enda dofnaði ég svo fljótt
þarna í urðinni. Grjótið sem lenti á
mér fór aðallega yfir lappimar á
mér. Ég stóð svo upp og rölti niður
að bílnum og keyrði inn á sjúkrahús
í Keflavik. Það þurfti að sauma mig
töluvert og maður er töluvert stirð-
ur. Ég brotnaði ekki en tognaði á
fæti. Miðað við aðstæður má segja
að ég ætti að vera eitthvað meira en
dauður," sagði Snæbjöm Stefánsson.
-ÓTT
Börnin vilja páskaegg og spyrja ekki um verð DV-mynd BG Virðisaukaskattur:
Fyrsti gjald-
dagi var í gær
Fyrsti gjalddaginn í virðisauka-
skattskerfmu var í gær, 5. apríl.
Snorri Olsen, skrifstofustjóri í fjár-
málaráðuneytinu, sagði í morgun að
ekki lægi fyrir hvernig skil heföu
verið eöa hversu mikið greitt hefði
verið inn í gær. Það sæist ekki fyrr
en seinna í dag.
Innflutningsverslun hefur greitt
virðisaukaskatt hjá tollstjóra af vör-
um sem þar hafa verið leystar út.
Aðrar starfsgreinar hafa ekki greitt
virðisaukaskatt frá áramótum fyrr
en í gær. Hins vegar hefur ríkissjóð-
ur þurft að greiða svonefndan út-
skatt alveg frá áramótum.
-JGH
Kaupfélag ísfírðinga:
í skýringamynd við frétt DV af
Sambandinu á miðvikudaginn var
nafn Kaupfélags ísfirðinga sett meðal
þeirra kaupfélaga sem lagt hafa upp
laupana. Þetta er ekki rétt. Kaupfélag
ísfirðinga starfar enn. Misskilningur
virðist hafa komið upp þegar DV leit-
aði til Sambandsins og fékk upplýs-
ingar um þau kaupfélög sem hafa
hætt starfsemi eða orðið gjaldþrota á
undanfórnum árum. -gse
Lifir enn
Harðar deilur blossa upp:
Sendibílstjórar
telja sig beitta
þvingunum
- fá frest til 11. apríl til að yfirgefa félagið
„Við eram ákveðnir i aö ganga vinnuleyfið ella. Þetta er andstætt
ekki í Trausta þótt lögfræðingur því sem ráðherra sagði og verður
samgönguráðuneytisins hafi gefið ekki túlkað öðruvísi en sera tak-
okkur frest til 11. apríl til að gera mörkun á félagafrelsi. Viö megum
það. Okkur er sagt að viö megum samt halda í okkar félag en verðum
hafa okkar félag en fáum ekki at- sjálfsagt að breyta því í skákklúbb
vínnuleyfi nema ganga í hitt,“ sagði eða góðgeröafélag.
Friðþjófur Jóhannsson, formaður Þaö er ekki hægt að banna okkur
Afls sem er annað affélögum sendi- að stofna stéttarfélag af því að við
bílstjóra í Reykjavík. erum ekki sammála öðru félagi í
Undanfarið hafa verið væringar greininni. Við viljum ekki tak-
með þessum tveimur félögum markanir á fjölda sendibíla enda
sendibílstjóra og engin lausn fund- er ljóst að það leiðir ekki til annars
ist á. Fyrir skömmu tilnefndi Stein- en forréttinda sumra og verri þjón-
grímur Sigfússon samgönguráð- ustu í framtíðinni,“ sagöi Friðþjóf-
herra Helga Jóhannesson, lögfræð- ur.
ing ráðuneytisins, til að hafa milli- Þegar hefur verið ákveðíð að tak-
göngu í deilum félaganna og finna marka fjölda sendibíla og jafhframt
samstarfsgrandvöllþeirra. Frestur er bundið í lög að allir sendibíl-
til að koma á samkomulagi var stjórar á félagssvæði Trausta skuli
geftnn til 11. apríi. vera í félaginu. Hjá Trausta fengust
„Boðin sem víð fáum svo nú í þær upplýsingar að eftir 11. apríl
vikunni frá lögfræðingum eru þau yröi ákveðið hvemig takmörkun á
aö viö höfum frest til 11. apríl aö fjölda bílsfjóranna yrði við komið
ganga í Trausta en missum at- enfélagiöáaðannastmálið. -GK
Andstaða við nýtt kvótafrumvarp á þingi:
Kvótinn gæti
allur endað hjá
Bmskip
- segir Geir Gunnarsson alþingismaður
„Svo virðist sem kvótinn sé allur
að dragast á færri og færri hendur
og gæti með tímanum allur lent hjá
einum aöila. Ef ekki vill betur til
gæti Eimskipafélagið átt hann allan
eftir nokkur ár,“ sagði Geir Gunn-
arsson alþingismaður sem hefur
viðrað þá hugmynd á Alþingi að
fresta afgreiðslu nýs kvótafrum-
varps til næsta hausts en láta núver-
andi reglur gilda óbreyttar til 1. sept-
ember.
„Ég tel að sjávarútvegsnefndir
þingsins hafi ekki fengið tíma til að
fara ofan í saumana á þessu nýja
kvótaframvarpi. Svona mál mega
ekki fara lítið rædd í gegnum þingið.
Ég legg frestunina til meðal annars
vegna óska þeirra sem vilja koma' á
einhvers konar byggðakvóta og
minni á að Færeyingar hafa ákveðið
að taka ekki upp svipað kvótakerfi
og hér vegna þess að þeim þykir það
gallað.
Það eru ýmsar hugmyndir sem
menn vilja skoða nánar en til þess
gefst ekkert ráðrúm ef keyra á frum-
varpið í gegn á hálfum mánuði. Á
eftir gætum við setið uppi með stór-
gallað kvótakerfi. Markús Möller
hagfræðingur hefur í grein nefnt
suma af hugsanlegum göllum.
Þá er enn óútkljáð hver á aö vera
úrskuröaraðilinn þegar deilumál
koma upp. í þessu frumvarpi er enn
gert ráð fyrir að sjávarútvegsráð-
herra annist framkvæmdina og skeri
einnig úr ágreiningsmálum. Við vilj-
um leita áhts Lagastofnunar eða
annars sambærilegs aðila um rétt-
mæti þessa,“ sagði Geir Gunnarsson.
-GK