Dagblaðið Vísir - DV - 06.04.1990, Page 8
8
FÖSTUDAGUR 6. APRÍL 1990.
Utlönd
Litháiska þingið svarar Gorbatsjov:
Sáttatónn
í Litháen
Litháar skoruöu í gær á stjórn-
völd i Moskvu til aö faUast á samn-
ingaviðræður til aö binda enda á
þriggja vikna sjálfheldu í deilum
þeirra. Litháar vilja setjast niöur
og ræöa sjálfstæðiskröfur sínar við
sovésk yfirvöld en þing lýöveldis-
ins lýsti því yfir 11. mars að Lithá-
en heföi endurheimt fullveldi og
sjálfstæði það er íbúarnir nutu á
árunum milli stríða. Sovétstjórnin
hefur hingað til aifarið vísaö öllum
tilmælum um samningaviðræður
EÖ óbreyttu ástandi á bug.
í gær mátti merkja sáttatón hjá
ráðamönnum í Litháen þrátt fyrir
aukinn hernaðarlegan þrýsting
sovéskra stjórnvalda í lýðveldinu.
Fulltrúar á þingi Litháens* komust
í gær loks að samkomulagi um svar
ráöamanna lýðveldisins við harð-
orðum viðvörunum Gorbatsjovs
Sovétforseta frá því um síðustu
vlku. Þingmenn, sem hafa þráttað
um hvernig bregðast skuli við viö-
vörunum Gorbatsjovs í nokkra
daga, lögðu áherslu á það í svari
sínu að Litháen vildi ekki skera á
efnahagsleg, menningarleg og
mannúöarleg tengsl viö Sovétríkin.
Þar var og sýndur skilningur á
áhyggjum stjórnarinnar í Moskvu
á ástandi mála í Litháen og jafn-
framt skorað á ráðamenn Sovét-
ríkjanna, og sérstaklega Sovétfor-
seta, að setjast niður með fulltrúum
Litháen og ræða málin. í bréfinu
var aftur á móti ekkert minnst á
þjóðaratkvæðagreiðslu í Látháen
um sjálfstæði eins og sovésk stjórn-
völd hafa krafist. Svar þingsins var
sent Gorbatsjov og undirritað af
Landsbergis, forseta Litháens.
Hvort ályktunin frá í gær nægir
til að fá Sovétstjórn að samninga-
borðinu er allsendis óljóst. Litháar
hafa geftð í skyn að þeir séu reiðu-
búnir til tilslakana, s.s. aö efn-
hagsleg tengsl verði ekki slitin, en
hvort það nægir til að lægja öldum-
ar verður að koma í ljós. Sovéskir
ráöamenn hafa ítrekað sagt að Lit-
háar veröi að falla frá fúllveldis-
yfirlýsingu sinni áður en til við-
ræðna geti komið. Litháar segjast
aftur á móti hafa verið ólöglega
innlimaöir inn í Sovétríkin árið
1940 og geti þar af leiðandi ekki
fallið frá endurheimt fullveldisins.
Sendinefnd frá Litháen hefur átt
í óformlegum viðræðum við sovésk
stjórnvöld í Moskvu í þessari viku.
Þeim viöræðum lauk í gær án þess
að viðræðuaöilar kæmu sér saman
um hvort hefja skyldi formlegar
viöræður. í Litháen hafa sovéskir
hermenn enn sýnt herstyrk sinn. í
gær réðust þeir vopnaðir inn á
skrifstofur saksóknara og ráku
embættismenn út.
Reuter
Tíl orðaskípta kom I Vilníus er mertn, hlynntlr áframhaldandi aðild að
Sovétrlkjunum, reyndu að koma í veg fyrlr mótmœli Litháenbúa.
Simamynd Reuter
Sévardnadze hikar við að ganga að öllum kröfum Bakers. Teikning Lurie
Leiðtogafundur
í Bandaríkjunum
George Bush Bandaríkjaforseti og
Mikhail Gorbatsjov Sovétforseti
munu koma saman til viðræöna í
Bandaríkjunum á milli 30. maí og 3.
júní næstkomandi. Tilkynningin um
leiðtogafundinn fylgdi í kjölfar full-
yrðinga Eduards Sévardnadze, utan-
ríkisráöherra Sovétríkjanna, um að
lausn yrði fundin á Litháendeilunni
með viðræðum. Sévardnadze hefur
verið í Bandaríkjunum og rætt við
James Baker, utanríkisráöherra
Bandaríkjanna, til undirbúnings
leiðtogafundinum.
Talsmaður Hvíta hússins, Marlin
Fitzwater, sagði að það væri ekki
skilyrði fyrir leiðtogafundinum að
fyrir liggi afvopnunarsamningar til-
búnir til undirritunar. Eins og
ástandið væri nú byggist hann við
að viðræðurnar myndu að einhverju
leyti snúast um Litháen. Bush for-
seti myndi taka upp það mál.
Sévardnadze og Baker ræddust við
í gær og snerust viðræður þeirra
aðallega um Litháen. Embættismenn
hafa greint frá því að utanríkisráð-
herrarnir hafi einnig rætt um Afgan-
istan, Kóreu og flutninga sovéskra
gyöinga til ísraels. Embættismenn-
irnir, sem ekki vildu láta nafns síns
getið, sögðu að Sovétmenn hefðu ít-
rekað þá afstöðu sína að sameinað
Þýskaland ætti ekki að vera í At-
lantshafsbandalaginu.
í viðræðunum í gær voru banda-
rískir og sovéskir embættismenn
sammála um að fækka þyrfti vopn-
um í Suður- og Norður-Kóreu. Sov-
éskur embættismaður gaf einnig í
skyn að yfirvöld í Moskvu væru að
undirbúa full stjórnmálatengsl við
Suður-Kóreu. Baker og Sévardnadze
eru sagðir hafa verið sammála um
að kosningar væru ef til vill besta
leiðin til að binda enda á stríðið í
Afghanistan. Einnig er sagt að Sé-
vardnadze hafl ekki litist illa á hug-
myndina um viðræður sovéskra og
ísraelskra yfirvalda um beina ílutn-
inga sovéskra gyðinga til ísraels gegn
því að þeir yrðu ekki látnir setjast
að á herteknu svæöunum.
Reuter
Langvinn mótmæli í Mexíkó:
Stjórnin sýnir festu
Stjórnvöld í Mexíkó sendu í gær
hermenn og skriödreka til Michoac-
an-fylkis um miöbik landsins til að
binda enda á mótmælasetu vinstri
manna í þinghúsum nokkurra bæja
í fylkinu. Stjórnarandstæðingar tóku
á sitt vald sextán þinghús til að mót-
mæla því er þeir kalla svik og pretti
ráðamanna í bæjar- og sveitarstjórn-
arkosningum í desember síðastliðn-
um. íbúar í tveimur bæjum í fylkinu
sögðu í samtali við Reuter-fréttastof-
una að hermenn heföu tekiö sér
stöðu í miðbænum og í fréttamynd-
um frá fylkinu mátti sjá herílutn-
ingabifreiðar aka um götur Morelia,
höfuðborgar fylkisins.
í morgun sögðu stjórnvöld að
nokkrum stundum eftir að hermenn
tóku sér stöðu í bæjunum hafi stjórn-
arandstæðingar látið af hendi allar
þær byggingar sem þeir höfðu lagt
undir sig. Þetta þýðir að forseti Mex-
íkó, Carlos Salinas de Gortari, vann
pólitískan sigur í þessu máli.
Fréttaskýrendur segja að með að-
gerðunum í Michoacan hafi ríkis-
stjórn forsetans reynt að sýna sýna
fram á að hún taki á málum af festu.
Einn fréttaskýrandi sagði að mikill
ótti væri meðal ráöamanna í Mexíkó
um hörð viðbrögð heimsbyggðarinn-
ar ef pólitískur órói brytist út í
Stjórnvöld i Mexikó hafa sent her-
menn til Michoacan-fylkis og mátti
i gær sjá herflutningabíla aka um
höfuðborg fylkisins, Morelía.
landinu. Slíkt gæti kippt fótunum
undan efnhagsumbótum forsetans,
sagði einn fréttaskýrandi.
Rúmlega fimmtíu liðsmenn PRD,
Lýðræðislega byltingarflokksins,
höfðu haft byggingar stjórnvalda í
Apatzigan-héraði á sínu valdi síðan
í desember síðastliðnum. Fylkisstjóri
Michoacan hvatti þá til að láta bygg-
ingarnar af hendi en þeir létu slíkt
sem vind um eyru þjóta. Þá brá fylk-
isstjórinn á það ráð að fara fram á
aðstoð alríkisvaldsins.
Liðsmenn PRD höfðu á sínu valdi
opinberar byggingar í allt að nítján
kjördæmum í fylkinu. Með þessu
voru þeir að mótmæla meintum svik-
um stjómarflokksins, Byltingar-
flokksins. Þeir segja að embættis-
menn stjórnarinnar hafi beitt svindli
í kosningum í desember síðastliðn-
um og hafi á þann hátt haft af þeim
sigur í mörgum kjördæmum. Bylt-
ingarflokkurinn hefur haldið völd-
um í landinu síðan árið 1929.
Reuter
Fermingargjöfin sjálfsagða bfOthef!
Öll fermingarbörn verða að eignast skólaritvél hvort sem er
brother álell er léttust og fullkomnust
í sínum flokki. Ótrúlega traust ritvél
Verð aðeins kr. 15.990,- staðgr.
Borgarfell, Skólavörðustíg 23, sími 11372 • Ritfangaverslanir Pennans • Hrannarbúðin,
Grundarfirði • Stuðull, Sauðárkróki • Bókaskemman, Akranesi • Bókabúð Keflavíkur.
n*"ll" •*'-**íí*2 ^-í** Tt-f-