Dagblaðið Vísir - DV - 06.04.1990, Síða 26
34
FÖSTUDAGUR 6. APRÍL 1990.
Fólk í fréttum
Ólafur Jóhann Ólafsson
Ólafur Jóhann Ólafsson, rithöfund-
ur og aðstoðarforstjóri SONY-fyrir-
tækisins í Bandaríkjunum, sagði
m.a. í viðtali í síðasta helgarblaði
DV að hann yrði aldrei uppstoppað-
urbisnesskarl.
Ólafur er fæddur 26. september
1962 í Reykjavík. Hann nam eðiis-
fræöi í háskólanum í Boston í
Massachusetts í Bandaríkjunum
1982-1985 og var sérfræðingur í
rannsóknum hjá SONY í Bandaríkj-
unum 1986-1987. Ólafur var rann-
sóknarforstjóri hjá SONY1987 og
forstjóri SONY-fyrirtækisins í
tölvuiðnaðinum 1987-1988. Hann
var aðalforstjóri tölvufyrirtækis
SONY1988-1989 og framkvæmda-
stjqri hjá SONY-fyrirtækinu 1989-
1990. Ólafur hefur verið varafor-
stjóri SONY í,Bandaríkjunum frá
1990. Eftir Ólaf hafa komið út bæk-
urnar Níu lyklar, smásagnasafn,
1986, og Markaðstorg guðanna,
skáldsaga, 1988. Óláfur kvæntist í
ágúst 1984, Önnu Ólafsdóttur, f. 6.
ágúst 1963. Foreldar Önnu eru Ólaf-
ur Haukur Árnason, húsasmiður og
verktaki í Reykjavík, og kona hans,
Birna Jakobsdóttir, fulltrúi á launa-
deild Ríkisspítalanna. Bróðir Ólafs
er Jón, f. 17. nóvember 1943, haf-
fræðingur í Rvík, kvæntur Sigrúnu
Stefánsdóttur.
Foreldrar Ólafs eru: Ólafur Jó-
hann Sigurðsson, f. 26. september
1918, d. 30. júlí 1988, rithöfundur í
Reykjavík, og kona hans, Anna
Jónsdóttir, f. 31. maí 1918. Ólafur
Jóhann var sonur Sigurðar, kenn-
ara og hreppstjóra á Torfastöðum í
Grafningi, Jónssonar, b. á Núpi á
Berufjarðarströnd, Einarssonar.
Móðir Jóns var Þórdís Erlendsdótt-
ir, b. á Kirkjubóli í Fáskrúðsfirði,
Þórðarsonar. Móðir Erlendar var
Sigríður Erlendsdóttir, b. á Ásunn-
arstööum í Breiðdal, Bjarnasonar,
ættfóður Ásunnarstaðaættarinnar.
Móðir Þórdísar var Helga Þorsteins-
dóttir, b. á Þorvaldsstöðum, Þor-
steinssonar, b. á Þorvaldsstöðum,
Erlendssonar, bróður Sigríðar.
Móðir Sigurðar var Þrúður, systir
Bjarna, afa Halldórs Halldórssonar
prófessors. Þrúður var dóttir
Sveins, b. í Viðfirði, Bjarnasonar.'
Móðir Þrúðar var Sigríður, lang-
amma Eyþórs Einarssonar, for-
manns Náttúruverndarráös. Sigríð-
ur var dóttir Davíðs, b. í Hellisfirði,
Jónssonar og konu hans, Sesselju
Þorsteinsdóttur, systur Guðnýjar,
langömmu Jóns, föður Eysteins,
fyrrv. ráðherra og Jakobs, prests og
rithöfundar, föður Jökuls rithöf-
undar.
Móðir Ólafs Jóhanns Sigurðsson-
ar var Ingibjörg Þóra Jónsdóttir
Mathiesens, b. í Gröf í Mosfells-
sveit, Matthíasar Mathiesens, kaup-
manns í Hafnarfirði, bróður Páls,
langafa Ólafs Ólafssonar landlækn-
is. Systir Matthíasar var Agnes,
langamma Matthíasar Á. Mathies-
ens alþingismanns. Önnur systir
Matthíasar var Guðrún, amma Stef-
aníu Guðmundsdóttur leikkonu,
móður Önnu Borg. Guðrún var
einnig langamma Steindórs Einars-
sonar, afa Geirs Haarde alþingis-
manns. Móðir Jóns Mathiesens var
Agnes Steindórsdóttir Waage, skip-
stjóra í Hafnarfirði, hálfbróður Sig-
uröar Sívertsens, afa Regine,
langömmu Jónasar Kristjánssonar
ritstjóra. Móðir Agnesar var Anna
Kristjánsdóttir Veldings, verslunar-
manns í Hafnarfirði, ættföður Veld-
ingsættarinnar. Matthías var sonur
Jóns prests í Arnarbæli, Matthías-
sonar, stúdents á Eyri í Seyðisfiröi,
Þórðarsonar, stúdents í Vigur, Ól-
afssonar, lögsagnara á Eyri, Jóns-
sonar, ættföður Eyrarættarinnar,
langafa Jóns forseta. Móðir fngi-
bjargar Þóru var Ingibjörg Guð-
laugsdóttir, b. í Öxney, Jónssonar,
bróður Matthíasar kaupmanns.
Móðir Ingibjargar var Guðrún, syst-
ir Kristínar, ömmu Ásgeirs Ásgeirs-
sonar forseta. Guðrún var dóttir
Gríms, prófasts á Helgafelli, Páls-
sonar, bróður Ingibjargar, konu
Jóns, prests í Arnarbæli.
Anna var dóttir Jóns, læknis á
Kópaskeri, bróður Þuru, skálds í
Garði, og Björgvins, föður Þorgríms
Starra í Garði. Jón var sonur Árna,
b. í Garði viö Mývatn, bróður Arn-
fríðar, langömmu Kristínar Hall-
dórsdóttur, formanns Ferðamála-
ráðs. Ámi var sonur, Jóns, b. í
Garði, Jónssonar, b. í Garði, Mar-
teinssonar, b. í Garði, Þorgrímsson-
ar, b. í Baldursheimi, Marteinsson-
ar. Móðir Jóns Jónssonar í Garði
var Helga Jónsdóttir, b. á Gautlönd-
um, Marteinssonar, bróður Jóns í
Garði. Móðir Árna var Guðrún,
systir Jóns, langafa Kristjáns Eld-
járns forseta, föður Þórarins Eld-
járns rithöfundar. Guðrún var dótt-
ir Þorgríms, b. í Hraunkoti í Aðal-
dal, Marteinssonar, bróður Jóns í
Garði. Móðir Guðrúnar var Vigdís
Hallgrímsdóttir, b. í Hraunkoti,
Helgasonar, ættföður Hraunkots-
ættarinnar. Móðir Jóns Árnasonar
læknis var Guðbjörg Stefánsdóttir,
b. í Haganesi við Mývatn, Gamalí-
elssonar og konu hans, Bjargar
Helgadóttur, b. á Skútustöðum, ætt-
föður Skútustaðaættarinnar, Ás-
mundssonar, b. í Baldursheimi,
Helgasonar, bróður Hallgríms í
Hraunkoti. Móðir Bjargar var Helga
Sigmundsdóttir, b. í Vindbelg, Árna-
sonar. Móðir Sigmundar var Krist-
veig Marteinsdóttir, systir Þorgríms
í Baldursheimi. Móðir Helgu var
Steinvör Guðmundsdóttir, systir
Ásu, ömmu Jóns Þorsteinssonar,
prests í Reykjahlíð, ættföður
Reykj ahlíðarættarinnar.
Móðir Önnu var Valgerður Guð-
rún Sveinsdóttir, b. og hreppstjóra
í Felli í Sléttuhlíö, Árnasonar, bróð-
ur Steinunnar, langömmu Árna
Hjartarssonar jarðfræöings. Móðir
Valgerðar var Jórunn Sæmunds-
dóttir, b. í Haganesi, Jónssonar og
Ólafur Jóhann Ólafsson.
konu hans, Bjargar, systur Margrét-
ar, móður Jóns Þorlákssonar for-
sætisráðherra. Önnur systir Bjarg-
ar var Guðrún, amma Sigurðar Nor-
dals prófessors. Þriðja systir Bjarg-
ar var Katrín, langamma Þuríðar
Pálsdóttur óperusöngkonu. Björg
var dóttir Jóns, prests á Undom-
felli, Eiríkssonar og konu hans,
Bjargar, systur Ragnheiðar, ömmu
Einars Benediktssonar skálds.
Björg var dóttir Benedikts Vídalíns,
stúdents á Víðimýri, Halldórssonar
Vídalíns klausturhaldara á Reyni-
stað. Móðir Halldórs var Hólmfríður
Pálsdóttir, Vídalíns lögmanns. Móð-
ir Bjargar Benediktsdóttur var
Katrín Jónsdóttir, biskups á Hólum,
Teitssonar og konu hans, Margrétar
Finnssonar, biskups í Skálholti,
Jónssonar, föður Hannesar, biskups
í Skálholti, ættföður Finsensættar-
innar.
Afmæli
Ragnar Þóroddsson
Ragnar Þóroddsson sjómaður,
Garðaflöt 4, Stykkishólmi, er sex-
tugurídag.
Ragnar fæddist á Hofsósi í Skaga-
firði og ólst þar upp hjá foreldrum
sínum. Hann byrjaði ungur til sjós,
fyrst á trillum fyrir norðan og síðan
á stærri bátum á vetrarvertíðum í
Keflavík og á Akranesi. Ragnar og
kona hans bjuggu sín fyrstu hjú-
skaparár á Hofsósi en fluttu til
Stykkishólms haustið 1966 þar sem
þau hafa búið síðan.
Ragnar kvæntist 26.12.1954 Svan-
hvíti Pálsdóttur, f. 20.6.1936, kaup-
konu í Stykkishólmi, en foreldrar
hennar vom Jóhanna Kristin Jón-
asdóttir, vinnukona og síðar ráðs-
kona, f. 2.9.1894, d. 15.3.1972, og
Páll Óskar Guðjónsson, lengst af
leigubílstjóri í Reykjavík, f. 6.9.1911,
d. 11.9.1966.
Börn Ragnars og Svanhvítar eru:
Kristín Jónsdóttir (fósturbarn), f.
8.1.1949, húsmóðir á Akranesi, en
maður hennar er Gestur Svein-
björnsson sjómaður og eiga þau
fjögur börn; Jóhann Kristinn
Guðnason (sonur Svanhvítar fyrir
hjónaband), f. 28.1.1953, sjómaður í
Reykjavík, en kona hans er Ólöf
Jóhannsdóttir og eiga þau saman
eina dóttur, auk þess sem Jóhann á
tvö böm frá því áður; Ólafur Ragn-
arsson, f. 19.10.1954, sjómaður í
Stykkishólmi; Björgvin Ragnars-
son, f. 17.5.1956, skipstjóri í Stykkis-
hólmi, en kona hans er Hulda Mjöll
Hallfreðsdóttir, húsmóðir og skrif-
stofustúlka og eiga þau þrjú börn
saman auk þess sem Björgvin á tvö
börn frá þvi áður; Þóroddur Halldór
Ragnarsson, f. 26.6.1957, sjómaður
í Reykjavík, en kona hans er Sólveig
Ólafsdóttir húsmóðir og eiga þau
tvær dætur; Kristinn Huldar Ragn-
arsson, f. 22.5.1959, d. 11.3.1960;
Sigrún Hildur Ragnarsdóttir, f. 8.11.
1961, húsmóöir, en maður hennar
er Jóhann Nikulásson langferðabíl-
stjóri og eiga þau saman eina dótt-
ur, auk þess sem Hildur á aðra dótt-
ur frá því áður; Sólrún Hulda Ragn-
arsdóttir, f. 8.11.1961, húsmóðir í
Borgarnesi, en hennar maður er
Eyjólfur Steinsson múrari og eiga
þau einn son en Hulda á auk þess
eina dóttur frá því fyrir hjónaband;
Guðrún Ósk Ragnarsdóttir, f. 17.11.
1969, dvelur á Akranesi, og Ragn-
heiður Kristín Vignisdóttir, f. 16.5.
1979, (fósturdóttir) í foreldrahúsum.
Ragnar áþrjú systkini á lífi en ein
sy stir hans lést í barnæsku. Systkini
Ragnars: Svanfríður Þóroddsdóttir,
f. 17.6.1931, húsmóðir á Sauðár-
króki, gift Árna Guðmundssyni
framkvæmdastjóra og eiga þau fjög-
ur börn; Jósef Þóroddsson, f. 20.8.
1933, verkstjóri hjá Steinullarverk-
smiðjunni á Sauðárkróki, kvæntur
Önnu Jóndóttur húsmóður og eiga
þau þrjú börn; Svandís Þórodds-
dóttir, f. 17.2.1941, húsmóöir og
verkakona á Hofsósi, gift Eysteini
Jónssyni verkamanni og eiga þau
fjögur börn, og Jónasína Kristín, f.
21.3.1935, d. 3.8. sama ár.
Ragnar Þóroddsson.
Foreldrar Ragnars voru Þóroddur
Pálmi Jóhannsson, f. 5.3.1894, d. 4.5.
1965, verkamaöur á Hofsósi, og kona
hans, Ólöf Jósefsdóttir, f. 31.1.1904,
d. 19.7.1983, húsmóðir.
Þóroddur var sonur Jóhanns
Skúlasonar, bónda á Brúarlandi í
Deildardal, og fyrri konu hans, Guð-
rúnar Guðmundsdóttur húsmóður.
Ólöf var dóttir Jósefs, b. á Stóru-
Reykjum í Flókadal í Skagafirði,
Björnssonar, b. að Hvanndölum,
Gíslasonar, b. í Saurbæ í Siglufirði,
Hinrikssonar, b. í Auðnum í Ólafs-
firði, Gíslasonar, b. að Fjalli í Sæ-
mundarhlið, Þorkelssonar. Móðir
Jósefs var Arnbjörg Þorvaldsdóttir,
b. á Frostastöðum, Ásgrímssonar,
b. á Minni-Ökrum, Dagssonar, Pét-
urssonar.
Ragnar verður að heiman á af-
mælisdaginn.
Aðalheiður Þorleifsdóttir og Kristinn Guðlaugsson.
Aðalheiður Þorleifs-
dóttir og Kristinn
Guðlaugsson
Hjónin Aðalheiður Þorleifsdóttir
og Kristinn Guðlaugsson á Dalvík
áttu gullbrúðkaupsafmæh 2. apríl
sl. í tilefni þess munu þau taka á
móti vinum og vandamönnum á
heimili sonar síns að Frostaskjóli
117, Reykjavík, laugardaginn 7. apríl
nk. milli klukkan 17 og 19.
Til hamingju með afmælið 6. apríl
90 ára 60ára
Jón Björnsson, Dilksnesi, Nesjahreppi. AlvaDainCox, Heiðarhvammi7, Keflavík. Lóðvík Þórarinsson,
80ára Vahholti 14, Ólafsvík.
Svava Jóhannsdóttir, Norðurbrún 1, Reykjavík. 50ára Kolbrún Sigurbjörnsdóttir,
75 ára Vahahreppi. _ Hjördís Guðmundsdóttir,
Helga Jónsdóttir, Dvalarheimilinu Skjaldarvík, Glæsibæi arhrenni. Birkigrund 60, Kópavogi. Aí\ ára
Hj örtur Hj artarson,
njuKiunanieinimiiu okjoii, Kleppsvegi 64, Reykjavik. Ingólfur Gíslason, Eskihlíð 14A, Reykjavík. ♦Jon Auöunn Kristinsson, Brattholti 7, Mosfellsbæ. Rannveig Margeirsdóttir, írabakka 24, Reykjavík. Ástríður Ólafs,
70 ára Tjamargötu 37, Reykjavík. Guðmundur Már H. Beck,
Hans Clementsen, Hafnargötu 40B, Seyðisfiröi. “ Kollaleiru, Reyðarfjarðarhreppi. Ólafur Donald Helgason, Orrahólum 7, Reykjavík.
Björgvin Þóroddsson
Björgvin Þóroddsson, bóndi í
Garði í Þistilfirði í Norður-Þingeyj-
arsýslu, er fimmtugur í dag.
Björgvin fæddist á Grímsstöðum í
Þistilfirði og ólst upp í Þistilfirðin-
um. Hann var bóndi á Hagalandi
1963-73 og hefur verið bóndi í Garði
síðan. Björgvin hefur setið í hrepps-
nefnd Svalbarðshrepps í tólf ár, auk
þess sem hann hefur unnið ýmis
trúnaðarstörf fyrir Sjálfstæðis-
flokkinn síðan 1964.
Björgvinkvæntist 15.11.1964
Margréti Jónsdóttur húsfreyju, f.
24.8.1944, dóttur Jóns Þórðarsonar
og Soffiu Jónsdóttur frá Siglufirði.
Börn Björgvins og Margrétar eru
Soífia Björgvinsdóttir, f. 2.6.1964;
Þóroddur Björgvinsson, f. 26.7.1965;
Sóley Helga Björgvinsdóttir, f. 16.7.
1966; Árni Hermann Björgvinsson,
f. 21.9.1972, og Jón Guðmundur
Björgvinsson, f. 29.3.1978.
Björgvin er elstur þrettán áystk-
inasem öll eruálífi.
Foreldrar Björgvins: Þóroddur
Björgvinsson, f. 12.3.1907, d. 20.2.
1986, bóndi, og kona hans, Sigríður
Árnadóttir, f. 8.7.1922, húsmóðir.
Foreldrar Björgvins fæddust í Þistil-
firði og hafa búið þar alla sína tíð.
Þóroddur var sonur Björgvins, b.
í Borgum í Þistilfirði, Kristjánsson-
ar og Vilborgar Guðmundsdöttur
frá Klifshaga í Öxarfirði af Bucks-
ættinni.
Foreldrar Sigríðar voru Árni
Kristjánsson, b. á Grímsstöðum, og
Sesselja Sigurgeirsdóttir.
Björgvin verður heima á afmælis-
daginn.