Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.1990, Síða 3
LAUGARDAGUR 16. JÚNÍ 1990.
3
Fréttir
Breytti framburði á
á nývri tjónaskýrslu
- og eigandi hins bílsins situr uppi með tjónið
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
„Mér finnst þaö ansi hart ef menn
geta breytt undirrituðum framburði
sínum á tjónaskýrslu til þess að losna
við aö bera ábyrgð,“ segir Katrín
Þorláksdóttir á Akureyri um baráttu
sína við „kerfið“ varðandi umferð-
aróhapp sem maður hennar varð fyr-
ir í vetur.
„Maðurinn minn ók eftir Þing-
vallastræti þegar bíl var ekið í veg
fyrir hann úr Skógarlundi. Til að
forðast árekstur gat maðurinn minn
beygt út af götunni og upp í snjóruðn-
ing sem varð til þess að bíllinn okkar
skemmdist mjög mikið að framan og
er sennilega ónýtur.
Ökumaður hins bílsins stansaði og
saman fylltu þeir út skýrslu þar sem
hinn ökumaðurinn skrifaði sjálfur
að hann hefði ekið inn á Þingvalla-
strætið í veg fyrir manninn minn.
Reyndar ætlaði hann fyrst að skrifa
að hann hefði „svínað" fyrir bílinn
en breytti því þannig að hann hefði
ekið í veg fyrir bílinn og undir þetta
skrifaði hann á staðnum.
Síðan gerði hann aðra skýrslu og
gjörbreytti þar framburði sínum.
Segist hvergi hafa komið nærri fyrir
utan það að hann hafi séð í baksýnis-
speglinum hjá sér bíl í snjóskafli og
snúið við til hjálpar.
„Síðan hef ég staðið í baráttu við
tryggingafélag þessa manns sem er
Vátryggingafélag íslands. Lögmaður
þess dæmdi okkur í óhag í máhnu
en viðurkenndi reyndar að hafa ekki
séð undirskriftina á fyrri skýrslunni
og lögmannanefnd tryggingafélag-
anna hefur einnig dæmt okkur í
óhag. Mér finnst furðulegt ef menn
gata hlaupið frá undirrituðum fram-
burði sínum og breytt honum. Þetta
er líkt því og ef ég neitaði að kannast
við mína eigin undirskrift á víxii
þegar komið væri að því að borga
hann,“ sagði Katrín.
„Ég kannast ekki við það að hafa
sagt það við konuna að ég hafi ekki
séð fyrri framburð mannsins. Ég úti-
loka þó ekki þann möguleika að þetta
hafi farið framhjá mér, en hinsvegar
efast ég um að það hefði breytt minni
afstöðu. Úrskurður lögmannanefnd-
ar tryggingafélaganna var á sama
veg, og honum bera tryggingafélögin
að hlýta. En auðvitað getur konan
eins og aðrir leitað réttar síns fyrir
dómstólum ef hún vill ekki una nið-
urstöðu nefndarinnar, slíkr hefur
verið gert" sagði Gunnar Sólnes lög-
maður Vátryggingafélags íslands á
Akureyri.
„Mér finnst niðurstaða lögmanna-
nefndarinnar fáránleg" segir Guð-
mundur L. Helgason starfsmaður
Sjóvá-Almennra á Akureyri, en það
félag tryggði bíl Katrínar og manns
hennar.
„Þetta mál er búið að taka ævin-
týralega langan tíma. Vátryggingafé-
lagið sagðist reyndar ætla að greiða
tjónið en ekkert gekk í þvi máh og
svo fór að lögmaður okkar setti mál-
ið fyrir lögfræðinganefndina. Það
virðist hinsvegar ekkert gildi hafa
hvað skrifað er framan á skýrslu á
vettvangi og það er mergurinn máls-
ins" sagði Guðmundur.
Hjá Vátryggingafélagi íslands á Ak-
ureyri var DV tjáð að félagið yrði að
fara eftir niðurstöðum lögmanna- væri úr sögunni. Þó viðurkenndi lögmaður þess hefði ekki séð fyrri undirritaði sjálfur. „Það er svolítið
nefndarinnar sem þýddi að máhð starfsmaður þar að skrítið væri að framburð ökumannsins sem hann skrítið mál,“ sagði hann.
sinm.
Sláðu til!
- örugg leið
til ávinnings
Öryggisbókin er einkar eftirsóknarverð bók
fyrir þó sem vilja og geta bundið sparifé sitt í
12 mónuði með því öryggi sem góðri ávöxtun
fylgir. Því hærri sem heildarinnstæðan er, því
hærri eru vextirnir. Samanburður við verð-
tryggð kjör og vexti er gerður tvisvar á ári, 30.
júní og 31. desember og sá kostur valinn sem
öryggisbókareigendum er hagstæðari hverju
Sparisjóðirnir hafa ávallt að leiðarljósi að hags-
munir viðskiþtavinanna og sparisjóðanna fari
saman. Öryggisbókin er ávöxtur þessarar stefnu.
n
SPARISJÓÐIRNIR
fyrir þig og þína