Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.1990, Síða 4
4
LAUGARDAGUR 16. JÚNÍ 1990.
Fréttir
Heimsmeistaramótið:
Fimm þúsund ársverk
fyrir framan skjáinn
- 12 möljarða verðmætasköpun 1 súginn
Ef helmingur þjóðarinnar fylgist
með heimsmeistaramótinu í knatt-
spymu má gera ráð fyrir að þjóðin
veiji þannig 5 þúsund ársverkum
fyrir framan skjáinn fram til 8. næsta
mánaðar.
Sjónvarpið sýnir aUs 34 leiki frá
heimsmeistarakeppninni. Til þess að
fylgjast með þeim ölium þarf að eyða
um 68 klukkutímum fyrir framan
skjáinn. Ef gert er ráð fyrir aö helm-
ingur þjóðarinnar horfi á leikina eru
þetta samtals um 8,6 milljónir
kiukkutíma.
Ef menn vinna fullan vinnudag all-
an ársins hring vinna þeir samtals
um 1.950 klukkustundir á ári. Hins
vegar taka menn sér sumarfrí, verða
veikir og auk þess ganga nokkrir
löggiltir frídagar inn í vinnuvikuna.
Að þessu frádregnu standa því eftir
um 1.702 klukkustundir á ári.
Samkvæmt þessu má gera ráð fyrir
að íslenska þjóðin eyði um 5.053
starfsárum í að horfa á heimsmeist-
arakeppnina í knattspyrnu.
Til samanburðar má geta þess að
skráð ársverk í fiskveiðum eru um
6.250.
Ársverk á íslandi eru nálægt 125
þúsund og með þeim tekst þjóðinni
að skapa um 300 milljarða þjóðar-
framleiðslu. Ef hægt væri að beisla
þessa vinnuaflsorku fyrir framan
skjáinn eins og annað vinnuafl væri
þannig hægt að auka þjóðarfram-
leiðsluna um 12 milljarða.
-gse
Ef íslendingum tækist að virkja þá
orku sem fer í sjónvarpsgláp þjóðar-
innar á meðan á heimsmeistara-
keppninni í knattspyrnu stendur
væri hægt að auka þjóðarfram-
leiðsluna um heila 12 milljarða.
Fótboltinn setur
allt á annan
endann
Það hefur víst ekki farið fram hjá Gaukur á Stöng er með slíkar út-
neinum aö heimsmeistarakeppnin sendingar og í Hafharfirði má fara
í fótbolta er i fullum gangi. Fregnir á A, Hansen og fylgjast með á stór-
hafa borist af þvi að heimilislífið um skjá.
hafi hreinlega lagst í rúst og beinist Ölkolla er gjaman höfð við hönd-
gagnrýnin einkum að „æðra“ kyn- ina þvi merm þyrstir vist á stund-
inu. , um sem þessum.
Mikil stemning er viða úti í bæ „Við verðum varir við söluaukn-
þegar útsendingar hefjast og hittast ingu, sérstaklega í bjómum,“ sagði
menn til að veita hverjir öðrum starfsmaður i einni af verslunum
stuðning í æsingnum. í húsakynn- Áfengis- og tóbaksverslunar ríkis-
um félagsheimila knattspyrnufé- ins. ,JÞað eru margir sem hafa það
laganna raun vera setið við sjón- á orði að þeir þurfi að flýta sér
varpsskjáinn og er þar hægt að heim til að horfa á fótboltann og
horfa á þær útsendingar sem ekki salan dettur niður meðan á leik
er boðið upp á hjá Sjónvarpinu. stendur."
Veitingahúsin hafa sum hver flaut- Knattspyrnuáhuginn kemur víða
aö til leiks í þeim tilgangi að auka við og er því næsta víst að margir
þjónustu sína og bjóða afdrep fyrir verða fegnir þegar keppnin er yfir-
þá sem ekki fá að stunda knatt- staöin.
spyrnuáhugann heima hjá sér. -tlt
Könnun DV hjá stórfyrirtækjum 1 gær:
HM-boltinn skapar ekki vandamál
Heimsmeistarakeppnin í knatt-
spymu á ítahu er ekki neitt vanda-
mál á íslenskum vinnustöðum. DV
hringdi í nokkur fyrirtæki í gær
og spurði hvort starfsmenn væru
að skjótast heim úr vinnu til að sjá
leikina beint um miðjan dag eða
hvort starfsmenn bæðu um að hafa
frjálsari vinnutíma meðan á
keppninni stæöi.
„Hér hefur ekki orðið að breyta
vinnutíma manna. Keppnin er ekk-
ert vandamál hér. Raunar hafði
mér ekki dottið í hug að keppnin
gæti skapað vandamál á vinnustöð-
um,“ segir Oddur Gunnarsson,
starfsmannastjóri Sláturfélags
Suðurlands.
Einar Sigurðsson, blaðafulltrúi
Flugleiða, sagði við DV í gær að þar
væri heimsmeistarakeppnin ekk-
ert vandamál enda væri ekki sjón-
varp á staðnum. „Ég veit ekki til
þess að neinn hafi beðið um að fá
frjálsari vinnutíma til þess að geta
farið heim á daginn og horft á fót-
bolta.“
Ari Guðmundsson, starfsmanna-
stjóri Landsbankans: „Það er mikið
talað um heimsmeistarakeppnina
hér í kaffitímum og mér virðist all-
ir fylgjast með keppninni. Það þarf
hins vegar meira til að raska
vinnutíma manna. Það hefur eng-
inn beðið um frjálsari vinnutíma
til að geta horft á beinar útsending-
ar sjónvarpsins um miðjan dag. Og
hér er ekkert sjónvarp á staðnum."
Steindóra Bergþórsdóttir, fulltrúi
í starfsmannadeild Hagvirkis:„Ég
veit ekki um neinn sem byrjar fyrr
að vinna á morgnana til að geta
farið heim fyrr og horft á fótbolt-
ann í sjónvarpinu. Og engir starfs-
menn hafa beðið um frí meðan á
útsendingu stendur. Þetta er ekk-
ert vandamál. Áhuginn á keppn-
inni er engu að síöur mikill og hér
er veðbanki í gangi á meðal starfs-
manna um úrslit leikja.“
Viðar Ólafsson, framkvæmda-
stjóri verkfræðistofu Sigurðar
Thoroddsen, en þar hafa starfs-
menn mun fijálsari vinnutíma en
hjá stórfyrirtækjum, sagði í gær að
keppnin væri ekkert vandamál á
þeim bæ. „Ég held frekar að hún
hafi jákvæð áhrif. Menn tala hér
mikið um úrsht einstakra leikja og
það virðast flestir fylgjast með
keppninni. En hér er ekki sjón-
varpstæki á staðnum."
-JGH
\
Borgaryfirvöld hafna beiðni Grafarvogsbúa um sorpið:
Málið er greinilega tapað
„Það hggur Ijóst fyrir að ekki Aðalrök borgaryfirvalda eru þau Framkvæmdir sjálfar héldu áfram
verður tekiö tilht til viJja íbúanna að mótmæhn hafi komið of seint og það var ekki verið að bíða neitt
í þessu máli. Það er erfitt að sjá að fram og að þegar sé búið að verja með þær,“ sagði Hreiðar.
nokkuð sé til ráöa úr þessu, máhð um 190 milljónum króna í fram- Hreíðar sagði að íbúarnir færu
er greinilega tapað,“ sagði Hreiðar kvæmdirnar. tæpast út í að kæra málið en þeir
Sigtryggsson, varaformaður íbúa- „Þaö er ljóst aö þær viðræður, ætluöu hins vegar aö gera þá kröfu
samtaka Grafarvogs. Greinilegt er sem nefhd borgarinnar stóð að, aðeftirlitmeösorpbílumyrðibetra
aðbaráttaþeirragegnstaðsetningu voru frekar marklausar. Það var en hingað til og að tryggt yrði að
móttöku- og böggunarstöðvar fyrir greinilegt að það var bara í tengsl- einkabílar væru ekki að keyra
sorp í Gufunesi er töpuð. Endanleg um við kosningamar að þessi þarna i gegn með sorp.
höfnun borgaryfirvalda á kröfu nefnd var skipuð og því um hálf- -SMJ
þeirra kom síöan í gær. gerða sýndarmennsku aö ræða.
Eigandi vannærðu hestanna segist hafa selt þá: „
Nýr eigandi yrði kærður í staðinn
staðinn," sagði Sigríður Ásgeirsdótt-
ir, lögfræðingur Dýraverndunar-
sambandsins, í samtah við DV.
Til stóð að bjóða upp 10 hesta Sig-
ríðar Stefánsdóttur síðastliðinn
fimmtudag vegna þess að hún hefði
svelt hrossin. Hætt var við uppboðið
en á uppboðsstað mætti umboðsmað-
ur nýrra eigenda en nú er komið
fram í málinu að Sigríður seldi hross-
in í mars síðastliönum og hefur því
ekki verið eigandi þeirra í nokkra
mánuði.
„Eigendamálin eru sem stendur
óútkljáð," sagði Sigríður Ásgeirs-
dóttir, „en það eru dýrin fyrst og
fremst sem við höfum áhyggjur af. A
meðan þau eru ekki í ásigkomulagi
til að vera flutt út um hvippinn og
hvappinn og álitinn eigandi hefur
ekki verið sviptur heimild til að hafa
dýr gerum við ekkert."
Til stendur að halda uppboðið á
að fylgjast með en ekkert varð úr uppboöinu að þessu sinni. Það fer ekki hestunum næstkomandi þriðjudag
hjá því að lesa megi úr svip viðstaddra að hrossin eigi samúð þeirra. klukkan 18.00. -RóG.
„Ef þessi kona reynist ekki vera eig- ósköp einfalt mál. Sá sem keypt hefur
andi hestanna frá því í mars er það hrossin verður þá bara kæröur í
Frá uppboðsstað í Hafnarfirði á fimmtudag. Fjöldi fólks mætti á staðinn til
Réttarhöldin yfir Jósafat og félögum:
Voru leiddir í gildru
- af bankanum og lögreglunni
Aíreð Böðvaisson, DV, London:
Á þriðja degi réttarhaldanna yfir
Jósafat Amgrímssyni og félögum
hans kom Jerome Lim fram með þau
skjöl sem hann hafði verið beöinn
um. Lögfræðingar sakborninganna
fengu þaö staðfest hjá saksóknaran-
um að tyrknesku bankastjóramir
tveir væru komnir til Bretlands og
mæta þeir líklega fyrir rétti. Eftir að
Lim hafði skrifað undir sinn vitnis-
burð voru leidd fram tvö vitni frá
National Westminster bankanum.
Ung kona, Julia Mithcell, starfsmað-
ur víxladeildar bankans, staðfesti að
hún hefði haft með mál Handa að
gera þegar hann var að reyna að fá
bankann til þess að kaupa víxlana.
Hann sendi henni faxmyndir af víxl-
unum tveim þann þrettánda sept-
ember og hún reyndi að finna afrit
af eiginhandaráritunum tyrknesku
bankastjóranna í National Westm-
inster bankanum en án árangurs.
Hún hafði því samband við útibú
tyrkneska bankans í London og þaö
leiddi til þess aö lögreglan var kölluð
til.
Ekki er ljóst hvort yfirmaður úti-
bús tyrkneska bankans, Bemard
Cerr, kallaði lögregluna til en Julia
Mitchell sagðist ekki hafa gert það.
Daginn eftir, þann 14. september, bað
lögreglan hana um aö koma á fundi
með Handa í bankanum í því skyni
að fá hann til þess að koma með víxl-
ana. Fundinn átti að taka upp á
myndband án vitundar Handa.
Handa koma á þennan fund þann 15.
september og var handtekinn að hon-
um loknum.
Lögfræðingur Handa þjarmaöi
aUóþyrmilega að Juliu Mitchell.
Hann staðfesti hjá henni að hún hafði
aðeins unniö í víxladeildinni í fimm
mánuði þegar þetta gerðist. Og þrátt
fyrir að henni hefði fundist víxlarnir
grunsamlegir gerði hún ekkert til
þess að grafast fyrir um þá aðila sem
vom á þeim. Hún staöfesti einnig að
National Westminster bankinn hefði
aldrei keypt þessa víxla án þess að
hafa annan kaupanda en Handa.
Yfirmaður víxladeildar National
Westminster bankans, Peter Swift,
var því næst kallaður í vitnastúkuna
og hann sagði að hann hefði fyrst
heyrt um Handa um tvöleytið þann
14. september frá Juliu Mithcell.
Hann heimilaði að haft væri sam-
band við útibú tyrkneska bankans í
London og eftir aö hafa talað við úti-
bússtjórann og lögregluna sagði
hann Juliu að koma fundinum á með
Handa. Kom fram að í upphafi fund-
arins minntist Handa á að víxillinn
útgefinn í Hong Kong væri til þess
að fjármagna kaup á tölvubúnaði
sem ætti að flytja inn til Kína og
hann var með talsvert af skjölum
varðandi skreiðarinnflutninginn.
Þegar hér er komið sögu eru mál
ekkert farin að skýrast að ráði en þó
er komiö fram að einhverjir ónefndir
tyrkneskir bankastarfsmenn hafi
gert sig seka um að fara út fyrir sitt
valdsvið. Það lítur einnig út fyrir að
Bernard Cerr, útibússtjóri tyrkneska
bankans í London, hafi átt upptökin
að því aö Handa var handtekinn
ásamt hinum íjórum sakborningun-
um. Hvort tyrknesku bankastjórarn-
ir eru þessir ónefndu bankastarfs-
menn ætti að koma í ljós á næstu
dögum og þá ættu mál að fara að
skýrast betur.