Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.1990, Side 6
6
LAUGARDAGUR 16. JÚNÍ 1990.
Uflönd
Trump f
kröggum
Trurap-fyrirtækið, sem er í eigu
railljarðamæringsins Donald
Trump, á í fjárhagserfiðleikum.
Öllum að óvörum tilkynntu for-
ráöamenn fyrirtækisins í gær aö
það gæti ekki staöið í skilum með
allar íjárskuldbindingar sínar.
Hér er um aö ræða tuttugu millj-
ón dollara greiðslu lána vegna
Trump-hótelsíns og spilavítis í
eigu sama fyrirtækis. Gjalddagi
lánanna var í gær en eindagi efdr
þijátíu daga. Yfirlýsihgin i gær
þykir sýna að lausafjárstaöa
Trump-fýrirtækisins er mun
verri en taiið hefur verið til
þessa.
Trump byggði upp veidi sitt á
níunda áratugnum og hefur æ
síöan þótt með litskrúöugri kaup-
sýslumönnum vestanhafs. Hann
er meðal annars eigandi Plaza-
hóteisins í New York, auk Trump
Tower sem talin er ein nútfma-
legasta bygging þar í borg. Eigur
hans voru eitt sinn metnar - af
honum sjálfum - á allt að þijá
milijarða dollara eða sem svarar
til hundraö og áttatiu milfjarða
íslenskra króna.
Trump hefur átt í viöræðum við
bankamenn sfðustu daga til að
afla lausafjár. Þrátt fyrir það
bjuggust fjármálamenn ekki við
aö hann rayndi lenda í fjárhags-
erfiöleikum svo fijótt sem raun
barvitni. Reuter
Sovétrflön:
Skýra Finnum
frá fimmtán ára
gömlu kjarn-
orkusiysi
Sovésk stjómvöld hafa skýrt
Finnum frá alvarlegu kjamorku-
slysi sem varð í kjamorkuveri i
Leningrad áriö 1975 aö því er
fmnsk yfirvöld skýrðu frá í gær.
Landamæri Finnlands og Sovét-
ríkjanna liggja nærri Leningrad
og hafa þessi tvö ríki gert með sér
samning um að hvor þjóðin skýri
hinni frá kjamorkuslysum er
verða innan landamæra þeirra.
Ekki hefur áöur verið skýrt frá
þessu slysi.
Kjamaofninn í umræddu veri
er sams konar og var í Tsjemo-
byl-kjamorkuverinu þar sem
sprenging varð árið 1986 meö
þeim afleiðingum aö geislavirkni
barst víða um Evrópu. Sam-
kvæmt upplýsingum geislavama
Finnlands varö bilun í kjarnaofn-
inum í Leningrad-verinu árið
1975 og í kjölfarið varð vart
geislavirkni í andrúmsloftinu. Á
þeim tíma var finnskum yfirvöld-
um sagt aö engra aðgerða væri
þörf til að vetja umhverfiö og var
starfeemí hafin að nýju í verinu
tveimur vikum eftir slysið.
Reuter
Herskáir námamenn í Rúmeníu neyða einn mótmælanda inn í bifreið á háskóiatorginu i Búkarest.
Símamynd Reuter
Námumennirnir
yfirgefa Búkarest
Þúsundir rúmenskra námumanna
yfirgáfu Búkarest, höfuðborg Rúme-
níu, síðdegis í gær eftir rúmlega
tvegga sólarhringa róstur í miðborg-
inni. Fyrr um daginn gengu þeir um
götur borgarinnar vopnaðir kylfum,
tvístruðu hópum fólks sem á vegi
þeirra urðu og hrópuðu slagorð til
stuðnings stjóm Iliescu forseta. En í
gærdag skýrði talsmaður stjómvalda
frá því að allir námumennimir hefðu
snúið aftur til síns heima.
Um tíu þúsund námumenn frá
kolanámuhéruðum Rúmeníu höiðu
verið í borginni frá því á miðvikudag
er Iliescu hvatti þá til að koma og
„kveða niður fasísk öíl sem hygðu á
byltingu". Námamennirnir komu
eftir að lögregla hafði lagt til atlögu
gegn mótmælendum sem hafst höfðu
við á háskólatorginu vikum saman
tii að mótmæla stjóm Þjóðfrelsis-
hreyfingarinnar sem verið hefur við
völd frá því að harðstjóranum Ceau-
sescu var steypt af stóli í desember
í fyrra. Mótmælendumir segja að í
stjóminni sitji kommúnistar engu
betri en Ceausecsu.
Sjónarvottar hafa skýrt frá því að
námumennirnir hafi barið á mót-
mælendum í borginni. Að minnsta
kosti fimm hafa látið lífið í róstum í
Búkarest í þessari viku og rúmlega
eitt hundraö slasast. Leiðtogar
stjórnarandstöðunnar segja að heim-
ilum þeirra hafi verið umturnað og
að ráðist hafi verið á fulltrúa þeirra.
Vesturlönd hafa harðlega gagnrýnt
stjómvöld í Rúmeníu fyrir árásirnar
á mótmælendur. Líklegt er að Evr-
ópubandalagið fresti undirritun við-
skipta- og samstarfssáttmála við
Rúmeníu vegna ofheldisins.
Reuter
Afvopnunarmál:
Nato hafnar nýjum
tillögum Sovétmanna
Sovétríkin hafa lagt til að hafnar
verði viðræður um útrýmingu allra
skammdrægra kjamorkuvopna í
Evrópu í haust en að sögn talsmanns
Nato, Atlantshafsbandalagsins,
hafnaði bandalagið þeirri tillögu í
gær. Talsmaðurinn sagði þó aö leið-
togar Nato myndu ræða þessa tillögu
á fyrirhuguðum fundi þeirra í Lon-
don í næsta mánuði. Sovétmenn hafa
áður sagst vilja útrýmingu allra
skammdrægra kjamorkuvopna í
Evrópu.
Talsmaðurinn sagði aðfidarríki
Nato reiðubúin til aö hefja viöræður
um fækkun skammdrægu vopnanna
en einungis í kjölfar undirritunar
sáttmála um fækkun hefðbundinna
vopna í Evrópu en þær viðræður fara
nú fram í Vínarborg. Vonir standa
til að slíkur sáttmáli liggi fyrir síðar
á þessu ári. „Slík er og verður af-
staða Nato,“ sagði talsmaðurinn.
Heimildarmenn segja að þessar til-
lögur Sovétmanna hafi verið lagðar
fram í Bandaríkjunum en það em
einmitt Bandaríkin sem leggja til
skammdræg kjamorkuvopn - sem
draga innan viö 500 kílómetra - hins
vestræna bandalags á meginlandinu.
Sovétmenn vilja aðskilja viöræður
um skammdrægu vopnin frá viðræð-
um um hefðbundnu vopnin og vilja
aö hafnar verði viðræður um fyrr-
nefndu vopnin í september eða okt-
óher næskomandi óháð því hver
staða Vínar-viðræðnanna verður.
Talsmaður sendinefndar Banda-
ríkjanna hjá Nato í Brussel segir að
Sovétríkin hafi mikla yfirburði hvað
skammdrægu vopnin varðar. Banda-
lagið, sem sérfræðingar telja að hafi
á að skipa 3.500 skammdrægum
kjamaoddum í Evrópu, segir að fjöldi
skammdrægra kjamorkuvopna Sov-
étríkjanna í Evrópu sé fjórtánfalt á
við sams.konar vopn Nato.
Reuter
Aðferöir, áherslur ^
og árangur!
Vorþing
Kvennalistans veröur 22.-24. júní
í Gardalundi, Garöabœ.
Kvennabarátta á krossgötum?
Komiö og takiö þátt í spennandi umrœöu.
Skráning í síma 91-13725
Kvennalistinn
Dalai Lama
boðið til
Grænlands
Heimastjórnin á Grænlandi hefur
ákveðiö að bjóða Dalai Lama, andleg-
um leiðtoga Tíhets, til Grænlands.
Talsmaður Siumutflokksins á Græn-
landi, Hans-Pavia Rosing, segir þó
viss vandkvæöi fylgja heimboðinu
sem vist þykir að verði umdeilt.
Rosing á þar við þá staöreynd að
danska utanríkisráöuneytið hafi af
tillitssemi við kínversk yfirvöld ekki
boðið Dalai Lama til Danmerkur í
opinbera heimsókn, jafnvel ekki eftir
aö hann hlaut friðarverðlaun Nóbels
í desember i fyrra.
Ritzau
Rússland:
Nýr for-
sætisráð-
henra
Rússneska þingiö kaus i gær
umbótasinnann og miðjumann-
inn Ivan Silayev forsætisráð-
herra þessa sovéska lýöveldis.
Silayev hlaut alls 163 atkvæði af
239 í síðari umferð kosnmganna
en í þeirri fyrri hlaut enginn
frambjóðenda til embættisins
fneirihluta atkvæða eins og þurfti
til að ná kosningu.
Helsti keppinautur Silayevs um
embættið, Mikhail Bocharov,
hlaut aðeins rúmlega áttatíu at-
kvæði í fyrri umferð. Litið er á
þaö sem ósigur fyrir Boris Jelts-
in, nýkjörinn forseta Rússlands,
en Bocharov er mikill stuörúngs-
maður forsetans.
Silayev hefur lýst því yfir að
hann sé hlynntur því að mark-
aðshagkerfi verði innieitt í Sovét-
ríkjunum hægt og sígandi.
Reuter
Peningamarkaður
INNLÁNSVEXTIR (%) hæst
Innlán óverðtryggð
Sparisjóösbækur ób. 3,0 Allir
Sparireikningar
3jamán.uppsögn 3-4 Ib.Sb,- Sp
6mán.uppsögn 4-5 Ib.Sb
12mán. uppsögn 4-5,5 lb
18mán. uppsögr. 11 Ib
Tékkareikningar, alm. 0,5-1 Allir nema Ib
Sértékkareikningar 3,0 Allir
Innlán verðtryggð Sparireikningar
3ja mán. uppsögn 1,5 Allir
6 mán. uppsögn 2.5-3.0 Lb.Bb,- Sb
Innlán meðsérkjörum 2,5-3,25 Ib
Innlángengistryggð
Bandaríkjadalir 7-7,25 Lb.Sb
Sterlingspund 13,6-14,25 Sb
Vestur-þýskmörk 6,75-7,5 Lb
Danskarkrónur 9,25-10,75 Sb
ÚTLÁNSVEXTIR (%) lægst
Útlán óverðtryggð
Almennirvíxlar(forv.) 13,5-13,75 Bb.Sb
Viðskiptavixlar(forv-) (1) kaupgengi
Almennskuldabréf 14,0 Allir
Viðskiptaskuldabréf(1) kaupgengi Allir
. Hlaupareikningar(vfirdr.) 16,5-17,5 Bb
Utlan verðtryggð
. Skuldabréf 7.5-8.25 Lb.Bb
Utlántilframleiðslu
Isl. krónur 13,75-14,25 Bb
SDR 10,75-11 Bb
Bandaríkjadalir 10,10-10,25 Bb
Sterlingspund 16,8-17 Sp
Vestur-þýsk mörk 9,9-10,5 4,0 Bb
Húsnæðislán
Lifeyrissjóðslán 5-9
Dráttarvextir 23,0
MEÐALVEXTIR
óverðtr. júni 90 14.0
Verðtr. júní 90 7.9
VÍSITÖLUR
Lánskjaravisitalajúni 2887 stig
Lánskjaravísitala maí 2873 stig
Byggingavísitala júní 545 stig
Byggingavisitala júní 170,3 stig
Húsaleiguvísitala 1,8% hækkaði 1. april.
VERÐBRÉFASJÓÐIR
Gengi bréfa verðbréfasjóða
Einingabréf 1 4,915
Einingabréf 2 2,683
Einingabréf 3 3,239
Skammtímabréf 1,665
Lifeyrisbréf 2,471
Gengisbréf 2,143
Kjarabréf 4,876
Markbréf 2,590
Tekjubréf 1,995
Skyndibréf 1,458
Fjölþjóðabréf 1,270
Sjóðsbréf 1 2,365
Sjóðsbréf 2 1,741
Sjóðsbréf 3 1,651
Sjóðsbréf 4 1,402
Vaxtasjóösbréf 1,6680
Valsjóösbréf 1,5700
HLUTABRÉF
Söluverð að lokinni jöfnun m.v. 100 nafnv.:
Sjóvá-Almennar hf. 650 kr.
Eimskip 420 kr.
Flugleiðir 168 kr.
Hampiðjan 159 kr.
Hlutabréfasjóður 180 kr.
Eignfél. lönaðarb. 159 kr.
Skagstrendingur hf. 367 kr.
Islandsbanki hf. 155 kr.
Eignfél. Verslunarb. 126 kr.
Olíufélagiö hf. 449 kr.
Grandi hf. 166 kr.
Tollvörugeymslan hf. 105 kr.
Skeljungur hf. 441 kr.
(1) Við kaup á viðskiptavixlum og við-
skiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja
aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi,
kge. '
Skammstafanir: Ab = Alþýðubankinn,
Bb= Búnaðarbankinn, lb = Iðnaðarbank-
inn, Lb = Landsbankinn, Sb = Samvinnu-
bankinn, Úb= Útvegsbankinn, Vb =
Verslunarbankinn, Sp = Sparisjóðirnir.
Nánari upplýsingar um peningamarkað-
inn birtast i DV á fimmtudögum.