Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.1990, Qupperneq 15

Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.1990, Qupperneq 15
LAUGARDAGUR 16. JÚNÍ 1990. 15 Einu sinni var ég formaður þjóð- hátíðarnefndar. Það var fyrir margt löngu og eiginlega í minu ungdæmi. Ég skil það reyndar ekki ennþá hvers vegna mér hlotnaðist sú virðingarstaða enda var þjóð- hátíðardagurinn alvaran uppmál- uð og ekki á færi neinna aukvisa að koma þeirri alvöru til skila. Það þarf hátíðlega menn til að halda hátíð. Enda þótt mér sé ýmislegt til lista lagt hef ég aldrei komist upp á lag með það að vera nægilega hátíðlegur. Svoleiðis hæfileikar koma hins vegar með árunum og reynslunni og þess vegna eiga for- menn þjóðhátíða að veljast eftir aldri. Kannske er sá háttur hafður á í seinni tíð án þess að ég viti það gjörla. Ég fékk nefnilega nóg af hátíðarstandinu meðan ég var ung- ur enn, sagði af mér formennsk- unni og hef að mestu getað látið sautjánda júní framhjá mér fara eins og obbinn af íslendingum. En því er ég að rifja upp þessa tignarstöðu mína að merkilegasta og raunhæfasta niðurstaða mín af formennsku minni í þjóðhátíðar- nefnd var tvímælalaust sú að sautj- ánda júní væri á vitlausum tíma ársins. Það er alltaf bandbrjálað veður þennan dag. Ausandi rigning ellegar norðan garri og öll bátíðar- höld fara meira og minna út um þúfur í þessu veðravíti. Man ein- hver eftir góðu veðri á þjóðhátíð? Einu sinni þurftum við meira að segja að fresta þjóðhátíðinni vegna óveðurs! Þjóðleg dagskrá En hvort heldur þjóðin tók þátt í hátíðarhöldunum eða sat hana af sér vegna veðurs urðu nefndar- menn og fyrirmenn að sinna skyldu sinni og heiðra sautjánda júní með nærveru sinni. Formað- urinn þarf að mæta og forsetinn þarf að mæta og það verður að efna til ávarpa og skemmtunar hvort sem aðrir eru mættir eða ekki. Kardemommubærinn var fastur liður á dagskrá. Viö ákváðum að gera Laugardal- inn í Reykjavík að hátíðarsvæði. Ég gerðist svo frægur að fylgja tveim forsetum á vettvang. Fyrst Ásgeiri Ásgeirssyni, síðan Krist- jáni Eldjárn. Það var mikil lífs- reynsla. Ekki vegna forsetanna, sem báðir voru höfðingjar í sjón Á , ■ Ameríkanar feitir,' Spánverjar ómenntaðir. Danir eru Danir. Það er vond lykt af svertingjum, vondur matur á Ítalíu, dýrt í Lon- don. Evrópubandalagið er okkur óvinveitt vegna þess aö það gengur ekki að kröfum okkar og alls staðar í útlöndum má fmna fólk sem hefur ekki hugmynd um þetta merkilega land og þessa yfirburða þjóð. Ég var alinn upp við þá þjóðtrú að ís- lendingasögurnar væru mestu ger- semi ritaðs máls i heiminum. Rembingurinn Nú er þaö svo að þjóðarrembing- ur er annað en þjóðarmetnaður. Rembingur stafar annars vegar af vanmáttarkennd og hins vegar af stórmennsku. Hér er ég, í nafla al- heims, þarna úti eru allir hinir. Við erum ekki einir um þetta, íslend- ingar, alls staðar má finna remb- inginn og fordómana gagnvart öðr- um þjóðum. Styrjaldir hafa allar verið háðar í nafni þjóðarremb- ings, í krafti þeirrar innrætingar að herraþjóðin eigi að drottna yfir öðrum. Nú eru þjóðirnar hættar að berj- ast á vígvöllunum en þær berjast á leikvellinum og ég býð ekki í remb- inginn og stærilætið þegar nýir heimsmeistarar veröa krýndir í fótboltanum. Sú þróun, sem átt hefur sér stað í Evrópu að undanfornu með Evr- ópubandalaginu, breytingunum í Austur-Evrópu og falli Berlínar- múrsins, er ánægjulegust fyrir þær sakir að landamærin opnast og kynni ólíkra þjóðstofna fara vax- andi. Óprúttnir þjóðarleiðtogar geta síður höfðaö til fordóma gagn- vart öðrum þjóðum þegar hinn óbreytti almúgi hefur kynnst því af eigin raun að almúginn hinum megin landamæranna er sams kon- ar almúgi og í götunni heima. Fólki verður ekki lengur att út í villi- mannslegt blóðbað í nafni konungs eða fóðurlands. í eigin landi Á hinn bóginn er þjóðlegur metn- aður af hinu góða. Metnaðurinn felst í ræktun menningar og tungu, virðingu fyrir fortíðinni, ástinni á átthögunum. Þjóðin á landið og þjóðin á að halda sjálfstæði sínu. Þjóð fmnur til samkenndar og f samfélagi þjódanna og raun, heldur vegna þeirrar veðr- áttu sem heilsaði upp á þá og eyði- lagði fyrir mér daginn. I þá daga voru menn þjóðlegir. íslensk skyldi hún vera dagskráin og við fengum Bergstein Jónsson til að semja fyrir okkur leikþátt um Fjölnismenn og tróðum upp með þetta leikatriði á bakka Laugar- dalssundlaugarinnar. Ég hef víst sagt þá sögu áður og segi hana enn að þegar Gunnar Eyjólfsson hóf upp raust sína í nafni Jónasar Hall- grímssonar sátum við næsta einir, ég og Ásgeir forseti, uppi í stúk- unni meðan rigningin buldi á vöng- um okkar og rokið hvæsti í fánun- um sem þöndust út og strekktust af heilagri ættjarðarást. Endur- vaktir Fjölnismennirnir töluðu fyr- ir tómu húsi. Það er sennilega í eina skiptið sem samtals tveir áhorfendur hafa sest í þá glæsilegu stúku sem aö öðru leyti er notuð fyrir sólbaðs- dýrkendur. Þeir eiga skilið bjart- sýnisverðlaun, mennirnir sem stóðu fyrir þessari stúkubyggingu við sundlaugina. Eða þá að hún hefur verið hönnuð af fyrirhyggju þeirra sem vænta gróðurhúsa- áhrifanna á næstu öld þegar ísland verður komið í hitabeltið! Ekki er ráð nema í tíma sé tekið. Kardemommu- bærinn Næsta ár var Kristján Eldjárn orðinn forseti og aftur var forset- inn leiddur um Laugardalinn og aftur rigndi eldi og brennisteini. Það var sjón að sjá okkur, fyrir- menn þjóðarinnar, þegar við óðum drullupollana og moldarleðjuna upp í ökla í þágu fóðurlandsins. Og það með sendiherra erlendra ríkja í eftirdragi sem voru klæddir og skóaðir á diplómatíska vísu vegna þess þeir héldu að íslensk þjóðhátíð færi fram í mannsæm- andi umhverfi. Árið eftir voru nokkrir gangstígar malbikaðir en þá var ég líka hættur að vera fyrir- menni. Það var sem sagt mikið á sig lagt til að halda þjóðhátíð í þá daga og enginn æðraðist og allir héldu heilsu. Hann er hins vegar ekki hættur að rigna og sautjándi júní er enn á vitlausum stað í dagatal- inu. íslendingar verða að klæða sig vel ef þeir ætla að halda þjóðhátíð. Nú er reyndar búið að flytja há- tíðina í Reykjavík aftur niður í gamla miðbæ og í Laugardalnum er búið að koma fyrir húsdýrum til að æskan geti kynnt áér þjóðhætti og tífibrauð þeirrar þjóðar sem hún tilheyrir. En eftir situr minningin um veðurbaröa Fjölnismenn og ýlfrandi hátalara á laugarbarmin- um og gegnsósa forseta sem stóð sína pligt með þrdutseigju. Blessuð sé minning hans. Nýjar kynslóðir og nýr forseti eru komin til skjalanna og börnin eru áfram leidd í skrúðgöngur og Halli og Laddi skemmta íslendingum meðan hlé er gert á Kardemommu- bænum. Alveg er ég þó viss um að Laugardags- pistLll Ellert B. Schram Kardemommubærinn á eftir að skjóta upp koltínum aftur á þjóð- hátíð því ekkert atriði er vinsælla þegar þjóðin er að minnast fortíðar sinnar og sjálfstæðis. Við búum jú í einum allsherj arkardemommubæ þegar á allt er litið. Sorgarmarsinn En þegar skrúðgöngunum, blöðrunum og pylsunum sleppir, hvað situr þá eftir af þjóðhátíðinni? Hvar er þjóðarmetnaðurinn og þjóðræknin? Löngu áður en sautj- ándi júní var fundinn upp logaði ættjarðarástin í brjóstum þessarar þjóðar. Skáldin ortu ástarljóð til fósturjarðarinnar og harðgerðustu mönnum vöknaði um augu þegar þeir komu heim í heiðardalinn. Stjórnmálamenn eyddu allri orku sinni í sjálfstæðisbaráttu á þingi og ungir menn tefldu lífi sínu í hættu í þágu þjóðfánans. Jón Ólafs- son varð þjóðhetja af því að yrkja níðvísur um danska kónginn og Danahatrið sameinaði þjóðina sem einn mann. Á þjóðfundum komu skörungarnir og héldu brennandi ræður um land og syni og hlíðin var svo fögur að þeir fóru hvergi. Núna étum við pylsur þegar þjóð- söngurinn er leikinn. Já það er þetta með þjóðsönginn. Hann er fallegur sálmurinn hans Matthíasar en hver er fær um að syngja lagið og textann? Þjóðsöng- urinn hljómar eins og sorgarmars og dregur svo seiminn að einn dag- ur veröur sem þúsund ár. Ó, guð vors lands kemst aldrei í söngv- abækurnar. Ég hef eiginlega aldrei heyrt eða séö þessa þjóö mína sameinast nema þegar íþróttasigrar eru ann- ars vegar. Þá tryllast menn af fögn- uði og stolti og láta eins og heims- meistarar. Og svo má auðvitað ekki gleyma því að íslendingar samein- ast til sólarlanda og halda hópinn eins og mest þeir mega og eru allra karla kaldastir og hávaðasamastir innan um hina útlendu barbara. íslendingar hafa nefnilega tileink- að sér þann sið að líta niöur til annarra þjóða og eru algjörlega sannfærðir um þá skoðun að þeir séu mestir og bestir. Svíar eru montnir, Þjóðvetjar hrokafullir, stolts ef því er að Skipta og hún hefur sameiginlega þöif og skyldu til að búa vel að þegnum sínum og samborgurum. Ekki til að ganga á rétt annarra heldur til að gæta sinna eigin réttinda og þess arfs sem þjóðernið felur í sér. Sjálfstæð- isbarátta Eystrasaltsríkjanna er af þessum toga og tilgangur Evrópu- bandalagsins heldur og þessar grundvallarskyldur í heiðri. í þess- um skilningi eru atburðir síðustu missera jákvæðustu sporin í átt til friðar og samskipta þjóða og þjóð- arbrota í gervallri mannkynssög- unni. Sautjándi júní er dagur íslensku þjóðarinnar, jafnvel þótt þjóðin sitji heima vegna veðurs. Jafnvel þótt öllum leiðist undir ræðuhöld- unum og þjóðsöngnum. Þjóðhátíð er ekki haldin til að æsa upp í okk- ur þjóðarhrokann eða egna okkur til útihátíða til að bíta í skjaldar- rendur. íslendingar eru ekkert merkilegri en aðrar þjóðir og við verðum aldrei heimsmeistarar. En hátíðisdagurinn minnir okkur ís- lendinga á þá skyldu og þann metn- að sem felst í þeirri blessun að fá að lifa frjáls í eigin landi. Þaö eru verðmætin sem okkur eru gefin. Skyldan og metnaðurinn felast í því að varðveita þau verðmæti í samfélagi þjóðanna. Ekki með ein- angrun eða ótta við aðra heldur í takt við þá þróun að allar þjóðir geta starfað saman og haldið sjálf- stæði sínu ef þær rækta sinn eigin garð. Jafnvel þótt hann rigni. Ellert B. Schram

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.