Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.1990, Side 16
16
LAUGARDAGUR 16. JÚNÍ 1990.
Skák
Að loknu heimsmeistaramóti
stúdenta í Reykjavík 1957 flúði ung-
verski stórmeistarinn Pal Benkö
heimaland sitt og settist að í Banda-
ríkjunum. Tveimur árum síðar
komst hann aftur í sviðsljósið hér
heima er hann tefldi á áskorenda-
mótinu í Júgóslavíu - ásamt Friö-
riki Ólafssyni.
Benkö hefur teflt lítið í seinni tíð
og getur ekki af miklum afrekum
státað. Skákþrautir og tafllok hafa
á hinn bóginn átt hug hans allan.
Sjálfur er Benkö leikinn taflloka-
smiður og þykir því að vonum
slunginn í endatöflum en hann hef-
ur gjarnan verið bandarísku
ólympíuskáksveitinni til aðstoðar
við biðskákarannsóknir.
Nýverið birtist grein eftir Benkö
í bandaríska skákritinu Inside
Chess, þar sem hann fjallar um
skákþrautir og tafllok heimsmeist-
aranna í skák en þeir hafa margir
gert sér það til dundurs að fóndra
við þær smíðar. Benkö gagnrýnir
margar þessara þrauta góðlátlega
með augum sérfræðingsins og gerir
sér að leik að endurbæta þær sum-
ar. í greininni segir Benkö að mörg
þessara taflloka hafi það eitt sér til
ágætis að heimsmeistari bjó þau
til. Önnur dæmi eru þó býsna
skemmtileg og er nú rétt að líta á
sýnishom.
Benkö byrjar á einfaldri þraut
eftir fyrsta opinbera heimsmeistar-
inn, Wilhelm Steinitz, sem er samin
1880. Hvítur leikur og vinnur:
1. h7+ Kg7 2. h8=D + ! Kxh8 3. Kf7
Hf2+ 4. Bf6+ Ekki 4. Bxf2?? og
svartur er patt. 4. - Hxf6+ 5. KxfB
Kg8 6. g7 og vinnur.
Þetta er einfold og snotur þraut
en Benkö segir að nú á dögum séu
tafllok yfirleitt flóknari. Hundrað
Vassiiy Smyslov, heimsmeistari 1957-58, samdi mörg falleg tafllok.
Þá var bent á vinningsleið fyrir
hvítan: 1. Hfl! Hd5 2. d8 = D Hxd8 +
3. Kxd8 Kc5 4. Hbl b4 5. Kc7 Kb5
6. Kb7! Kc4 (eða 6. - Ka4 7. Kc6) 7.
Ka6 og vinnur. Tahð var að hvítur
gæti ekki unnið með hrókinn á d2,
eins og á stöðumyndinni, t.d. 1. Hf2
Hd4 2. d8 = D Hxd8+ 3. Kxd8 Kc5
4. Kc7 b4 5. Hb2 Kc4 6. Kb6 Kc3
o.s.frv. En Botvinnik fann vinn-
ingsleið:
1. d8=D Hxd8+ 2. Kxd8 Kc5 3. Hb7!
b4 4. Kc7 Kc4 5. Kb6! b3 6. Ka5 Kc3
7. Ka4 b2 8. Ka3 og vinnur.
Fyrir þessi tafllok fékk Botvinnik
fjórðu verðlaun ritsins Skák í Sov-
étríkjunum en Benkö telur þó
ýmislegt mega lagfæra. Þetta er
hans útgáfa, hvítur leikur og vinn-
1. Hfa! Hel 2. Kf7! 2. Kf8 Kb5! leiðir
einungis til jafnteflis. 2. - Kd7 3.
Hd5 + Kc6 4. Hdl! He4 5. e8=D Hxe8
6. Kxe8 c4 7. Ke7 Kc5 8. Ke6 c3 9.
Ke5 Kc4 10. Ke4 c2 11. Hcl Kc3 12.
Ke3 og vinnur.
Skák
Jón L. Árnason
Síðari tíma heimsmeistarar hafa
ekki fengist við tafllokasmíð svo
að vitað sé. Síðasti móhíkaninn var
Vassily Smyslov en ekki verður
skilið svo við skákþrautir heims-
meistaranna að ekki sé minnst á
þrautir hans. Hér er ein frá 1976
sem birtist m.a. í einvígisblaðinu
Benkö og tafllok
heimsmeistaranna
árum síðar bjó Benkö til nútíma-
legri þraut úr efniviö Steinitz. Nú á
hvitur leikinn og á að halda jafntefli:
1. Hd4!
Aðrir leikir tapa, t.d. 1. Hh8? Kf2
og vinnur en besta tilraunin er 1.
Kgl og þá þarf svartur að vanda
sig. Eftir 1. - Bh5 2. Hh8 h2 + 3. Kg2
hl=D + ! o.s.frv. vinnur svartur
sbr, þraut Steinitz. Eða 2. Hf8 h2 +
3. Kg2 Bf3+! 4. Hxf3 hl = D+ og
vinnur. Hins vegar getur hvítur
reynt 3. Khl!, því að 3. - Bf3+ 4.
Hxf3 Kxf3 er patt og jafntefli.
Eftir 1. Kgl leikur svartm- betur
1. - h2+ 2. Khl Bg6 3. Hd4 Ke3 og
næst 4. - Be4+ og vinnur.
1. - Bh5 2. Hh4 Kf2 3. Hg4! g2+ 4.
Kh2 Bxg4 patt og jafntefli.
Emanuel Lasker samdi nokkrar
skákþrautir og tafllok, nokkur
bráðskemmtileg en Benkö þekkir
aðeins ein tafllok frá hendi Capa-
blanca og Aljekíns. Hér er staða
Aljekíns, samin 1933 en Aljekín var
heimsmeistari frá 1927 til 1945 að
árunum ’35-’36 undanskildum er
Euwe náði bikarnum. Hugmyndin
er skemmtileg. Hvítur leikur og
vinnur:
1. - Bh5 2. Hh4 K£2 3. Hg4! g2+ 4.
Kh2 Bxg4 og patt og jafntefli.
1. a6 Hh4 2. Hd8! Kxd8 3. a7 og vinn-
ur - peðiö verður aö drottningu.
Eða 1. - Hgl 2. a7 Hal 3. Ha3! og
vinnur.
Benkö segir að þessi tafllok hafi
margt sér til ágætis en annað mætti
þó betur fara. Til aö sanna mál sitt
birtir hann „endurbætta" útgáfu
sína af þrautinni, hvítur leikur og
vinnur:
1. Kgl! og brátt kemur í ljós að
svartur getur ekki stöðvað b-peðið.
Lítum á möguleikana:
A)l. - Hh6 2. He8! Kxe8 3. b7 og ný
drottning uppi.
B) l. - Hf4 2. Hb5! cxb5 3. b7 og aftur
rennur peðið upp í borð.
C) l. - c5 2. Hf5! Hxf5 3. b7 og vinnur.
„Eins og við sjáum er fimm peð-
um minna í þraut minni en þó kem-
ur hróksfómin dæmigerða einu
sinni oftar fyrir - nú í þremur útg-
áfum,“ segir Benkö og að mínum
dómi hefur hann fyllstu ástæðu til
aö vera stoltur yfir afkvæminu.
Látum næst á tafllok eftir Mik-
hail Botvinnik, frá 1939. Hvitur
leikur og vinnur:
Að sögn Botvinniks kom þessi
staða (með skiptum Utum) upp á
skákmóti með svarta hrókinn á dl.
Spassky-Hort árinu síöar. Hvítur á
leikinn og á að vinna tafliö:
1. f7! Ba3 2. Bg7 £3! 3. gxf3 Kd3 4.
f8=B!!
Vekur upp biskup því að ef hann
fær sér drottningu kemur 4. - e2 +
5. Kf2 (5. Kel Bxf8 6. Bxf8 Ke3 held-
ur jöfnu) Bc5+! 6. Dxc5 el = D + !
7. Kxel patt og jafntefli!
4. - e2+ 5. Kf2 el = D+ 6. Kxel Ke3
7. f4! Kxf4 8. Kf2
Og hvítur vinnur.
Þessa fallegu þraut treystir
Benkö sér ekki til að bæta.