Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.1990, Blaðsíða 25
LAUGARDAGUR 16. JÚNÍ 1990.
25
Reykjavík fyrr og nú
Á síðustu árum 19du aldarinnar
og fyrsta áratug þeirra 20ustu risu
við norðausturenda Tjarnarinnar
nokkur stórhýsi á reykvískan
mælikvarða þess tíma. Að Gúttó
undanskildu hafa öll þessi hús
staðist tímans tönn.
Öll þessi hús höfðu ómetanlega
þýðingu fyrir mannlíf Reykjavíkur
þegar þau voru reist. Þau voru á
sínum tíma byggð undir félagslega
starfsemi svonefnda en vinsældir
húsanna og notagildi þeirra hefur
verið með ólíkindum, allt fram á
þennan dag.
Hús með
hlutverk
Reyndar má segja að flest húsin
hafi á landsmælikvarða og um ára-
tuga skeið gegnt lykilhlutverki fyr-
ir þá starfsemi sem þeim var í upp-
haii ætlað að hýsa. Þannig var Iðnó
höfuðból íslenskrar leiklistar um
hálfrar aldar skeið og allt fram á
síðasta ár eitt vinsælasta leikhús
landsins, í Iðnaðarmannahúsinu
var stærsti iðnskóli landsins á ár-
unum 1906-1955 auk þess sem þar
var til húsa einn helsti gagnfræða-
skóhnn í Reykjavík, Miðbæjarskól-
inn hét Barnaskóli Reykjavíkur
þar til Austurbæjarskóhnn komst
í gagnið 1930 og var þangað til
stærsti barnaskóh landsins, og Frí-
kirkjan var lengi stærsta kirkjan í
Reykjavík.
Þess má reyndar geta um Miö-
bæjarskólann að sennhega hefur
engin íslensk skólabygging verið
eins gjörnýtt á jafnlöngum tíma en
þegar mest var umleikis á sjötta
og sjöunda áratugnum var stór
hluti skólans oft þrísetinn auk þess
sem Námsflokkar Reykjavikur
höfðu húsiö til umráða á kvöldin.
Þá hafa öh húsin verið nýtt th
margvíslegra tímabundinna nota.
Þau hafa öll verið samkomustaðir
við hátíðleg tækifæri bæjarlífsins
og þar haldnir sögihegir fundir.
Þannig var stofnfundur Eimskipa-
félags íslands haldinn í Iðnaðar-
mannahúsinu og síðan færður yfir
í Fríkirkjuna þegar húsrými þraut
við Vonarstrætið.
Miðbæjarskóhnn var sjúkrahús
er spánska veikin geisaði 1918 og
port skólans var lengi vinsælasti
vettvangur pólitískra æsinga-
funda. Á þriðjudaginn kemur
munu konur minnast sjötíu og
fimm ára kosningaréttar síns en
þá munu þær einmitt safnast sam-
an í portinu góða og fara fylktu liði
að Álþingishúsinu, sömu leið og
kynsystur þeirra gengu árið 1915.
Þá var Miðbæjarskóhnn eini
kjörstaður Reykvíkinga um ára-
tuga skeið og þar voru gjarnan
haldnar sýningar af ýmsu tagi yfir
sumartímann. Þessi viröulegu
timburhús við Tjörnina eru því
langt frá því að vera „uppstoppað-
ir“ safngripir þótt þau séu komin
th ára sinna.
Tjömin og
umhverfi hennar
Stóru timburhúsin við Tjörnina
settu sterkt svipmót á umhverfi
sitt og í áratugi hafa þau ásamt
Hljómskálagarðinum og húsaröð-
inni við Tjarnargötuna mótað hið
vinalega umhverfi Tiarnarinnar.
Kvosin byggðist á löngum tíma
og er því ólgandi suðupottur ólíkra
bygginga á misjöfnum aldri og af
mjög mismunandi stærð og gerð.
Stóru timburhúsin við Tiörnina
eru hins vegar öll reist á sama
skeiði og þrátt fyrir stílbrigðamun
Ljósmynd: Magnús Olafsson - Ljósmyndasafn Reykjavíkurborgar.
Fyrir sunnan
Fríkirkjuna
þeirra mynda þau þokkalega sam-
ræmda hehd nokkurra glæsileg-
ustu bygginga höfuðborgarinnar.
Hafi Reykvíkingar einhvern
minnsta áhuga á því að varðveita
hluta af sögu sinni og sérkennum
í umhverfinu þá er þeim lífsnauö-
synlegt að standa vörð um Tjörnina
og umhverfi hennar. Af þessum
sökum voru mótmæhn gegn ráð-
húsinu mjög skiljanleg. Ráðhúsið
er að vísu mjög glæsheg bygging
en það er vægast sagt álitamál
hvort gömlu timburhúsin við norð-
austurhornið þola nábýlið við svo
stóra byggingu, - hvort ráðhúsið
geri ekki gömlu „stórhýsin“ að
„kotungslegum timburhjöllum“
sem ráðamenn framtíðarinnar
telja tímabært að víki fyrir stein-
steypuhöllum.
Þá er auðvitað hætta á því að
DV-mynd Gunnar V. Andrésson
Umsjón:
Kjartan Gunnar
Kjartansson
ráðhúsið auki bhaumferð við
Tjörnina sem svo aftur krefjist
umhverfisspjalla á þessum slóðum.
Gamla myndin er tekin í fyrri
ráðherratíð Hannesar Hafsteins
eða nánar thtekið á árunum 1905-
1908. Þetta sést á því að Fríkirkjan
hefur verið lengd þegar myndin
var tekin en sú framkvæmd átti sér
st£(ð árið 1905. Suðurálma Mið-
bæjarskólans er hins vegar enn
ekki fullbyggð en hún komst í
gagnið árið 1908. Þá minnir gamla
myndin á þá staðreynd að Tjörnin
náði töluvert lengra austur áður
en Fríkirkjuvegurinn var lagður
og var þá vík í Tjöminni sem nú
myndi ná inn í Hahargarðinn.
Þegar Tómas Guðmundsson
skáld var ungur maður í MR á
seinni hluta annars áratugarins fór
hann á stefnumótin „fyrir sunnan
Fríkirkjuna" eins og fram kemur í
kvæðinu hans Fyrir átta árum.
Þetta gullfahega kvæði Tómasar
hefur sennilega verið oftar sungið
en önnur kvæða hans en þekktasta
lagið er eftir Einar Markan. Kvæð-
ið kom fyrst fyrir almenningssjónir
í annarri ljóðabók Tómasar, Fögru
veröld, sem fyrst kom út í nóvemb-
er 1932.
Tómas gat þess eitt sinn við vin
sinn Kristján Karlsson skáld að
bletturinn Sunnan við Fríkirkjuna
hefði á sínum tíma verið vinsæll
fyrir stefnumót ungra elskenda.
Þar hittist unga fólkið einnig meira
en hálfri öld síðar er Glaumbær var
vinsælasti skemmtistaðurinn.
í kvæðinu kemur einnig fram von
um líf að loknu þessu og reyndar
trúði Tómas á líf eftir dauðann. Sú
staðreynd minnir á skemmtilegan
draum skáldsins og hina hárfínu
„paradoxical" kímnigáfu Tómasar:
Morten Ottesen var góðvinur Tóm-
asar en öldungis trúlaus á líf eftir
dauðann og höfðu þeir oft karpað
um þá hluti. Skömmu eftir lát
Mortens dreymir Tómas að hann
komi th sín og segi: „Það er ei'ns
og ég hef alltaf sagt, Tommi minn.
Það er ekkert annað líf.“
URVAL - ALLTAF BETRAOG BETRA
Fjöldamorðín í Katyn-skógí
1 vor eru fimmtiu ór siðan 15.570 yfirmenn i pólska hernum hurfu sporlaust
meðan þeir voru i sovéskum striðsfangabúðum. Um þriggja ára skeið reyndi
pólska útlagastjórnin i London ásamt óttaslegnum fjölskyldum þessara manna
að hafa uppi á þeim. Tilraunir til þess báru engar árangur.
Hin ógleymanlega Lucílle Ball
Við munum elska Lucy og dá um ókomna tíð vegna alls hlátursins sem hún
skildi eftir sig. Við stöndum ennþá á öndinni þegar við sjáum hana á gluggasyll-
unni með íþróttahjálm á höfði og i víðum súpermannbúningí.
Stíng berst fyrír regnskógunum
i íslendingar vita að áróður umhverfissinna fer oft fram meira
af kappi en forsjá og að umfangsmikil samtök þeirra eru sum
hver ekkert annað en áróður sem gengur i auðtrúa fólk.
Eíntómar afsakanir
- sjö farartálmar á veginum til Iikamsræktar
Hvernig stendur þá á þvi að einungis þriðjungur roskins
fólks æfir sig i 20 mínútur á dag eða lengur? Ástæðurnar
eru margar.
NÁÐU ÞÉR1 ÚRVALNÚNA-ÁNÆSTABLAÐSÖLUSTffi