Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.1990, Side 35
LAUGARDAGUR 16. JÚNÍ 1990.
47
y&
Lífsstfll
Litlar, snotrar búöir með öðru-
vísi vamingi. Stærri búðir sem
leggja áherslu á gott úrval. Stór-
verslanir þar sem allt fæst bókstaf-
lega og maöur týnist. París er sann-
arlega veisla fyrir þá sem njóta
þess að rápa um búðir. Hvort sem
er í verslunarerindum eða bara til
að skoða, sem oft er ekkert síðra.
Því París er ekkert sérlega hentug
léttum pyngjum. En ef nægur tími
gefst til verslunar er hægt að detta
niður á ágætar vörur á viðráðan-
legu og jafnvel góðu verði.
Og hér er klassinn í fyrirrúmi.
Svo mikið er víst. Fallegt er það.
Og allt frá því að vera mjög gott til
þess allra allra besta. Eitthvað sem
fáa hefur dreymt um. Jafnt í
klæðnaði sem matvöru. París er
borg fagurkera.
En hvar skal byrja? Eins og
margir vita þá er París skipt í mörg
hverfi og bera verslanirnar nokk-
um keim af því hvar þær eru -
bæði í verði og stíl.
Byijum í Latínuhverfmu. Á Bo-
ulevard Saint Michel og þar í ná-
grenninu er allt fullt af litlum, sér-
stökum búðum sem gaman er að
kíkja í. Hér ræður unga fólkið sér
vart yfir kæti því nóg er af „flippuð-
um“ fótum og skartgripum sem
falla vel að þess smekk - og buddu.
Þeim eldri ætti heldur ekki að leið-
ast því sannarlega er nóg af versl-
unum sem selja ýmiss konar list-
rænan varning sem gleður augað.
Þá má ekki gleyma Rue Mouffetard
sem er göngugata full af fallegum
búðum og með skemmtilegum
útimarkaði. Þar er alltaf líf og fjör
og vel þess virði að rölta um.
St. Germain Des Prés-hverfið tek-
ur við af Latínuhverfmu. En líkt
og í því síðarnefnda eru litlar sér-
hæfðar verslanir í algleymingi. Á
Boulevard Saint Germain er mikið
af antikverslunum, bókabúöum og
tískuvöruverslunum. Á milli þess
sem tölt er um búðir mætti svo
bregða sér inn á tvö af þekktustu
kaffihúsum Parísar, Café Dueu
Magots og Flore. Þessi kaffihús eru
einkum fræg fyrir það að þar hafa
margir frægustu listamenn og rit-
höfundar setið löngum stundum.
Fjórfalt verð á
Champs-Élysées
Þá er komið að Champs Élysées,
líklega frægustu götu Parísar. Gat-
an liggur niður frá Sigurboganum,
þeim eina og sanna. Á þessari götu
er mikiö af tískuvöruverslunum og
eru þær oft opnar lengur en aðrar
búðir í borginni. Á Champs Élysées
er talsvert um sund inn af götunni
þar sem margar verslanir eru inn-
andyra. Þetta er vissulega hentugt
ef veðrið er ekki upp á það besta.
í þessum búðum er verðið dálítið
misjafnt en þó frekar í dýrari kant-
inum enda er hér um reglulega fin-
ar búðir að ræða. Þetta hverfi er
líka að öðru leyti nokkuö dýrt en
túrhestamir flykkjast jafnan þang-
að sökum frægðar blessaðrar göt-
unnar. Á kaffihúsunum á Champs
Élysées lendir fólk líka í því að
borga allt upp í fjórfalt verð fyrir
kaffibollann, miðað við það sem
tíðkast á mörgum öðrum stöðum.
Næst liggur leiðin til Les Halles.
Nánar tiltekið til Forum des Halles
sem er yfirbyggt verslunarsvæði
sem að mestu leyti er neðanjarðar.
Hér eru hátt í tvö hundruð verslan-
ir sem einkum höfða til þeirra sem
sækjast eftir tískufatnaði. Og úr-
valið er gífurlegt og það sem meira
er, hér er hægt að fá hátískufatnað
á viðráðanlegu verði. (Viðráðan-
legt verð er samkvæmt skilgrein-
ingu blaðamanns svipað verð og
hér heima og jafnvel lægra.) En sé
tíminn ekki mikill til verslunar er
snjallt að bregða sér í Forumið, því
þar fæst allt. Ekki síst í fatnaði.
Þeir sem hafa gaman af því að
stinga fallegum hlut til heimilisins
í ferðatöskuna ættu líka að finna
eitthvað við sitt hæfi þarna. Nokkr-
ar búðir, sem til dæmis versla með
málaða trémuni, (sem nú eru mikið
í tísku) eru þarna til húsa á næst-
neðstu hæðinni. Þess má geta að á
neðstu hæðinni er endastöð Met-
Horft ofan af Sigurboganum og eftir hinni frægu götu Champs-Élysées.
París:
Verslunarborg
fagurkerans
lega hluti.
rósins góða (neðanjarðarlestanna)
og er því einkar þægilegt að kom-
ast þaðan og þaðan.
En ef farið er út úr Foruminu og
út á götu blasir við torgið í Les
Halles-hverfmu þar sem mörg
skemmtileg kaffihús eru. Fyrir
framan þessi kaffihús eru oft ein-
hverjar skemmtilega uppákomur.
Látbragð, eftirhermur, tónlistar-
uppákomur og fleira. Er þaða góð-
ur endir á verslunarferð í Forum-
inu. Og þarna í næstu smágötum
er margt lítilla búða sem selja sitt-
hvað óvenjulegt. Einnig er talsvert
um búðir sem selja notaðan, vel
með farinn fatnað á góðu verði. Þar \
má fmna margan glæsilegan kjól-
inn, glimmerfatnað og ýmislegt
annað skemmtilegt.
Stórverslanir
En bregðum okkur í stórverslan-
ir. Þær eru óneitanlega margar.
Þær þekktustu eru Galeries Lafay-
ette og Printemps. Þessar verslanir
eru hlið við hlið á Boulevard
Haussmann. Hér fæst allt milli
himins og jarðar. Einfalt mál. Og
verðlagið er eins íjölbreytt og varn-
ingurinn sem þar er á boðstólum.
Ekki er ætlunin að úthsta vöruúr-
vahð neitt nánar eh sérstaklega er
elsti markaður Parísar. Hér fæst
allt milli himins og jarðar.
bent á sund- og nærfatadeildimar
í báðum þessum búðum sem vart
sjást glæsilegri. Einnig er skódeild-
in í Printemps ævintýri líkust -
sem og heimsókn í heimilisdeild
Printemps sem er á nokkrum hæð-
um í næsta húsi við fataverslunina.
Þá liggur leiðin á Rue de Faubo-
urg Saint-Honoré. í sem stystu
máli: Hér fæst allt það dýrasta og
fínasta sem til er. En það er viss
upplifun aö kíkja í glugga verslan-
anna þar. Ekki síður að fylgjast
með þeim fjölmörgu bílstjórum
sem halla sér upp aö Jagúurunum
á meðan fínar frúr hafa brugðið sér
inn og keypt sér kjól eða kristal
eins og hann gerist bestur.
Það er ekki nokkur leið að ætla
að gera verslun í Paris fullkomin
skil í stuttri grein sem þessari.
Ætlunin einungis að gefa smá inn-
sýn inn í þessa paradís verslunar-
þyrstra.
Listaverka-
búðir sælkerans
Blaðamaöur fékk á ferð sinni í
París mest út úr því að ráfa á milli
hinna ýmissu ólíku gatna sem
verða á vegi manns. Það eru ótrú-
legustu smábúðir sem þannig
koma í ljós. Listaverkabúðir sæl-
kerans eru ævintýri líkastar.
Stundum var vart hægt að trúa því
að það væri fæða sem til sýnis var
í gluggum. Lystilega meðhöndlað-
ur ljúffengur maturinn varð að
hreinum hstaverkum. Auðvelt er
að gleyma sér f þess háttar skoðun-
arferðum. Bakaríin og súkkulað-
ibúðirnar sem einungis selja vörur
sínar í hki ávaxta, blóma og ann-
arra figúra fá jafnt augun sem
bragðlaukana th að kætast. Væn-
legast er kannski að hætta sér ekki
inn fyrir dyr í þess háttar búðum,
láta bara „gluggaverslun" nægja
og ímynda sér í staðinn að verið
sé á hstaverkasýningu og auðvitað
verða fyrir áhrifum. Og langi þig
til dæmis í bók um dans þá er það
htið mál. Bókabúðir, sem sérhæfa
sig í ótrúlegustu fyrirbærum, eru
alls staðar. Utimarkaðirnir eru líka
heimur út af fyrir sig. Og þannig
mætti lengi, lengi telja...
-RóG.