Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.1990, Qupperneq 46

Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.1990, Qupperneq 46
Mikiabi 58 LAUGARDAGUR 16. JÚNÍ 1990. Afmæli Björg Þorsteinsdóttir Björg Þorsteinsdóttir húsmóöir, Háaleitisbraut 24, Reykjavík, er sjö- tugídag. Björg fæddist í Reykjavík og ólst þar upp frá níu ára aldri en árin 1921-30 bjó fjölskylda hennar í Mjóafirði og á Seyðisfirði. Björg stundaði píanónám í Reykjavík hjá Katrínu Viðar. Síðar aðstoðaði Björg við ýmsa kennslu í skólum þar sem maður hennar stjórnaöi úti á landi. Björg stundaði íþróttir á sínum yngri árum og eftir að hún ílutti til Reykjavíkur aftur 1971 hefur hún starfað mikið að íþróttamálum innan frjálsíþrótta- hreyfmgarinnar og verið heiðruð fyrir starf sitt af íþróttafélagi Reykjavíkur, Frjálsíþróttasam- bandi íslands og Reykjavíkurborg. Björg giftist 17.10.1953 Jóakim Pálssyni kennara, f. í Hnífsdal 20.11. 1913. Foreldrar hans voru Páll Guð- mundsson, ættaður frá Kirkjubóli í Bjamadal í Önundafirði, smiður og síöast íhússtjóri, og kona hans, Guð- rún Sólborg Jensdóttir, dóttir Jens Jónssonar í Arnardal. Björg og Jóakim eiga tvo syni. Þeir eru Gunnar Páll Jóakimsson, f. 21.8.1954, kennari í Reykjavík, og Birgir Þorsteinn Jóakimsson, f. 24.5. 1962, auglýsingateiknari í Reykja- vík, en sambýliskona hans er Unnur Jensdóttir píanókennari. Systkini Bjargar: Magnús Marinó Þorsteinsson, f. 1910, d. 1980, smið- ur, var kvæntur Ástu Eyjólfsdóttur. og Aðalheiöur Þorsteinsdóttir, f. 1912, húsmóðir, var gift Ingólfi Kristjánssyni sem lést 1985. Faðir Bjargar var Þorsteinn Tóm- asson skipasmiður, f. 4.6.1884, d. 1.5.1958. Faðir Þorsteins var Tómas Tómasson, sonur Tómasar Jónsson- ar og Salvarar Snorradóttur en þau bjuggu á Arnarhóli í Vestur-Land- eyjum. Móðir Þorsteins var Stein- unn Ögmundsdóttir, dóttir Ög- mundar Ögmundssonar frá Aura- seli í Fljótshhð og konu hans, Guð- rúnar Andrésdóttur. Föður sinn missti Þorsteinn á þriðja ári og ólst hann upp hjá Steinunni móður sinni og Snorra Grímssyni í Skipagerði í Vestur-Landeyjum. Móðir Bjargar var Björg Magnús- dóttir, f. í Ánanaustum í Reykjavík, 8.2.1879, d. 1954. Faðir Bjargar var Magnús Guðmundsson í Ánanaust- um, sonur Guðmundar Árnasonar, bónda í Kópavogi, og konu hans, Þuríðar Magnúsdóttur frá Litlahálsi í Grafningi. Móðir Bjargar var Björg Þorsteinsdóttir. Margrét Bjömsdóttir, dóttir Björns Guðlaugssonar frá Hurðarbaki í Kjós. Björg verður að heiman á af- mælisdaginn. Guðrún Ragnheiður Rögnvaldsdóttir Guðrún Ragnheiður Rögnvaldsdótt- ir, Bólstaðarhlíð 45, Reykjavík, er sjötíu og fimm ára í dag. Guðrún fæddist að Hnausakoti í Miðfirði í Vestur-Húnavatnssýslu en ólst upp frá sex ára aldri að Foss- koti í Miðfirði hjá fósturforeldrum sínum, Jóni Jónssyni bónda þar og konu hans, Elísabetu Benónýsdótt- ur, ásamt tveimur uppeldissystkin- um, Jóni Jónssyni og Guðrúnu Jónsdóttur en þau eru öll látin Guðrún gekk í Reykholtsskóla í Borgarfírði 1932-34. Hún flutti til Hafnarflarðar 1938 og bjó þar til 1947 en flutti þá til Reykjavíkur þar sem hún rak söluturn í nokkur ár. Guð- rún haföi þá jafnframt heimilis- störfunum lengst af unnið við af- greiðslustörf og framreiðslu og þjónustustörf, m.a. á Brytanum, Röðh og í Austurstræti 4. Guðrún giftist 1938 Jóni Óskari Guðlaugssyni, f. 14.9.1915, fyrrv. yfirverkstjóra á Kletti í Reykjavík, en hann er sonur Guðlaugs Gísla- sonar, sjómanns í Garði. Guörún og Óskar slitu samvistum. Guðrún giftist 1950 seinni manni sínum, Eiríki Elí Stefánssyni, f. 19.6. 1921, skrifstofustjóra. Sonur Guðrúnar frá fyrra hjóna- bandi er Grétar H. Óskarsson, f. 3.3. 1938, flugvélaverkfræðingur og framkvæmdastj óri loftferðaeftirhts Flugmálastjórnar, kvæntur Ingi- björgu G. Haraldsdóttur, f. 19.4.1942, féhiröi Alþýðusambands íslands, og eigaþau þrjúböm. Börn Grétars og Ingibjargar era EiríkurÁImar Grétarsson, f. 14.8. 1964, flugvélaverkfræðingur hjá Flugleiðum hf., Ragnheiður Ýr Grétarsdóttir, f. 26.8.1966, háskóla- nemi, gift Ólafi Sverrissyni verk- fræðinema, f. 27.3.1965, og Haraldur Eyjar Grétarsson, f. 24.3.1969, sem var að ljúka stúdentsprófi. Alsystkini Guðrúnar: Björg Rögn- valdsdóttir, f. 19.1.1920, búsett á ísafirði og Rögnvaldur Rögnvalds- VIDE0 HEIMAR Fákafeni 11, sími 687244 Hagkaup I 41 Bónus Faxafen Ý VIDEO ^HEIMAR Skeiöarvogur r Eigum stórglœsilegt úrval mynda bœði nýrra og eldri. Allt efni efnisflokkað. ATH.! 5 hver spóla frí. Góó afgreiósla - nœg bílastœói. son, f. 14.7.1921, búsettur í Kópa- vogi. Hálfsystini Guðrúnar samfeðra: Bjarni Rögnvaldsson, f. 16.9.1904, var búsettur í Hafnarílrði, nú látinn; Sólrún Elín Rögnvaldsdóttir, f. 6.8. 1906, var búsett í Reykjavík, nú lát- in; Rögnvaldur Rögnvaldsson, f. 21.10.1912, var búsettur á Akureyri, nú látinn; Jón Björgvin Rögnvalds- son, f. 15.3.1915, búsettur á Akur- eyri. Hálfsystir Guðrúnar sam- mæðra er Hjördís Jónsdóttir, f. 28.3. 1930, búsett í Hafnarfirði. Foreldrar Guðrúnar voru Rögn- valdur Hjartarson Líndal, f. 15.7. 1876, d. 27.12.1920, bóndi í Hnausa- Guðrún Ragnheiður Rögnvaldsdótt- ir. koti í Miðfirði í Vestur-Húnavatns- sýslu, og Þorbjörg Guðmundsdóttir, f. 22.2.1892, d. 1976, húsfreyja og matráðskona. Guðmundur Wiium Stefánsson Guðmundur Whum Stefánsson, bóndi að Fremri-Nýpum í Vopna- firði, er fimmtugur í dag. Guðmundur fæddist í Fagra-Dal í Vopnafirði og ólst upp í Vopnafirði ogíHveragerði. Guðmundarkvæntist 21.12.1963 HólmfríðiKristmannsdóttur.f. 1.3. 1940, bónda, dóttur Kristmanns Magnússonar verkamanns í Vest- mannaeyjum, og Sigríðar R. Sigurð- ardóttur húsmóður. Foreldrar Guðmundar: Stefán G. Guðmundsson, f. 3.6.1906, d. 22.3. 1966, trésmíöameistari, og Inga Wh- um, f. 22.2.1907, kennari og húsmóð- ir. Þau hjónin Guðmundur og Hólm- fríður hafa hugsað sér að halda upp á afmæli sín með garðveislu þann 7.7. nk. ef veður leyfir og bjóða sveitunga sína og vini velkomna. Til hamingju með afmælið 16. júní 85 ára Elin Einarsdóttir, Hún dvelst nú á Seli, hjúkrunardeild Fjóröungssjúkrahúss Akureyrar. ara Lára J. Sigurðardóttir, Bólstaðarhlíö 41, Reykjavík. Vallholti 31, Selfossi. Hulda Jónsdóttir, Tjamargötu 24, Keflavik. Elín Sœmundsdóttir, Vesturbergi 23, Reykjavík. 50 ára 75 ára Guðrún Auðunsdóttir, Túngötu 43, Reykjavík. Kristín Elísabet Hólm, Hörgslundi 11, Garðabæ. Selma Óiafsdóttir, Neöra-Skarði, Leirár- og Melasveit. Guðbjörg Bjarnadóttir, Einibergi 3, Hafharfirði. Sigriður Helgadóttir, Víðilundi 14F, Akureyrí. 40 ára Sighvatur Gísiason, Suðurgötu 49, Keflavík. Hjáiraar K. Helgason, Hofsvailagötu 17, Reykjavfk. 60 ára Kolbrún Þorvaidsdóttir, Þverbrekku 4, Kópavogi. Halla Hjartardóttir, Hvammi, Hvammshreppi. Sigríður O. Þorgeirsdóttir, Erna Óiadóttir, Laxárvirkjun IB, Aðaldælahreppi. Sigrún Gísladóttir, Fögrukinn 1, Hafnarfirði. Guðinundur Gunnars.son, Heiöarbóli 49, Keflavík. Andrés Árni Baldursson, Holtsgötu 25, Miðneshreppi. Jóna Ágústa Adolfsdóttir, Víðigrund 15, Akranesi. Ólafur Tryggvl Kjartansson, Spítalavegi 9, Akureyri. Birna Gunnarsdóttir, Eyjabakka 30, Reykjavík. Hákon Jónsson, Vaðli II, Barðastrandarhreppi. Solvi M. Egilsson, Neöstabergi 12, Reykjavik. LAUSAMOLa er margra IUMFEROAR RÁD

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.