Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.1990, Side 9
FÖSTUDAGUR 7. SEPTEMBER 1990.
9
PV_______________________________Útlönd
Fimm myrtir á jámbrautarstöð 1 Jóhannesarborg:
Skutu á fólkið
af stuttu færi
-flórtán særðust í árásinni, átta þeirra alvarlega
Lík blökkumanna lágu illa útleikin á brautarstööinni en morðingjarnir hurfu
í mannfjöldann um leið og fólk þusti út.
Símamynd Reuter
Tveir menn vopnaðir byssum
gengu í gær inn á járnbrautarstöð í
miðborg Jóhannesarborgar og hófu
skothríð á farþega með þeim afleið-
ingum að fimm menn létu lífið og
fjórtán særðust, þar af átta alvarlega.
Byssumennirnir skutu á fólkið af
stuttu færi þar sem mannþröngin
var þéttust á brautarstöðinni. Mikil
skelfing greip um sig svo allir sem
gátu þustu út og hurfu morðingjarn-
ir í mannfjöldann.
Lögreglan segir að morðingjarnir
hafi byrjað á að ganga upp að fólkinu
og skjóta það. „Við höfum ekki hug-
mynd um hver var tilgangurinn með
morðunum. Þetta virðist hafa verið
ofbeldisverk þar sem fórnarlömbin
voru valin af tilviljun," sagði tals-
maður lögreglunnar.
Veggir brautarstöðvarinnar ötuð-
ust blóði og þegr lögreglan kom á
staðinn lágu líkin illa útleikin á gólf-
inu og helsært fólk reyndi að skríða
í átt að útgöngudyrunum.
F.W. de Klerk forseti segir að of-
beldisverk síðustu daga í Jóhannes-
arborg geti ekki leitt til annars en
að bið verði á viðræðum við Afríska
þjóðarráðið um afnám aðskilnaðar
kynþátta í landinu. Hann segir að
útilokað sé að ræða málin af nokkru
viti meðan bardagar geisa á götum
úti.
Frá því síðasta lota ofbeldisverka
hófst í Suður-Afríku hafa nú um 600
manns látið lífið. Enn var barist í
Soweto í gær og þar særðust þrettán
manns. Þá er vitað að fjórir létu lífið
í Merafe, öðru úthverfi Jóhannesar-
borgar.
Leiðtogar blökkumanna halda
áfram að skiptast á skömmum. Nel-’
son Mandela, varaforseti Afríska
þjóðarráðsins, sakar Buteleshe, leið-
toga zúlúmanna, um að vilja skjóta
sér leið að samningaborðinu. Þjóðar-
ráðið hefur til þessa komið fram sem
málsvari allra blökkumanna í
landinu en zúlúmenn vilja tala sínu
máh sjálfir. Þjóðarráðið nýtur hins
vegar stuðnings xhosa.
Ekkert lát virðist vera á ofbeldis-
öldunni í landinu. Mörg vitni full-
yrða að hvítir hafi gengið í lið með
zúlúmönnum. Það eru einkum
hægrisinnaðir öfgamenn sem hafa
gert sér mat úr átökunum og segja
að þau sýni vel hvernig ástandið
verður í landinu ef hvítir menn fara
frá völdum.
Reuter
*
Til sölu eru lóðir undir sumarhús í nýskipu-
lögðu hverfi á jörðinni SEYÐISHÓLUM í
Qrímsnesi. Stærð lóðanna er á bilinu 5000
m2-10.000 m2. Lóðimar liggja í mishæð-
óttu landi sem er kjarrivaxið að hluta. Á
svæðinu er mjög góður útsýnisstaður,
skemmtilegur lækur, góð aðstaða íyrir
varðeld og samkomur og frátekið svæði
fyrir íþróttir og leiki.
Upplýsingar gefnar í síma 91-10600 milli
kl. 10 og 12 alla virka daga.
Laugardaginn 8.9. verður svæðið til sýnis og sölu-
maður til viðtals á staðnum frá kl. 13.00-17.00.
Eallegt land - Góðir greiðsluskilmálar
„Hvað tókstu marga
ökutíma?“
Ekki segja
„Ég tók ekki ...nema...
Segjum frekar
„Það þurfa allir að
gefa sér góðan tíma
í ökunámi!"
UUMFERÐAR
RÁÐ
Eiturlyfjastríðið í Kólumbíu á enda?
Eiturlyfjabarónum
boðin sakaruppgjöf
Tilboð Cesars Gaviria, forseta
Kólumbíu, um sakaruppgjöf eitur-
lyfjasmyglurum til handa hefur
mælst mjög vel fyrir í landinu.
Sögðu menn að tilboðið væri for-
senda þess að koma mætti á friði í
landinu án blóðsúthellinga.
Það olli þó óvissu að forsetinn
ákvaö á sama tíma að framselja til
Bandaríkjanna þijá smyglara sem
handteknir voru fyrir nokkrum
mánuðum. Margir ráðherrar í
stjórninni voru andvígir framsal-
inu og vildu að nýja tilboðið gilti
fyrir þá sem þegar væru komnir
bak við lás og slá.
Forsetinn hefur beint orðum sín-
um til Pablo Escobar og sagt að
hann fái sakaruppgjöf gefi hann sig
fram nú þegar. Escobar er voldug-
astur allra eiturlyfjabarónanna í
landinu og hefur verið hundeltur
síðustu mánuði. Sakaruppgjöfin er
þó ekki alger því mennirnir eiga
yfir höfði sér dóma heima í Kól-
umbíu en stjórnin heitir því að
senda þá ekki til Bandaríkjanna.
Ekkert hefur enn heyrst frá Es-
cobar og öðrum eiturlyfjabarónum.
Þeir hafa sterka stöðu í landinu
þrátt fyrir að Bandaríkjamenn hafi
lagt fram verulegt fé og vopn til að
reka stríðið gegn þeim.
Nokkrir smyglarar hafa verið
handteknir á undanförnum mán-
uðum en árangur stjórnvalda í
kókaínstríðinu hefur samt verið
sorglega lítill. Escobar hefur slopp-
ið úr öllum gildrum stjórnarhers-
ins þótt höfuðáhersla hafi verið
lögð á að hafa hendur i hári hans.
Vinsældir Escobars fara vaxandi
eftir því sem vörn hans gegn hern-
um verður ævintýralegri. Stjórnin
telur því miklu fórnandi fyrir að
ná honum á sitt vald. Það hefur
verið reynt með illu frá því á síð-
asta ári en nú á að reyna með góðu.
Gaviria hefur aðeins setið á for-
setastóli í einn mánuð. Hann hefur
lofað því að dómar yfir þeim smygl-
urum sem gefa sig fram verði ekki
þungir. Fangelsisvist styttist t.d.
um helming ef menn ganga mót-
þróalaust á vald lögreglunni.
Bandaríkjamenn hafa fallist á til-
boð forsetans. Dick Thornburgh,
dómsmálaráðherra Bandaríkj-
anna, sagði að það hefði alltaf verið
markmiðið að koma smyglurunum
bak við lás og slá og ef stjórninni
í Kólumbíu tækist það með þessum
hætti gætu Bandaríkjamenn ekki
verið annað en sáttir.
Reuter
AUKABLAÐ
Hús og húsbúnaður
Miövikudaginn 19. september mun aukablað
um hús og húsbúnað fylgja DV.
Meðal annars verður Qallað um heimilistæki, tæki og innrétting-
ar í eldhús og bað, gólfefni, húsgögn og ýmislegt
annað innanstokks
Þeir auglýsendur, sem hafa áhuga á að auglýsa í þessu auka-
blaði, hafi samband við auglýsingadeild DV
hið fýrsta í síma 27022.
Vinsamlegast athugið að skilafrestur auglýsinga í þetta auka-
blað er til fimmtudagsins 13. september.
Auglýsingadeild