Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.1990, Side 12
12
Spumingin
FÖSTUDAGUR 7. SEPTEMBER 1990.
Spumingin
Hvað ætlarðu að gera um
helgina?
Gunnlaugur R. Sigurðsson verka-
maður: Ég ætla á tónlpika með
Whitesnake.
Nanna Magnadóttir nemi: Ég ætla á
Whitesnake ef ég fæ miða eða þá í
bíó að sjá Gremlins. Svo ætla ég aö
sofa.
Stefán Jónsson nemi: Ég ætla á
Whitesnake og einnig að laga bílinn.
Þorlákur Runólfsson garðyrkjumað-
ur: Ég ætla á Whitesnake.
Einar Ólafur Indreason: Ég veit það
ekki. Það er ekkert ákveðiö.
Bergsveinn Sigurðsson: Ég ætla að
fara út að skemmta mér. Fer í Duus-
hús á laugardag.
Lesendur
Kosningar og prófkjör:
Endurnýjunar er þörf
H.M. skrifar:
Ég ætla að byrja á því að taka
undir lesendabréf sem birtist í DV
í gær (5. sept.) undir fyrirsögninni
„Kosningar í haust“. Þetta eru orð
í tíma töluð. Sú ríkisstjórn sem nú
situr og kveður væntanlega sem
fyrst er sú alversta samsteypu-
stjórn sem lengi hefur setið hér og
hafa þær þó margar verið slæmar.
Þeir stjórnmálamenn sem eru
mótfallnir því að hafa kosningar í
haust eru annaðhvort hræddir við
að komast ekki að aftur eða þá að
þeir óttast eingöngu prófkjörin sem
hafa jú verið skeinuhætt mörgum.
Þaö er allt annar handleggur að
láta hinn almenna flokksmann
kjósa um sig í leynilegri kosningu
en þegar allt er lagt upp í hendum-
ar á viðkomandi með því einu aö
stilla nafni hans í nokkuö öraggt
sæti á framboðslista. - Þá aðferð
ætti aldrei að viðhafa.
Ég er nú orðinn nokkuð roskinn
þegn og hef alltaf kosið Sjálfstæðis-
flokkinn og sótt flest gott til þess
flokks. Mér finnst hins vegar að
flokkurinn megi ekki láta undan
þrýstingi þaulsetinna þingmanna,
nú eða nýliða, sem ef til vill vilja
ekki gangast undir prófkjör. - Próf-
kjör er eina marktæka mælistikan
ef mæla á vilja og óskir flokks-
manna.
í fréttum er sagt frá því að nokk-
uð margir ungir sjálfstæðismenn
hugsi sér til hreyfings fyrir næstu
kosningar. Ég segi einfaldlega við
þá; verið aUir velkomnir, þaö eruð
þið sem eigið að spreyta ykkur á
úrlausn þjóðmálanna. Ykkar tími
er kominn. Ef ég mætti ráða núna
myndi ég vilja endurnýja mest af
þinghði SjáU'stæðisflokksins, bæði
í Reykjavík og úti á landsbyggð-
inni.
Hvað Reykjavíkurþingmenn
varðar myndi ég vilja endurnýja
aUan listann, líklega þó að undan-
teknum Geir Haarde sem hefur
haft sig mjög í frammi um flest mál
sem uppi hafa verið og tekið þar
mið af stefnu síns flokks en ekki
þjónkað við aðra flokka eins og
margir eru sýnilega farnir að gera
- eða láta alls ekki heyra í sér, sem
er þó algengara.
Ég lit björtum augum til framtíð-
arinnar ef við fáum mikla end-
urnýjun á þingUsta sjáifstæðis-
manna. Ég vil að þann Usta skipi
vaskir menn og trúir sjálfstæðis-
stefnunni og menn sem hafa unnið
fyrir flokkinn frá því þeir hófu af-
skipti af stjórnmálum. - Menn sem
ekki hafa unnið fyrir flokkinn og
koma jafnvel úr öðrum flokkum
eiga ekki erindi í framboð fyrir
þennan flokk, menn sem hafa lagt
flokkinn í einelti árum saman og
fundið honum aUt tU lasts. Hvernig
dettur þeim í hug að bjóða sig fram
fyrir Sjálfstæðisflokkinn?
Ég vænti þess að vel takist í þeirri
baráttu sem óhjákvæmUega fer
fram á stjórnmálasviðinu næstu
vikur og mánuði og að kosningar
verði strax að afloknum prófkjör-
um. - En umfram aUt; ekki kosn-
ingar án prófkjöra. Þá snúast menn
öndverðir gegn sínum flokki.
Dallas á
videospólur
Einar Óskarsson hringdi.
Eftir að farið var að læsa Dallas-
þáttunum á Stöð 2 hef ég og margir
aðrir sem ekki greiöa myndlykilnot
' tU stöðvarinnar orðið af þessum
skemmtUegu þáttum. Hér áður voru
J þessir þættir ólæstir hjá Stöð 2 og
gátum við Dallas-aðdáendur þá fylgst
með þessum annars prýðilega gerðu
sjónvarpsþáttum. Einhverjir hafa
haft það í flimtingum að Stöð 2 hafl
byijað að rugla þættina þegar harðn-
aði í ári þar og ætlað að ná inn fleiri
áskrifendum með því að senda þessa
þætti út ruglaða.
Aðrir segja að Stöð 2 hafi ávaUt
sent þessa þætti óruglaða vegna þess
að samningar kveði svo á að bannaö
sé að senda Dallas-þætti út óruglaða
og þeir séu hvergi sendir í lokaðri
sendingu nema hér á landi. Ekki veit
ég hvað satt er í þessu en hitt veit
ég að nú er ekki lengur hægt að sjá
Dallas nema vera áskrifandi að Stöö
2.
Fyrir nokkrum árum var hægt að
fá Dallas-þættina leigða á spólum
sem fyrirtækið Olís var meö á bens-
ínstöðvunum. Nú fyndist mér ekkert
nema sjálfsagt að þeir sem eru með
videospóluleigu færu af stað með
Dallas-þætti til að leigja út til allra
sem vilja halda áfram að sjá þessa
þætti en eiga þess ekki kost nema að
vera áskrifendur að Stöð 2.
Ég skora hreinlega á Videoleigur
að ná samningum um að fá Dallas á
spólum svo að við þurfum ekki að
verða útundan. Það eru ekki aUir
sem vUja gerast áskskrifendur aö
tveimur sjónvarpsstöðvum og þótt
við ætlum ekki að gerast doktorar í
Dallasþáttum þá eru margir sem
vilja alls ekki missa af þessari feikna-
vinsælu þáttaröð sem hefur farið og
fer enn sigurfór um víða veröld.
Fleiri f innska
Anton, Jón og Rúnar skrifa:
Við hvetjum Ríkissjónvarpið til að
endursýna hina bráðsmellnu
finnsku þætti, „Sjö bræður" hið
fyrsta. - Þættirnir hafa allt tíl brunns
að bera sem góðir framhaldsþættir
þurfa að hafa, spennu, kímni og ekki
síst framúrskarandi myndatöku.
Frændur okkar, Finnar, sýna það
og sanna með þessari myndaseríu,
að þeir eru fremstir meðal jafningja
í gerð framhaldsþátta fyrir sjónvarp,
og ætti RÚV að verða sér úti um
fleiri finnska framhaldsþætti sem
fyrst. - Með fyrirfram þökk fyrir
birtinguna.
Uppsagnir hjá blaðsnepli:
Og hvað um það?
I.Þ. skrifar:
Ógn er að vita! - Nú hefur þjóðin
fengið margar og fjálgar frásagnir
af því í fjölmiðlum að starfsfólki á
einhverju vikublaði
störfum. Ótal viðtöl og hástemmd-
ar yfirlýsingar um meint pólitískt
samsæri og dæmalaus iilvirki flæö-
ir dag eftir dag yfir sjónvarpsskjáí,
dagblöð og Öldur ljósvakans.
En ég bara spyr si svona; Hvem
fjárann varðar 250 þúsund manns
um þetta mál? - Heldur fjölmiðla-
fólk að hræringar innan þessarar
atvinnugreinar séu eitthvað merki-
legri fyrirbæri en ef starfsfólki,
t.a.m, í járnsmiðju eða frystihúsi,
er sagt upp störfúm?
Ekki er rokiö upp til handa og
fóta og höfð viðtöl við alla sem í
næst þótt þeir sem ábyrgð bera á
einum litlum vinnustað ákveði að
einhverjum hluta.
Enda þótt margt fjölmiðlafólk
telji sig nafla alheimsins og búk-
sorgjr þess séu um leið áhyggjuefni
alþjóðar má þaö vita að flestir
landsmenn láta sig uppsagnir eða
tilfærslur á einhverjum blaðsnepli
engu skipta og yppta öxlum yfir því
moldvíðri sem þyrlað er upp - í
hæsta lagi fer í taugarnar á fólki
aö þurfa að sitja undir slíku rugli.
- Þannig fór að minnsta kosti fyrir
mér.
var sagt upp skipta um starfsfólk að öllum eöa
Ekki vantar a.m.k. verkefnin hér að vetrinum. - En ekki er sopið kálið ...
Svarta rósin
-■ .'
E.A.F. skrifar:
Frá menntaskólaaldri var ég alltaf
þeirrar skoðunar að prentfrelsi væri
mikfrvæg mannréttindi. Ég er ennþá
þessarar skoðunar - nema að mér
finnst að fréttamenn ættu að koma
sér saman um að skýra ekki frá því
nákvæmlega eöa í smáatriðum,
hvernig tiltekin afbrot eru framin. -
Reynslan hefur sýnt að afbrot eru
smitandi. • •
Fyrir nokkrum árum fannst lík af
konu einhvers staðar í Kaliforníu,
ef ég man rétt. Það var í sjálfu sér
ekkert óvenjulegt enda morð í
Bandaríkjunum tíð. En það sem var
óvenjulegt við líkfundinn var þaö að
á líkamann hafði verið máluð svört
rós.
Mörg blöð birtu frétt um þetta mál
og eins og skýrt var frá í vísindariti
einu, flóð af „svörtu-rósar“ morðum
fylgdi á eftir. - Fólk sem var að ein-
hverju leyti geðveikt, eða vildi kom-
ast í blöðin, jafnvel nafnlaust, hafði
fengið hugmyndina.
Morð eru ekki algeng á íslandi, sem
betur fer, en í blöðum er mjög mikið
skrifaö um ofbeldi, stuldáávísunum,
og fleira í þeim dúr. Ég hefi tekið
eftir því að frásagnir af þessum hlut-
um eru mjög nákvæmar og fleiri af-
brot eru framin daglega. - Ég myndi
telja heilbrigðara að skrifa um um
það t.d. hvernig lögreglan náði af-
brotamönnunum eða unglingunum
og hvernig þeim var refsað.
Fyrir nokkru sá ég í blaöi einu að
í Vestur-Þýskalandi var unglingum
refsaö með því að láta þá hreinsa
skólabyggingar og að vetrinum
mætti sem best beita þeirri refsingu
að láta viðkomandi hreinsa ísingu
af gangstéttum. - Það yrði sparnaður
fyrir borgarsjóð, sparnaður vegna
sjúkrahúsvistar og aðstoð við fólk
sem annars yrði fyrir slysum.