Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.1990, Qupperneq 13

Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.1990, Qupperneq 13
13 FÖSTUÖAGUR 7. SEPTl 1990. Lesendur „Venjulega þarf meira til en listsköpun og fagkunnáttu leikhúsmannsins til að reka leikhús, ekki sist ríkisleik- hús,“ segir m.a. i bréfinu. Ráðning þjóðleikhússtjóra: Hver fær starf ið? Egill Sigurðsson skrifar: Ég er undrandi á því fjaðrafoki sem hugsanleg umsókn þingmannsins Ragnars Arnalds um stöðu þjóðleik- hússtjóra hefur valdið. Mér finnst satt að segja mjög niðurlægjandi fyr- ir þá aðila sem staðið hafa að áskor- un til menntamálaráðherra um að ráða ekki annan en „leikhúsmennt- aðan“ mann að standa að svona áskorun. Enginn sem komið hefur nálægt leikhúsi í skapandi starfi, hvort sem hann er leikari eða leik- ritahöfundur, leikstjóri eða leik- myndagerðarmaður, er öðrum fremri sem hugsanlegur leikhús- stjóri. Hitt er svo annað mál að það þarf venjulega meira til en hstsköpun og fagkunnáttu leikhúsmannsins til að reka leikhús, ekki síst ríkisleikhús. Þingmaðurinn Ragnar Arnalds er prýöilega vel menntaður maður og hefur m.a. lokið lögfræðiprófi. Hann er þaulkunnugur innviðum fjármála ríkisins sem fyrrverandi fjármála- ráðherra og er því einn af hinum æskilegustu mönnum sem til greina koma til að stjórna svo að segja hvaða fyrirtæki sem er - ekki síst opinberu sem þarfnast sífellt eftirlits og viðmiðunar við það sem lagt er fram til reksturs af opinberri hálfu. Ég get satt að segja ekki séð að neinn af hinum annars ágætu lista- mönnum sem sækja um starf þjóð- leikhússtjóra éigi erindi í það starf og eru hæfileikar þeirra mun betur geymdir fyrir áhorfendur og áheyr- endur þessarar ágætu stofnunar sem Þjóðleikhúsið er. - Vonandi finnst samt viðundandi lausn á ráðning- unni. En hætt er við að ráðning úr þeim umsækjendahópi ■ sem eftir stendur valdi meiri sárindum og úlf- úð en ef þingmaðuririn og leikrita- höfundurinn Ragnar Arnalds hefði fengið samstöðu hinna áköfu áskor- enda sem vildu hafa hönd í bagga með ráðningu æðsta yfirmanns Þjóð- leikhússins. Styrkir til háskólanáms í Mexíkó Mexíkönsk stjórnvöld bjóða fram tvo styrki handa (slendingum til háskólanáms í Mexíkó á háskólaárinu 1990-91. Styrkir þessir eru ætlaðir til framhaldsnáms eða rannsókna að loknu háskólaprófi. Styrkfjárhæðin nemur 315 Bandaríkjadölum á mánuði. Umsækjend- ur þurfa að hafa góða kunnáttu í spænsku og vera yngri en 35 ára. Umsóknir skulu berast menntamálaráðuneytinu, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík, fyrir 30. september nk. og fylgi staðfest afrit prófskírteina ásamt með- mælum. Sérstök eyðublöð fást í ráðuneytinu. Menntamálaráðuneytið 5. september 1990 Menningarsjóður íslands og Finnlands Tilgangur sjóðsins er að efla menningartengsl Finn- lands og íslands. I því skyni mun sjóðurinn árlega veita ferðastyrki og annan fjárstuðning. Styrkir verða öðru fremur veittir einstaklingum. Stuðningur við samtök og stofnanir kemur einnig til greina ef sérstak- lega stendur á. Umsóknir um styrki úr sjóðnum fyrir árið 1991 skulu sendar stjórn Menningarsjóðs Islands og Finnlands fyrir 30. september nk. Áritun á (slandi: Menntamála- ráðuneytið, Sölvhólsgötu 4, 1 50 Reykjavík. Æskilegt er að umsóknir séu ritaðar á sænsku, dönsku, finnsku eða norsku. Stjórn Menningarsjóðs íslands og Finnlands. 5. september 1990. Líðanin í eyðimörkinni Magnús T. Ólafsson skrifar: Eitt af sérkennum lesendabréfa í íslenskum blöðum er fyrirferð pistla frá fólki sem fmnur hjá sér þörf til að tjá bjargfasta sannfær- ingu um efni sem það hefur ber- sýnilega ekkert vit á. - Úr þessum heilaspunaflokki talar Sigurður Gunnarsson, sem í DV 31.8. fettir fmgur út í það sem ég ritaði í Er- lendum tíðindum fyrir nokkru um hðan hermanna úr tempraða belt- inu, sérstaklega frá Bandaríkjun- um, í eyðimörk Arabíuskaga. Meginstaðhæfing Sigurðar er þessi: „Nú á dögum talar enginn um þorsta í eyðimörkum eða að hiti sé til trafala þjálfuðum her- mönnum." - Vefengir hann sér- staklega það sem skýrt var frá um vökvunarþörf hermanna viö skil- yrðin sem ríkja þarna syðra. Það nægir að vitna í eitt einasta fréttaskeyti til að sýna fram á hald- leysi hugarburðar Sigurðar um al- fullkomnun herbúnaðartækninn- ar. Molly Moore er fréttamaður Washington Post með bandaríska hernum í Saudi-Arabíu. Henni seg- ist svo frá: „í Saudi-Arabíu hefur hitinn reynst skæðasti óvinur bandarísku hermannanna... „Mesta tilhiökkunarefni hvern dag er að geta sest niður í skugga og þarnbað vatn,“ segir Burke höfuðs- maður en hann hefur eins og allir aðrir yfirmenn landhers Banda- ríkjanna í Saudi-Arabíu skipað mönnum sínum að drekka að minnsta kosti fjögur til sex gallón (15 til 23 htra) af vatni á dag... Margir hermannanna, sem eru vanir að ganga í léttum frumskóga- vinnubúningum á æfingum, segja að sér hafi fallið allur ketill í eld, þegar þeir komust að raun um að sandlitu eyðimerkurvinnubúning- arnir eru jafnþungir og vetrarein- kennisbúningar... Vindar eins og úr bræðsluofni og hitinn hafa orðið til þess að lækningasveitir vinna látlaust við að lækna hitastreitu, bólguþorsta og uppþornun hkam- ans en eyðimörkin fer hka iha með útbúnaðinn. Landgönguliðar á verði við hafn- arhhð hma loftþétt efni um hlaupin á M-16 rifilum sínum. „Vopn okkar eru svo nákvæmt smíðuð að sand- urinn fer iha með þau,“ sagði for- ingi landgönguliða.“ Miklu meira af sama tagi má lesa í helgarblaði International Herald Tribune frá fyrri helgi (25.-26. ágúst). Sigurði skal loks bent á að í enskumælandi herjum í heims- styrjöldinni síðari varð til skamm- stöfunin SNAFU fyrir þessa lýs- ingu á daglegu ástandi í hernaði eins og það blasti við óbreyttum liðsmanni: „Situation normal, all fucked up“ (lausleg þýðing: Ástandið eðhlegt, allt í ólestri). - Frásagnir síðustu ára af aðgerðum stórveldaheija, jafnt í Afghanistan, Grenada og Panama, sýna að þetta spakmæli stendur í fuhu gildi. Hringið í síma 27022 milli kl. 14 og 16 eða skrifið ATH.: Nafn og sími verður að fylgja bréfum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.