Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.1990, Page 17

Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.1990, Page 17
FÖSTUDAGUR 7. SEPTEMBER 1990. 25 DV Iþrótti} Arnórof stórbiti Kristján Bernburg, DV, Belgiu; Ekkert verður úr því að Arnór Guðjo- hnsen gangi til liðs við belgíska 1. deildar liðið Ekeren. Aðstoðarþjálfari Ekeren, Rik Van Goethem, sagði í samtali viö blaða- mann DV í fyrradag að verðið, sem And- erlecht setti á Arnór, væri alltof hátt fyrir smálið eins og Ekeren. Einnig myndi fé- lagið eklú ráða við að borga Amóri 10 milljónir í árslaun. Ekeren hatði mn tíma áhuga á Amóri en þegar þaö spurðist út hvað Anderlecht vildi fá fyrir hann dofnaði áhugi forráða- manna Ekeren um leið. Á miðvikdags- kvöldið fylgdust sendimenn tveggja fran- skra liða með Amóri í landsleiknum. Handknattleikur: FH tapaði Flugleiðamótið í handknattleik hófst í Hafnarfirðí í gærkvöldi. Fíögur.hð taka þátt í mótinu að þessu sinni: FH, Stjarnan, Paris Asnieres og Vat Margareten. í fyrsta leik mótsins sigraði Stjaman austurríska liðið Vat Margareten með 27 mörkum gegn 17 eftir að austurríska liöið hafði tveggja marka forystu í hálfleik, 9-11. Ingvar Ragnarasson, markvörður Stjörnunnar, sýndi mjög góðan leik i síðari hálfleik. Sigurður Bjarnason var markahæstur í liði Stjörnunnar, skoraði 7 mörk, Magnús Sigurðsson 6 og Hafsteinn Bragason 4. FH tapaöi fyrir Paris Asnieres en með liðinu leikur Júlíus Jónasson. Lokatölur leiksins urðu 19-22 en I hálfleik var staðan 9-10 fyrir franska liðið. Óskar Ármanns- son skoraði 7 mörk fyrir FH en Júlíus skoraði 4 mörk fyrir Paris Asnieres. Mótið helduf áfram kl. 19 í kvöld. -tlKb Enn græða félögin í Rúmeníu Enn halda rúmensk knattspyrnufélög áfram að græða peninga. Nú hefur vestur- þýska liðið Bayer Uerdingen keypt rúm- enska varnarjaxlinn Michael Klein frá Dynamo Bukarest. Nafn varnarmannsins er ekki mjög rúmenskt enda er hann af þýskum ættum. Klein lék með liöi Rúmena á HM á Ítalíu og þótti standa sig mjög vel. Hann er 31 árs og hefur leikið 82 landsleiki fyrir Rúmeníu. Líklega er landsliðsferill hans þó á enda runninn því Klein var ekki val- inn í lið Rúmena sem mætir Skotum í undankeppni Evrópukeppninnar næsta miövikudag. Klein gerði eins árs samning við þýska liðið og var kaupveröið tæpar 30 milljónir króna. Rúmensk félög hafa selt marga snjalla leikmenn undanfarið, eða frá falli Nicolae Ceausescu. Félögin eru nú vellauðug sem aldrei fyrr og hafa forráðamenn liðanna örugglega aldrei séð aðrar eins fúlgur fjár og þeim hafa áskotn- ast frá falli forsetans. -fc)K i Björn Sigtryggsson körfuknattleiksmað- ur hefur ákveðið að ganga til liðs við Hauka í Hafnarfirði og leika með félaginu á næsta keppnistímabili. Bjöm hefur um árabíl leikiö með Tindastóli á Sauðárkróki farin ár, í stöðu framherja. Haukar æfa nú undir stjórn nýs þjálf- ara, en þaö er Bandaríkjamaðurinn Glenn Thomas, og einrug gekk tilliðs við félagið Mike Noblik, tæplega tveggja metra hár Bandaríkjamaður, og eru forráðamenn Hauka mjög ánægðir með báða tvo. -GH Baráttan um íslandsmeistaratittlinn að ná hámarki: Toppliðin setja sóknina á oddinn - fjögur efstu liðin eiga erfiða leiki fyrir höndum á morgun A morgun, laugardag, fer fram næstsíðasta umferðin í 1. deild Islands- mótsins í knattspymu en mótið hefur ekki verið eins spennandi í mörg ár. Fjögur lið berjast um íslandsmeistaratitilinn og eiga þau öll erfiða leiki fyrir höndum á morgun. Efsta liðiö, Fram, leikur gegn Stjörnunni í Garöabæ, KR leikur gegn ÍA á Akranesi, ÍBV mætir Víkingi .í Stjörnu- gróf og Valsmenn taka á móti FH. Á botninum er keppnin ekki síður spennandi en Akurnesingar halda enn í vonina að halda sæti sínu 1. deild. Þór og KA eigast við á Akureyri, Þór er þegar fallið í 2. deild og KA er enn með falldrauginn í eftirdragi. KA nægir eitt stig í leiknum gegn Þór til að halda sæti sínu í 1. deild og þar með væru þá Akurnesingar fallnir í 2. deild. Svona mætti endalaust spá í spilin bæði á toppnum og í botnbaráttunni. DV náði tali af einum leikmanni frá hverju félagi sem stendur í toppslagnum og spurði þá út í leik- inn sem bíður þeirra á morgun og eins um aðrar viðureignir: Atli Eðvaldsson: „Við eram búnir að bíða eftir leikn- um við Akurnesinga í heila viku og má með sanni segja að spennan sé nú í algleymingi. Við KR-ingar förum fúllir bjartsýni í leikinn á Akranesi á morgun. Engu að síður verður þetta erfiður leikur því Akumesingar lifa í voninni að halda sæti sínu í 1. defld og verða af þeim sökum mjög grimmir gegn okkur. Það er mikjl stemning í lið- inu hjá okkur fyrir þessum leik og við munum ekki gefa þumlung eft- irsagði Ath Eðvaldsson, leikmað- ur KR. Um aðrar viðureignir á morgun sagði Atli: „Ég hef trú á að mitt gamla félag, Valur, sigri FH-inga. Þetta verður mjög jafn leikur en Valsmenn hafa þetta af í lokin. Eyjamenn vinna Víking og Fram- arar með allt þetta reynslumikla lið hljóta að vinna Stjörnuna. Framar- ar leika best undir álagi en Stjarn- an hefur leikið mjög vel í undan- förnum leikjum og mun örugglega ekkert gefa eftir,“ sagði Atli Eð- valdsson. Þorgrímur Þráinsson: „Við verðum að leika til sigurs á morgun gegn FH, ekkert annað kemur til greina í okkar huga. FH-liðið er sýnd veiði en ekki gefin, sem siglir lygnan sjó í deildinni. FH-ingar léku vel á móti Fram á dögunum og munu eflaust veita mótspymu og ljúka íslandsmótinu meö reisn. Við Valsmenn setjum sókriarleikinn á oddinn á morg- un,“ sagði Valsmaðurinn Þorgrím- ur Þráinsson. „Skagamenn eiga ennþá von og ég spái þeim sigri gegn KR í mikl- um baráttuleik. Eyjamenn hafa gert ótrúlega hluti í 1. deild í sumar og það verður mikil pressa á þeim í þessum leik. Víkingar hafa í sjálfu sér að engu að keppa en þetta vqrð- ur markaleikur og ég tippa á að lokatölur verði 3-3. Stjarnan getur leikið aflslappað á móti Fram. Stjarnan hefur tekið stig af topplið- unum og í fljótu bragði er mjög erfitt að spá fyrir um úrslit í þess- um leik. Það er seigla í Fram-liðinu og raunar getur allt gerst í þessari viðureign," sagði Þorgrímur Þrá- insson. Pétur Ormslev: „Sigur er það eina sem kemur til greina gegn Stjörnunni á morgun. Við munum leggja þunga áherslu á sóknarleikinn, leika skynsam- lega og sýna þolinmæði. Stjörnu- liðið hefur eflst með hverjum leik, unnið hvern leikinn á fætur öðrum og öðlast um leið aukið sjálf- straust. Eg á von á hörkuleik og vonandi fögnum við sigri í lokin,“ sagði Pétur Ormslev, fyrirliöi Fram. Um aðrar viðureignir sagði Pét- ur: „Ég hef ekki trú á öðm en KR- ingar klári dæmið á Akranesi með sigri. Skagamenn munu þó örugg- lega berjast eins og ljón og veita KR harða keppni. Það er erfitt að leika gegn Víkingum og ÍBV á eftir að finna áþreifanlega fyrir því. Það er engin pressa á Víkingum og því spái ég þeim sigri á morgun. Vals- menn hafa kraft til aö rífa sig upp eftir ósigurinn gegn KR um síðustu helgi og það nægir til að sigra FH- inga, sem sýndu góðan leik gegn okkur í síðustu umferð,“ sagði Pét- ur Ormslev. Sigurlás Þorleifsson: „Það er engin spurning að við verð- um að vinna leikinn gegn Víkingi enda gerum við okkur fulla grein fyrir því. Hins vegar eru Víkingar ekki auðunnir og við verðum að sýna góðan leik til að leggja þá að velli. Að mínu mati erum við búnir að ná okkar takmarki í 1. deild og úr þessu höfum við engu að tapq , Á hinn bóginn er mjög gaman að taka þátt í þessari toppbaráttu og úr þvi sem komið er munum við hvergi gefa eftir. Það lið sem hefur heppnina með sér í leikjum tveim- ur sem eftir eru verður íslands- meistari. Ég ætla að vona að fylgis- menn okkar á Reykjavíkursvæð- inu fiölmenni á leikinn, þeir bregð- ast okkur ekki frekar en fyrri dag- inn,“ sagði Sigurlás Þorleifs- son, þjálfari og leikmaður Eyjaliðs- ins. „Hvað aðra leikir snertir býst ég fastlega við að KR-ingar sigri Akur- nesinga. Á pappírnum eru KR- ingar sterkari en auðvitað getur allt gerst því mikið er í húfi fyrir Skagamenn. Valsmenn eiga undir eðlilegum kringumstæðum að vinna FH-inga en allir þessir leikir eru keimlíkir og þvi erfitt að spá fyrir um úrslit. Stjarnan er á góðri siglingu um þessar mundir og ég vona að hún gefi ekkert eftir í leiknum gegn Fram. Samt er það trú mín að Framarar reynist sterk- ari í þessari viðureign og hirði öll þrjú stigin,“ sagði Sigurlás Þor- leifsson. -JKS IBV... Valur. ..16 ..16 9 9 Stjarnan....16 8 FH..........16 Víkingur....16 KA..........16 ÍA..........16 Þór.........16 3 31-29 31 4 25-18 30 6 21-17 26 8 22-26 20 5 16-16 19 1 10 17-24 16 2 11 17-31 11 3 11 7-22 9 • Eftirtalin lið eigast við í síðustu tveimur umferöunum: 17. UMFERÐ 8. SEPTEMBER: AKRANES-KR STJARNAN-FRAM VALUR-FH VÍKINGUR-ÍBV KA-ÞÓR 18. UMFERÐ 15. SEPTEMBER: FRAM-VALUR ÍBV-STJARNAN ÞÓR-VÍKINGUR KR-KA FH-ÍA • Atli Eðvaldsson segir að góð stemmning sé í liðinu fyrir leikinn gegn Akurnesingum á morgun. • Þorgrimur Þráinsson segir að allt verði sett í sóknarleikinn gegn FH-ingum. • Pétur Ormslev spáir hörkuleik gegn Stjörnunni i Garðabæ á morgun. • Sigurlás Þorleifsson hjá IBV segir Víkinga ekki auðunna í Stjörnugrófinni. Síðasta stigamót FRÍ Lokamót stigakeppni Frjálsíþróttasambands íslands fer fram á Varmár- velli í Mosfellsbæ á morgun. Þeir hafa rétt til þátttöku á lokamótinu sem náð hafa flestum stigum í fyrri mótum sumarsins. Keppendur á mótinu verða 100 talsins frá 12 félögum og samböndum. Gífurlega hörö keppni er í karla- og kvennaflokki og þá sérlega hjá konun- um. Þar eru Birgitta Guðjónsdóttir, UMSE, Martha Ernstdóttir, ÍR, Oddný Árnadóttir, ÍR, og Þórdís Gísladóttir, HSK, í fiórum efstu sætunum með 24 stig en Valdís Hallgrímsdóttir, UMSE, og Fríða R. Þórðardóttir, UMFA, eru með 22. í karlakeppninni er Einar Einarsson, Ármanni, efstur með 30 stig. Andrés Guðmundsson, HSK, er næstur með 26 og Pétur Guðmundsson, HSK, þriðji með 24 stig. Sjóvá-Almennar gefa öll verðlaun. -SK Fimleikaþjálfari óskast hjá fimleikadeild Fylkis. Uppl. í síma 673379.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.